Morgunblaðið - 19.09.2019, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 19.09.2019, Qupperneq 63
MENNING 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 SKECHERS SEGMENT HERRASKÓR MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI OG EXTRA BREIÐU SNIÐI. STÆRÐIR 41-47,5. FÁST EINNIG BRÚNIR. HERRASKÓR 15.995 Myndlistarsýningin Fullt af litlu fólki verður opnuð í Gerðarsafni í kvöld kl. 19 og má á henni sjá verk merkra listamanna á borð við Hilmu af Klint, Joseph Beuys og Rudolf Steiner. Einnig má sjá verk eftir Gerði Helgadóttur og samtímalistamenn, innlenda og er- lenda en þeir eru Guðrún Vera Hjartardóttir, Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir/Úa Von, Elsa Dóró- tea Gísladóttir, Dawn Nilo, Silvana Gabrielli, Martje Brandsma, Sati Katerina Fitzova, Philipp Tok, Julius Rothlaender, Ruth Bellinkx, Erla Þórarinsdóttir, Páll Banine, Walter Kugler, Johannes Nilo, Edward de Boer, Jón B.K. Ransu og Jasper Bock. Í tilkynningu segir að sýningin sé innblásin af hugmyndinni um að andlega reynslu megi tjá á ólík- an máta og birtingarmyndir henn- ar séu margs konar í menningu samtímans. „Þátttakendur sýning- arinnar eiga það sameiginlegt að rannsaka andleg, spíritísk, esóter- ísk og/eða mannspekileg gildi og aðlaga þau myndlist, grafískri hönnun, dansi, tónlist og jafnvel fræðum, í von um að svipta burt hulunni á milli þess andlega og efnislega,“ segir þar. Á vef safnsins segir að sýning- arverkefnið Fullt af litlu fólki tak- ist á við hið andlega í listum og að titill sýningarinnar sé sóttur í teikningu eftir austurríska mann- spekinginn Rudolf Steiner frá árinu 1922 sem vandi sig á að teikna myndir til stuðnings við hið talaðra orð þegar hann hélt fyrir- lestra. Frumkvæði að sýningunni eiga þær Guðrún Vera Hjartardóttir og Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir (ÚaVon) sem hafa lengi velt fyrir sér hvernig andleg iðkun þeirra og áhugi á mannspeki geti sam- ræmst listsköpun þeirra. Þær eru sýningarstjórar auk Jóns B.K. Ransu. Klint, Beuys og Steiner  Sýningin Fullt af litlu fólki opnuð í Gerðarsafni Teikning „Fullt af litlu fólki“ eftir Rudolph Steiner, hluti teikningar sem hann gerði á krítartöflu árið 1922 og sýningin er nefnd eftir. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Tilgangurinn með hátíðinni er að fagna fjölbreytileikanum í geðrænum kvillum. Bæði sem upplifun og sem uppsprettu listrænna hæfileika. Oft sprettur listræn sköpunarþörf úr andlegri þjáningu,“ segir Hildur Loftsdóttir, verkefnastjóri listahátíð- arinnar Klikkaðrar menningar sem hefst í Reykjavík í dag, 19. sept- ember. Þar verður að finna þétta menningardag- skrá til 22. sept- ember. Langflest atriði á hátíðinni hafa einhverja teng- ingu við geðheilsu en hátíðin er hald- in í tilefni 40 ára afmælis Geð- hjálpar. „Geðhjálp berst fyrir bætt- um hag þeirra sem eiga við geðrænan vanda að stríða og aðstandenda þeirra,“ segir Hildur. „Við tengjum oft við list sem hefur verið sköpuð af fólki sem tekist hefur á við geðrænar áskoranir vegna þess að við göngum sjálf í gegnum erfiðleika einhvern tímann í lífinu; vinnumissi, hjóna- skilnað eða hvað sem það er. Þá kom- umst við á einhvern mjög lágan punkt þar sem við getum skilið hvað þeir sem eru í stöðugri glímu við geðheils- una ganga í gegnum.“ „Þetta er allt klikkað“ Allir listamennirnir sem fram koma á hátíðinni eða sýna list sína þar eru á einn eða annan hátt tengdir um- ræðunni um geðheilsu, að sögn Hild- ar. „Þetta er allt klikkað. Ef það er ekki eitthvað sem er tengt geðrænum áskornunum þá er þetta bara klikkað skemmtilegt því það eru allir svo vel- viljaðir þessum málstað.“ Hildur nefnir sérstaklega þrjár listsýningar til sögunnar í þessu sam- hengi. „Listahópurinn Listamenn með kvíða verður með listsýningu. Elín Atím sýnir listaverkið „Þessi tími var ógeðslegur“ sem fjallar um hennar tíma á geðdeild. Ingibjörg Eyfjörð sýnir ljósmyndir sem hún kallar „Sálræna litadýrð“, hún málar sig í framan og tjáir sína andlegu líð- an þannig,“ segir Hildur. Stór hluti tónlistarfólksins sem fram kemur á hátíðinni hefur tjáð sig um andlega erfiðleika. „Til dæmis Högni og Jónas Sigurðsson. Einnig hafa Flóni og GDRN talað um erfiða líðan og tilfinningar. Þannig hefur allt tónlistarfólkið sem kemur fram á stóru tónleikunum í Hafnarhúsinu talað opinberlega um geðheilsu sína,“ segir Hildur en fjölskyldutónleikar verða haldnir í Hafnarhúsi á laug- ardag, 21. september. Fólk breytist í bækur Á hátíðinni verður aragrúi af fleiri viðburðum, til dæmis fyrirlestrar, kvikmyndir og lifandi bókasafn. „Fólk sem hefur gengið í gegnum andlegar þrengingar eða á jafnvel við alvarlegan geðrænan vanda að stríða verður þar í hlutverki bóka. Þú getur komið á bókasafnið og séð hvaða bækur eru í boði og ákveðið að fá eina bók lánaða. Svo ferðu inn í herbergi með bókinni og hún segir þér sína sögu. Bókin ræður för en þú mátt oftast spyrja hana og þetta endar bara í svona mannlegu spjalli. Það er hægt að læra svo mikið af þessu og komast betur inn í þennan heim með því að tala saman á þennan hátt. Þetta er lærdómur fyrir þann sem er að hlusta og valdeflandi fyrir bókina, þann sem segir frá,“ segir Hildur og bætir því við að hátíðin passi einstaklega vel inn í samfélagsumræðuna hérlendis. „Það eru allir að pæla í geðheil- brigði og það er bara svo mikil vakn- ing í samfélaginu núna sem gerir það að verkum að þessi hátíð er algjör- lega á réttum tíma.“ Hildur segir að hátíðin sé jafnvel nauðsynleg íslensku samfélagi. „Fólk er að tala um geðrænan vanda alls staðar og er að opna augun fyrir þessu en á hátíðinni vona ég að verði smá sprengja. Í fyrsta lagi getur fólk komið saman og lært hvað af öðru, í öðru lagi mun þetta vonandi færa umræðuna upp á næsta stig. Við þurfum að auka sýnileikann og norm- alísera fjölbreytileikann í geðheilsu landsmanna. Við erum öll með geð- heilsu, sumir slæma, aðrir góða og allt þar á milli.“ Jákvæðar hliðar vandans Spurð hvort orðið „klikkuð“ geti ekki borið í sér neikvæða merkingu segir Hildur: „Oft þegar við erum að lýsa hlutum segjum við klikkað, brjálað, geggjað, tryllt, tjúllað, sjúk- legt og æðislegt. Þetta eru allt orð sem tengjast geðrænum vanda og þau eru öll jákvæð. Þetta þýðir eitt- hvað jákvætt og eitthvað skemmti- legt vegna þess að þegar fólki tekst að hugsa út fyrir boxið, eins og okkar listamönnum, þá verður til eitthvað frumlegt og áhugavert, og er þar með æðislegt og geggjað.“ Aðspurð segir Hildur að hátíðin sýni fram á hliðar andlegra kvilla sem geti verið jákvæðar. „Það eru margir sem koma fram og ég hef talað við einstaklinga sem hafa lent í mjög erf- iðri lífsreynslu í sambandi við geð- heilsu. Margir segja að þeir hefðu ekki viljað missa af andlegum veik- indum þar sem veikindin gerðu ein- staklinginn að þeim sem hann er í dag. Í þessu samhengi má nefna gestafyrirlesarann okkar, Mary O’Hagan, sem skrifaði bókina Mad- ness Made Me. Auðvitað eru margir sem myndu alls ekki vilja vera svona veikir en þetta á samt að vera svolítil gleðihátíð. Fögnum fjölbreytileik- anum, forvitnumst um líðan hvert annars og tölum sjálf um okkar geð- heilsu.“ Dagskrá Klikkaðrar menningar er að finna á www.klikkud.is en frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar. Fagna fjölbreyttum kvillum  40 ára afmæli Geðhjálpar fagnað með umfangsmikilli listahátíð  Öll atriðin á einhvern hátt „klikkuð“ Morgunblaðið/Eggert GDRN Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, sem kallar sig GDRN, kemur fram á fjölskyldutónleikum Klikkaðrar menningar í Hafnarhúsi á laugardaginn kl. 18. Hér sést hún á hátíðinni Iceland Airwaves í fyrra með Auði. Rithöfundur Mary O’Hagan heldur erindi á málþingi í Hafnarhúsinu og verður með vinnustofu í Geðhjálp. Hildur Loftsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.