Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2019, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2019
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heimili &
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 27. september
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar,
skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið,
litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagins 23. september.
07.00 Strumparnir
07.25 Tindur
07.40 Blíða og Blær
08.05 Dagur Diðrik
08.30 Lukku láki
08.55 Latibær
09.20 Skoppa og Skrítla í Afr-
íku
09.40 Dóra og vinir
10.05 Ninja-skjaldbökurnar
10.30 Friends
10.55 Ævintýri Tinna
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 The Big Bang Theory
14.05 Planet Child
14.55 A Dangerous Son
16.20 Ísskápastríð
17.00 60 Minutes
17.40 Víglínan
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Sportpakkinn
19.10 Framkoma
19.40 Rikki fer til Ameríku
20.10 Drowning in Plastic
21.10 Deep Water
22.00 Beforeigners
22.50 A Black Lady Sketch
Show
23.25 The Righteous
Gemstones
23.55 Snatch
00.40 Shetland
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Að austan (e)
20.30 Eitt og annað frá
Norðurlandi
21.00 Heimildarmynd
endurt allan sólarhr.
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
20.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta
20.30 Skrefinu lengra
21.00 Búsetuformið á breytt-
um húsnæðismarkaði
endurt. allan sólarhr.
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves
Raymond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 Top Gear
18.30 George Clarke’s Old
House, New Home
19.15 Ný sýn
19.45 Speechless
20.10 Madam Secretary
21.00 Billions
22.00 The Handmaid’s Tale
22.55 Kidding
23.25 SMILF
23.55 Heathers
06.55 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Ljóðabókin syngur II.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Kópa-
vogskirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Skyndibitinn.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Listin að brenna bækur.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Fólk og fræði.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Begga og Fress
07.29 Lalli
07.36 Tulipop
07.39 Sara og Önd
07.46 Minnsti maður í heimi
07.47 Hæ Sámur
07.54 Söguhúsið
08.01 Letibjörn og læmingj-
arnir
08.08 Stuðboltarnir
08.19 Alvin og íkornarnir
08.30 Ronja ræningjadóttir
08.55 Disneystundin
08.56 Tímon & Púmba
09.18 Sígildar teiknimyndir
09.25 Líló og Stitch
09.45 Krakkavikan
10.05 Hagamús: með lífið í
lúkunum
11.00 Silfrið
12.10 Menningin – samantekt
12.40 Magnús Þór – afmælis-
tónleikar
13.35 Pricebræður bjóða til
veislu
14.15 Flótt á Miðjarðarhafi
14.45 Veröld Ginu
15.15 Vínartónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands
16.50 Sagan bak við smellinn
– Don’t Stop Believin’
17.20 Á götunni
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Gleðin í garðinum
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Veröld sem var
20.15 Frú Wilson
21.15 Ungfrúin góða og húsið
22.55 Mean Dreams
14 til 16 Tónlistinn Topp40
Eini opinberi vinsældalisti Íslands er sendur út á
K100 alla sunnudaga. Siggi Gunnars telur niður 40
vinsælustu lög landsins.
16 til 19 Pétur Guðjóns
Góð tónlist og spjall á sunnudags síðdegi. Pétur fylgir
hlustendum heim úr fríinu á sunnudögum, nú eða
skemmtir þeim sem eru svo heppnir að geta verið
lengur í fríi.
Auglýsingar í Japan þar
sem Hollywood-
stjörnur sýna oft á sér
óvæntar og bráð-
fyndnar hliðar eru
skemmtilegar. Í þeim
nýjustu fær spjall-
þáttastjórnandinn vin-
sæli, James Corden,
meðal annarra söngv-
arann John Legend
með sér í lið í auglýs-
ingum fyrir japanska
snyrtivöruframleiðandann SK-II. Um er að ræða mörg
stutt, bráðsniðug og fyndin myndskeið sem birt eru á
samfélagsmiðlum og tengd með myllumerkinu #PI-
TERAMasterClass. Fleiri stjörnur bætast í hópinn í
fjölmörgum auglýsingum þar sem James Corden fer á
kostum. Sjáðu auglýsingarnar á k100.is.
Sprenghlægilegar
auglýsingar
AFP
Eliyahu Ben-Shaul Cohen, eðaeinfaldlega Eli Cohen, var af-skaplega trúr föðurlandi sínu.
Hann var af ætt gyðinga en fæddist í
Egyptalandi árið 1924. Fjölskylda
Cohens fluttist til Ísraels undir lok
fimmta áratugarins eins og svo marg-
ar aðrar fjölskyldur gyðinga en Co-
hen varð eftir til að ljúka námi sínu. Í
Egyptalandi tók hann þátt í ýmsum
njósnaverkefnum fyrir Ísraelsríki
þar til hann neyddist til að yfirgefa
landið árið 1956 þegar deilur milli
Egypta og Ísraelsmanna tóku að stig-
magnast og leiddu til Súesdeilunnar.
Cohen fluttist til Ísraels og reyndi
þar að komast að hjá Mossad, leyni-
þjónustu Ísraelsmanna. Það gekk
ekki í fyrstu en árið 1959 var hann
tekinn inn í Mossad og fékk það verk-
efni að starfa sem uppljóstrari í Sýr-
landi, taka sér nýtt nafn og persónu-
einkenni.
Gleymdi hver hann væri
Netflix gaf á dögunum út þáttaröð
um störf Cohens fyrir Mossad og
hvaða áhrif þau höfðu á líf hans. Co-
hen var giftur maður og reyndi það
auðvitað mikið á sambandið að hann
væri í öðru landi og lifði í raun tvö-
földu lífi. Cohen hélt veislur fyrir
háttsetta innan sýrlenska ríkisins og
náði þannig bæði að skapa traust milli
sín og Sýrlendinga auk þess að fá þá
til að leysa frá skjóðunni þegar þeir
voru undir áhrifum áfengis. Með upp-
lýsingaöflun sinni er Cohen til að
mynda talinn hafa haft mikil áhrif á
útkomu sex daga stríðsins milli Ísr-
aels annars vegar og Egyptalands,
Jórdaníu og Sýrlands hins vegar.
Þó þetta hafi allt saman gengið vel
hjá Cohen, til að byrja með að
minnsta kosti, þá fór hann smám
saman að gleyma hver hann væri,
fastur í viðjum þeirrar persónu sem
hann lék til að inna verk sitt af hendi.
Það er að segja ef marka má þátta-
röðina.
Lifir einnig tvöföldu lífi
Sá sem leikur Cohen er enginn annar
en nafni hans, háðfuglinn Sacha Bar-
on Cohen, sem hingað til hefur verið
þekktastur fyrir grínleik. Í þáttum og
kvikmyndum eins og Borat, The Ali
G Show og This Is America hefur
Baron Cohen látið fólki líða ein-
staklega vandræðalega á bráð-
skemmtilegan hátt, oftast dulbúinn
sem einkar sérvitur persóna.
Þáttaröðin nýja, sem nefnist The
Spy, er hins vegar ekkert í líkingu við
slíkt og algjörlega á alvarlegu nót-
unum. Hefur Baron Cohen tekið að
sér hlutverk í líkingu við þetta áður
en aldrei sem leikari í aðalhlutverki.
Má því segja að Baron Cohen vendi
kvæði sínu í kross líkt og Eli Cohen
gerði forðum.
Gagnrýnendur eru ekki alveg til í
að hoppa í aftur á bak heljarstökk
fyrir Baron Cohen og þáttaröðinni en
segja hana þó nokkuð góða. 84%
gagnrýnenda gefa henni ferska ein-
kunn á vefsíðunni Rotten Tomatoes.
Baron Cohen segist í viðtali við
Vanity Fair tengja að vissu leyti við
nafna sinn Eli. „Hann hefur ósviknar
tilfinningar, elskar konu sína, saknar
barna sinna og lifir tvöföldu lífi. Ég
tengi við hann á minn eigin hátt því
þegar ég fer huldu höfði í mínum
þáttum þarf ég að telja fólki trú um
að ég sé raunveruleg manneskja og
lifi þannig tvöföldu lífi. Auðvitað var
þó miklu meira undir hjá Eli Cohen.“
SACHA BARON COHEN LEIKUR NJÓSNARA
Tengir við
nafna sinn
Sacha Baron Cohen er einn þekktasti grínleikari heims en tekur sér nýtt hlut-
verk í þáttum um ísraelska njósnarann Eli Cohen í þáttaröðinni The Spy.
AFP
Í þáttaröðinni þarf
Eli Cohen að glíma
við ýmis vandamál.
David Lukacs/Netflix