Morgunblaðið - 20.09.2019, Síða 14
14 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Dánartíðni barna undir fimm ára
aldri og kvenna af barnsförum hef-
ur lækkað verulega á síðustu
tveimur áratugum, samkvæmt
tveimur nýjum skýrslum frá Sam-
einuðu þjóðunum. Er það einkum
rakið til aukins aðgangs að góðri
heilsugæsluþjónustu á viðráðanlegu
verði, að sögn Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar (WHO). Í
skýrslunum kemur þó fram að mis-
vel hefur gengið eftir heimshlutum
að fækka dauðsföllunum.
Í annarri skýrslunni kemur fram
að 5,3 milljónir barna undir fimm
ára aldri dóu á síðasta ári, nær
helmingi færri en árið 2000. Tæpur
helmingur þessara barna dó við
fæðingu eða innan mánaðar eftir
hana. Að jafnaði dóu 7.000 nýburar
dag hvern í heiminum á síðasta ári.
Í hinni skýrslunni kemur fram að
dauðsföllum kvenna vegna fylgi-
kvilla meðgöngu eða fæðingar
fækkaði um rúman þriðjung frá
síðustu aldamótum. 295.000 konur
dóu af þessum sökum árið 2017 en
451.000 árið 2000. Þótt dauðsföll-
unum hafi fækkað dóu að meðaltali
um 800 konur á dag af völdum
fylgikvilla meðgöngu eða fæðingar,
að sögn skýrsluhöfundanna.
Talið er að á ári hverju deyi alls
2,8 milljónir nýbura og kvenna af
barnsförum í heiminum og í flest-
um tilfellum ætti að vera hægt að
koma í veg fyrir dauðsföllin, að því
er fréttaveitan AFP hefur eftir
Henriettu Fore, framkvæmdastjóra
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna,
UNICEF. „Vel heppnuð barnsfæð-
ing gefur alls staðar tilefni til að
gleðjast en samt verður fæðing að
fjölskylduharmleik á ellefu sek-
úndna fresti í heiminum að meðal-
tali,“ sagði Fore. Hún bætti við að í
mörgum tilfellum væri hægt að
koma í veg fyrir dauða nýbura og
kvenna af barnsförum með því að
sjá þeim fyrir góðri fæðingarþjón-
ustu, hreinu vatni, nægri næringu,
lyfjum og bóluefnum.
Dánartíðnin 50 sinnum hærri
í Afríku sunnan Sahara
Í skýrslunum kemur fram að að-
gangurinn að slíkri þjónustu er
minnstur í Afríku sunnan Sahara.
Þar er dánartíðni kvenna af barns-
förum nær 50 sinnum hærri og
dánartíðni ungbarna 10 sinnum
hærri en í auðugum ríkjum heims.
Á síðasta ári dó eitt af hverjum
þrettán börnum í Afríku sunnan
Sahara undir fimm ára aldri, en að-
eins eitt af hverjum 196 í Evr-
ópulöndum.
Ein af hverjum 37 konum í
Afríkulöndunum deyr af barns-
förum, en Evrópu er meðalhlut-
fallið ein á hverja 6.500.
Þótt dauðsföllunum hafi fækkað
víðast hvar í heiminum frá síðustu
aldamótum hefur dauðsföllum
kvenna af barnsförum fjölgað í
þrettán löndum. Í flestum tilvikum
er fjölgunin rakin til átaka eða
mikilla efnahagsþrenginga, meðal
annars í Sýrlandi og Venesúela.
Fjölgunin var þó mest í Bandaríkj-
unum þar sem dánartíðni kvenna af
barnsförum hækkaði um 58% frá
árinu 2000. Dánartíðnin var þar um
19 konur á hverjar 100.000 barns-
fæðingar árið 2017.
78 börn í Afríku –
tvö á Íslandi
Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna
kemur fram að í heiminum deyja
að meðaltali 39 börn undir fimm
ára aldri á hver þúsund fædd börn.
Í Afríku sunnan Sahara er hlut-
fallið 78 börn að meðaltali og í Evr-
ópu fimm börn. Á Íslandi dóu tvö
börn undir fimm ára aldri á hver
1.000 fædd börn á síðasta ári, en
átján árum áður var hlutfallið fjög-
ur börn, að því er fram kemur á
vef Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna.
Stefnt hefur verið að því að
dánartíðni barna undir fimm ára
aldri verði ekki hærri en 25 á hver
þúsund fædd börn árið 2030 og
mörg lönd hafa þegar náð því
markmiði. Rúmlega 50 lönd eiga þó
enn langt í land með það.
5,3 milljónir barna undir fimm ára aldri dóu á síðasta ári, samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna
Lungnabólga 3
Nýburar (á fyrsta mánuði)
47% dauðsfallanna
Eins mánaðar til 5 ára
53%
Blóðeitrun 7
Meðfæddir
sjúkdómar 5
Annað 5
Fylgikvillar fæðingar 27% Fylgikvillar fæðingar 3
Lungnabólga 12 Meiðsli 6 Malaría 5 Annað 24
Bráð niðurgangssýki 8
Dánartíðni barna undir fimm ára aldri
Meðaltal í heiminum
39
Ástralía og
Nýja- Sjáland
4
Orsakir dauðsfallanna
Rómanska Ameríka
&
Karíbahafseyjar
16
SA-Asía
25
Suður-Asía
Kenía
41
Búrma
46
Afganistan
62
Tansanía
53
Nígería
120Gínea
101
Síerra
Leóne
105
Sómalía
122
3
Svíþjóð
Spánn
Singapúr
Suður-Kórea
5
Evrópa
6
Norður-Ameríka
8
A-Asía
23
Mið-Asía
30
N-Afríka
69
Pakistan
65
Haítí
88
Austur-
Kongó
99
Suður-Súdan
116
Mið-Afríku-
lýðveldið
119
Tsjad
48
Papúa
Nýja-
Gínea
55
Eþíópía
Ísland, Japan
2
á hver þúsund fædd börn, árið 2018
í prósentum
Nokkur svæði og löndUngbarnadauði í heiminum
Heimild: Skýrsla Sameinuðu þjóðanna, „IGME – Levels and Trends in Child Mortality“
Afríka sunnan Sahara
78
Fílabeinsströndin
81
Dauðsföllum ung-
barna stórfækkaði
Færri konur deyja af barnsförum í heiminum
AFP
Gleðigjöfum fjölgar Dregið hefur
úr dánartíðni nýbura í heiminum.
Fjölmiðlar í Kanada birtu í gær
gamalt myndskeið þar sem Justin
Trudeau forsætisráðherra sést
skopstæla hörundsdökkt fólk með
því að vera með svartan andlits-
farða. Myndskeiðið var tekið
snemma á síðasta áratug aldarinnar
sem leið. Trudeau baðst afsökunar í
fyrradag vegna ljósmyndar sem
tímaritið Time birti þar sem hann
sést skopstæla þeldökkt fólk með því
að nota dökkbrúnan andlitsfarða í
veislu fyrir 18 árum. Hann viður-
kenndi að hann hefði verið með svip-
aðan andlitsfarða þegar hann söng
lag Harrys Belafonte frá árinu 1956,
„Banana Boat Song (Day-O)“, í hæfi-
leikakeppni framhaldsskóla þegar
hann var unglingur. „Ég get sagt að
mér urðu á mistök þegar ég var
yngri og ég
vildi að ég
hefði ekki
gert það. Ég
vildi að ég
hefði vitað
betur þá en
ég gerði það
ekki og mér
þykir það mjög miður. Ég veit núna
að það er eitthvað rasískt við að
gera þetta,“ sagði Trudeau. Hann
hefur átt undir högg að sækja fyrir
þingkosningar sem verða 21. októ-
ber, m.a. vegna nýlegs úrskurðar
eftirlitsmanns þings Kanada sem
komst að þeirri niðurstöðu að for-
sætisráðherrann hefði brotið lög
með því að beita sér gegn saksókn á
hendur kanadísku stórfyrirtæki.
Skopstældi hör-
undsdökkt fólk
Justin Trudeau biðst afsökunar
Mynd Time af Trudeau.