Morgunblaðið - 20.09.2019, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 20.09.2019, Qupperneq 23
Lofts, því hann var m.a. um tíma formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og sat í ótalmörgum nefndum tengdum sveitarstjórn- armálum. Að góðbænda sið unni Loftur sauðkindinni og sá áhugi fluttist yfir til barna hans og konu, Hönnu Láru Bjarnadóttur. Ég stríddi stundum strákunum þeirra og sagði að þeir jörmuðu af áhuga fyrir sauðfjárræktinni. Það var alveg óhætt að gera að gamni sínu við Loft því hann var húm- orískur og stríðinn. Á Hruna- mannaafrétti sló einnig hjarta Lofts eins og svo margra bænda í sveitinni. Á kveðjustund lifa enda- laust margar minningar og ég sé fyrir mér gamla oddvitahópinn sem fagnar komu Lofts. Þeir taka á móti vini sínum við himnahliðið, glaðværir og traustir og syngja honum til heiðurs sálmalagið um „Kristján í Stekkholti“. Því miður getum við Steinunn ekki fylgt Lofti síðasta spölinn en sendum Hönnu og fjölskyldunni allri inni- legar samúðarkveðjur með þakk- læti og söknuð í huga. Minningin um glaðværan sveitarhöfðingja lifir í hjörtum okkar. Ísólfur Gylfi Pálmason. Á kveðjustund er margs að minnast eftir áratuga samstarf þar sem hæst bar samstarf okkar Lofts Þorsteinssonar í sveitar- stjórn Hrunamannahrepps. Þeg- ar ég var fyrst kjörinn í sveitar- stjórn hafði Loftur verið hreppsnefndarmaður í 16 ár, þar af 12 sem oddviti. Fyrir nýliðann var margt sem þurfti að setja sig inn í og þá var gott að geta leitað í reynslubrunn og þekkingu Lofts sem hann var fús að veita. Á þess- um tíma voru oddvitar uppsveita Árnessýslu átta. Menn eins og Gísli í Kjarnholtum, Böðvar á Búrfelli, Þórir á Laugarvatni, Steinþór í Þrándarholti og Jón í Vorsabæ – allir sem einn öflugir talsmenn síns heimahéraðs eins og Loftur í Haukholtum. Allir þjónuðu þeir lengi sínum sveit- ungum. Þeir áttu með sér víðtæka samvinnu um lausn margra mála og þegar þeir mættu á fundi á stærri sviðum eins og samstarfi sunnlenskra sveitarfélaga eða á landsvísu var bara von á góðu. Það var bæði gefandi og gaman að kynnast þessum körlum og þessum tíma sveitarstjórnarmál- anna. Allir áttu það sammerkt með Lofti að gefa sig alla í verk- efnið og í raun verja öllum tíma og starfsævi í að þjónusta samsveit- unga sína. Sveitarstjórnarvinnan er í senn gefandi og skemmtileg en um leið tekur hún mikinn tíma sem menn hafa þá ekki í annað. Það er því einstakt þegar fólk er tilbúið að verja starfsævinni við vinnu fyrir samborgarana. Það gerði Loftur og gaf allt sitt í verk- efnið. Verður það seint fullþakk- að. Fátækleg orð sett fram af mikilli virðingu mega sín þar lítils. Á starfstíma Lofts urðu miklar framfarir í okkar sveitarfélagi. Það efldist að burðum, atvinnulíf varð fjölbreyttara með stofnun öflugra fyrirtækja, uppbygging hitaveitunnar svo eitthvað sé nefnt. Samhliða varð veruleg fjölgun íbúa, yfirtaka á rekstri grunnskól- ans, stofnun leikskóla og bygging. Sterkur landbúnaður, sauðfjár- ræktin og afrétturinn voru ávallt ofarlega í huga Lofts. Öll þessi verkefni tókst oddvitinn, sem all- an starfstíma sinn var líka sveit- arstjóri, á við og var í fararbroddi. Fyrir utan alla ólíku og mann- legu þættina sem líka þurftu úr- lausnar við. Ég vil að ferðalokum þakka Lofti samstarf, samvinnu og stuðning alla tíð. Elsku Hanna, Steini, Maggi, Berglind, Eddi, Óli og fjölskyldur, við Elsa sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur og styðja í sorginni. Minning Lofts Þorsteinssonar lifir áfram, samof- in okkar samfélagi. Sigurður Ingi Jóhannsson. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 ✝ Kjartan Kon-ráð Úlfarsson fæddist á Vatt- arnesi við Reyð- arfjörð 10. júní 1935. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Boðanum í Kópavogi 4. sept- ember 2019. Kjartan var son- ur Úlfars Kjart- anssonar útvegs- bónda á Vattarnesi, f. 26. nóv. 1895, d. 22. mars 1985, og Mar- íu Ingibjargar Halldórsdóttur húsfreyju, f. 16. sept. 1897, d. 29. sept. 1939. Systkini Kjartans eru: Kjart- an, f. 1917, d. 1917, Halldóra Hansína, f. 1918, d. 2000, Jón Karl, f. 1920, Eygerður, f. 1922, d. 1982, Indíana Björg, f. Magnússon, Bjarni á tvö börn. d) Davíð. 2) María Ingibjörg, f. 1964, maki Andrés Eyberg Jó- hannsson, f. 1966. Börn þeirra eru a) Herbjörg, maki Friðrik Hilmar Zimsen Friðriksson, b) Jóhann Reynir. 3) Úlfar, f. 1965, maki Ingunn Heiðrún Óladóttir, f. 1963. Börn þeirra eru a) Viktor Daði, b) Sandra Mist. Kjartan flutti 15 ára gamall til Vestmannaeyja þar sem hann lærði rennismíði í Vél- smiðjunni Magna og varð meistari í þeirri iðngrein. Kjartan starfaði við rennismíði allt til ársins 1971 þegar hann hóf störf hjá Samvinnutrygg- ingum og síðar hjá VÍS þar sem hann vann til starfsloka. Kjartan og Margrét byrjuðu sinn búskap í Vestmannaeyjum þar sem þau byggðu sér hús en fluttu til Reykjavíkur 1967, síð- ar í Garðabæ og síðustu árin bjuggu þau í Kópavogi. Útför Kjartans fer fram frá Lindakirkju í dag, 20. sept- ember 2019, klukkan 13. 1924, d. 2008, Bjarni Sigurður, f. 1926, d. 2013, Að- albjörn, f. 1928, d. 2009, Steinunn Sig- urbjörg, f. 1931, d. 2018, Hreinn, f. 1937, d. 2017, og María Úlfheiður, f. 1939. Kjartan kvæntist 4. janúar 1958 Margréti Anders- dóttur, f. 1934 í Vest- mannaeyjum. Börn þeirra eru 1) Anders, f. 1961, maki Dag- björt Þuríður Oddsdóttir, f. 1963. Börn þeirra eru a) Mar- grét, sambýlismaður Ingþór Zóphoníasson, b) Heiður Kar- ítas, sambýlismaður Fannar Már Oddsson, c) Kristín Harpa, sambýlismaður Bjarni Hrafn Nú þegar ég kveð föður minn og lít yfir farinn veg er margs að minnast. Ég var á unglings- árum þegar foreldrar mínir ákváðu að kaupa fokhelt raðhús og fjölskyldan myndi flytja í Garðabæ. Næstu mánuði á eftir var unnið sleitulaust í því að byggja upp húsið og á örfáum mánuðum tókst að koma því í það horf að hægt var að flytja inn í það. Við tóku ár þar sem ég fékk tækifæri til að vinna með pabba að ýmsum verkefn- um í húsinu og einnig í bíl- skúrnum, þar sem fengist var við ýmis verkefni. Gilti einu hvort um var að ræða bílavið- gerðir eða smíðavinnu af ýmsu tagi. Allt lék þetta í höndum hans. Hann hafði sem ungur maður lært rennismíði og var meistari í þeirri iðn. Í bílskúrnum var rennibekkur sem var óspart notaður og þá stundum galdr- aðir fram hlutir sem manni hefði ekki dottið í hug að hægt væri að smíða heima í bílskúr. Pabba óx ekkert í augum, hann var vandvirkur og úrræðagóður og það var sama hvað var, hann var alltaf tilbúinn að takast á við þau verkefni sem fyrir lágu. Hann var alltaf tilbúinn að að- stoða fjölskyldu og vini og gilti einu hvort það var heima við, austur á landi eða jafnvel í Nor- egi. Eins var um heimili foreldra minna að þar var alltaf opið fyr- ir alla og tekið á móti gestum um skemmri eða lengri tíma ef þörf krafði. Pabbi hafði mikla ánægju af því að ferðast og þá sérstaklega um hálendi Íslands. Sérstaklega er mér minnisstætt þegar við feðgar tókum á móti tveimur frændum okkar frá Bandaríkjunum og keyrðum með þá um Ísland sumarið 1993. Dugði þá ekkert minna en að fara á tveimur bílum og var farið víða um, t.d. upp að Skála- fellsjökli í sunnanverðum Vatnajökli og inn í Öskju til að sýna gestunum landið. Þessi ferð var ágætt dæmi um gest- risni hans og hvernig hann vildi taka á móti fólki sem heimsótti hann. Ekkert var til sparað og reynt að gera ferðina sem eft- irminnilegasta. Hann var mér ómetanleg fyrirmynd og hef ég búið að því. Blessuð sé minning hans. Úlfar. Nú hefur tengdafaðir minn, Kjartan Konráð Úlfarsson, eða Daddi eins og hann var jafnan kallaður, kvatt þetta líf. Á kveðjustundu hellast minning- arnar yfir, ljúfar og hlýjar, sem gott er að orna sér við. Ég kom inn í fjölskylduna fyrir rúmum 30 árum, feimin og kvíðin en það reyndist óþarfi, mér var frá fyrsta degi tekið opnum örmum af öllum í fjölskyldunni, hjón- unum Dadda og Lillu og börn- um þeirra. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Heimilislífið í Ásbúð 77 var einstaklega ljúft og gott. Það sem einkenndi fjölskylduna var gagnkvæm virðing, hlýja og einstök hjálp- semi og þar var gott að búa. Mér er sérstaklega minnisstæð hjálpsemin, það var sama hvað í gangi var, allir hjálpuðust að, ég sagði stundum í gríni að það væri ekki hægt að laumast til að mála eitt herbergi, allir voru komnir til aðstoðar. Daddi var einstaklega laghentur og það var ekkert sem ekki var hægt að laga eða bæta, sama hvort það voru húsgögn, heimilistæki eða bílar. Enda var það alltaf viðkvæðið hjá elsta barna- barninu ef eitthvað var að; „afi laga“, sama hvort það var bil- aður hlutur, fatnaður eða sár á fingri. Gestrisnin í Ásbúð 77 var mikil og þess nutu mínir ættingjar ekki síður en aðrir. Foreldrar mínir, systkini og þeirra börn, allir velkomnir í Ásbúð, borðið hlaðið af veit- ingum og gisting ávallt velkom- in. Nú er 84 ára ævi lokið. Þeg- ar ég hugsa til baka er þakk- læti efst í huga, þakklæti fyrir að taka mér eins og ég er, fyrir að vera einstaklega umburðar- lyndur og hjálpsamur tengda- faðir, fyrir að vera góður, fræð- andi og umhyggjusamur afi og síðast en ekki síst að bíða eftir mér á kveðjustund, það var mér ómetanlegt. Góða ferð, kæri tengdapabbi, hvíldu í friði. Við hugsum vel um Lillu þína. Dagbjört Þuríður. Nú kveðjum við góðan mann, tengdaföður minn Kjartan Konráð Úlfarsson eða Dadda eins og hann var alltaf kallaður. Tengdapabbi var úrræðagóður og bjó yfir þeim einstaka hæfi- leika að finna lausnir á öllu, hvort sem það var að gera við bíla, breyta húsnæði eða smíða jólagjafir handa barnabörnun- um, allt var þetta gert af ein- stakri fagmennsku og útsjón- arsemi. Það voru ófá skiptin þar sem við settumst niður og hann hannaði nýtt verkfæri til að leysa vandamál sem kom upp, svo var það smíðað og málið leyst og auðvitað var það látið heita að við hefðum hannað verkfærið saman. Betri kennara gat ég ekki fengið við að undirbúa mig og okkur Maríu að byrja að takast á við fjölskyldulífið. Ég kem inn í fjölskylduna, hafði engan áhuga á bílum, kunni ekkert á þá göfugu iðn að smíða eða skapa eitthvað, en það kom ekki að sök, mér var strax treyst fyrir því að rafsjóða og renna í rennibekknum það sem þurfti, maður lærir jú á mistök- unum, og gerir hlutina bara aft- ur og allir tóku þátt í þessu saman því allt var þetta fjöl- skylduverkefni, sama hvort það var að gera við bílinn okkar eða að flísaleggja baðherbergið, all- ir komu saman að verkinu. Hann hafði einstakt lag á að drífa okkur yngra fólkið áfram við verkin og sá til þess að verkin voru kláruð af fag- mennsku. Að verki loknu var svo alltaf tími til að skreppa í bíltúr og skoða brimið á Reykjanesinu eða skreppa aust- ur fyrir fjall og skoða brúar- framkvæmdir. Seinustu árin var líkaminn farinn að gefa eft- ir en hugurinn var alltaf til í framkvæmdir, og ef við höfðum á orði að við þyrftum að fara að gera þetta eða hitt þá var alltaf viðkvæðið „hvenær á ég að mæta“. Elsku Daddi, hvíl í friði, takk fyrir alla hjálpina og alla ráðgjöfina, án þín væri ég bara hálfur maður. Þinn „uppáhalds“-tengdason- ur, Andrés Eyberg Jóhannsson. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Með þessum fallegu orðum Ingibjargar Sigurðardóttur kveð ég elsku Kjartan móður- bróður minn, eða Dadda eins og hann var kallaður, með innilegu þakklæti fyrir allt. Ég á margar og góðar minningar tengdar Dadda og Lillu og þeirra fjöl- skyldu. Það er ljúft að líta til baka og hugsa um allar góðu stundirnar, hvort sem það voru heimsóknir, ferðalög eða ýmsar framkvæmdir sem hjálpast var að við. Daddi var heill og sannur, traustur og alltaf boðinn og bú- inn að rétta fólkinu sínu hjálp- arhönd þegar á þurfti að halda, vildi allt fyrir það gera. Og þau stóðu sannarlega saman, hann og Lilla. Heimili þeirra hefur alltaf staðið ættingjum og vin- um opið og þangað sannarlega gott að koma, alltaf auðfundið hversu velkominn maður er. Fyrir alla ómetanlegu hjálp- ina sem ég hef fengið og allar góðu og gefandi stundirnar þakka ég af alhug. Ég sendi Lillu og fjölskyld- unni allri innilegar samúðar- kveðjur og bið Guð að blessa allar góðu minningarnar um kæran frænda. Gunnhildur Anna Vilhjálmsdóttir. Kjartan Konráð Úlfarsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNATAN ÓLAFSSON, Lindasíðu 2, Akureyri, lést sunnudaginn 15. september. Útför hans fer fram frá Glerárkirkju þriðjudaginn 24. september klukkan 13.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningar- sjóð Björns Rúnarssonar: Banki 0354-13-200686, kt. 141251-3259. Sigrún Halldórsdóttir Rögnvaldur Jónatansson Ásdís R. Jónsdóttir Ólafía Jónatansdóttir Haukur Konráðsson Sigurdríf Jónatansdóttir Björn J. Sighvatz Brynjar Bragason Anna Þ. Ingólfsdóttir Kristján Hálfdánarson Jóhanna S. Hansen Rúnar Hálfdánarson Inga Helga Björnsdóttir Daði Hálfdánsson Ráðhildur Stefánsdóttir Ástkær faðir minn, bróðir og frændi, GÍSLI ÞÓRÐARSON viðskiptafræðingur, Norðurbrún 1, Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. september. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 26. september klukkan 15. Þórður Gíslason Halldóra Þórðardóttir og frændsystkin Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA ÓLÍNA HLÍFARSDÓTTIR, Óla Hanna, frá Norðfirði, lést á Landakotsspítala 15. september. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 24. september klukkan 13. Hlífar Þorsteinsson Lára Jóna Þorsteinsdóttir Kristinn Steinn Guðmundss. Sigurlaug Pálsdóttir Höskuldur Guðmundsson Úlfhildur Úlfarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Söknuður Hugur minn hvarflar til bernskuáranna á Skaganum. Minningar um Þóru, æskuvinkonu mínar leita á mig. Vinátta okkar var mér allt. Þóra var traust, hlý og góð. Ég þurfti einungis að sveifla mér á snúr- ustaurnum, yfir grindverkið og ég var mætt. Stóð í tröppunum og beið meðan Þóra var að drekka. Í minningunni var alltaf heitt kakó og nýbakað rúgbrauð með heimagerðri kæfu á boð- stólnum, mmm. Það var ekki til siðs að leika inni í þá daga, við þurftum að finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera eða að láta okkur leiðast. Á barnaskólaárun- um einsettum við okkur að snerta ávallt ákveðinn ljósastaur á Heiðarbrautinni fyrir skóla, létum okkur hafa það að snúa til baka ef það gleymdist. Þóra var mikil íþróttamanneskja, átti ekki roð í hana þegar hún hljóp eins og hind eftir ánum eða tók á rás í sumarskólanum í Leirárskóla. Við æfðum sund bæði kvölds og Þóra Ingvadóttir ✝ Þóra Ingva-dóttir fæddist 18. september 1963. Hún lést 18. febrúar 2019. Útför Þóru fór fram í Kaupmanna- höfn 1. mars 2019. morgna, fórum í æf- ingabúðir og keppn- isferðir í góðum fé- lagsskap. Tíminn leið og smám saman fórum við í sínhvora áttina. Á sumrin vann Þóra í Hval- stöðinni og flutti síðan í bæinn og fór í Fóstruskólann. Ég var heimakær og dáðist að hugrekki hennar. Við tókum upp þráðinn á ný þegar ég flutti í bæinn og börnin komu í heiminn. Enn á ný flaug Þóra á vit ævintýranna í Danmörku. Þá misstum við af hvor annarri en áttum fáeinar góðar stundir sem ég geymi í hjarta mér. Hver getur siglt, þó að blási ei byr, bát sínum róið án ára? Hver getur kvatt sinn kærasta vin, kvatt hann án sárustu tára? Ég get siglt, þó að blási ei byr, bát mínum róið án ára. En ekki kvatt minn kærasta vin, kvatt hann án sárustu tára. (Þýð. Hulda Runólfsdóttir frá Hlíð.) Ég vil votta fjölskyldu Þóru samúð mína og þakka Binna fyr- ir dásamlegu ljóðin sem hann semur til konunnar sinnar og vinkonu minnar. Brynja Blumenstein Brynja Blumenstein Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.