Morgunblaðið - 19.09.2019, Side 44

Morgunblaðið - 19.09.2019, Side 44
Höllu konuna hans enda fylgdi hún honum eins og klettur í gegn- um lífið. Minninguna um kæran tvíbura- bróður föður okkar varðveitum við um ókomna tíð. Elsku Halla, Þorvaldur, Þor- björn Helgi, Margrét og fjölskyld- ur, við sendum okkar hjartans samúðarkveðjur til ykkar allra. Sigríður, Bryndís, Ragnheiður og Íris Halla Guðmundsdætur. Með þungu hjarta kveð ég þig, kæri frændi. Ég er hins vegar þakklátur fyrir að nú hefur þú fengið þinn frið og verðskuldaða hvíld eftir líf vel lifað og erfið veik- indi. Nú eru orðin nokkur ár síðan við héldum ítrekað að þú værir að skilja við eftir langvarandi legu og ég man ekki lengur hvað ég kvaddi þig oft á sjúkrahúsi, full- viss um að við myndum ekki hitt- ast aftur í þessu lífi. En þú áttir fleiri líf en kötturinn, var orðið orðtak í fjölskyldunni þessi síð- ustu ár. Fyrir mér er það bara sönnun þess úr hverju þú varst gerður, óslítandi harðjaxl og næstum því ódrepandi. Alla vega einu sinni kvaddi ég þig á leið heim til borgar englanna og þú varst meðvitundarlaus með ein- hverja sýkingu, sem í þeóríunni átti ekki að batna. En svo vakn- aðir þú bara nokkrum dögum seinna, tilbúinn í næstu lotu. Undanfarin ár hafa verið sér- staklega lærdómsrík fyrir mig, því ítrekað hefur það komið mér á óvart hve mikið við höfum átt sameiginlegt í gegnum árin. Þú sagðir mér sögur af skútunni þinni og svaðilförum við siglingar frá Reykjavík, þegar þú fleyttir henni upp í fjöru á Kirkjusandi til að þétta botninn. Það kom mér líka á óvart hvernig andlegar vegferðir okkar voru samhliða. Hvorugur var of spenntur fyrir trúarbrögðum en þú sagðir mér frá reynslu þinni við hugleiðslu og hreina tóninum sem þú fannst í jafnvægi hugans. Báðir leituðum við að hugarrónni sem hugleiðslan veitir. En það var kannski ekki mynd af hinni leitandi sál sem ég hef átt af þér í gegnum tíðina. Í mínum huga varstu alltaf jaxlinn sem ég sá, hin ódauðlega ímynd hreyst- innar. Afrekssundmaður og sjó- maður á fiskibátum, varðskipum og millilandaskipum. Bræðurnir sögðu sögur af þér úr iðnnáminu, þegar þú tróðst einhverjum leið- indagaur í strigapoka niðri í Víði, hjá Guðmundi blinda, af því að hann trúði ekki að þú gætir það. Jú, létt verk fyrir þig, sögðu þeir. Ég hef líka alla tíð dáðst að þinni endalausu elju og vinnu- semi. Þú hættir aldrei að vinna. Fyrir mörgum árum fékk ég að taka þátt í að verja ættaróðalið sem lá undir skemmdum vegna gallaðrar steinsteypu. Ég fékk að vera með við klæðningu hússins að utan með einangrun og akrílm- úr og læra í raun nýtt fag. Nú hef ég verið í burtu frá landinu bróð- urpartinn af aldarfjórðungi og á því árabili hefurðu aldrei hætt að byggja eða endurbæta það sem fyrir var. Ég geri ráð fyrir því að núna sértu sestur í helgan, þótt að fenginni reynslu sé það sé alls ekki víst. Ég á ekkert nema innilegt þakklæti og djúpa virðingu fyrir því sem við höfum átt saman að sælda í gegnum árin, kæri frændi. Þakklæti fyrir leiðsögn og stuðn- ing þegar þér rann blóðið til skyldunnar að sinna illa uppöldum og ráðvilltum unglingi sem þurfti á leiðbeiningu að halda. Ekki síst er djúpstætt þakklæti fyrir kær- leikann og stuðning þessi undan- farin ár þegar fjölskyldan mín hef- ur átt um sárt að binda. Kærar þakkir, elsku frændi. Elsku Halla, Þorvaldur, Helgi, Margrét, fjölskylda og afkomend- ur. Ég sendi ykkur samúðar- og kærleikskveðjur, ást og um- hyggju á þessum erfiða tíma. Haraldur Kristjánsson. ✝ Þórður Har-aldsson fæddist 8. október 1939 í Uppsölum í Sand- gerði. Hann lést á heimili sínu 6. sept- ember 2019. Foreldrar hans voru Ragnheiður Sigríður Erlends- dóttir húsmóðir og Haraldur Kristjánsson skip- stjóri. Systkini hans eru Valdi- mar Valdimarsson vélstjóri, d. Eiginkona Þórðar er Halla Sigríður Þorvaldsdóttir, f. 1939, maki til 62 ára. Börn þeirra eru Þorvaldur Þórðarson, f. 1958, Þorbjörn Helgi Þórðarson, f. 1961, og Margrét Elín Þórðar- dóttir, f. 1967. Barnabörnin eru Jón Þórir Þorvaldsson, f. 1980, Daníel Þorbjörnsson, f. 1990, Björn Breki Þorbjörnsson, f. 1997, Sunna Líf Þorbjörnsdóttir, f. 1999, Halla Margrét Ásgeirs- dóttir, f. 1990, d. 2006, Unnar Freyr Ásgeirsson, f. 1994, og Hekla Maren Oddsdóttir, f. 2013. Barnabarnabörnin eru Aníta Rán Jónsdóttir Hlíðberg, f. 2005, og Tanja Mist Jónsdóttir Hlíðberg, f. 2010. Útför Þórðar fer fram í Vídal- ínskirkju Garðabæ í dag, 19. september 2019, klukkan 15. 1975, Gunnar Valdimarsson, varðstjóri í lögregl- unni, d. 2007, Krist- ján Haraldsson múrarameistari, d. 2017, Marinella Ragnheiður Har- aldsdóttir húsmóðir og tvíburabróð- irinn Guðmundur Haraldsson húsgagnabólstrari, slökkviliðsmaður og skólastjóri Brunamálaskólans. Hann faðir okkar hefur kvatt okkur í hinsta sinn. Og eins og hann hafði óskað sér, þá gerði hann það á Sunnuflötinni, sem var hans uppáhaldsstaður í þessari veröld, alveg frá því augnabliki sem óbyggða lóðina bar fyrir augu hans árið 1965. Við munum vel þær stundir úti á verönd, horfandi á hraunið á bak við hús í mjúkri sumarbirtunni og pabbi að lýsa fyrir okkur sinfóníunum sem hann sá skrifaðar í útlínur hraunsins þar sem það bar við kvöldhimin- inn. Hann horfði og hlustaði á þessar sinfóníur allt til síðasta dags og náði þar tengingu sem var hans eigin. Hann var næmur og hafði sterka nærveru. Pabba féll aldrei verk úr hendi. Við erum þakklát fyrir hvernig hann skilaði til okkar verkmenn- ingu sem hann nam sjálfur í for- eldrahúsum; útsjónarsemi og vandvirkni. Hann kenndi okkur svo margt, réttu handtökin í grunnhandverki og hafði okkur með sér í að bólstra, smíða og veiða, sem hefur haft mikil áhrif á líf okkar systkinanna. Þegar hann hafði kennt okkur hvernig ætti að fara að hlutunum treysti hann okkur til að bjarga okkur sjálf. Þetta vakti með okkur sjálfstraust og trú á að við gætum gert nánast allt, samanber að eitt okkar vann sem verktaki í járnabindingum 16 ára. Pabbi fann ekki aðeins lausn á öllu og vissi ótrúlegustu hluti. Hann var nagli. Ýmislegt kom upp á í gegnum öll þessi ár, en hann lét ekkert stoppa sig. Einhverju sinni féll hann milli hæða um stigaop þegar hann var við smíðar á Eyr- arbakka. Hann prílaði upp aftur, lemstraður og lauk verkinu, áður en hann lét huga að meiðslum sín- um. Öðru sinni, þegar hann skar sig í fingur við vinnu úti í bílskúr, gerði hann sjálfur að sárinu með bólsturnál. Seiglan og þrjóskan höfðu yfirleitt vinninginn. Pabbi var góður sögumaður og hafði gaman af að segja sögur. Ekki síst sögur af ferðalögum á yngri árum þegar hann var í sigl- ingum. Þar á meðal sagði hann okkur frá „heimsmeistaramóti“ fraktskipa í fótbolta á lagnaðarís á Eystrasalti 1955. Eins hélt hann upp á söguna af klúbbaferðinni í Harlem í New York, þar sem þeir skipverjar voru einu fölleitu gest- irnir, hann 16 ára gamall. Landið sitt þekkti hann af sjómennskunni með pabba sínum og hafði litla þörf fyrir að ferðast frekar. Nema til Ástralíu, þangað lang- aði hann alltaf að koma til að sjá Suðurkrossinn. Það rættist þegar hann heimsótti frumburðinn um aldamót. Síðustu árin átti hann við heilsubrest að stríða, en það var engu líkara en hann ætti níu líf; hann stóð alltaf upp aftur. Erf- iðast þótti honum að hafa ekki lengur heilsu í að framkvæma, en pönnukökurnar gat hann bakað og sparaði það ekki og húmorinn var aldrei langt frá pabba, bæði var hann stríðinn og tók stríðni vel. Örfáum dögum fyrir andlátið var verið að undirbúa fram- kvæmdir við sólpallinn á Sunnu- flötinni. Hann brosti út undir eyru þegar allt var klárt og það var greinilegt að hann gladdist yfir því að þótt hann gæti ekki lengur, þá væri til nóg af fólki sem kynni og gæti og myndi sjá um hlutina. Verkið kláraðist daginn áður en hann lést og hann sá það eins og það átti að vera. Þorvaldur Þórðarson, Þor- björn Helgi Þórðarson, Margrét Elín Þórðardóttir. Elsku Doddi afi. Nú er hann afi minn, sem óhætt er að segja að hafi verið stór hluti af mínu lífi og ákveðinn fasti í formúlu lífs míns, farinn frá okk- ur. Þegar við fjölskyldan fluttum aftur heim frá Svíþjóð bauðst okk- ur að koma okkur fyrir á neðri hæðinni í húsinu sem hann, með dyggri aðstoð ömmu og annarra, byggði fyrir sig og sína, ættar- óðalinu í rauninni. Þar fengu stelpurnar mínar að kynnast lang- afa sínum betur en þær höfðu fengið fram að því vegna veru okkar erlendis. Ég er jafnframt ofboðslega þakklátur fyrir það að hafa fengið að eyða þessum síð- ustu mánuðum með honum og fengið að upplifa þær samveru- stundir sem maður yfirleitt tekur sem sjálfsögðum hlut en skipta samt svo miklu máli. Líkt og kveðjan: „Hvernig var í vinnunni?“ þegar ég kom arkandi niður fyrir hornið í íbúðina okkar og afi sat á efri pallinum að njóta góða veðursins. Þegar afi hallaði sér yfir handriðið og spurði: „Hvað ertu að grilla núna?“ með glott á vör. „Líður ykkur ekki vel hérna hjá okkur?“ fylgdi iðulega í kjölfarið á þessum styttri samtöl- um okkar, sem ég svaraði alltaf á sama hátt: „Jú afi minn, þú losnar ekki við okkur strax!“ og þá glott- um við báðir. Ég gæti sagt ótal sögur af manninum sem gat allt, kunni allt og gerði allt. Þegar hann lagaði brotna hjólabrettið hjá vini mín- um snemma á síðasta árþúsundi. Samverustundirnar í eldhúsinu á Sunnuflötinni með meðfylgjandi skrafi, ádeilum, hlátri, stríðni o.s.frv. Ósjaldan þegar ég datt við þá fann ég afa í bílskúrnum að gramsa eitthvað enda var bílskúr- inn hans „heimavöllur“. Hann var einn af þessum mönnum sem geta hugsað hlutina upp og gerði það fram á síðasta dag. Hann var einn- ig maður verka en síðustu ár hafði þrekið til þeirra minnkað vegna heilsuleysis. Af þeim sökum hlýjar brosið og ósnortna gleðin sem skein af honum þegar síðasta verkefni á Sunnuflötinni kláraðist daginn fyrir andlát hans svo of- boðslega mikið. Ég gæti skrifað heila ritgerð um hann afa minn en ég kýs að enda þetta svona: „Afi, sjoppa, afi, sjáðu sjoppa“ – „Nei, nei, álfarnir kíkja upp í rassinn á mér“ – „Sauðaþjófar“ – „hnuss, rjúpur eru ekki matur“ – „gott skyggni á Þórðarhöfða“. Ég veit að hann brosir núna. Jón Þórir, Gyða, Aníta Rán og Tanja Mist. Við tvíburarnir fæddumst á Uppsölum í Sandgerði og bjugg- um þar til sjö ára aldurs. Árið 1947 fluttum við til Reykjavíkur ásamt foreldrum okkar og systk- inum. Þórður var alltaf kraftmikill og duglegur og tók þátt í ýmsum íþróttum. Hann spilaði fótbolta með Fram, keppti í sundi sem unglingur með sundfélaginu Ægi og spilaði sundknattleik með fé- laginu. Hann æfði einnig og keppti í júdó. Hann náði oft góð- um árangri í þeim íþróttum sem hann stundaði. Eins og unglingar á þessum tíma byrjaði hann ungur að vinna en á þrettánda ári fékk hann sum- arvinnu hjá Reykjavíkurborg við að grafa skurði. Þar átti að búa til aðstöðu fyrir grænmetisrækt fyr- ir bæjarbúa. Þetta var ekki vinna fyrir óharðnaða unglinga en hann stæltist við erfiðið. Ári síðar var hann kominn í sumarvinnu í frystihúsinu í Fífu- hvammi í Kópavogi og vann þar fullorðinsvinnu. Þegar hann lauk gagnfræða- skóla lá leið hans á sjóinn. Hann byrjaði sem messagutti hjá Land- helgisgæslunni eitt sumar en þeg- ar hann hætti þar fór hann á fragtskip. Hann réð sig sem messagutti á Goðafoss og sigldi skipið bæði til Ameríku og Evr- ópu. Hann lenti í ýmsum ævintýr- um á þessum tíma og nefndi hann oft það atvik þegar skipið festist vegna íss á ytri höfn erlendis í heilan mánuð en að lokum þurfti ísbrjót til að losa skipin úr höfn- inni. Hann fór síðar með föður sín- um á vertíð en hann vann einnig á fleiri fiskibátum. Á átjánda árinu var hann svo heppinn að kynnast eiginkonu sinni Höllu Sigríði Þorvaldsdóttur og átti með henni þrjú börn, Þor- vald, Helga Þorbjörn og Margréti Elínu. Þau leigðu til að byrja með en fóru fljótlega að byggja í Garðabæ á Sunnuflöt 24 og voru þau með fyrstu frumbyggjendum þar. Þórður sló upp fyrir húsinu og byggði það að öllu leyti sjálfur en þau bjuggu þar eftir það. Þórður hóf nám í húsgagna- bólstrun 1962 og lauk meistara- prófi sjö árum síðar. Hann var tal- inn frábær fagmaður. Um það bil áratug síðar hóf hann einnig nám í húsasmíði og starfaði við það á efri árum. Árið 1999 byggðu Þórður og Halla sér heilsárssumarhús á Eyrarbakka. Húsið er hið glæsi- legasta og í stíl við eldri hús á staðnum og fellur það vel inn í um- hverfið. Þórður var með góða rödd og hafði sérstakt dálæti á blústón- list og naut þess að hlusta á hana. Hann gerði ýmislegt í gegnum tíð- ina, lærði t.d. á trompet, tók einkaflugmannspróf og eignaðist 21 fets langa skútu. Hann naut þess að sigla henni en hún sökk við bryggju í Reykjavík í ofsa- veðri. Af þessu má sjá að hann kom víða við og naut vel lífsins á langri ævi. Kæri bróðir, ég þakka þér sam- fylgdina í gegnum árin. Við höfum brallað ýmislegt á þessum tíma og stutt vel við bakið hvor á öðrum í lífsins ólgusjó. Minning um góðan bróður mun lifa áfram. Við viljum votta Höllu, börnum og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Guðmundur Haraldsson og Guðfinna Sigurðardóttir. Nú er komið að kveðjustund og viljum við minnast Dodda, tví- burabróður pabba, með nokkrum orðum en hann var okkur kær. Við komum oft í heimsókn á heimili Dodda og Höllu á Sunnu- flötinni en þar var alltaf líf og fjör og margar skemmtilegar umræð- ur sem áttu sér stað við eldhús- borðið. Þegar við vorum litlar þótti okkur mjög gaman að fara að tína ber og leika okkur við lækinn í hrauninu í bakgarðinum hjá þeim. Okkur er það sérstaklega minnisstætt þegar hús þeirra var fullt af hvolpum og við eldri syst- urnar þrábáðum um að fá að eiga einn hvolpinn og taka hann með heim. Í stuttu máli féll sú hug- mynd ekki í eins góðan jarðveg hjá foreldrum okkar. Þeir bræður voru nánir og fylgdumst við gjarnan með því sem Doddi var að fást við í gegn- um pabba. Þeir unnu stundum saman að húsgagnabólstrun í bíl- skúrnum hjá Dodda og var gaman að koma og fá að kíkja á það sem þeir voru að vinna að hverju sinni. Doddi var skemmtilegur, svo- lítill töffari og átti það til að vera hrekkjóttur. Hláturinn hans er okkur minnisstæður enda hló hann af mikilli innlifun og þegar þeir bræður komu saman var oft mikið hlegið. Þeir gátu nú líka tek- ist á og rökrætt hlutina enda ekki alltaf sammála, sérstaklega þegar umræðuefnið var pólitík. Það er ekki hægt að minnast Dodda án þess að nefna elsku Þórður Haraldsson 44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Sigrún Óskarsdóttir, guðfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar og ömmu okkar, SÓLVEIGAR GUÐNÝJAR GUNNARSDÓTTUR, Baugakór 15-17, Kópavogi. Sérstakar þakkir fá hjúkrunarfræðingar HERU og starfsfólk líknardeildar Landspítalans. Anton Kristinsson Andri Már Helgason Ragna Lind Rúnarsdóttir Ævar Þór Helgason Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA MÁLFRÍÐUR JÓAKIMSDÓTTIR frá Hnífsdal, lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. september. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 23. september klukkan 13. Einar Magnússon Agnes Ásgeirsdóttir Snorri Gunnlaugur Bogason Karl Kristján Ásgeirsson Guðlaug Jónsdóttir Ásgeir Guðmundsson Sædís Kr. Gígja og ömmubörn Faðir okkar, GUÐBJARTUR GUNNARSSON kennsluráðgjafi og myndlistarmaður, andaðist á sjúkrahúsi á Cebu á Filippseyjum 23. ágúst eftir skamma legu. Bálför fór þar fram að ósk hins látna. Steinþór Guðbjartsson Rósa Guðbjartsdóttir Guðbjartur Guðbjartsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.