Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 ✝ Einar Krist-insson fæddist á Eyvindarstöðum í Vopnafirði 17. mars 1932. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki 3. september 2019. Foreldrar hans voru hjónin Björg Sigríður Einars- dóttir, f. 9. júní 1901, d. 17. apríl 1981, og Krist- inn Daníelsson, f. 9. október 1889, d. 13. október 1969. Einar var næstyngstur af sjö systkinum sem öll eru nú látin. Þau eru Guðrún, f. 1920, d. 2013, Bergljót, f. 1921, d. 1996, Margrét, f. 1922, d. 2010, Sig- rún, f. 1924, d. 2004, Hallbjörn, f. 1927, d. 2012, og yngstur var Haukur, f. 1937, d. 1978. Eiginkona Einars var Sigrún Hróbjartsdóttir frá Hamri í Hegranesi en leiðir þeirra lágu fyrst saman er hann var við nám í Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal þar sem hún vann sem ráðskona. Sigrún fæddist 23. maí 1927 eiga þau Hafþór Breka og Sæ- dísi Ebbu. Halldór, kvæntur Jónínu Pálmarsdóttur og eiga þau fjögur börn; Brynjar Snæ, Sunnevu Dís, Karenu Sif og Kristófer Orra. Svandís Ósk, í sambúð með Jóhanni Þórði Ás- mundssyni, sonur hennar er Heiðar Leó. Yngst er Heiðrún Helga. 3) Sævar, f. 11. júlí 1962, kvæntur Unni Sævarsdóttur. Börn þeirra eru Kristinn í sam- búð með Ásdísi Helgu Arn- ardóttur, börn þeirra eru Eyþór Smári og Ingunn Ósk. Eyrún, hennar sambýlismaður er Jón Dagur Gunnlaugsson, dóttir þeirra er María Sjöfn, fyrir átti Unnur synina Gunnar Helga og Ragnar Smára. Gunnar er kvæntur Sigurlínu Hrönn Ein- arsdóttur og eiga þau börnin Einar Örn, Unni Maríu og Helgu Hrönn. Kona Ragnars er Kol- brún Stella Indriðadóttir, börn þeirra eru Rakel Gígja og Indr- iði Rökkvi. 4) Ragnar Þór, f. 25. ágúst 1969, kvæntur Margréti B. Arnardóttur. Dætur þeirra eru Rebekka Dröfn og Tanja Kristín, fyrir átti Ragnar synina Kristþór og Gísla Felix. Samtals eru barnabarnabörnin nítján. Útför Einars fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 20. september 2019, klukkan 14. og lést 16. október 2015. Foreldrar hennar voru Vil- helmína Helgadótt- ir, f. 1894, d. 1986, og Hróbjartur Jón- asson, f. 1893, d. 1979. Einar og Sigrún gengu í hjónaband 26. desember 1954 og voru þau bænd- ur á Hamri allan sinn starfsaldur, síðustu tvö ævi- árin dvaldi Einar á dvalarheim- ili aldraðra á Sauðárkróki. Börn þeirra eru: 1) Björg Kristín, f. 30. júní 1957, gift Ósk- ari F. Halldórssyni. Börn þeirra eru Sigrún Svanhvít, gift Ön- undi Hafsteini Pálssyni, og eiga þau dæturnar Magneu Björgu og Védísi Ósk. Einar Haukur kvæntur Guðrúnu Þuríði Hösk- uldsdóttur, þeirra dætur eru Sigríður Sóllilja og Helga Mar- grét. Ingvi Þór, sambýliskona hans er Rakel Ýr Jakobsdóttir. 2) Ásdís, f. 27. febrúar 1959, gift Svanlaugi H. Halldórssyni. Börn þeirra eru Einar, hans sambýlis- kona er Bylgja Ösp Pedersen og Þegar ég nú kveð föður minn hinstu kveðju er mér efst í huga þakklæti. Þakklæti fyrir allt sem for- eldrar mínir voru mér alla tíð. Þakklæti fyrir að fá að alast upp við öryggi og eiga góðar minningar um hamingjuríka bernskudaga. Það eru viss for- réttindi að fá að alast upp í sveit og eru margar minningar tengdar því umhverfi. Pabbi var mikill náttúruunn- andi og dýravinur, kindurnar voru alltaf í mestu uppáhaldi og voru þær mjög gæfar og hænd- ar að honum og þekkti hann þær allar með nafni. Pabbi var fæddur og uppal- inn á Eyvindarstöðum í Vopna- firði og talaði hann oft um dal- inn sinn fyrir austan og sagði okkur sögur frá uppvaxtarárum sínum, þar sem veðrið var alltaf svo gott. Það vakti því undrun okkar krakkanna þegar við fór- um í fyrsta skiptið í heimsókn til Vopnafjarðar að það skyldi rigna allan tímann sem við stoppuðum. En þær hlýju mót- tökur sem við fengum hjá afa og ömmu á Eyvindarstöðum gleymast ekki og öll vorum við leyst út með nýjum lopapeys- um. Þegar börnin mín voru að alast upp áttu þau því láni að fagna að fá að vera af og til í sveitinni hjá ömmu og afa, það var þeim dýrmætur tími að fá að stússa í útiverkunum með afa og fara með ömmu í gróð- urhúsið og tína jarðarber og taka upp gómsætar gulrætur og ekki má gleyma öllum sög- unum og ævintýrunum sem amma kunni svo vel að segja, það var eins og hún hefði alltaf tíma. Þegar halla tók undan fæti hjá pabba fyrir tveimur árum fékk hann pláss á dvalarheimili aldraðra hér á Sauðárkróki. Það reyndist honum erfitt í fyrstu að flytja úr sveitinni sem var honum svo kær og vildi hann alltaf fá að fylgjast með og spurði mig oft að því hvað „þeir“ væru nú að gera og átti þá við þá bændur á Hamri, Sævar og Kristin. Langafa- börnin voru hænd að honum eins og barnabörnin og voru það hans bestu stundir þegar litla fólkið kom að heimsækja hann á dvalarheimilið. Ég vil þakka öllu því ágæta fólki sem þar vinnur fyrir góða umönnun og hlýhug í hans garð. Ég trúi því að nú séu þau pabbi og mamma saman á ný og hafi það fínt í Sumarlandinu. Með hjartans þökk fyrir allt. Björg Kristín. Afi var stór faðmur og hlýtt bros, hafragrautur í morgun- mat, pípulykt í Gamla rauð, sér- stakt jafnaðargeð og væntum- þykja á dýrum, hákarl og bismarkmolar, spjall um veðrið og sprettu á grasi, bíltúrar án þess að hann léti vita af sér og súkkulaðiskúffa handa langafa- börnunum. Við sjáum þig á tröppunum á Hamri og þú veifar okkur bless. Takk fyrir okkur. Einar Haukur og fjölskylda. Það er mér minnisstætt að vakna á sólríkum sumardegi, stökkva fram úr rúminu og gá hvort rauði pallbíllinn Einars afa standi ekki enn á hlaðinu. Það átti nefnilega að fara að vitja um í vötnunum og kannski fengi ég að stýra bílnum þegar við keyrðum niðureftir. Silungs- aflinn var oftast drjúgur enda var afi glöggur á hvar væri best að draga fyrir, soðinn silungur og nýuppteknar kartöflur voru svo borin á borð af ömmu í há- deginu. Já þær eru sko ófáar minn- ingarnar sem skjóta upp koll- inum þegar hugsað er til baka enda voru afi og amma dugleg að leyfa okkur systkinunum á Hamri að taka þátt í hinum daglegu störfum í sveitinni. Það eru forréttindi að hafa fengið að alast upp í skjóli ömmu og afa, þau kenndu okkur svo margt nytsamlegt og voru dug- leg að fræða okkur um gamla tímann. Afa þótti sérstaklega vænt um gömlu sveitina sína, Ey- vindarstaði í Vopnafirði, og sagði hann okkur gjarnan sögur af búskapnum fyrir austan. Hugurinn leitaði oft heim en þrátt fyrir það sagðist hann hvergi annars staðar vilja búa en á Hamri, þar sem hann byggði upp sitt bú með ömmu og bjó bróðurpart ævinnar. Sigrún amma og Einar afi voru einstaklega samrýnd hjón og þegar amma kvaddi var líkt og hluti af afa hefði kvatt sömu- leiðis. Róðurinn þyngdist hjá gamla manninum og þótt við fjölskyldan gerðum okkar besta til að aðstoða og vera til staðar fyrir hann var enginn sem gat fyllt það stóra skarð sem amma skildi eftir. Elsku afi, vinátta okkar var sterk og þú passaðir alla tíð vel upp á stelpuna þína. Þú varst alltaf tilbúinn að rétta hjálp- arhönd og er ég þér innilega þakklát fyrir allt sem við höfum brallað saman í gegnum tíðina. Það er sárt að kveðja, en ég veit að nú eruð þið amma sam- einuð á ný. Elsku afi „það þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig“. Þín Eyrún Sævarsdóttir. Einar bóndi Kristinsson á Hamri í Hegranesi er fallinn í valinn. Síðustu mánuðina hefur hann verið á Dvalarheimili aldr- aðra á Sauðárkróki, þar sem honum leið eins vel og kostur var miðað við hans heilsufar. Einar var kvæntur Sigrúnu Hróbjartsdóttur frá Hamri, og bjuggu þau allan sinn búskap þar á bæ, fyrst í félagsskap við foreldra Sigrúnar og bræður hennar, en þau tóku síðar alfar- ið við öllum búrekstri en undir það síðasta sem þau voru við búskap voru þau í félagi við son sinn Sævar og konu hans og þeirra afkomendur. Sigrún lést árið 2015 og það var öllum ljóst að Einari fannst lífið ansi litlaust eftir að hennar naut ekki lengur við, enda hafði hjónaband þeirra verið einstak- lega farsælt og traust. Einar var með hæstu mönn- um vexti, fríður sýnum og karl- mannlegur, frekar fámáll og hafði sig lítt í frammi í fjöl- menni, en gat verið ræðinn og skemmtilegur í einkasamtölum. Öll hans búsumsvif og athafnir allar einkenndust af stakri reglusemi, vinnusemi og snyrti- mennsku svo af bar, enda er búið á Hamri með þeim snyrti- legustu og glæsilegustu sem sjá má í Skagafirði. Því merki hafa núverandi bændur, Sævar sonur Einars og Sigrúnar ásamt Unni konu sinni og síðustu árin í félagi við son sinn og tengdadóttur, hald- ið dyggilega á lofti, ræktað jörðina og byggt m.a. nýtt og glæsilegt fjós með öllum nýj- asta búnaði. Einar var afskaplega vand- aður og áreiðanlegur maður í öllum samskiptum og voru orð hans ekki síðri en skjalfestir samningar hjá öðrum. Hjálp- samur var hann og greiðvikinn og til hans var gott að leita þegar þörf krafði. Þeir eigin- leikar hafa svo vissulega erfst hjá afkomendum þeirra hjóna. Einar Kristinsson er kvadd- ur að leiðarlokum með virðingu og þökk fyrir vináttu og góða viðkynningu, um leið og fjöl- skyldunni er vottuð innileg samúð. Guðbrandur Þ. Guðbrandsson. Ég kynntist Einari á Hamri vorið 1974, þegar ég var 10 ára gamall. Leikfélagi úr blokkinni í Reykjavík hafði verið í sveit á öðrum bæ í Hegranesi og ég nauðað í foreldrum mínum þar til fundin hafði verið vist fyrir mig á Hamri. Þetta þætti jafn- vel einkennileg ráðstöfun í dag, því mín fjölskylda þekkti ekk- ert til á svæðinu eða til þess fólks sem ég átti að dvelja hjá og hafði engin tengsl þangað. Mér er minnisstætt þegar Einar tók á móti mér með sínu hlýlega og brosmilda viðmóti, þegar ég kom einn með flugi til Sauðárkróks. Ég bar strax traust til þessa hávaxna og hraustlega manns, sem sjálfur var þá ekki nema liðlega fer- tugur. Er skemmst frá því að segja að það var mikil gæfa fyrir mig að fá að dvelja næstu sumur hjá því einstaka sómafólki sem þau voru, hjónin Sigrún Hróbjarts- dóttir, sem lést 2015, og Einar Kristinsson. Mynduðust tengsl við heimilið og annað gott fólk á svæðinu sem hafa haldist æ síð- an. Einar var framúrskarandi bóndi og það var ávallt vel búið á Hamri og af miklum hygg- indum. Góður bragur á öllu og snyrtimennska í hávegum höfð. Einar var laghentur og vel bú- inn tækjum til viðhalds, meðal annars á öllum vélakosti. Var hann ávallt tilbúinn að liðsinna öðrum í þeim efnum eins og fleirum. Fannst mér reyndar skemmtilegt að sjá í heimsókn fyrir fáum árum hvað tækja- áhuginn var víðtækur, þegar Einar bóndi sat spenntastur allra yfir formúlukappakstrin- um í sjónvarpinu. Ég hef verið svo heppinn á lífsleiðinni, ekki síst á mótunar- árum, að kynnast, auk foreldra minna, góðu fólki sem ég gat litið upp til og reynt að taka mér til fyrirmyndar. Í þeim hópi hefur Einar á Hamri alltaf verið mér ofarlega í huga. Hann var mjög góður maður. Því miður get ég ekki verið við jarðarför Einars vegna ferðalags erlendis. Fjölskyldu Einars og öðrum ástvinum votta ég mína dýpstu samúð. Ari Edwald. Einar Kristinsson ✝ Viðar Garðars-son fæddist 24. október 1939 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hann lést á Landspítalanum 4. september 2019. Foreldrar Viðars voru hjónin Garðar Guðjónsson, f. 7.4. 1912, d. 15.12. 1995, bifreiðastjóri, og Freyja Eiríksdóttir, f. 27.8. 1915, d. 23.1. 2000, verka- kona. Systir Viðars: Ása Bryndís Garðarsdóttir, f. 28.4. 1949; skrifstofumaður, búsett í Reykja- vík. Viðar kvæntist Sonju Olsen Garðarsson, f. 12.8. 1941 í Nor- egi, húsfreyju, árið 1962. Börn Viðars og Sonju eru 1) Jón Garð- ar, f. 12.8. 1962, hótelstarfs- maður, búsettur í Reykjavík; 2) Viðar Freyr, f. 16.12. 1963, versl- unarmaður, búsettur á Akureyri. Maki Jaruek Intharat, f. 31.3. 1973. Börn: Viðar Tiger, f. 10.6. 2008, og Natalie Freyja, f. 12.9. 2014; 3) Signe, f. 12.5 1966, versl- unareigandi, búsett í Kópavogi. Maki: Heiðar Ingi Ágústsson, f. 10.6. 1968. Börn: Íris Kara, f. tækið Skíðaþjónustuna á Akur- eyri sem hóf sölu á skíðabúnaði, hjólum og tengdum vörum og þjónustu. Fyrirtækið byrjaði smátt í bílskúrnum heima við í Kambagerðinu en stækkaði fljótt og fluttist árið 1983 í eigið hús- næði á Fjölnisgötu þar sem versl- unin hefur verið starfrækt æ síðan. Skíði, skíðabúnaður og að- stæður til skíðaiðkunar áttu hug Viðars alla tíð, hann stundaði skíðaíþróttina af miklu kappi og var m.a. Íslandsmeistari í flokka- svigi. Viðar var frumkvöðull í skíðaíþróttinni og tók þátt í upp- setningu á fyrstu skíðalyftu Akureyringa, toglyftu í Hlíðar- fjalli, sem var knúin áfram með gömlum mótor úr Mjólkur- samlagi KEA. Viðar átti einnig farsælan feril sem skíðaþjálfari til margra ára. Viðar var sæmd- ur gullmerki Skíðasambands Ís- lands fyrir óeigingjarnt starf í þágu skíðaíþróttarinnar. Hann hlaut einnig viðurkenningu Íþróttaráðs Akureyrar fyrir störf að félags-, íþrótta- og æsku- lýðsmálum og athafna- og ný- sköpunarverðlaun Akureyrar 2011 fyrir framúrskarandi þjón- ustu, þrautseigju og góðan rekst- ur fyrirtækis. Útförin fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag, 20. september 2019, klukkan 13.30. 25.7. 1989; Sunna Rún, f. 14.7. 1995, og Bryndís Eva, f. 20.12. 1997. Lang- afabörn, börn Ír- isar og Magnúsar Þórs Magnússonar, Karí, f. 2.6. 2015, og Sara, f. 1.6 2017. 4) Bryndís, f. 11.12. 1970, verslunar- maður, búsett á Akureyri. Maki: Aðalsteinn Helgason, f. 8.11 1971. Börn: Elmar Þór, f. 16.2. 1995; Viðar Óli, f. 24.8. 1998, og Sonja Marín, f. 18.7. 2004; 5) Margrét Sonja, f. 17.5. 1974, viðskiptafræðingur, búsett á Akureyri. Maki: Árni Kristinn Skaftason, f. 27.2. 1979. Börn: Kara Margrét, f. 18.1. 2009; Maron Már, f. 5.5. 2012, og Lovísa Mía, f. 8.1. 2014. Viðar gekk í Barnaskóla Akureyrar og Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hann lauk prófi sem mjólkurfræðingur frá Statens Meieriskole í Þrándheimi í Nor- egi árið 1962. Viðar vann sem mjólkurfræðingur í ostagerð hjá Mjólkursamlagi KEA frá ár- unum eftir nám til ársins 1982. Árið 1980 stofnaði Viðar fyrir- Einstakur vinur okkar, Viddi Garðars, er fallinn frá. Vidda kynntumst við þegar hann var skíðaþjálfari okkar hjá Skíða- ráði Akureyrar þar sem hann var aðalþjálfari til margra ára. Sem þjálfari var hann þolin- móður og hvetjandi og hafði alltaf tíma fyrir okkur unga fólkið. Hann náði miklum ár- angri með sitt fólk og lagði grunninn að eftirtektarverðum árangri akureyrskra skíða- manna á árunum 1970-1980. Ár- angurinn sem hann náði með sínu fólki á Skíðalandsmóti Ís- lands á Siglufirði árið 1973 verður sennilega aldrei endur- tekinn en þá hreppti félagið öll verðlaun sem í boði voru í alpa- greinum. Viðar var hlédrægur en á þessu móti brosti hann alla daga og var stoltur af sínu fólki. Viddi hélt úti æfingum í öll- um veðrum og sagði að við myndum bara herðast við það. Við byggjum á Íslandi og þyrft- um að geta tekist á við snjó- komur og storma. Hann þýddi yfir á íslensku norsk hefti um skíðaþjálfun og það gerði hann til að gera okkur að betri skíða- mönnum. Þegar skíðakeppni var fram undan byrjaði hann viku áður að undirbúa okkur fyrir keppnisdagana. Við áttum að hugsa um keppnisbrekkurn- ar, fá upp keppnisákafann og vera andlega tilbúin þegar að starti kæmi. Hann var líka okk- ar sálfræðingur. Viddi lagði áherslu á sam- veru okkar iðkenda og í lok æf- inga var ósjaldan legið í skíða- brekkunum, horft á fallegan stjörnubjartan himininn eða norðurljósin. Þessar stundir eru okkur ógleymanlegar. Þegar þjálfunarferlinum lauk setti Viddi á stofn Skíðaþjón- ustuna sem hann rak allar göt- ur síðan. Þarna var gott að koma og eiga fjöldamargar fjölskyldur hér á Akureyri og á landinu öllu honum mikið að þakka. Þarna var hægt að koma með eldri út- búnað, skíði eða hjól, og skipta út fyrir stærra eða nýrra. Oft á tíðum borguðu menn eftir efnum og aðstæðum og ósjaldan borgaði hann með sín- um viðskiptamönnum. Viddi gat verið svolítið þver og var ekki mikið að nýta sér nýjustu tækni. Hann var með borðsíma og svaraði ekkert of oft í hann, viðskiptavinirnir gátu bara komið á staðinn, og það gerðu þeir líka. Hann geymdi nótur og reikninga í rassvasanum og okkur er sagt að hann hafi ávallt vitað hvaða vörur hann fékk og hversu mik- ið, þótt skráningin væri ekki nema í hausnum á honum. Hann borgaði alla reikninga á réttum tíma og vissi nákvæm- lega hvað hann skuldaði. Tölvur nýtti hann sér ekki, treysti á minnið. Viddi var nýtinn og nægjusamur og getum við sem erum honum yngri margt af honum lært. Viddi flutti allar sínar vörur um bæinn á hvítum gömlum Volvo-bíl. Þegar þessi bíll var á götum bæjarins var eins og hann væri bílstjóralaus, en Viddi sat nú samt undir stýri, sást bara voðalega lítið. Nú hefur þessi bíll lokið sínu hlutverki, hann komst ekki í gegnum síðustu skoðun, og það hefur kær vinur okkar líka gert. Þeirra lífsgöngu lauk á svipuðum tíma. Kæri vinur, við þökkum þér samfylgdina og allt sem þú kenndir okkur. Sonju og allri fjölskyldunni vottum við samúð okkar. Margrét Baldvinsdóttir, Tómas Leifsson. Það var mikil blessun fyrir mig þegar leiðir okkar Vidda lágu saman í Hlíðarfjalli, ég þá 15 ára unglingur sem hafði ný- verið eignast þrjár vinkonur sem allar hétu Margrét og voru þær mjög góðar á skíðum, sjálf kunni ég nánast ekkert fyrir mér í þeirri íþrótt. Skíðafólkið í Hlíðarfjalli tók einstaklega vel á móti mér sem nýliða í hóp þeirra og þar var Viddi fremst- ur í flokki með sitt ljúfa og hlýja viðmót sem einkenndi hann alla tíð. Hann kenndi mér á skíði, kenndi mér að njóta lífsins í Hlíðarfjalli með þeim góðu félögum og vinum sem vöndu komur sínar þangað bæði seint og snemma í hvaða verðri sem var. Þarna eignaðist ég góða vini og hafði þessi tími mótandi áhrif á líf mitt. Vin- áttubönd mín við Vidda rofnuðu aldrei, hann fylgdist af áhuga og einlægni með lífshlaupi mínu, barna minna og barna- barna og sýndi okkur öllum ein- stakt traust og virðingu, fyrir það hef ég ætið verið honum þakklát. Blessuð sé minning Viðars Garðarssonar. Votta ég Sonju og afkomendum þeirra hjóna samúð mína og megi þau öll eiga farsælt líf. Guðrún Frímannsdóttir. Viðar Garðarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.