Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2019, Blaðsíða 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2019
Langar þig í ný gleraugu!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Válegt andlát Dags Hammar-skjöld, framkvæmdastjóraSameinuðu þjóðanna, árið
1961 er enn hulin ráðgáta. Svíinn
Hammarskjöld var á leið til Ndola í
Ródesíu (nú Sambía) 18. september
1961 í því skyni að stilla til friðar í
Kongó þegar vél hans hrapaði. Í
fyrstu var sagt að um slys hefði verið
að ræða, en brátt komu fram kenn-
ingar og vísbendingar um að vélinni
hefði verið grandað.
Mikið var í húfi. Kongó hafði ný-
verið öðlast sjálfstæði og í Katanga
hafði sjálfstæðisleiðtoginn Moise
Tshombe lýst yfir sjálfstæði. Þar
voru miklar auðlindir og var bresk-
belgíska námafyrirtækið Union Mi-
niere eins og ríki í ríkinu.
Það hefði verið mikið högg fyrir
land með nýfengið sjálfstæði að missa
Katanga og yfirvöld í Kongó biðluðu
til Sameinuðu þjóðanna um hjálp.
Friðargæsluliðar voru sendir á vett-
vang og voru átök milli þeirra og liðs-
manna Tshombes ástæðan fyrir för
Hammarskjölds, sem var í óþökk
bandarískra og breskra stjórnvalda.
Danski kvikmyndagerðarmaður-
inn Mads Brügger fór að vinna að
gerð heimildarmyndar um dauða
Hammarskjölds eftir að sænskur
hjálparstarfsmaður, Göran Björkdal,
greindi frá því að hann teldi að
Hammarskjöld hefði verið ráðinn af
dögum. Björkdal fann dældaða
málmplötu með götum, sem hefðu
getað verið eftir byssukúlur, úr fór-
um foreldra sinna þegar hann var að
hjálpa þeim að flytja árið 2007. Plöt-
una hafði faðir hans fengið þegar
hann fór til Ndola á vegum Samein-
uðu þjóðanna árið 1975 og var sagt að
hún væri úr vél Hammarskjölds.
Björkdal fór til Ndola og ræddi við
vitni að slysinu. Frásagnir þeirra
urðu til þess að hann fór að sökkva
sér ofan í skjöl um málið og fjalla um
það opinberlega.
Brügger er þekktur fyrir að fara
eigin leiðir, beita háði til að afhjúpa
viðfangsefnið og sigla undir fölsku
flaggi líkt og í myndinni Sendiherr-
anum (The Ambassador). Þar kaupir
hann sér á svörtum markaði skilríki
sendiherra Líberíu og sýnir hversu
auðvelt er að komast inn á gimsteina-
markaðinn með þau í höndum.
Í Óleyst mál Hammarskjölds (Cold
Case Hammarskjöld) fylgir hann
Björkdal eftir í leit hans að vísbend-
ingum. Í upphafi segir Brügger með
sterkum dönskum hreim að annað-
hvort sé hér á ferð „mesta morðgáta
heims eða heimskulegasta samsær-
iskenning heims“.
Leynileg málaliðasamtök
Liggur slóðin fljótlega til samtaka,
sem kalla má Hafrannsóknastofnun
Suður-Afríku (South African Insti-
tute for Maritime Research eða
SAIMR), leynilegra málaliðasamtaka
með það að markmiði að viðhalda
völdum hvíta mannsins í Afríku. Nafn
samtakanna kom fram í störfum
sannleiks- og sáttanefndar Suður-
Afríku í kjölfar endaloka aðskilnaðar-
stefnunnar. Í skjölum var gefið til
kynna að SAIMR hefði verið viðriðið
ráðabrugg um að ráða Hammar-
skjöld af dögum.
Erfitt er að átta sig á hvort SA-
IMR hefur verið raunverulegt afl á
bak við tjöldin, eða áhrifalaus vett-
vangur firrts leiðtoga þeirra.
Brügger kemur fram í hvítum föt-
um líkt og Keith Maxwell, leiðtogi
SAIMR, og gengur um með hvítan,
barðastóran hálfkúluhatt, eins og
dæmigert var fyrir hvíta manninn á
nýlendutímanum. Hann ræður einnig
til sín tvær svartar konur í ritarastörf
og sýnir í myndinni þegar hann les
þeim fyrir og spyr þær álits á því,
sem hann hefur fram að færa.
Um miðja mynd játar Brügger allt
í einu að hann hafi aldrei haft áhuga á
Hammarskjöld og enga trú haft á
verkefninu og þess vegna hafi hann
beitt brögðum til að gera myndina
áhugaverða: „Fyrir mér var Dag
Hammarskjöld fyrst og fremst að-
göngumiði að öllu því sem mér finnst
virkilega skemmtilegt – að þefa uppi
belgíska málaliða, hrollvekjandi sög-
ur af hvítklæddum illmennum, orð-
rómar um afrísk leynisamtök.“
En þá hafi allt breyst. Fyrirspurnir
Brüggers um SAIMR leiða hann til
Alexanders Jones, sem var félagi í
samtökunum. Jones segir að sam-
tökin hafi grandað vélinni. Sprengjan
í vitnisburði hans er þó að á síðustu
tveimur áratugum tuttugustu ald-
arinnar hafi þau tekið þátt í aðgerð-
um til þess að breiða út alnæmi með
bólusetningum meðal svartra íbúa
Afríku. „Við vorum í stríði,“ segir
Jones í myndinni. „Svart fólk í Suður-
Afríku var óvinurinn.“
Myndin fékk viðurkenningu á
Sundance-kvikmyndahátíðinni þegar
hún var frumsýnd þar í janúar, en
viðbrögðin hafa ekki verið á einn veg.
Hún hefur verið gagnrýnd fyrir að
þar sé ásökunum slegið fram með óá-
byrgum hætti. Tíðni alnæmis er mjög
há víða í Afríku, ekki síst í Suður-
Afríku, og ýmsar samsæriskenningar
hafa komið fram um uppruna sjúk-
dómsins. Þá sé tortryggni gegn bólu-
setningum næg fyrir og vafasamar
fullyrðingar um að reynt hafi verið að
breiða út alnæmi meðal svartra með
bólusetningum bæti ekki úr skák.
Dregið hefur verið í efa að það hafi
verið hægt tæknilega að breiða út al-
næmi vísvitandi. Á þeim tíma hafi að-
eins verið hægt í örfáum rannsóknar-
stofum í heiminum að leggja grunn að
slíku og nánast útilokað að samtök
eins og SAIMR hafi ráðið við slíkt.
Trúverðug frásögn?
Í New York Times var frásögn Jones
dregin í efa og látið að því liggja að
Jones hefði í upphafi neitað að al-
næmisaðgerðin hefði verið til staðar
hjá samtökunum. Hann hefði hins
vegar sagt frá aðgerðinni þegar við-
talið var tekið upp eftir að hafa fengið
upplýsingar hjá kvikmyndagerðar-
mönnunum.
Brügger viðurkenndi í samtali við
fréttaveituna AFP að upplýsingar
„gætu hafa smitast á milli“ vegna
þess að tökuliðið varði það miklum
tíma með Jones.
„En ég veit fyrir víst að kjarninn í
því sem hann segir okkur er ekki eitt-
hvað sem við mötuðum hann á,“ sagði
hann og bætti við að það væri dæmi-
gert að uppljóstrarar „opnuðu sig og
segðu meira eftir því sem tíminn liði“.
Brügger sagði að hann hefði velt
vandlega fyrir sér hvaða skaða full-
yrðingin um bólusetningarnar gæti
valdið, en ákveðið að það sem Jones
hefði að segja þyrfti að birtast.
Aðferð Brüggers setur svip á
myndina og verður á köflum erfitt að
taka hana alvarlega þrátt fyrir alvar-
leika efnisins. Samsæriskenningarn-
ar eru settar fram, en með kúnstum
leikhússins er gefið í skyn að þeim
beri að taka með fyrirvara.
Myndin Óleyst mál Hammar-
skjölds verður sýnd á Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Reykjavík,
RIFF, sem hefst 26. október.
Leitað í braki vélarinnar, sem
Dag Hammarskjöld fórst með
í Sambíu 13. september 1961.
AP
Danski kvikmyndagerðarmaðurinn Mads Brügger
hugðist gera mynd um það hvort Dag Hammar-
skjöld, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
hefði verið ráðinn af dögum 1961, en slóðin leiddi
hann að ráðabruggi hvítra málaliða um að breiða
út alnæmi í Afríku með bólusetningum. Myndin
Óleyst mál Hammarskjölds verður sýnd á RIFF.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Dag Hammarskjöld, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, ásamt
Cyrille Adoula, forsætisráðherra
Kongó, og Antoine Gizenga, vara-
forsætisráðherra, í Leopoldville í
Kongó 1961.
AP
Á slóð samsæriskenninga í Afríku
Mads Brügger leikstjóri myndarinnar
Óleyst mál Hammarskjölds.
AFP