Morgunblaðið - 23.09.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Haraldur Sveinsson,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Árvak-
urs, útgáfufélags
Morgunblaðsins, lést á
hjúkrunarheimilinu
Brákarhlíð í Borgar-
nesi sl. laugardag, 21.
september, 94 ára að
aldri. Haraldur, sem
var sonur hjónanna
Soffíu Emelíu Haralds-
dóttur húsfreyju og
Sveins Magnúsar
Sveinssonar, forstjóra
Timburverslunarinnar
Völundar, fæddist 15.
júní 1925 í Reykjavík.
Haraldur lauk stúdentsprófi frá
MR 1944. Hann var sölumaður hjá
Timburversluninni
Völundi hf. 1945-1951
og framkvæmdastjóri
þar 1951-1968 og fram-
kvæmdastjóri
Morgunblaðsins 1968-
1995. Hann átti jafn-
framt sæti í stjórn Ár-
vakurs um árabil og
var formaður hennar
1954-1969 og 1995-
2005. Auk þess gegndi
Haraldur ýmsum fé-
lags- og trúnaðar-
störfum á vettvangi at-
vinnulífsins og var
félagi í Rotaryklúbbi
Reykjavíkur frá 1952 og forseti
1963-64.
Haraldur sat lengi í stjórn hesta-
mannafélagsins Fáks og Lands-
sambands hestamannafélaga 1961-
79 og var gerður að heiðursfélaga
Landssambands hestamannafélaga
árið 2011, en hafði áður hlotið gull-
merki þess. Segja má að utan starfs-
ins hafi hestamennskan átt hug Har-
aldar, sem ungur eignaðist jörðina
Álftanes á Mýrum, þar sem hann var
með hross og stundaði búskap.
Eftirlifandi eiginkona Haraldar er
Agnes Jóhannsdóttir, f. 1927, hús-
freyja. Börn þeirra eru Soffía, f.
1955; Ásdís, f. 1956; Jóhann, f. 1959;
Sveinn f. 1962. Barnabörnin eru
fimm og langafabörnin sex.
Að leiðarlokum þakkar Árvakur
Haraldi fyrir störf hans við fyrir-
tækið og sendir fjölskyldu hans inni-
legar samúðarkveðjur.
Andlát
Haraldur Sveinsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Árvakurs
Fjöldi fólks gekk og hjólaði frá Miklatúni að
Lækjartorgi í Reykjavík í telfni bíllausa dagsins í
gær, en alþjóðlegi bíllausi dagurinn markar
endalok evrópsku samgönguvikunnar.
Sveitarfélög hafa ásamt umhverfisráðuneyt-
inu staðið að deginum, meðal annars með því að
bjóða frítt í strætó, en að þessu sinni var ákveðið
að hafa sérstaka dagskrá.
Meðal annarsflutti Guðmundur Ingi Guð-
brandsson umhverfisráðherra ræðu. Þá var létt
yfir þátttakendum þrátt fyrir rigninguna í borg-
inni í gær.
Morgunblaðið/Hari
Mikil þátttaka á bíllausum degi þrátt fyrir úrkomu
Gulur, brúnn og rauður eru áber-
andi litir nú þegar haustsvipur fær-
ist yfir landið. Brátt fella trén lauf-
ið, sem er hluti af hinn óstöðvandi
hringrás í náttúrunni. Allt er þetta
eðlilegt nú á haustjafndægri, en
jafndægur er sá tími þegar sól er
beint yfir miðbaug jarðar. Þetta
gerist tvisvar á ári, á vorjafndægri á
tímabilinu 19.-21. mars og á haust-
jafndægri 21.-24. september. Um
þetta leyti eru dagur og nótt því
sem næst jafnlöng hvar sem er á
hnettinum og af því er nafnið dreg-
ið. Í dag, mánudag, er sól beint yfir
miðbaug klukkan 7.50.
Ágætt haustveður er á landinu
nú, milt og hlýtt. Í dag er spáð suð-
austan og austan 5-13 m/s, en öllu
hvassara með suðurströndinni.
Rigning verður með köflum, einkum
um landið sunnanvert. Þurrt að
kalla á Norðurlandi en væta um
tíma í öðrum landshlutum. Hiti
verður 10 til 18 stig. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Haust Kyrrt yfir Kópavogi í gær.
Litadýrð á
jafndægrum
Rigning og hlýtt
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vinnumálastofnun sendi á síðasta ári
alls 4.252 bréf til fólks sem grun-
semdir voru um að haft hefði rangt
við og fengið bótagreiðslur vegna at-
vinnuleysis á óeðlilegan hátt. Alls
tókst að ljúka 617 málum eða um
15% miðað við útsend bréf. Þetta
kemur fram í ársskýrslu stofnunar-
innar fyrir árið 2018 sem er nýkomin
út. Þar segir frá því helsta í starf-
seminni á liðnu ári.
Samkeyrt við gagnabanka
Til að greiðslur frá Vinnumála-
stofnun séu réttar er þar starfrækt
eftirlitsdeild sem samkeyrir sínar
upplýsingar við gagnabanka
menntastofnana, Fangelsismála-
stofnunar, Ríkisskattstjóra og Sam-
göngustofu. Haft er eftirlit með stað-
festingum og innskráningum á
þjónustusíðum á vef Vinnumála-
stofnunar sem koma frá erlendum
netþjónum.
Árið 2017 sendi eftirlitsdeildin út
alls 2.804 bréf vegna mála þar sem
grunur lék á að fólk á bótum hefði
rangt við, eða vegna rangra skrán-
inga. Var alls 511 málum lokið með
viðurlagaákvörðun.
Ábendingar frá fólki úti í bæ og
starfsfólki stofnunarinnar eru kann-
aðar og eftirlit er haft með þeim sem
tilkynna ekki heimkomu eftir at-
vinnuleit erlendis. Sömuleiðis er litið
til með þeim sem eru með skráðar
ótilkynntar fjármagnstekjur.
Fólk haldi sig á landinu
Alls voru send 2.854 bréf vegna
samkeyrslu við staðgreiðsluskrá
Ríkisskattstjóra, sem benti til að fólk
skráð án vinnu væri við störf. Af
þessum málum lauk 355 með viður-
lagaákvörðun. Þá voru send 93 bréf
til námsmanna. Tveimur málum lauk
með viðurlagaákvörðun.
Vinnumálastofnun fylgist sömu-
leiðis með því að fólk sem er skráð í
atvinnuleit haldi sig á landinu. Komi
innskráningar frá viðkomandi til
dæmis í gegnum erlenda netþjóna
getur það bent til misnotkunar á
bótakerfinu, en utanferðir verður að
tilkynna til Vinnumálastofnunar.
Alls voru 664 bréf send vegna stað-
festinga og innskráninga frá útlönd-
um. Þar af var 161 máli lokið með
viðurlagaákvörðun. Aukinheldur
voru send 557 erindi vegna sam-
keyrslu við staðgreiðsluskrá Ríkis-
skattstjóra vegna fjármagnstekna.
Eftirlit og skuldamyndun
Alls nam skuldamyndun sem fyrr-
greind eftirlitsmál skiluðu rúmlega
152 milljónum kr. eða að meðaltali
247 þús. kr. á hvern þann sem sætti
viðurlögum.
Margir eru beittir viðurlögum
Vinnumálastofnun fylgist vel með meintum svikum Sendi út 4.252 bréf
Aurskriða sem féll á veg í Gilsfirði
á laugardag var um tveir metrar að
þykkt og 25 til 30 metar að breidd,
að sögn Sæmundar Jóhannssonar,
flokksstjóra Vegagerðarinnar í
Búðardal. Búið er að hreinsa veg-
inn, sem skriður hafa oft fallið á.
Lítil umferð er þó um þessar slóðir
eftir að Gilsfjarðarbrúin var byggð
fyrir um 20 árum.
Aurskriða lokaði
vegi í Gilsfirðinum
Ljósmynd/Sæmundur G. Jóhannsson
Skriðan Var bæði stór og nokkuð breið.