Morgunblaðið - 20.09.2019, Side 31
DÆGRADVÖL 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
DUCA Model 2959 Rafmagn
L 238 cm Áklæði ct. 83 Verð 699.000,-
L 238 cm Leður ct. 15 Verð 879.000,-
„ÞAÐ SAKNAR MÍN ENGINN JAFNMIKIÐ
OG ÉG HAFÐI VONAST TIL.”
„HANN SAGÐI AÐ ÞETTA HEFÐI LITAÐ
HÁRIÐ Á HONUM FJÓLUBLÁTT.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að trúa því að
alheimurinn hafi sent
þig fyrir mig.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HÚN PRJÓNAÐI PEYSUR Á
ALLA Í FJÖLSKYLDUNNI
OG SVO Á ALLAR
HÆNURNAR
HÆTTU!
PALLÍETTUNUM
ER OFAUKIÐ AÐ
MÍNU MATI
ÞIG VANTAR KANNSKI
BARA BEITTARI
HNÍF!
ÉG Á ERFITT MEÐ
AÐ BORÐA KJÖT!
HÉRNA VAR MAMMA KOMIN
Á KAF Í PRJÓNASKAPINN
Björn Valur verður um borð í
skipi sínu EMERAUDE í dag.
Fjölskylda
Eiginkona Björns Vals er Þuríður
Lilja Rósenbergsdóttir, f. 12.8. 1961,
náms- og starfsráðgjafi. Foreldrar
hennar voru hjónin Rósenberg Jó-
hannsson leigubílstjóri, f. 27.5. 1928
d. 13.7. 1974, og Sigurbjörg Petra
Hólmgrímsdóttir tónlistarkona, f.
2.5. 1936, d. 27.4. 2006.
Börn Björns Vals: 1) Björgvin
Davíð, f. 17.10. 1976, d. 5.9. 1992; 2)
Sigurveig Petra, f. 2.1. 1981, leik-
skólakennari, búsett á Akureyri.
Sonur hennar er Björgvin Máni, f.
5.10. 2003; 3) Berglind Harpa, f.
18.9. 1985, þroskaþjálfi, búsett á
Akureyri. Eiginmaður Ágúst Örn
Pálsson, starfsmaður Akureyrar-
bæjar í Hlíðarfjalli. Börn þeirra eru
Edda Vigdís, f. 31.3. 2010, og Valur
Páll, f. 15.1. 2015; 4) Katla Hrund, f.
13.10. 1990, sjávarútvegsfræðingur,
búsett í Danmörku. Sambýlismaður
Kevin Prömpler viðskiptafræð-
ingur: Dóttir Kötlu er Fanndís
Bára, f. 14.11. 2011.
Systkini Björns Vals eru Aðal-
steinn Stefán, 27.1. 1951, athafna-
maður, búsettur í Mosfellsbæ; Gísli,
f. 23.8. 1953, rekstrar- og
mönnunarfulltrúi Samkaupa, bú-
settur í Reykjavík; Kristín Jónína, f.
25.6. 1965, kennari í Reykjavík, bú-
sett á Seltjarnarnesi.
Foreldrar Björns Vals voru hjón-
in Gísli M. Gíslason, skipstjóri og
netagerðarmeistari, f. 27.3. 1924, d.
27.9. 2009, og Sigurveig Anna
Stefánsdóttir húsmóðir, f. 15.5.
1930, d. 8.4. 2015. Þau voru búsett í
Ólafsfirði.
Björn Valur Gíslason
Kristín Ólafsdóttir
húsfreyja í Minna-Holti og húsfreyja í Ólafsfi rði
Gísli Gíslason
bóndi í Minna-Holti í Fljótum
og keyrari í Ólafsfi rði
Jónína Kristín Gísladóttir
húsmóðir og verkakona í Ólafsfi rði
Sigurveig Anna Stefánsdóttir
húsmóðir í Ólafsfi rði og
starfskona á leikskóla
Stefán Hafl iði Steingrímsson
verkamaður og sjómaður í Ólafsfi rði
Kristín Halldóra Jónasdóttir
vinnukona í Hólkoti og
húsmóðir í Ólafsfi rði
Steingrímur Hafl iðason
húsmaður í Hólkoti í Ólafsfi rði
Jóhanna Maren Jóhannsdóttir
vinnukona í Skagafi rði og
húsfreyja á Hofsósi
Guðmundur Þórðarson
verkamaður á Hofsósi
Björg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Hvassafelli á Hofsósi
Gísli Magnús Gíslason
sjómaður og útgerðarmaður á Hvassafelli á Hofsósi
Guðrún Kristjánsdóttir
húsfreyja á Hofsósi
Gísli Magnússon
vinnumaður í Skagafi rði og húsmaður
í Þönglabúð á Höfðaströnd, Skag.
Úr frændgarði Björns Vals Gíslasonar
Gísli Magnússon Gíslason
skipstjóri og netagerðarmeistari í Ólafsfi rði
Ég fékk gott bréf þar sem segir:„Þegar Halldór Blöndal var
forseti alþingis eftir langan feril
sem almennur þingmaður og ráð-
herra ortu bræðurnir Jón og Magn-
ús Magnússynir frá Staðarbakka í
Miðfirði limru í orðastað Halldórs
og frumflutt var á árshátíð Hún-
vetningafélagsins í Reykjavík árið
2000“:
Ég held er ég hugsa til baka
þótt hafi af nógu að taka
að eitt upp úr standi
á Ísalandi
að nú undir Hvalfjörð má aka.
Ólafur Stefánsson skrifar á Leir:
„Það er gömul saga og ný að snjall-
yrði og skáldskapur er oft kennt
frægum persónum, þótt viðkom-
andi sé ekki höfundur að, og hið
haga orð kannski miklu eldra en sá
sem talinn er hafa átt hugmyndina.
Sama hugsun getur komið fram í
margskonar myndum öld eftir öld
og aftur í gráa forneskju ef hægt er
að rekja svo langt.
Vísa sem sumir kenna við Goethe
og Magnús Ásgeirsson þýddi svo
snilldarlega er svona:
Hvar sem söngvar hljóma þér,
hefurðu samfylgd góða.
Vondum mönnum var og er
varnað allra ljóða.
Þessa hugsun má finna í bókum,
þótt Goethe karlinum sé alveg
sleppt í upptalningunni. Í Don Quij-
ote Servantesar, sem reyndar er
ekki ófrægari Goethe, en tveimur
öldum eldri, stendur: „Náðuga frú,
þar sem músík er getur ekkert
slæmt þrifist.“
Og í enn eldri bók frá 1543 segir í
einu ljóða Luthers: „Hér ber enginn
illan hug, af íþrótt sungið bæði og
dug.“
En það var reyndar Johann Gott-
fried Seume (1763-1810) sem hitti
naglann á höfuðið í söngvum sem
hann gaf út 1804:
Ef söngur hljómar, sestu þar í næði
sorgarlaust, slíkt vita landar hér.
Hvar söngur hljómar, enginn rændur er,
illar sálir þekkja’ei nokkurt kvæði.
En alþýðan sem oftast á síðasta
orðið stytti það svona og gerði
ódauðlegt :
„Hvar söngur hljómar, sestu þar í næði,
svaðamenni þekkja engin kvæði.““
Vindar gjalla viknar jörð
varmi allur þrýtur,
blikna hjallar hlíð og skörð
hærast fjallastrýtur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hvalfjarðargöng og
snjallyrði í skáldskap