Morgunblaðið - 20.09.2019, Síða 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
20. UMFERÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Baráttunni, ef baráttu skyldi kalla,
um Íslandsmeistaratitil karla í
knattspyrnu árið 2019 er lokið. KR
er Íslandsmeistari í 27. sinn en
þetta varð ljóst eftir 1:0-sigur liðs-
ins gegn Val á Hlíðarenda á mánu-
daginn síðasta. Breiðablik var eina
liðið sem gat náð KR að stigum fyrir
20. umferð deildarinnar. Ágúst
Gylfason, þjálfari Blika, gerði hins
vegar út um Íslandsmeistaravonir
Breiðabliks þegar hann ákvað að
taka Brynjólf Darra Willumsson af
velli á 86. mínútu gegn Stjörnunni á
Kópavogsvelli og setja Guðmund
Böðvar Guðjónsson inn á í stöðunni
1:1 en það urðu lokatölur leiksins.
Vesturbæingar eru vel að sigr-
inum komnir en liðið fagnaði síðast
Íslandsmeistaratitli árið 2013, þá
einmitt undir stjórn Rúnars Krist-
inssonar. Rúnar hefur nú fjórum
sinnum landað þeim stóra, einu
sinni sem leikmaður Vesturbæjar-
liðsins, og þrívegis sem þjálfari liðs-
ins. Það voru einhverjir KR-ingar
sem stungu upp á því eftir að úrslit
Íslandsmótsins lágu fyrir á mánu-
daginn að verðlaunaféð yrði notað
til þess að reisa gullstyttu af Rúnari
fyrir utan Meistaravelli, heimavöll
KR-inga. Frábær hugmynd sem á
fyllilega rétt á sér. Misgáfulegar
hlaðvarpsveitur töluðu um Íslands-
meistarana sem „Elliheimilið
Grund“ fyrir mót sökum hás með-
alaldurs KR-liðsins. Það heyrist lítið
úr þeim galtómu tunnum í dag.
Stöðugleiki er orð sem ekkert lið í
efstu deild karla getur státað af í
sumar, nema KR. Að ná upp stöð-
ugleika innan leikmannahópsins og
liðsins er í verkahring þjálfarans.
Varnarleikurinn hefur verið í fyr-
irrúmi en það er oftast lykillinn að
stöðugleika. Liðið hefur haldið
marki sínu hreinu í átta leikja sinna
í deildinni í sumar og þótt það séu
lið í deildinni sem hafa skorað fleiri
mörk en KR skiptir það engu máli
þegar allt kemur til alls.
Rúnar Kristinsson er maðurinn,
Vesturbærinn er staðurinn og önn-
ur lið þurfa að gjöra svo vel og
mæta til leiks næsta sumar ef titill-
inn á að yfirgefa Meistaravelli.
Markasjúki Eyjamaðurinn
Enski framherjinn Gary Mart-
in var besti leikmaður 20. umferðar
að mati Morgunblaðsins. Martin
gerði sér lítið fyrir og skoraði
þrennu fyrir ÍBV í 6:4-tapi gegn FH
á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði en
afrekið er sérstakt að mörgu leyti.
Eyjamenn fóru í þriggja tíma lúx-
ussiglingu frá Eyjum til Þorláks-
hafnar fyrir leik. Martin var að
skora mörk númer sjö, átta og níu í
sumar fyrir Eyjamenn í 10 leikjum
en alls hefur hann skoraði 11 mörk í
deildinni í sumar í 13 leikjum fyrir
bæði ÍBV og Val.
Af þeim 20 mörkum sem ÍBV hef-
ur skorað í deildinni í sumar hefur
enski framherjinn því skorað 45%
þeirra. Að skora níu mörk fyrir
hvaða lið sem er er vel af sér vikið
en að gera það fyrir fallið ÍBV-lið
sem hefur ekkert getað í sumar er
annað. Þá má alveg nefna það sér-
staklega að Keflavík, sem féll úr
deildinni síðasta sumar með fjögur
stig, skoraði 11 mörk. Gary er næst-
markahæsti leikmaður deildarinnar
með 11 mörk, einu marki minna en
Thomas Mikkelsen, framherji
Breiðabliks, en tölfræði framherj-
ans á Íslandi er ótrúleg. Hann á að
baki 106 leiki í efstu deild þar sem
hann hefur skorað 54 mörk.
Hafnfirðingurinn fljúgandi
FH-ingurinn Jónatan Ingi
Jónsson var besti ungi leikmaður
20. umferðar að mati Morgunblaðs-
ins. Kantmaðurinn öflugi átti mjög
góðan leik þegar FH vann 6:4-sigur
gegn ÍBV í markaleik á Kapla-
krikavelli. Jónatan Ingi lagði upp
þrjú mörk í leiknum en hann lék all-
an tímann á hægri kantinum hjá
Hafnfirðingum.
Jónatan Ingi gekk til liðs við FH í
apríl 2018 eftir þrjú ár í atvinnu-
mennsku með AZ Alkmaar í Hol-
landi en hann er tvítugur. Hann
skrifaði undir nýjan eins árs samn-
ing við fimleikafélagið í byrjun júní
á þessu ári en hann hefur komið við
sögu í 19 leikjum með FH í deildinni
í sumar þar sem hann hefur skorað
eitt mark. Þá á hann að baki 33 leiki
í efstu deild fyrir FH þar sem hann
hefur skorað þrjú mörk.
Jónatan Ingi hefur verið fasta-
maður í U21 árs landsliði Íslands að
undanförnu en hann á að baki sjö
leiki fyrir liðið þar sem hann hefur
skorað tvö mörk.
Á eftir Andra og Hemma
Daninn Morten Beck Guldsmed
gerði sér lítið fyrir og skoraði
þrennu fyrir FH gegn ÍBV. Morten
Beck skoraði einnig þrennu fyrir
FH gegn Stjörnunni í þar síðustu
umferð. Sá síðasti til að leika þenn-
an leik var Andri Sigþórsson árið
1997. Þar á undan var það Hermann
Gunnarsson heitinn árið 1973.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Kristinn Jónsson, KR 17
Óskar Örn Hauksson, KR 16
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, HK 15
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 15
Sölvi Geir Ottesen, Víkingi R. 14
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 14
Höskuldur Gunnlaugsson, Breiðablik 13
Alex Þór Hauksson, Stjörnunni 12
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 12
Marcus Johansson, ÍA 11
Ásgeir Marteinsson, HK 11
Einar Logi Einarsson, ÍA 11
Helgi Valur Daníelsson, Fylki 11
Birkir Valur Jónsson, HK 11
Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki 11
Kolbeinn Birgir Finnsson, Fylki 10
Steven Lennon, FH 10
Daði Ólafsson, Fylki 10
Brandur Olsen, FH 10
Guðmundur Kristjánsson, FH 10
Thomas Mikkelsen, Breiðabliki 12
Gary Martin, ÍBV/Val 11
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 11
Steven Lennon, FH 9
Geoffrey Castillion, Fylki 9
Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 9
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 8
Patrick Pedersen, Val 7
Óskar Örn Hauksson, KR 7
Pálmi Rafn Pálmason, KR 7
Markahæstir
KR 111
HK 102
Breiðablik101
Fylkir 94
FH 93
Stjarnan 93
Víkingur R. 93
ÍA 88
KA 85
Valur 84
Grindavík 76
ÍBV 59
Lið:
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
20. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019
Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 10
Björn Daníel Sverrisson, FH 10
Elias Tamburini, Grindavík 10
Ágúst Eðvald Hlynsson, Víkingi 10
3-5-2
Arnar Freyr Ólafsson
HK
Gary Martin
ÍBV
Finnur Tómas Pálmason
KR
Ólafur Ingi Skúlason
Fylki Brynjar Gauti Guðjónsson
Stjörnunni
Morten Beck Guldsmed
FH
Tryggvi Hrafn
Haraldsson
ÍA
Jónatan Ingi
Jónsson
FH
Helgi Valur
Daníelsson
Fylki Höskuldur
Gunnlaugsson
Breiðabliki
Pablo Punyed
KR
23
22
4
3 2
2
5
5 3
Stöðugleiki KR einsdæmi
Vesturbæingar verðugir Íslandsmeistarar Kjarklausir Blikar gáfust upp
Hafnfirðingar nálgast Evrópu Grindvíkingar þurfa kraftaverk
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Bestur Gary Martin skoraði þrennu
fyrir ÍBV gegn FH í Kaplakrika.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Efnilegur Jónatan Ingi Jónsson
lagði upp þrjú mörk gegn ÍBV.
HANDBOLTI
Þýskaland
Bergischer – Kiel................................. 29:34
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk
fyrir Bergischer og Ragnar Jóhannsson 3.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 1
mark fyrir Kiel.
Balingen – Wetzlar.............................. 33:34
Oddur Gretarsson skoraði ekki fyrir
Balingen.
Stuttgart – Hannover-Burgdorf........ 23:28
Elvar Ásgeirsson skoraði 3 mörk fyrir
Stuttgart.
Danmörk
Bikarkeppni, 8-liða úrslit:
Esbjerg – Herning-Ikast..................... 25:26
Rut Jóns skoraði ekki fyrir Esbjerg.
Svíþjóð
Skuru – Västerås ................................. 31:17
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 4 mörk
fyrir Skuru.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Kórinn: HK/Víkingur – Þór/KA ..........19:00
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍA.............19:15
Ásvellir: Haukar – ÍR ...........................19:15
Kópavogsvöllur: Augnablik – Fjölnir..19:15
Varmárvöllur: Afturelding – FH .........19:15
Eimskipsvöllur: Þróttur – Grindavík ..19:15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna: Grill 66-deildin:
Fylkishöll: Fylkir – HKU..........................19
Víkin: Víkingur – Selfoss ......................19:30
1. deild karla: Grill 66-deildin:
Laugardalshöll: Þróttur – Fjölnir U ...19:30
Kaplakriki: FH U – Þór ............................20
TM Höllin: Stjarnan U – Valur U.............20
Ásvellir: Haukar U – Grótta......................20
KA-heimilið: KA U – Víkingur.............20:30
Í KVÖLD!
Spánn
B-deild:
Real Oviedo – Extremadura ...................1:1
Diego Jóhannesson lék allan leikinn með
Real Oviedo.
Katar
Al-Arabi – Al Shahaniya..........................2:1
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar
liðið sem er efst í deildinni.
Danmörk
B-deild:
Vejle – Roskilde ....................................... 2:0
Kjartan Henry Finnbogason lék fyrstu
86 mínúturnar með Vejle.
Viborg – Vendsyssel................................ 1:1
Ingvar Jónsson var varamarkvörðurVi-
borg í leiknum.
KNATTSPYRNA