Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 30

Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 30
ári og sé það í takt við tíðarandann, æ fleiri leggi metnað í að flokka sorp og skila á viðeigandi staði. Kristján segir fyrirtæki, mat- vöruverslanir, hótel og veitingastaði vel geta flokkað betur en gert er nú og þar liggi tækifæri. „Ég hygg að fæstar matvöruverslanir flokki líf- rænan úrgang, útrunnar vörur eru yfirleitt urðaðar, því miður,“ segir hann.    Svalbarðsstrandarhreppur býður eldri borgurum upp á svo- nefndar þriðjudagsmáltíðir, einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Þetta er þriðji veturinn sem þessi háttur er hafður á. Um það bil 10 til 12 manns og ekki alltaf þau sömu mæta hverju sinni, en blásið var til leiks nú í liðinni viku með rjúkandi kjötsúpu. Fólkið kemur saman í mötuneyti Valsárskóla og á þar góða samverustund. Nemendur í tónlist- arskólanum koma gjarnan fram og leika nokkur lög fyrir hópinn, fólkið gæðir sér á krásum í boði sveitar- félagsins og yfir þeim eru heims- málin rædd. Að sjálfsögðu er svo kaffisopi á eftir. Björg Erlingsdóttir, sveit- arstjóri í Svalbarðs- strandahreppi, segir eldri borgara ánægða með framtakið og sjálf reynir hún að vera með á þessum sam- verustundum. „Fólkið hittist svo þess á milli hér hjá mér á skrifstofu sveit- arstjórans. Þau leggja undir sig fundar- herbergið og bjóða upp á kaffi og kökur, smurt brauð og ýmsar krásir sem þau hafa með sér, þetta er svonefnt Pál- ínuboð. Það er mikið spjallað um alls kyns menn og málefni og auðvitað hlegið heil ósköp. Ég sest oft inn til þeirra og nýt stundarinnar með þeim þegar færi gefst,“ segir Björg. Sveitarfélagið er ekki bara rausnarlegt við elstu borgarana í hreppnum. Þau yngstu fá einnig að njóta þess því Svalbarðsstrandar- hreppur rukkar foreldra og forráðamenn barna í leik- og grunnskóla ekki um matarkostnað. Morgun- og hádegismatur er í boði sveitarfélagsins. Björg segir að kostn- aður hreppsins sé um það bil 800 þúsund krónur á mánuði fyrir bæði grunn og leik- skóla en þar er að auki í boði kaffitími um miðjan dag. Sá háttur er hafður á að sæti eru merkt og krakkarnir draga og geta því lent í sæti úti um allan matsal. Það virkar vel og eldri nemendur aðstoða þá yngri ef á þarf að halda. Björg segir að eftir hrun hafi farið að bera á því að foreldrar væru að spara morgunmatinn og það var leyst með því að bjóða upp á hann endurgjaldslaust. Í kjölfarið var ákveðið að bjóða einnig upp á mat í hádeginu án endurgjalds.    Hið fornfræga félagsheimili Hlíðarbær í Hörgársveit var selt á dögunum. Kaupsamningur var und- irritaður nýverið, sveitarfélagið seldi, Regla Musterisriddara á Ak- ureyri keypti. Musterisriddarar tóku við rekstrinum nú á mánudag og ætla að sögn Snorra Finnlaugs- sonar, sveitarstjóra í Hörgársveit, að nýta húsið undir sína starfsemi en reka að auki félagsheimili í svip- uðum dúr og var. „Við erum ánægð með að þetta gekk upp, það er nokk- uð síðan við auglýstum húsið til sölu. Nú er það selt, verðið var ágætt og við stöndum í heilmiklum fjárfest- ingum í sveitarfélaginu og getum því vel nýtt þessa fjármuni í aðra upp- byggingu,“ segir Snorri. Áfram verður hægt að leigja húsið undir tækifærisveislur af öllu tagi svo sem verið hefur, sem og til funda- og ráðstefnuhalds og þá gerir Snorri ráð fyrir að sveitarfélagið efni þar til skólaslita Þelamerk- urskóla áfram líkt og verið hefur. En það voru einu beinu notin sem sveit- arfélagið hafði af húsnæðinu. „Það er mjög gott fyrir okkur að losna undan því að reka húsið og nýta söluandvirðið í önnur og þarfari verkefni.“    Bruggverksmiðjan Kaldi á Ár- skógsströnd framleiðir léttbjór sem heitir Vertu kaldur og heldur að auki utan um styrktarverkefni með sama heiti. Það fé sem inn kemur af sölu á léttbjórnum fer í samnefnt styrktarverkefni. Bruggsmiðjan hef- ur staðið fyrir Vertu kaldur verkefn- inu tvö undanfarin ár og hefur Krabbameinsfélag Akureyrar og ná- grenni notið afrakstursins. Nú um daginn afhenti starfsfólk Brugg- smiðjunnar félaginu styrk að upp- hæð 2,5 milljónir króna. Á liðnu ári nam upphæði 1,8 milljónum króna. Auk þess sem léttbjórinn var í boði var hægt að styrkja verkefnið með kaupum á armbandi sem starfsfólk Bruggsmiðjunnar hannaði. Molta Kristján Ólafsson, framkvæmda- stjóri Moltu í Eyjafirði. Molta, máltíðir, mjöður og Must- erisriddarar Ljósmynd/Kaldi Átak Söfnun starfsfólks Bruggsmiðjunnar á Árskógssandi skilaði 2,5 milljónum króna sem Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis nýtur góðs af. Myndin var tekin nýverið við afhendingu á afrakstri söfnunarinnar. Morgunblaðið/Margrét Þóra Hlíðarbær Hörgársveit hefur selt Reglu Musterisriddara félagsheimilið. ÚR BÆJARLÍFINU Margrét Þóra Þórsdóttir Eyjafjörður Jarðgerðarstöðin Molta í Eyja- fjarðarsveit fagnar 10 ára afmæli í ár. Frá því fyrirtækið hóf starfsemi hefur það tekið á móti rúmlega 63 þúsund tonnum af lífrænum úrgangi sem ella hefði verið urðaður. Með því hefur verið komið í veg fyrir los- un á 100 þúsund tonnum af koltví- sýringi sem jafngildir losun allra fólksbíla í Eyjafirði í tvö ár. Úrgangur berst til Moltu frá Skagafirði í vestri til Norður- Þingeyjarsýslu í austri, slátur- úrgangur kemur einnig til vinnslu frá Akureyri og Húsavík. Molta þyk- ir ágætis áburðargjafi og nýtist í hvers konar ræktun og uppgræðslu.    Kristján Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Moltu, kynnti starf- semi félagsins á fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar Eyjafjarðar- sveitar á dögunum. Að því er fram kom á fundinum er farið að bera að- eins á því að plast berist inn í stöðina með flokkuðu lífrænu efni sem tekið er inn til moltugerðar. Kristján sagði að unnið væri að lausn, en til er ljómandi fínt tæki sem flokkar plast frá lífræna úr- ganginum. Það kostar reyndar pen- ing og óvíst hvenær félagið hafi ráð á að ráðast í slík kaup. Jarðgerðarstöð Moltu er starf- andi á lóð neðan við bæinn Þverá í Eyjafjarðarsveit. Samningur um lóðina gildir til ársins 2038. Kristján segir að hugað sé að öðrum framtíð- arstað undir starfsemina, „við erum að skima eftir nýjum stað einhvers staðar í Eyjafirði, það er engin pressa á okkur ennþá, en mjög lík- lega þurfum við stærri lóð innan tíð- ar,“ segir Kristján en félagið þarf 5 til 10 ha. lóð. Sorpmagn sem skilað er inn til fyrirtækisins aukist ár frá Morgunblaðið/Margrét Þóra 30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 Íslenska verkfræðistofan Vista hef- ur gert samning við veðurstofuna í Katar um sölu á hugbúnaðarlausn sem Vista hefur þróað. Nefnist hún Vista Data Vision, VDV, og er not- uð til að safna og birta mæligögn frá sjálfvirkum mælistöðvum í jarð- tækniverkefnum, sem og við um- hverfis- og veðureftirlit. Veðurstofa Katar mun á næstu misserum vinna að uppsetningu 50 regnmælistöðva víðsvegar um Doha, höfuðborg Katar. Starfs- maður Vista mun fara til Doha og aðstoða við að koma verkefninu af stað og þjálfa starfsfólk veðurstof- unnar í notkun hugbúnaðarins. Markmið verkefnisins er að kort- leggja betur úrkomu í Doha, sem hefur aukist á undanförnum árum og flóð verið algeng. Tveir starfsmenn veðurstofunnar voru nýlega hér á landi og funduðu með verkfræðistofunni. Heimsókn þeirra var einnig nýtt til að heim- sækja Landsvirkjun og Veðurstofu Íslands, sem einnig nota VDV- hugbúnaðinn. Veðurstofan í Katar kaupir af Vista Z-brautir & gluggatjöld Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Úrval - gæði - þjónusta Rafdrifnar rúllugardínur Mælum, sérsmíðum og setjum upp Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is viðkemur rafhitun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.