Morgunblaðið - 20.09.2019, Side 8

Morgunblaðið - 20.09.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 Borgarfulltrúi Miðflokksinslagði fram tillögu í borgar- stjórn í vikunni um að undirbúin yrði „uppsögn samnings Vegagerð- arinnar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um til- raunaverk- efni til efl- ingar almennings- samgöngum á höfuðborgar- svæðinu til 10 ára sem gerð- ur var í maí 2012. Sam- hliða skuli brýnum úrbótum á helstu samgönguæðum borg- arinnar, sem frestað var vegna samningsins, framhaldið.“    Vinstri flokkarnir í meirihlut-anum, Samfylkingin, Viðreisn, Píratar og Vinstri grænir, ásamt Sósíalistaflokknum, felldu þessa til- lögu, en auk Miðflokksins studdi Sjálfstæðisflokkurinn hana.    Vinstri flokkarnir börðu hausn-um við steininn í bókun vegna tillögunnar þar sem þeir viður- kenndu að markmiðið um að auka hlutdeild almenningssamgangna hefði „ekki náðst ennþá en um 4% fara sinna ferða í strætó“. En þó að ekkert hafi gengið telja þessir flokkar ekki enn fullreynt!    Í bókun Sjálfstæðisflokks og Mið-flokks er bent á að markmiðið hafi verið skýrt um að hlutdeild al- menningssamgangna skyldi a.m.k. tvöfaldast á tímabilinu. Hlutfallið hefði ekkert breyst, en milljörðum verið varið af vegafé í verkefnið.    Í bókuninni segir ennfremur aðfyrirhugað sé að fara í „sérstakt átak í vegamálum á höfuðborgar- svæðinu og því rímar framkvæmda- stopp á sömu framkvæmdunum ekki við þær fyrirætlanir“. Það er vægt til orða tekið. Ekki náðst ennþá STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Vegagerðin hefur gripið til aðhalds- aðgerða vegna uppsafnaðs halla á vetrar- og sumarþjónustu á vegum á síðustu árum. Þá hefur stofnunin lagt til við samgönguráðherra að þjónustustig verði lækkað, af sömu ástæðu. Um 970 milljóna króna upp- safnaður halli var á vetrar- og sum- arþjónustu Vegagerðarinnar í byrj- un ársins. G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi segir að árin 2017 og 2018 hafi verið erfið og kostnaðar- söm. Nefnir hann til viðbótar að þjónustustigið hafi verið hækkað í byrjun árs 2018 með því að auka þjónustu á vegum sem ferðamenn nota á veturna. Þá hafi umferð aukist og við það aukist kostnaður við þjón- ustu, bæði sumar og vetur. Vegagerðin fær liðlega 5,3 millj- arða króna til vetrar- og sumarþjón- ustu í ár. Ekki er gert ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár að þessum halla verði mætt. G. Pétur tekur fram að markmið Vegagerð- arinnar sé að ná þessum halla niður. Þá hafi stofnunin ekki fengið synjun við óskum um að fá þetta bætt. Hann segir að lagðar hafi verið fyrir ráðuneytið tillögur um lægra þjónustustig. Þær séu nú til athug- unar þar. Þá segir hann að Vega- gerðin sjálf hafi gripið til aðhalds- aðgerða. helgi@mbl.is Þurfa að draga úr þjónustu á vegum  Mikill uppsafnaður halli af vegaþjón- ustu er í reikningum Vegagerðarinnar Morgunblaðið/Hari Reykjanesbraut Snjómokstur og hálkuvörn á umferðarþungum vegi. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Allt tal um að stéttarfélögin séu að taka sér tíma til að fara yfir tilboðið er óskiljanlegt. Við höfnum algjörlega fullyrðingum um að bandalagið hafi ekki komið af heil- um hug í þessa vinnu, enda hefur stytting vinnuvik- unnar verið eitt helsta baráttumál BSRB árum sam- an og stærsta krafa bandalags- ins í yfirstandandi kjarasamnings- viðræðum.“ Þetta sagði Sonja Ýr Þor- bergsdóttir, formaður BSRB, í sam- tali við mbl.is í gær um viðtal Morgunblaðsins við Hörpu Ólafsdótt- ur, skrifstofustjóra skrifstofu kjara- mála hjá Reykjavíkurborg, í gær. Í viðræðum BSRB og Reykjavík- urborgar hefur stytting vinnuviku verið helsta deiluefnið og sagði Harpa m.a. í gær að Reykjavíkurborg hefði lagt fram tilboð sem fæli í sér stytt- ingu vinnuviku um þrjár klukku- stundir. Eðlilegt væri að stéttarfélög tækju tíma í að meta tilboðið. Eins og áður segir þótti Sonju þessi ummæli undarleg, enda hefði BSRB hafnað tilboðinu strax í vor. Þá sagði Sonja að fullyrðingar Hörpu um að í niðurstöðu tilrauna- verkefnis BSRB og Reykjavíkur- borgar um styttingu vinnuviku hefði komið fram að ekki hefði verið hægt að halda því verkefni áfram nema með viðbótarmönnun og viðbótarfjár- magni væru beinlínis rangar. „Niður- stöðurnar fjalla alls ekki um þetta. Niðurstöðurnar fjölluðu einmitt um að þetta væri hægt, bæði á dagvinnu- stöðum og vaktavinnustöðum án þess að þeir fengju viðbótarfjármagn. Hins vegar er ljóst að sumir vinnu- staðir sem eru með sólarhringsvaktir gætu þurft viðbótarfjármagn, en það hefur legið fyrir frá upphafi,“ sagði hún. Þá nefndi Sonja síðustu ummæli Hörpu um að tilraunaverkefnið hefði bara náð til mjög afmarkaðs hóps. Það hefði einnig verið rangt því verk- efnið hefði náð til um fjórðungs allra starfsmanna Reykjavíkurborgar, um 2.200 af þeim 8.500 starfsmönnum sem starfa hjá borginni. Ummæli Hörpu óskiljanleg  BSRB hafnaði tilboðinu strax í vor Sonja Ýr Þorbergsdóttir ÁRMÚLA 26 – 108 REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.