Morgunblaðið - 19.09.2019, Side 39
D+K2
Dlux +K2 vítamín
vinna saman að
viðhaldi og heilbrigði
beina og hjarta
D 3000
Dlux 3000 munnúði,
hver úði innheldur
3000 a.e.
D 1000
Dlux 1000 munnúði,
hver úði inniheldur
1000 a.e.
JUNIOR
Dlux Junior munnúði
fyrir 3 ára og eldri, hver
úði inniheldur 400 a.e.
INFANT
Dlux Infant munnúði
fyrir ungabörn, hver
úði inniheldur 400
a.e. og er bragðlaus
VÍTAMÍNSPREY SEM TRYGGJA HÁMARKSUPPTÖKU
Kynning
Ekki gleyma
að taka
D-vítamín
í vetur!
Rekja má allt að 100 mismunandi sjúkdóma og
sjúkdómseinkenni til skorts á D-vítamíni. D-Lúx
munnúðarnir frá Better You skila vítamíninu beint út í
blóðrásina og tryggja hámarks upptöku.
D-vítamín gegnir gríðarlega víðtækuhlutverki í líkamsstarfsemi okkarog hafa fjölmargar rannsóknir
gefið okkur vísbendingar um hversu
alvarlegar afleiðingar D-vítamín skortur
hefur í för með sér. Það þurfa allir hér á
landi að taka inn D-vítamín og það frá
fæðingu.
Beinþynning og D-vítaminskortur
D vítamínskortur er algengur í vestrænum
löndum en hann getur haft mjög
alvarlegar afleiðingar til lengri tíma.
Skiptir þetta vítamín t.a.m. sköpum
fyrir heilbrigt ónæmiskerfi, starfsemi
vöðva og fyrir sterkar tennur og bein.
Rannsóknir gefa þó til kynna að það
gegni mun víðtækara hlutverki en talið
var og það sé í raun grundvallarefni til að
viðhalda heilsu og fyrirbyggja sjúkdóma.
Vitað er um a.m.k. 100 mismunandi
sjúkdómseinkenni eða sjúkdóma sem
tengjast D vítamínskorti. D-vítamín er
talið leika lykilhlutverk gegn bólgum í
líkamanum og skortur getur átt þátt í því
að ónæmiskerfið virkar ekki sem skyldi.
Einnig getur orðið aukin hætta á öllum
helstu krabbameinum, hjartasjúkdómum,
minnisglöpum, sykursýki 1 og 2, MS,
liðagigt, smitsjúkdómum og jafnvel
meðgöngueitrun.
D-vítamínskortur á norðlægum slóðum
Sérfræðingar við Friedman School of
Nutrition Science and Policy hafa birt
rannsóknir sem gerðar voru á skólabörnum
í Boston og sýndu að allt að 90% þeirra voru
í D-vítamín skorti. Einnig kom þar fram
að þeir sem eru í ofþyngd, með dökka húð
og/eða lifa á norðlægum slóðum séu oftar í
skorti en aðrir. Í september á síðasta ári voru
birtar niðurstöður klínískra rannsókna við
þennan sama skóla þar sem skoðað var hvað
það þyrfti mikið magn í daglegri inntöku
af D-vítamíni til að hækka gildin hjá þeim
börnum semmældust í skorti. Í ljós kom að
stærstur hluti barnanna þurfti að taka 2000
a.e. (alþjóðlegar einingar) af D-vítamíni í 6
mánuði til að ná ásættanlegum gildum en
hámarksskammtur fyrir 9 ára og eldri er
4000 a.e. á dag. Þetta segir okkur að ef um
D-vítamín skort er að ræða, dugir ekki að
taka bara ráðlagðan dagsskammt, enda eru
eru þeir hugsaðir til að viðhalda þeim gildum
sem fyrir eru, ekki til að hækka þau.
Skortur á Íslandi
Landskönnun á mataræði 6 ára barna á
Íslandi frá 2011–2012 sýndi að einungis um
25% barnanna fékk ráðlagðan dagskammt eða
meira af D-vítamíni og var neysla fjórðungs
barna undir lágmarksþörf (2,5 μg/dag. Þessar
tölur eru væntanlega orðnar betri í dag en
það er full þörf á stöðugri umfjöllun þar sem
þetta vítamín er okkur svo lífsnauðsynlegt.
Önnur rannsókn frá 2004 leiddi í ljós að
15% Íslendinga 30 ára og eldri þjáist af
D-vítamínskorti. En á þeim tíma taldist vera
skortur ef gildin voru undir 25 nmól/l sem er
af mörgum erlendum sérfræðingum talið allt
of lágt viðmiðunargildi. Síðan þessi rannsókn
var gerð hefur Landlæknisembættið hækkað
skortsmörkin í 50 nmol/l en ákjósanlegast er
að hafa gildin á bilinu 75-125 nmol/l.
Hvar fáum við D vítamín
D-vítamín er ekki eins og önnur vítamín
sem við getum fengið úr fjölbreyttri fæðu
en aðeins um 10% af D-vítamíni kemur úr
matnum. Sólin er helsta og besta uppspretta
D-vítamíns en það verður til í líkama okkar
vegna áhrifa UVB geisla sólarinnar á húðina.
Þetta gerist eingöngu þegar hún er mjög hátt
á lofti og ef hún skín á stóran hluta líkamans.
Því er erfitt fyrir fólk á norðlægum slóðum að
tryggja sér nægilegt magn nema kannski rétt
yfir hásumarið. Landlæknisembættið hvetur
fólk til þess að taka D-vítamín sérstaklega á
formi bætiefna.
D-vítamín frá fæðingu
Allir þurfa að taka inn D-vítamín og er
ráðlagt að gefa ungabörnum það nánast alveg
frá fæðingu eða um 2 vikna aldur. D-lúx
munnspreyin frá Better You eru hönnuð
sérstaklega með þetta í huga en munnsprey
fyrir yngstu krílin eru bragðlaus og innihalda
ráðlagðan dagsskammt í einum úða.
Munnúði kemur einnig í veg fyrir magaónot
semmargir kannast við.
Munnsprey frá Better you
Nú er komin heildstæð lína af D-vítamín
munnspreyjum sem henta hverju aldursbili
fyrir sig og í réttum skammtastærðum.
Spreyin eru einnig góð fyrir þá sem vilja
hækka gildin sín og svo eru þau afar
bragðgóð og auðveld í notkun. Munnsprey er
góður kostur þar semmeltingin okkar getur
verið undir álagi og dregið úr frásogi en með
því að úða D-lúx út í kinn förum við framhjá
meltingarkerfinu og tryggjum hraða og mikla
upptöku.
DLúx hentar grænmetisætum og
sykursjúkum, sem og þeim sem eru á
glúteinlausu fæði.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og
heilsuhillur verslana
„D-vítamínskortur er algengur
í vestrænum löndum en hann
getur haft mjög alvarlegar
afleiðingar til lengri tíma.
Skiptir þetta vítamín t.a.m.
sköpum fyrir heilbrigt
ónæmiskerfi, starfsemi vöðva og
fyrir sterkar tennur og bein“
Hrönn
Hjálmarsdóttir
Heilsumarkþjálfi