Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2019, Page 2
Af hverju Klikkuð menning?
Klikkuð menning er haldin til að fagna 40 ára afmæli Geðhjálpar, félags sem
vinnur að því að bæta hag fólks með geðrænan vanda og aðstandenda
þeirra. Geðhjálp ætlar því að halda fjögurra daga gleðihátíð til að sýna
fjölbreytileikann í geðrænum áskorunum; bæði sem upplifun og einnig
sem uppsprettu listrænna hæfileika.
Hver er hápunktur hátíðarinnar?
Á laugardeginum verður mest um að vera út um allt, og þá ekki síst í
Hafnarhúsinu. Þar verður alþjóðlegt málþing þar sem gestir hátíð-
arinnar, Arnhild Lauveng frá Noregi og Mary O’Hagan frá Nýja-
Sjálandi, halda erindi auk Kára Stefánssonar. Eftir það verða klikkaðir
tónleikar þar sem GDRN, Flóni, Högni Egils og Milda hjarta bandið með
Jónas Sig í fararbroddi munu halda uppi sturluðu stuði.
Fyrir hverja er hátíðin?
Klikkuð menning er fyrir alla, í öllum skilningi. Allir viðburðir hátíðarinnar eru
ókeypis og öllum er boðið. Viðburðirnir eru líka það fjölbreyttir að eitthvað áhuga-
vert mun passa sérhverjum aldri og áhugasviði. Ég skora á fólk að kynna sér dag-
skrána og finna viðburð sem leyfir því að tengja við eigin reynslu og ástvina sinna, en
líka að uppgötva nýja hlið á geði sínu og tilfinningum. Eða bara hafa gaman.
Hvernig hefur gengið að skipuleggja Klikkaða menningu?
Betur en ég bjóst nokkurn tímann við, því það vilja einfaldlega allir vera með. Þess
vegna eru á hátíðinni frábærir listamenn, þekktir og minna þekktir, allir með gíf-
urlega áhugavert framlag; sína sýn á heiminn, listina og geðið. Það er mikil vakning í
samfélaginu um geðheilsu og geðræna erfiðleika. Við höfum öll geðheilsu, sumt fólk
góða, annað slæma. Það hefur lengi þurft að byggja þessa brú á milli þessa fólks, og
núna virðast allir vera tilbúnir í verkið.
Hvað er svo framundan í vetur?
Í vetur munum við orna okkur við allar skemmtilegu minningarnar sem munu verða
til á þessari hátíð. Hinu góða starfi Geðhjálpar í geðheilbrigðismálum verður auðvit-
að haldið áfram af fullum krafti undir stjórn nýja framkvæmdastjórans okkar,
Gríms Atlasonar. Ég ætla að reyna að sannfæra hann um að sniðugt sé að halda
Klikkaðri menningu á lofti og býst við að það verði auðsótt. Eitthvað klikkað
mennningarlegt gerist því í vetur. En við byrjum á þessari hátíð – sjáumst öll!
Morgunblaðið/Eggert
HILDUR LOFTSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2019
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Ertu bara með þrennar gallabuxur sem þú notar alltaf?“ Einhvern veg-inn svona hljómaði hneykslaður félagi minn þegar hann komst að þvíað annar ætti bara þrennar gallabuxur sem hann gengi í dagsdaglega.
Enn hneykslaðri varð hann þegar hann frétti að maður dirfðist að ganga í
þeim sömu tvo daga í röð. Slíkt væri nánast guðlast. Sá gallabuxnafátæki tók
þó skýrt fram að hann notaði ekki sömu ofanmittisflíkina tvo daga í röð.
Hann vildi nú ekki gera sig að fífli.
Lengi hefur maður vitað að það er í raun félagslegt sjálfsmorð að ganga í
sömu flíkinni fyrir ofan mitti tvo
daga í röð. En af hverju? Hvaða al-
heimslögmál segir að maður megi
ekki mæta í sama bolnum í vinnuna
tvo daga í röð. Mjög ólíklegt er að
hann sé orðinn skítugur, nema sá
sem klæðist bolnum eigi í miklum
vandræðum með svitakirtlana, nú
eða sé gjarn á að missa matinn niður
á sig.
En svo fór ég að hugsa hvort þetta
væri ekki bara allt í hausnum á
manni. Hvenær pælir maður í því
hverju fólk klæðist, hvað þá man í
hverju viðkomandi var í gær eða
daginn þar áður? Og ef maður pælir
mikið í því er þá ekki ráð að hætta því? Það er víst um nóg annað að hugsa í
þessum blessaða heimi.
Það er eins og einhvers staðar í sögu vestræns samfélags höfum við sam-
mælst um að bannað sé að klæðast sömu fötunum tvo daga í röð og enginn
hafi mótmælt því, bara fylgt hjörðinni eins og þetta væri fullkomlega eðlilegt.
Ég ætla ekki að frýja mig ábyrgð þar enda líður mér hálfóþægilega og er ein-
staklega var um mig ef ég slysast til að fara í sömu fötin tvo daga í röð. Ég
viðurkenni þó að ég stelst til þess ef félagsskapurinn er allt annar tvo sam-
liggjandi daga. Ég mæti einstöku sinnum í sömu fötunum í vinnuna á mánu-
degi og ég var í daginn áður. Er það einstaklega frelsandi.
Ég tek þó undir að fólk geti ekki valsað um í sömu fötunum dag eftir dag
án þess að blikka auga. Á endanum fara fötin að lykta og þar kemur önnur
óskrifuð regla inn í dæmið; það má ekki segja neinum að hann lykti illa.
Kannski er það ástæðan fyrir því að umtöluð regla komst á. Svo enginn
lendi í því að lykta illa má enginn mæta í sömu fötunum tvo daga í röð.
Ég er allavega orðinn dauðþreyttur á þessari vitleysu.
Illa lyktandi
og frjáls
Pistill
Böðvar Páll
Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
’Hvenær pælir maður íþví hverju fólk klæð-ist, hvað þá man í hverjuviðkomandi var í gær?
Og ef maður pælir mikið í
því er þá ekki ráð að
hætta því?
Anna Helga Gylfadóttir
Það er svo ótrúlega margt. Eins og
að mála og gera upp gömul húsgögn.
SPURNING
DAGSINS
Hvað
finnst þér
skemmti-
legast að
gera?
Kristján Sveinsson
Ferðast um á mótorhjóli.
Mekkín Daníelsdóttir
Vera með kærastanum.
Noel Karopka
Æfa taekwondo.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Haraldur Jónasson
Vakning um geðheilsu
Hildur Loftsdóttir er verkefnastjóri Geðhjálpar en í tilefni 40 ára afmælis Geðhjálpar verður hátíð-
in Klikkuð menning haldin dagana 19.-22. september. Dagskrá hátíðarinnar má finna á Klikkud.is.