Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2019, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2019
Fólk í sveitum landsins stendur í fjárragi þessa dagana, fer í göngur, á
fjall og dregur fé í dilka í réttunum. Í dag rétta Flóa- og Skeiðamenn í
Árnessýslu, og má vænta að fleira fólk en fé sé í réttunum, sem eru efst
á Skeiðunum og eru í túnfæti bæjaþyrpingar nokkurrar. Frá þeim bæ
er sömuleiðis kominn mikill og þekktur ættbogi, sem segir af í nokk-
urra binda ritverki. Hver er bærinn?
MYNDAGÁTA
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Réttir kenndar við hvaða bæ?
Svar: Hér er spurt um Reyki á Skeiðum. Þaðan er komin Reykjaætt og ættbogi Eiríks Vig-
fússonar bónda og dannebrogsmanns (1757-1839) og kvenna hans tveggja; Ingunnar Ei-
ríksdóttur og Guðrúnar Kolbeinsdóttur.
ÞRAUTIR OG GÁTUR