Morgunblaðið - 23.09.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2019
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„Æ, GÓÐI BESTI! ÉG LOFA AÐ ÉG MUN
EKKI KLÚÐRA ÞESSU EINS OG SÍÐAST.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú veist það
frá fyrstu kynnum.
Æ, SORRÍ
MAÐUR!!
ÞÚ ERT EKKI ALVEG JAFN-
ÓGNVEKJANDI MEÐ GLERAUGU
GRENJ,
SNÖKT!!
HÉR ER SKJÖLDUR
SEM SÉÐ HEFUR NOKKRAR
ALVÖRU ORRUSTUR!
JAH, EF
HANN GÆTI
NÚ TALAÐ!
BARA EF FYRRI
EIGANDINN GÆTI TALAÐ!
HALLÓ!
„FÓÐRA ÞÚ HANN. ÞAÐ VARST ÞÚ SEM
VILDIR GÆLUVERKEFNI.”
gönguskíðum. Hestamennska var
alltaf eitt af aðaláhugamálunum en í
seinni tíð hef ég ekki stunda það
sport og byrjaði nýlega í golfi sem
mér sýnist eiga eftir að verða al-
gjört uppáhald, eina vandamálið er
hvað golfið tekur mikinn tíma.
Í tilefni af afmælinu fer ég í
hjólaferð erlendis með þremur vin-
konum sem ég kynntist þegar ég
flutti austur 5 ára gömul. Við höfum
haldið hópinn, fórum allar í MH og
ætlum að fagna þessum tímamótum
saman með mökum.“
Fjölskylda
Eiginmaður Hrefnu er Böðvar
Þórisson, f. 23.10. 1966, fram-
kvæmdastjóri, en þau kynntust
þegar Hrefna var nýorðin 18 ára.
Foreldrar hans eru hjónin Ingunn
Valtýsdóttir íþróttakennari, f. 3.10.
1934, og Þórir Ólafsson, fyrrverandi
rektor Kennaraháskólans, f. 27.1.
1936. Þau eru búsett í Garðabæ.
Börn Hrefnu og Böðvars eru Sig-
finnur Böðvarsson, f. 24.2. 1998,
námsmaður. Kærasta Sigfinns er
Rubína Singh, f. 4.2. 1998, stúdent
frá MA; 2) Kristín Böðvarsdóttir, f.
27.7. 2000, stúdent frá MR; 3) Ing-
unn Böðvarsdóttir nemi, f. 3.2.
2006.
Systkini Hrefnu eru Guðmundur
Sigfinnsson, f. 2.9. 1974, hagfræð-
ingur hjá Íbúðalánasjóði, býr í
Kópavogi; og Stefán Þór Sigfinns-
son, f. 10.4. 1984, vinnur hjá Póst-
inum og býr í Reykjavík
Foreldrar Hrefnu eru hjónin
Bjarnheiður Guðmundsdóttir, dokt-
or í líffræði, f. 1.5. 1948, og Sigfinn-
ur Þorleifsson, prestur, f. 1.9. 1949.
Þau stunda nám í skógrækt og eru
skógræktarbændur í Gnúpverja-
hreppi þar sem þau eiga jörð.
Hrefna
Sigfi nnsdóttir
Kristín Halldórsdóttir
húsmóðir og bóndi í Öndverðarnesi
Bjarni Jónsson
bóndi í Öndverðarnesi
í Grímsnesi
Anna Bjarnadóttir
húsmóðir í Kópavogi
Bjarnheiður Guðmundsdóttir
doktor í líffræði
Guðmundur Halldór Jónsson
stofnandi og forstjóri BYKO
Helga Guðrún Jósefsdóttir
húsmóðir í Móskógum og
Kópavogi
Jón Guðmundsson
bóndi í Móskógum í Fljótum,
síðar bókari í Kópavogi
Kristófer Þorleifsson
geðlæknir
Eggert Kristófersson
forstjóri Festi
Steinunn Jónsdóttir
fjárfestir
Jón Helgi Guðmundsson
forstjóri Norvikur
Guðfi nna Jónsdóttir
húsmóðir í Hafnarfi rði
Eggert Þorbjörn Böðvarsson
smiður í Hafnarfi rði
Hrefna Eggertsdóttir
húsmóðir á Eskifi rði
Þorleifur Jónsson
lögregluþjónn í Hafnarfi rði og sveitarstjóri á Eskifi rði
Guðríður Pálsdóttir
húsmóðir á Efri-Skálateigi
Jón Þorleifsson
bóndi á Efri-Skálateigi í Norðfi rði
Úr frændgarði Hrefnu Sigfi nnsdóttur
Sigfi nnur Þorleifsson
sjúkrahúsprestur í Kópavogi
Veðrið er sígilt umræðuefni hérá landi og skyldi engan undra.
Nú er það vætutíðin sem verður
hagyrðingum yrkisefni. Pétur Stef-
ánsson kastar fram:
Nú er víða rok og regn,
rísa bárur Unnar.
Enginn spornað getur gegn
grillum náttúrunnar.
Það rifjast upp vísa Bjarna frá
Gröf:
Hér er bölvuð ótíð oft
og aldrei friður.
Það ætti að rigna upp í loft
en ekki niður.
Stefanía Sjöfn Sófusdóttir skrifar
hlýja kveðju á fésbókarvegg séra
Hjálmars Jónssonar:
Láttu aldrei eldast þel
eða funheitt hjarta.
Lifðu heill og lifðu vel
langa daga og bjarta.
Ingi Heiðmar Jónsson fékk
fallega afmælisgjöf frá börnum sín-
um: „Þau gáfu mér fleiri glös og
fleiri vísur og ég rakst á eigin vísu á
einu þeirra, hún var gjörsamlega
gleymd, ort löngu fyrir morgunfjas,
en þá mátti skrifa orðsendingu á
síma og senda, við kölluðum það að
smessa:
Smessar Ingi í ergi og gríð
- aðeins viskí hreyfir –
Eftir stranga stökusmíð
stoltur afurð dreifir.“
Hann rifjar gjarnan upp vísur á
fésbókinni. Káinn orti þessa:
Aftur hljómar ástar þýða raustin
unga fólkið giftir sig á haustin.
Margur sveinn í meyjararma flýr
meðan kolin eru svona dýr.
Sigmundur Benediktsson yrkir
fallega stöku á Leirnum, póstlista
hagyrðinga:
Baðmur grætur blóm og ax,
bleiku faldast grundir.
Græðisdætur greiða fax
grímutjaldi undir.
Þegar Sigrún Haraldsdóttir
hrósaði Sigmundi fyrir vísuna, þá
heyrðist í Ólafi Stefánssyni:
Árla morguns brá hann blundi,
blaðs og penna þurfti not.
Súper vísu samdi Mundi,
Sigrún lækar eins og skot.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af veðri og
funheitu hjarta