Morgunblaðið - 20.09.2019, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
VINNINGASKRÁ
20. útdráttur 19. september 2019
129 9048 19017 27697 40686 49047 62154 71526
941 10844 19045 28042 40859 49118 62317 71622
1115 10876 20168 28059 41089 49159 62492 71671
1154 11229 20335 28413 41110 49264 62502 71778
1636 11654 20411 30783 41270 49282 62983 72238
1714 11911 20551 30915 41273 49644 63146 72472
1909 12131 20979 31188 41578 49662 63503 72509
2175 12439 21159 31579 41669 50606 63574 72914
2883 12533 21257 31632 41960 51722 63736 72936
3207 12673 21702 31672 42096 52129 64237 72979
3319 12757 21708 32274 42732 52166 64484 73288
3459 13009 21733 32635 43023 52211 64817 73753
3583 13298 22088 32890 43399 52766 65417 74465
3700 13429 22429 32938 43856 52780 65592 74513
3871 13610 23076 33233 44103 53067 65651 74685
4238 13960 23088 33380 44445 53106 65722 74953
4298 14088 23601 33486 44758 53393 66177 75361
4541 14193 24202 33753 45215 53968 66339 75470
4944 14273 24235 33821 45392 54129 66512 75829
5096 14506 24480 33892 45730 54901 66724 76014
5242 14601 24734 33946 46183 54924 67013 76799
5512 14610 24807 34435 46527 55711 67014 77051
5741 14865 25037 35119 46581 55774 67537 77217
5765 14931 25148 36059 46812 56269 67622 77375
5990 14963 25155 36119 47038 56487 67696 77821
6145 15056 25673 36724 47130 57379 67739 77893
6274 15194 26298 36832 47155 57383 68152 78437
6353 15317 26379 37226 47702 58242 68328 78680
6782 15463 26503 37323 47758 58329 68378 79152
6793 15788 26515 37986 47778 58346 68410 79508
6801 15984 26735 38759 47846 59109 68938 79696
7144 16630 26966 39003 48310 59131 69156
7537 16708 26995 39036 48460 60570 70348
8111 16891 27140 39164 48473 60786 70645
8116 16940 27213 39973 48521 60847 70694
8292 17004 27449 40153 48570 60991 70717
8498 18233 27499 40296 48585 61741 71222
1044 15153 23009 32021 44612 56462 65916 74527
1395 15311 25685 32864 45211 57182 66130 74828
1864 15695 25695 34209 46727 58941 66198 74877
2016 16742 25852 34837 46999 59159 66516 75230
5888 17216 25923 37664 47456 59500 67321 77268
6771 17590 26387 39323 47599 60260 67653 77563
7126 18294 28428 39813 48971 60360 68294 78101
7140 19430 28431 41038 50203 60429 69094 78875
8992 19850 28861 41351 52363 60650 70730 79887
10206 21362 28932 42204 52496 61713 71637
12324 21807 29839 42416 54135 62638 72359
12637 22274 30169 43661 54538 63990 72647
13668 22337 31733 43728 56156 64351 73080
Næsti útdráttur fer fram 26. september 2019
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
1043 27636 30801 31726 69225
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3873 12109 34141 50429 58168 68004
6517 23543 35173 51114 61234 76086
10251 24545 46265 51121 63415 78113
11974 31690 49364 51674 66572 79363
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
1 7 9 7 7
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Austurrískar kvikmyndir eru í
brennidepli á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem
hefst fimmtudaginn 26. september
næstkomandi. Þar mun hryllingur
einnig vera áberandi sem og kvik-
myndir sem þrýsta á mörk kvik-
myndaformsins. Að auki verður
fjöldinn allur af evrópskum verð-
launakvikmyndum á hátíðinni svo
allir ættu að geta
fundið eitthvað
við sitt hæfi.
„Frá Aust-
urríki koma
margar virkilega
góðar kvikmynd-
ir. Þær sem verða
sýndar á hátíðinni
eru allar nýjar
austurrískar
myndir,“ segir
Hrönn Marinósdóttir, fram-
kvæmdastjóri RIFF.
Þar má nefna myndina Earth sem
fjallar um landslagsbreytingar af
manna völdum, Chaos eftir Söruh
Fattahl sem er sýrlenskur flótta-
maður í Vín og er orðin einn efnileg-
asti leikstjóri Austurríkis og Nobadi
eftir Karl Markovics sem var heims-
frumsýnd í Toronto í síðustu viku og
verður Evrópufrumsýnd á RIFF.
Nýung á hátíðinni er hryllings-
myndadagskrá en henni verður gert
hátt undir höfði þetta árið. Þeir sem
vilja taka forskot á Riff-sæluna geta
jafnvel farið á sérstaka RIFF-
sýningu á Reykjavík Whale Watch-
ing Massacre í kvöld.
„Sýningin verður á Center Hotel
Plaza og þar verða ýmsir óvæntir at-
burðir,“ segir Hrönn.
„Hryllingsmyndaprógrammið er
skapað með norðlægum fókus í til-
efni af því að Ísland er með for-
mennsku í norðurslóðaráði. Hingað
munu því koma ýmsir fulltrúar bæði
frá Kanada og Ameríku. Við munum
sýna fullt af flottum hryllings-
myndum, eina eftir Jim Jarmusch
sem var opnunarmyndin í Cannes og
aðra eftir Jessicu Hausner, myndina
Little Joe, en hún vakti mikla athygli
á Cannes hátíðinni í vor og vann aðal-
leikkona myndarinnar, Emily Beec-
ham, aðalleikaraverðlaunin á hátíð-
inni í vor. Beecham var upprennandi
meistari á RIFF fyrir nokkrum ár-
um. Svo má ekki gleyma Dachra sem
er ný hryllingsmynd frá Túnis og er
ein af mínum uppáhaldsmyndum.“
Aldrei hafa jafn margar umsóknir
borist RIFF um sýningar á myndum
en umsóknirnar voru hátt í annað
þúsund þetta árið. Við valið þarf að
huga að ýmsu.
„Við leggjum mikla áherslu á að
sýna alls konar myndir með mikla
breidd. Við sýnum mikið af evrópsk-
um myndum sem tala margar hverj-
ar til samfélagsins og við getum
speglað okkur í sem Evrópubúar.
Við viljum reyna svolítið á miðilinn,
ýta á mörkin og vitrunarflokkurinn
gengur svolítið út á það. Þar kynnum
við níu verk, hvert öðru betra. Þetta
eru glæsilegar bíómyndir og þar er
verið að fara nýjar slóðir með kvik-
myndamiðilinn, þau eru að leika sér
svolítið. Til dæmis í Ivana the Ter-
rible sem er frábær mynd og fékk
sérstök dómnefndarverðlaun í Loc-
arno,“ segir Hrönn.
Vitranir gefa þróun til kynna
Í Vitrunum tefla nýir leikstjórar
fram sinni fyrstu eða annarri mynd
og keppa um aðalverðlaun hátíð-
arinnar, Gullna lundann.
„Þetta eru ekki tilraunamyndir
heldur myndir með mjög sterkan
söguþráð þar sem leikstjórar leika
sér með kvikmyndaformið. Þetta er
ekkert ósvipað því hvernig íslenskar
myndir eru oft byggðar upp, sér-
staklega þær sem hafa verið að slá í
gegn eins og Hvítur hvítur dagur.
Vitranir eru nýjar myndir með nýj-
um tón sem gefa vísbendingu um það
hvernig miðillinn er að þróast.“
Þrír heiðursgestir koma á hátíðina
og ber þá helst að nefna franska leik-
stjórann Claire Denis.
„Það er mikill heiður að fá hana á
hátíðina, hún er mjög stórt nafn í
hinum alþjóðlega kvikmyndaheimi.
Hún er mjög virt og er ein af stóru
erlendu kvikmyndaleikstjórunum.
Við ætlum að sýna fjórar myndir eft-
ir hana. Denis er oft höfundur þeirra
mynda sem hún leikstýrir og fjallar
gjarnan um samfélagið og eins og
ýmsar kómískar hliðar. Nýjasta
myndin hennar High Life verður til
dæmis sýnd á RIFF,“ segir Hrönn.
Forseti Íslands veitir Denis heið-
ursverðlaun á Bessastöðum í byrjun
október.
Ung hugsjónakona verður einnig
heiðruð, Þjóðverjinn Katja Adomeit
en hún er upprennandi meistari há-
tíðarinnar.
„Katja er dæmi um unga kvik-
myndagerðarkonu sem er búin að
gera ótrúlega hluti fyrir nánast eng-
an pening. Hún er með gríðarlegt
hugmyndaflug og virkilega vandaðar
myndir. Hún fer mjög óhefðbundnar
leiðir við að dreifa myndunum sínum.
Til dæmis myndinni Team Hurric-
ane sem er unglingamynd. Henni
tókst einhvern veginn að fá alla ung-
linga í Danmörku til að sjá myndina
sína, til dæmis í gegnum samfélags-
miðla.“
Þriðji heiðursgesturinn er banda-
ríski leikarinn John Hawkes sem lék
til dæmis í kvikmyndinni Winter‘s
Bone. Hawkes fer með aðalhlutverk í
mynd leikstjórans Elvars Aðalsteins,
End of Sentence.
„Hawkes verður með spurt og
svarað á föstudagskvöldinu í Bíó
paradís. Sama dag verður leikstjóri
myndarinnar með spjall. Hann er
nýr leikstjóri sem byrjaði að gera
myndir um fertugt.“
RIFF hefur getið sér gott orð í
hinum alþjóðlega kvikmyndaheimi
þrátt fyrir að hátíðin sé lítil á alþjóð-
legan mælikvarða.
„Það er mjög greinilegt að margir
vilja sýna myndirnar sínar á RIFF
og við leggjum mikla áherslu á að
sýna bara gæðamyndir sem höfða til
margra. Þetta er auðvitað fyrst og
fremst skemmtun þó að við séum
auðvitað líka að vanda okkur við að
velja myndir sem tala til samfélags-
ins og hjálpa okkur að verða betra
samfélag.“
Hrönn bendir á að það sé ekki
sjálfsagt að hátíðin sé haldin.
„Þetta er fyrir tilstuðlan mjög
margra, þarna eru fullt af sjálf-
boðaliðum og aðilum sem vinna mjög
óeigingjarnt starf til þess að koma
þessari hátíð á koppinn. Við vonum
auðvitað að við getum haldið áfram
en það er ekkert í hendi.“
Miða á hátíðina má nálgast á Tix-
.is, Riff.is og í Bíó Paradís þar sem
flestar kvikmyndanna verða sýndar.
Mögulegt er að kaupa hátíðarpassa
sem gildir á allar hefðbundnar kvik-
myndasýningar, klippikort sem gild-
ir á átta sýningar eða miða á stakar
sýningar.
Hrönn
Marinósdóttir
Fara með kvikmynda-
miðilinn á nýjar slóðir
Austurrískar kvikmyndir og hrollvekjur áberandi á RIFF
Heiðruð Leikstjórinn Claire Denis
hlýtur heiðursverðlaun RIFF.
Íslenska hryllingsmyndin Reykjavík Whale Watching
Massacre, eftir leikstjórann Júlíus Kemp, verður sýnd í
kvöld á vegum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík, RIFF, sem hefst 26. september. Myndin
fjallar um hóp ferðamanna sem fara í hvalaskoðunar-
ferð. Báturinn bilar og hvalveiðiskip kemur til bjarg-
ar, eða svo halda skipverjar í fyrstu. Hefst síðan blóð-
bað mikið. Myndin verður sýnd á Center hotel Plaza kl.
20.45. Frekari upplýsingar má finna á vef hátíðar-
innar, riff.is.
Hvalaskoðunarfjöldamorð á RIFF
Júlíus Kemp
Alþjóðlegur dag-
ur friðar hefur
verið haldinn há-
tíðlegur 21. sept-
ember að frum-
kvæði Sameinuðu
þjóðanna frá
1981. Um helgina
heldur Ráð evr-
ópskra formæðra
friðarþing á
Íslandi og er von
á 22 erlendum gestum frá 14 lönd-
um. Á morgun kl. 11 verður opnuð
sýning í Kjarnanum með listaverk-
um leikskólabarna þar sem þau túlka
frið í leik og starfi. Klukkan 14 setur
Þröstur Freyr Gylfason, fv. formað-
ur Félags Sameinuðu þjóðanna,
friðardaginn formlega í Þjóðminja-
safni, fjórar formæður taka til máls
og Páll Óskar og Monika Abendroth
flytja tónlist. Á eftir verður farið í
friðargöngu um Tjörnina.
Alþjóðlegum degi
friðar fagnað
Monika
Abendroth
Guðlaug Mía
Eyþórsdóttir
veitir áheyr-
endum innsýn í
tilurð verka
sinna og þver-
flautuleikarinn
Sindri Freyr
Steinsson leiðir
gesti um sýn-
inguna Verkin
sýna merkin í
Harbinger í kvöld milli kl. 20 og 21.
„Á sýningunni býður Guðlaug
Mía áhorfendum í fagurfræðilegan
leiðangur um kunnuleg stef úr
hversdeginum. Hún skoðar skúlp-
túríska þætti í manngerðu um-
hverfi okkar, formrænu stiga-
ganga, gluggasylla, anddyra,
fatahengja. Efnistök hennar eru í
íslenskum hversdagsveruleika,
hreinum línum úthverfanna, post-
módernisma Breiðholtsins.“
Spjall og tónlistar-
leiðsögn í kvöld
Guðlaug Mía
Eyþórsdóttir
Kosning um
framlag Íslands
til Óskars-
verðlauna 2020
er hafin og
stendur til mið-
nættis 24. sept-
ember. Að venju
eru það meðlimir
Íslensku kvik-
mynda- og sjón-
varpsakademí-
unnar (ÍKSA) sem velja íslensku
myndina. Að þessi sinni stendur
valið á milli fjögurra kvikmynda.
Þær eru Héraðið í leikstjórn Gríms
Hákonarsonar, Hvítur, hvítur dag-
ur í leikstjórn Hlyns Pálmasonar,
Tryggð í leikstjórn Ásthildar Kjart-
ansdóttur og Undir halastjörnu í
leikstjórn Ara Alexanders Ergis
Magnússonar. Kosningin er rafræn.
Nánari upplýsingar eru á vefnum
eddan.is.
Kosið um framlag
Íslands til Óskars
Óskarsstyttan