Morgunblaðið - 19.09.2019, Side 72

Morgunblaðið - 19.09.2019, Side 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 LJÓSADÖGUM LÝKUR Á MÁNUDAG 20-50% AF ÖLLUM LJÓSUM KERTUM OG LUKTUM 30% AF ÖLLUM PERUM „Hún“ nefnist nýtt dansverk sem verður sýnt í Deiglunni á Akureyri í kvöld kl. 20.30. Verkið er eftir Ólöfu Ósk Þorgeirsdóttur sem sótti inn- blástur í álit samfélagsins á sjálfs- öryggi ungra kvenna. „Á undan- förnum árum hafa orðið miklar framfarir varðandi álit samfélags- ins á því að konur eigni sér sína eig- in kosti, styrk og möguleika, og því ber að fagna. Við þurfum ekki leng- ur að láta eins og það komi okkur á óvart þegar okkur er hrósað. Við vitum okkar eigin hæfni,“ segir um verkið. Átta konur flytja verkið. „Hún“ í Deiglunni FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 262. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Már Gunnarsson æfði tólf sinnum í viku fyrir HM í sundi fatlaðra í London og uppskar bronsverðlaun og tíu Íslandsmet. Rætt er við Má í blaðinu í dag en hann kom heim frá London í byrjun vikunnar. Már setur markið hátt á Paralympics sem fram fer í Tókýó á næsta ári, en er að auki með ýmis önnur járn í eld- inum. »59 Már Gunnarsson upp- skar ríkulega í London ÍÞRÓTTIR MENNING Gamanmyndahátíð Flateyrar hefst í dag og stendur yfir til og með 22. september og er þetta í fjórða sinn sem hátíðin er haldin. Hátíðin hefur göngu sína á 48 stunda gaman- myndakeppni þar sem fjöldi þátt- takanda hefur skráð sig til leiks og fær það verkefni að fullklára gam- anmynd á 48 klst. undir hand- leiðslu leikstjórans Arnórs Pálma Arnarsonar. Á hátíðinni verða yfir 30 gamanmyndir sýndar, íslenskar og erlendar, og heiðursgestur hennar í ár er Edda Björg- vinsdóttir. Upp- lýsingar má finna á ice- landcomedy- filmfestival- .com. Gaman á Flateyri Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrir um 30 árum var farið lofsam- legum orðum um Ísland í sérstöku ferðablaði enska blaðsins The Times og meðal annars sagt að á Arnarhóli réði Skúli Hansen, einn áhrifamesti matreiðslumeistari Reykjavíkur, ríkjum við kraftaverkasmíði dag- lega. „Ég gætti þess að láta vel- gengnina ekki stíga mér til höfuðs, því það sem fer upp kemur alltaf nið- ur, og ég er mjög ánægður þar sem ég er nú,“ segir meistarinn. Skúli Hansen hefur starfað sem matreiðslumeistari í 45 ár. Auk þess var hann með matarþættina „A la carte“ á Stöð 2 í nokkur ár, skrifaði matreiðslubókina Matartíma í tilefni 40 ára afmælis Tryggingamiðstöðv- arinnar 1997, var ritstjóri bókarað- arinnar „Sælkerasafnsins“, sem byggðist á franskri matargerðarlist, og tók saman uppskriftir fyrir blöð og tímarit. „Í upphafi skyldi endinn skoða,“ leggur Skúli áherslu á og vísar til þess að undanfarin nær tvö ár hafi hann unnið hjá starfsbróður sínum á Skólabrú, Jóhanni Sveinssyni, yfir- matreiðslumanni hjúkrunarheimilis- ins Grundar við Hringbraut, við að útbúa heimilismat, rétt eins og þeg- ar hann steig sín fyrstu skref í matargerðarlistinni. „Konurnar í eldhúsinu hjá Síld og fiski kenndu mér handbragðið, þegar ég var að læra á Holtinu, og ég bý að því.“ Í sviðsljósinu í 25 ár Skúli lærði matreiðslu á Hótel Holti og útskrifaðist 1974. Árið eftir varð hann yfirmatreiðslumaður á Holtinu, stofnaði Arnarhól 1980 og hélt þar uppteknum hætti í um ára- tug. Síðan tók við sambærilegt starf á Skólabrú sem hann rak ásamt öðr- um til 1998. „Þetta voru þrír af virt- ustu matstöðum landsins og það hlýtur að vera Íslandsmet að hafa búið til sérréttamatseðla samfleytt í um aldarfjórðung og vera allan tím- ann í sviðsljósinu,“ segir Skúli. Auk fyrrnefndra starfa tók Skúli einnig að sér sérstök verkefni eins og til dæmis opinberar veislur heima og erlendis. „Eitt viðamesta verk- efnið var að skipuleggja matseðla vegna 200 ára afmælis Reykjavík- urborgar og ég sá um veislur borg- arinnar í Höfða í mörg ár.“ Glampi kemur í augun þegar hann rifjar þetta upp. „Ég hitti nánast öll stórmenni sem heimsóttu Ísland á þessum árum og eftir að ég opnaði Arnarhól átti ég sviðsljósið í ára- tug,“ útskýrir hann. „Mikið var látið með mig, en ég gerði mér grein fyrir því að þetta tæki einhvern tímann enda. Ég fékk aldrei frið og meira að segja þegar ég var að kaupa í matinn fylgdust aðrir viðskiptavinir grannt með því hvað ég setti ofan í körf- una.“ Þrátt fyrir að Skúli væri á varð- bergi tók áreitið mikið á jólabarnið. „Ég átti aldrei frí og var til dæmis alltaf upptekinn um jól, áramót og páska við að búa til veislumat fyrir trausta viðskiptavini, jafnvel heima hjá þeim. Í sannleika sagt tók mig mörg ár að jafna mig eftir þetta mikla álag.“ Morgunblaðið/Eggert Á heimavelli Skúli Hansen, matreiðslumeistari í 45 ár, kann vel við sig í eldhúsinu á Grund hjúkrunarheimili. Heimilismatur í hávegum  Skúli Hansen hefur starfað sem matreiðslumaður í 45 ár  Var sagður vera einn áhrifamesti matreiðslumeistarinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.