Morgunblaðið - 23.09.2019, Síða 32
Hjalti Hugason flytur erindi sem
nefnist „Jarðsett verður í heima-
grafreit“ – Um útfararsiði og sam-
félagsbreytingar á hádegisfyrir-
lestri Sagnfræðingafélags Íslands í
fundarsal Þjóðminjasafns Íslands á
morgun, þriðjudag, kl. 12.05. Að
hans mati eru útfararsiðir áhuga-
verðir þar sem þar fléttast saman
ýmis trúarleg og samfélagleg
sjónarmið. Aðgangur er ókeypis.
Um útfararsiði og
samfélagsbreytingar
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 266. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Grindvíkingar máttu sætta sig
við að falla úr efstu deild karla í
knattspyrnu í gær og munu leika
í þeirri næstefstu á næsta keppnis-
tímabili. Þegar ein umferð er eftir
af Pepsi-deildinni er ljóst hvaða lið
falla og hvaða lið verður meistari.
Breiðablik hefur tryggt sér 2. sæt-
ið en enn er barátta um Evrópu-
sæti. »26-27
Grindavík féll þrátt
fyrir jafntefli
ÍÞRÓTTIR MENNING
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík
sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími
mánudaga - föstudaga 10-18,
laugardaga 11-15
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun
Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins.
Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum keppast við
að hanna hágæða eldhús sem standast tímans tönn, með virkni,
gæði og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til
framtíðar – tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði.
Við flytjum inn vörur
eftir þínum séróskum
Retro 50´ FAB skáparnir frá Smeg eru fyrir löngu orðnir að
klassísku tískutákni. Sérpantaðu uppáhalds litinnn þinn eða
aðrar vörur úr breiðu vöruúrvali Eirvíkur.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Hlutverk kirkjunnar er alltaf mik-
ilvægt, ekki síst í nútímasamfélag-
inu,“ segir sr. Aldís Rut Gísladóttir.
„Einsemd og kvíði eru hlutskipti
margra og þá er kirkjan með sínu
fjölbreytta starfi og kærleiksþjón-
ustu mörgum ómetanleg. Kjarninn
er samt boðskapur Krists sem á allt-
af erindi við okkur, sama hverjar að-
stæðurnar eru.“
Boðskapurinn nái til allra
Um síðastliðin mánaðamót kom
Aldís Rut til starfa sem prestur við
Langholtskirkju í Reykjavík. Í gær
tók hún svo vígslu til starfa við at-
höfn í Hóladómkirkju í Hjaltadal
sem sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir vígslubiskup annaðist. Meðal
fjögurra vígsluvotta þar var faðir Al-
dísar, sr. Gísli Gunnarsson, sóknar-
prestur í Glaumbæ í Skagafirði.
Sögulegt við athöfnina á Hólum í
gær er að Aldís Rut er 100. konan á
Íslandi sem tekur prestsvígslu. Sú
fyrsta var séra Auður Eir Vilhjálms-
dóttir sem vígðist árið 1974 en á
þeim tíma voru skiptar skoðanir um
hvort konur skyldu vera prestar.
Jákvæð upplifun
„Ég hef heyrt margt um andstöð-
una sem Auði mætti, en það er ekk-
ert sem ég hef reynt. Prestar þurfa
að vera fjölbreyttur hópur svo boð-
skapurinn nái til allra,“ segir Aldís
Rut og heldur áfram:
„Auðvitað hefur áhrif að Gísli fað-
ir minn er prestur og móðir mín,
Þuríður Kristjana Þorbergsdóttir,
er virkur þátttakandi í kirkjustarf-
inu. Þá var Gunnar Gíslason föðurafi
minn prestur í Glaumbæ á undan
pabba, svo segja má að ég sé alin
upp við mjög ríka kirkjuhefð. Upp-
lifun mín af þessari menningu var
mjög jákvæð og mótaði mig. Að fara
í guðfræðinám þegar annað gekk
ekki upp kom því nánast af sjálfu
sér, þótt ég tæki ekki ákvörðun um
að fara í prestskap fyrr en ég var
komin á síðara stig námsins. “Við
Langholtskirkju mun sr Aldís Rut
sinna barna- og æskulýðsstarfi og
öðrum prestsverkum eftir atvikum.
Hún er gift Ívari Björnssyni og eiga
þau þrjú börn.
Aldís Rut segist oft hafa fundið
meðal annars í starfsnámi sínu hve
þjónusta presta sé fólki mikilvæg,
svo sem sálgæslan. Sjálf tók hún
diplómagráðu á því sviði og telur
mikilvægt að koma sem best til móts
við fólk sem er í erfiðum aðstæðum.
Leiðir þar geti verið margar og sjálf
hefur hún boðið upp á jógatíma með
trúarlegu ívafi. Sóknarnefnd sé opin
fyrir öllu nýmæli í starfinu, enda
hefur frjálslynd guðfræði jafnan
verið áberandi í Langholtskirkju,
sem og blómlegt tónlistarstarf.
„Sjá, ég er með yður“
„Ég verð í hálfu starfi í Lang-
holtskirkju en svo mun eitthvað bæt-
ast við. Prestur fer ekki frá skyldu-
störfum sínum hvað sem tímafjölda
líður, heldur sinnir þeim áfram af al-
úð og kærleika. „Sjá, ég er með yður
alla daga allt til enda veraldar,“
segir í Matteusarguðspjalli. Það eru
orðin í Biblíunni sem mér standa
næst og í þeirra anda vil ég starfa,“
segir sr. Aldís Rut að síðustu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þjónusta Prestur fer ekki frá skyldustörfum hvað sem tímafjölda líður, segir Aldís Rut, hér við Langholtskirkju.
Ólst upp við kirkjuhefð
Sr. Aldís Rut Gísladóttir er 100. konan á Íslandi sem tek-
ur vígslu Prestsdóttirin frá Glaumbæ í Langholtskirkju
Margrét Lára Viðarsdóttir, fyrirliði
Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu,
segir það ekki hafa verið auðveld-
ustu ákvörðunina að velja Val þegar
hún sneri heim frá Svíþjóð fyrir
fjórum árum. Liðið hafði þá hafnað
í 8. sæti tímabilið
áður og var
langt frá því
að vera
sterkasta
lið landsins
eins og
þegar hún
fór utan árið
2008. Valur
varð meistari
á laugardag-
inn eftir sigur
gegn Kefla-
vík. »24
Stolt að taka þátt í
endurreisn liðsins