Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2019, Síða 19
S
teinunn býr ásamt eiginmanni sínum
Stefáni Eiríks Stefánssyni og son-
um þeirra Snorra, Trausta og Flosa
sem eru 14, 13 og 10 ára. Steinunn
stofnaði skartgripafyrirtækið Hring
eftir hring fyrir tíu árum og hefur reynt að
byggja upp og þróa fyrirtækið þannig að það
geti verið vettvangur fyrir fleiri hönnuði og
listamenn en hana sjálfa. „Ég hef sem sagt haft
þá atvinnu síðustu ár að hanna skartgripi en
langmestur tími minn fer þó í allt hitt sem fylgir
vörumerkinu og því að reka eigið fyrirtæki.“
Steinunn Vala segir stílinn á heimilinu ein-
kennast af því að vera fínlegur, fallegur, litrík-
ur, skapandi og skemmtilegur. „Ég hef alltaf
heillast af vönduðum hlutum og vel mér hluti
sem ég sé fyrir mér að ég geti átt lengi. Ég vil
frekar eiga fáa, endingargóða hluti en mikið af
drasli. Það fer fátt meira í taugarnar á mér en
skran. Þegar ég skoða hluti hugsa ég um hvað-
an þeir koma, horfi á efniviðinn, liti og form.“
Steinunn segir efniviðinn skipta afar miklu máli
hvort sem um er að ræða fatnað, hluti fyrir
heimilið eða eitthvað annað. „Ég kýs leður, við,
ull, silki, leir, gler og málma fram yfir gerviefni.
Ég er áhugasöm um liti og litasamsetningar,
tek eftir litum allt í kringum mig og er oft að
máta þá við aðra liti. Oft heillast ég meira af líf-
rænum formum og pínulítið skrítnum frekar en
einföldum og stílhreinum formum. Ég er til
dæmis líklegri til að setja saman ósymmetríska
hálsfesti en symmetríska. Handverk hefur alltaf
heillað mig og ég kikna bókstaflega í hnjánum
og fæ lítinn sting í hjartað þegar ég sé fallega
unnið handverk, mannshöndin gefur alltaf eitt-
hvað alveg sérstakt auka.“
Karakter heimilisins
Fjölskyldan flutti á heimilið fyrir fjórum árum
og aðspurð hvort þau hafi farið í framkvæmdir
eða breytingar á rýminu segir Steinunn heimilið
einungis hafa breyst smátt og smátt eftir að
fjölskyldan flutti inn. „Nú er vinnuaðstaðan mín
hér heima og þeim flutningum fylgdu hirslur og
vinnuborð sem kallaði á breytingar á heimilinu.
Við fengum okkur nýverið sjónvarp eftir að hafa
verið án þess í mörg ár og þá fannst okkur mik-
ilvægt að eiga á móti því sófa sem við gætum öll
legið saman í og horft á kvikmyndir og þætti.
Strákarnir hafa stækkað og heimilið er rýmra
en áður svo um þessar mundir erum við að leita
okkur að eigulegu og stóru borðstofuborði,
þannig að við getum vandræðalaust tekið á móti
vinum okkar og stórfjölskyldunni í mat.“
Spurð hverju sé mikilvægast að huga að við
innréttingu heimilisins segir Steinunn Vala
þarfir heimilisfólksins skipta lykilmáli. „Feg-
urðin felst að miklu leyti í þessum sannleika um
heimilisfólkið og gefur heimilinu fallegasta kar-
akterinn að mínu mati. Svo má alltaf punta og
raða fallega til að fegra heimilið sitt enn frekar.“
Hlutir með sögu í eftirlæti
Aðspurð hver sé eftirlætishlutur Steinunnar á
heimilinu segir hún þá hluti sem fylgir saga,
jafnvel dýrmæt reynsla og minningar í uppá-
haldi. „Eins og í hljóðfærum sona minna sem
mér þykir afskaplega vænt um þó ég eigi þau
ekki. Það tók okkur langan tíma að finna bláa
sjónvarpssófann sem við notum mikið um helg-
ar svo mér þykir svolítið vænt um hann núna.
Brúni kertastjakinn sem amma mín átti og var
áður partur af rafmagnsstaur verður alltaf dýr-
mætari og dýrmætari í mínum huga og ljósi
Safari-stóllinn sem mamma mín á og ég fæ að
hafa heima hjá mér, er líka í sérstöku uppáhaldi
enda hefur hann verið til frá því ég man eftir
mér og mér nægir að horfa á hann til að muna
eftir foreldrum mínum ungum, mömmu að
prjóna, langömmu minni undir ullarsjali og
mörgu öðru fólki sem mér var og er kært,“ út-
skýrir hún og bætir við að það sé ekki þar með
sagt að hún gráti hluti sem brotna eða glatast.
„Ég spara þá ekki heldur nýt þeirra eins vel og
lengi og ég get með því að nota þá sem mest.“
Meðvitaður kaupandi
„Ég kaupi bæði notað og nýtt og er meðvitaður
kaupandi. Ég reyni af fremsta megni að versla á
Íslandi og lít á hver kaup sem stuðningyfirlýs-
ingu við verslunina og hönnuðina,“ útskýrir
Steinunn Vala, spurð hvar hún versli helst inn á
heimilið. „Flest af þeim húsgögnum sem við höf-
um keypt okkur glæný hef ég fundið í Epal. Sú
verslun er í miklu uppáhaldi hjá mér því þar eru
á boðstólum vönduð og vel hönnuð húsgögn og
gjarnan í fínlegri kantinum sem höfðar til mín,
oft getur maður valið úr góðu úrvali lita og
áklæða sem mér þykir líka mikill kostur. Svarta
sófann, sófaborðið og stólana, píanóið, borð-
stofuborðið og stólana alla í kringum það keypt-
um við notaða í Góða hirðinum og í gegnum
sölusíðuna Bland.is.“ Marga skrautmuni heim-
ilisins hefur Steinunn Vala einnig fundið í Góða
hirðinum, litla kertastjaka og vasa, og svo fylg-
ist hún alltaf með Ólöfu Jakobínu og því sem
hún er að selja í Portinu og víðar því hún er ein-
staklega góð í að finna fallega hluti sem hún sel-
ur svo áfram.
Spurð hver sé uppáhaldsstaður Steinunnar á
heimilinu segir hún tvo staði í miklu eftirlæti:
„Litla stofan okkar, en þar er gott að sitja og
spjalla við vini og fjölskylduna sína, leggja sig
með bók eða stara út um gluggann og njóta út-
sýnisins sem er ómetanlegt. Hinn staðurinn er
baðkarið okkar. Heitt bað við kertaljós, með
baðsalti og þvottapoka er eitt af því dásamleg-
asta sem til er í mínum huga.“
Fallegir munir og
skemmtilegir litir setja
svip sinn á heimilið.
Steinunn Vala segist
alltaf hafa heillast af
vönduðum hlutum.
Blái sófinn er úr Epal og þar nýtur fjölskyldan notalegra stunda saman.
Eldhúsið einkennist af fallegum mun-
um og persónuleika. Eldamennska
er í miklu eftirlæti hjá fjölskyldunni.
15.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19