Morgunblaðið - 23.09.2019, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
EmmanuelMacronFrakk-
landsforseti fór í
liðinni viku til Ítal-
íu og fundaði þar með Guiseppe
Conte, forsætisráðherra lands-
ins. Af heimsókninni mátti ráða
að allur tónn í samskiptum Ítal-
íu og Frakklands hefði breyst
til hins betra, eftir að Matteo
Salvini og Bandalagið hurfu
þar úr ríkisstjórn, en Frakkar
höfðu meðal annars afturkallað
sendiherra sinn frá Róm um
stund vegna deilna milli
ríkjanna.
Eitt af því sem Macron sam-
þykkti á fundi sínum með
Conte var að Frakkar myndu
styðja tillögur Ítala um að
flóttamönnum yrði dreift jafn-
ar um aðildarríki Evrópusam-
bandsins en nú er, en bæði nú-
verandi ríkisstjórn, og ekki
síður sú sem Salvini yfirgaf,
hafa lagt þunga áherslu á að
öðruvísi yrði tekið á flótta-
mannavandanum.
Stjórn Salvinis hafði gripið
til þess ráðs að loka höfnum
fyrir flóttamönnum og er
árangurinn umtalsverð fækkun
flóttamanna til Ítalíu. Nú segj-
ast stuðningsmenn Bandalags-
ins sjá merki þess að flótta-
mönnum fjölgi á ný og vara við
því að kjósendur muni taka því
illa verði hafnirnar opnaðar á
nýjan leik. „Við viljum ekki að
landinu verði aftur breytt í evr-
ópskar flóttamannabúðir,“
sagði Susanna Ceccardi, þing-
maður Bandalagsins, þegar
hún lýsti áhyggjum sínum af
stöðunni.
Macron sagði í heimsókninni
til Ítalíu að hann vildi breyta
núgildandi reglugerðum, sem
kveða á um að hælisleitendur
verði að sækja um hæli í fyrsta
Evrópusambandsríkinu sem
þeir stíga fæti í, og að leitað
yrði samevrópskra lausna.
Evrópusambandið hefði í raun
brugðist Ítölum og öðrum ríkj-
um, sem tekið hafa við obb-
anum af flóttamönnum síðustu
árin.
Þessi mál verða rædd frekar
á fundi á Möltu í dag, þar sem
Þýskaland, Malta og Finnland,
sem fer með forsæti í ráðherra-
ráði ESB, auk Frakklands og
Ítalíu, koma saman og hyggjast
leita leiða til að koma upp kerfi
sem dreifir flóttamönnum sjálf-
krafa um álfuna í stað þess að
þeir safnist saman í landinu
sem þeir koma fyrst til. Niður-
staðan af þessu getur haft
gríðarleg áhrif á þróun flótta-
mannamála í Evrópu og mikil-
vægt fyrir ríki norðar í álfunni,
sem hafa ekki búið við sama
álag vegna þessara mála og
Grikkland og Ítalía þó að þau
séu fjarri því ósnortin af vand-
anum, að fylgjast
vel með.
Það sýnir vel hve
viðkvæm þessi mál
eru pólitískt og hve
miklar áhyggjur Macron
Frakklandsforseti hefur af
áhrifum þeirra heima fyrir að
skömmu fyrir yfirlýsingu hans
á Ítalíu hvatti hann til þess á
fundi með þingmönnum flokks
síns, En Marche, að taka þyrfti
upp umræðu um þau sam-
félagslegu og menningarlegu
vandamál sem fylgdu stór-
auknum fjölda innflytjenda til
Frakklands. Ummælin vöktu
nokkurt umtal og deilur innan
flokksins, en liðsmenn hans
koma úr ýmsum áttum
franskra stjórnmála.
Þessi hvatning Macrons er
sögð hafa fallið betur í kramið
hjá hægrisinnuðum stuðnings-
mönnum hans en hinum, og
mátti greina hjá ýmsum skýr-
endum í frönskum stjórnmálum
að þeir teldu hana eiga sér rót í
þeirri staðreynd, að það stytt-
ist í næstu forsetakosningar,
sem fara fram árið 2022. For-
setatíð Macrons hefur enda
verið nokkuð brokkgeng til
þessa, og hin fjölmennu götu-
mótmæli „gulu vestanna“ hafa
til dæmis sett ljótan svip á hana
og enn sér ekki fyrir endann á
þeim mótmælum.
Þá er Macron eflaust ofar-
lega í huga að síðast þurfti
hann að mæta Marine Le Pen,
leiðtoga frönsku Þjóðfylkingar-
innar, í seinni umferð forseta-
kosninganna. Ekki er útlit fyrir
að fylgi þess flokks sé í neinni
rénun, og gæti jafnvel farið svo
að Macron mætti fulltrúa
flokksins aftur árið 2022 ef
fram heldur sem horfir. Mikið
hefur verið rætt um ástæður
þess að Þjóðfylkingin nýtur svo
mikils fylgis í Frakklandi, en
ljóst er að þeirri umræðu sem
Macron vill að fari fram er ekki
síst beint að hófsamari stuðn-
ingsmönnum hennar.
Miklu skiptir að Macron tak-
ist það ætlunarverk sitt að
ræða flóttamannavandann og
víðtæk áhrif hans á samfélagið.
Umræða um þetta mál er sjálf-
sögð og raunar nauðsynleg,
rétt eins og um önnur stór mál.
Hingað til hefur þessum vanda
verið mætt með því að hefð-
bundnir stjórnmálamenn og
hefðbundnir flokkar hafa forð-
ast umræðurnar af ótta við að
fá á sig árásir og neikvæðan
stimpil. Þetta verður að breyt-
ast því að annars fer þessi um-
ræða aðeins fram innan jaðar-
flokka sem munu þá sækja í sig
veðrið, eins og þeir hafa þegar
gert. Það getur ekki verið sú
þróun sem leiðtogar og stuðn-
ingsmenn hinna hefðbundnu
flokka vilja sjá.
Macron býr sig undir
seinni hálfleikinn}
Frakklandsforseti og
flóttamannavandinn
Í
gömlu ævintýri segir frá því þegar
Hamingjan og Skynsemin þrættu um
það hvor þeirra væri mikilvægari.
Þær leystu úr deilunni með tilraun.
Skynsemin hljóp í fávísan náunga úti
á akri. Sá sneri sér þegar í stað að flóknari
verkefnum, leysti erfiðar þrautir og náði
frama í hirð konungs. Björt framtíð blasti við.
Svo fór þó að öfundarmenn klekktu á honum
og fengu konung til þess að fyrirskipa að hann
yrði hengdur í hæsta gálga.
Þær vinkonur, Hamingjan og Skynsemin,
hafa verið í brennidepli á Íslandi. Fyrir viku
var haldin í Háskóla Íslands alþjóðleg ráð-
stefna um uppbyggingu velsældarhagkerfa.
Þar var fjallað um ýmsar leiðir til þess að
mæla hversu gott þjóðir hafa það. Hingað til
hefur mest verið horft á svonefnda verga
landsframleiðslu (VLF). Ef verg landsframleiðsla á mann
eykst gefur það til kynna að hægt sé að bæta kjör almenn-
ings. Flestir hafa heyrt um fylgifisk hennar, hagvöxtinn,
en hann segir til um það hve mikið heildarverðmæti hafa
aukist hér á landi. Talað er um að lengsta hagvaxtarskeiði
Íslandssögunnar sé að ljúka, nú sé hagkerfið að dragast
saman eða stækki að minnsta kosti ekki jafnhratt og fólki
fjölgar.
Frá því að ég fór að fylgjast með umræðum um efna-
hagsmál hefur það þótt fínt hjá róttæklingum að tala um
að nú sé hagvaxtarstefnan liðin undir lok. Eitthvað annað
eigi að taka við. Vissulega er það rétt að auður færir
engum sjálfkrafa hamingju. Því er áhugavert að
kanna aðra þætti sem hafa áhrif á vellíðan. Samt
má ekki gleyma því, að þegar tekjur þjóðarinnar
aukast er hægt að bæta heilbrigðisþjónustuna og
menntakerfið, efla samgöngur og hækka bætur
almannatrygginga, auk þess sem fólk hefur ráð á
betra húsnæði, getur ferðast meira og veitt sér
ýmislegt sem það gat ekki áður. Kosturinn við
VLF er að hún er auðmælanleg og tiltölulega vel
samanburðarhæf milli landa. Það sama á ekki við
um alla mælikvarða sem nefndir hafa verið, til
dæmis er deilt um hvernig mæla eigi sjálfa ham-
ingjuna, sem flestir vilja þó örugglega hámarka.
Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor leitaði í grein
svara við því hvaða þættir tengist mest hamingju
þjóða eins og hún er mæld í skoðanakönnunum.
Niðurstaða hans var sú, að hamingjan ykist með
markaðsfrelsi og umfangsmiklum utanríkis-
viðskiptum, trausti á samborgurum og stofnunum sam-
félagsins, frumkvæði, dugnaði, samkeppni og árangri í
starfi. Ekki endilega það sem þeir vilja heyra sem leita
annarra mælikvarða en harðra efnahagsstærða. En skyn-
samleg umræða byggist á staðreyndum og góður efna-
hagur bætir margt sem eykur vellíðan.
Hvernig fór fyrir skynsama vini okkar sem átti að
hengja? Jú, Hamingjan stökk í hann á síðustu stundu,
kóngsdóttirin hljóp út, bjargaði lífi hans og þau lifðu ham-
ingjusamlega saman til æviloka.
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Hamingjan og skynsemin
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Undirbúningur er hafinnfyrir uppbyggingufimmtu kynslóðar farnetaeða 5G-háhraðaneta í
fjarskiptum. Póst- og fjarskipta-
stofnun hefur nú sett í gang samráð
með hagsmunaaðilum um samstarf
um uppbyggingu og samnýtingu fjar-
skiptainnviða með áherslu á 5G. Kall-
að er eftir sjónarmiðum þeirra sem
hagsmuna eiga að gæta á fjar-
skiptamarkaði og er þeim gefinn
frestur til að skila inn umsögnum til
10. október.
,,Fjórða iðnbyltingin er hafin og
fjarskipti munu gegna þar lykilhlut-
verki. Áhersla fjarskiptaregluverks-
ins á útbreiðslu og aðgengi að ljós-
leiðara og 5G kemur ekki síst til af
þessu. Á næstu misserum og árum
verða innleidd 5G-net hérlendis,“
segir í ítarlegu samráðsskjali um
uppbyggingu og samnýtingu fjar-
skiptainnviða vegna 5G.
Þar er fjölmörgum álitaefnum
velt upp og settar eru fram lykil-
spurningar sem svara þarf þar sem
nýr heimur fjarskipta er handan við
hornið. Meðal þess sem leita á svara
við er: Hvert verður viðskipta-
sambandið á milli sjálfkeyrðs bíls og
fjarskiptanetsins? Hver verður eig-
andi netsins meðfram vegakerfinu?
Mun verða samkeppni um þjón-
ustuna og í hverju mun hún felast?
Hvernig verður öryggi þjónustunnar
tryggt?
Sjálfstýrð og fjarstýrð skip
Innleiða þarf nýja löggjöf Evr-
ópusambandsins um fjarskipti og
svokallaðan EECC-kóða sem kynnt
var í seinasta mánuði þegar efnt var
til ráðstefnu á vegum stjórnvalda um
þetta risavaxna verkefni. Koma þarf
á fót háþróuðum notendatengingum
og sendistöðum fyrir 5G þegar inn-
leiðing þess hefst, ekki síst í sam-
göngukerfinu og vegna sífellt flókn-
ari sjálfvirkni í bílum. En þessi nýja
tækni snýr ekki eingöngu að sjálf-
keyrandi bílum. „Líklegt er að sjálf-
stýrð skip komi á sjónarsviðið á und-
an sjálfkeyrandi bílum. Hugsanlegt
er að sjálfstýrð skip verði fjarstýrð
að hluta til, t.d. þegar þau koma til
hafnar. Sjálfstýrð skip munu því
þurfa fjarskiptasamband með háu
þjónustustigi, sérstaklega nærri
ströndum og við siglingar inn í hafn-
ir.
Með fjórðu iðnbyltingunni verð-
ur mikil sjálfvirknivæðing í landbún-
aði með tilheyrandi kröfum til fjar-
skipta. Að vísu er líklegt að hér verði
mjög stuðst við IoT-tækni sem ekki
þarfnast hás þjónustustigs en líklegt
er að fram komi þjónustuþættir í
landbúnaði sem gera miklar kröfur
til fjarskipta,“ segir í skjalinu.
Ljóst er að gríðarstórt stökk
verður í gagnaflutningum og hraða
með inleiðingu 5G langt umram nú-
verandi flutningskerfi. Þrátt fyrir
mikla útbreiðslu ljósleiðara hérlendis
vantar enn slíkar tengingar í flesta
þéttbýlisstaði utan höfuðborgar-
svæðisins og Akureyrar.
Bent er á að útbreiðsla farneta á
Íslandi er góð í dag bæði hvað varðar
heimili og atvinnuhúsnæði. Öðru máli
gegnir enn um útbreiðslu gagnaþjón-
ustu á þjóðvegakerfinu þótt fjar-
skiptafélögin hafi með aðstoð stjórn-
valda varið verulegum fjárhæðum til
að bæta aðgengi og auka gæði þess.
Fram kemur í samantekt Póst-
og fjarskiptastofnunar að enn vantar
mjög víða á þjóðvegakerfinu að gott
samband sé til staðar. „Ljóst er að
innleiðing 5G á þjóðvegakerfinu er
áskorun, sérstaklega ef gera þarf
miklar kröfur til hraða og tengitíma,“
segir þar.
Innleiðing 5G á þjóð-
vegunum er áskorun
AFP
Háhraðanet 5G-kerfum fylgir að koma þarf á fót þéttriðnu neti farnets-
senda. Enn er margt óljóst um viðskipamódel og samnýtingu þjónustunnar.
Net- og fjarskiptatæknin sem á
að innleiða á komandi árum
mun óhjákvæmilega kalla á um-
talsverðar fjárfestingar bæði í
farnetum og ljósleiðaranetum á
komandi árum. Í samráðsskjali
Póst- og fjarskiptastofnunar
segir að enn sé margt óljóst
varðandi uppbyggingu 5G, við-
skiptamódel þjónustunnar og
hvaða kröfur verða gerðar til út-
breiðslu og gæða. „Til að ná
markmiðum stjórnvalda og
regluverksins um að nýta
tæknina til hins ýtrasta getur
þurft að koma til sameiginlegs
átaks markaðsaðila og hins
opinbera,“ segir þar. Hér mun
reyna á samkeppnisfyrirtækin á
fjarskiptamarkaði og hvort
samvinna verður um uppbygg-
ingu og sendikerfin samnýtt.
Dæmi um samnýtingu er sam-
starf Nova og Vodafone um
samnýtingu sendabúnaðar og
radíókerfa í farnetum.
Þarf sameig-
inlegt átak?
MIKIL INNVIÐASMÍÐI