Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2019, Blaðsíða 31
Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða.
Skv. Landlækni þurfa allir að taka inn D-vítamín allt
árið þar sem nægilegt magn fæst ekki úr daglegri neyslu
matvæla og sólskin er af skornum skammti.
Góð gæði á góðu verði!
D-VÍTAMÍN
FYRIR TENNUR, BEIN OG ÖFLUG ÓNÆMISKERFI
4 mánaða skammtur
Kynning
Minni líkur á
endurteknum
sýkingum
Blöðrubólga og síendurteknar þvagfærasýkingar eru
afar hvimleiðar. Bio Kult Pro-Cyan er háþróuð þrívirk
formúla sem hefur hjálpað fjölmörgum sem glíma við
þetta vandamál.
Pro-Cyan inniheldur virka
innihaldsefnið PAC-A sem er
að finna í trönuberjum og eru
vísbendingar um að dagleg
inntaka geti dregið verulega úr
endurteknum sýkingum.
Hrönn Hjálmarsdóttir
Óþægindi í þvagfærum er eitthvaðsem margir þekkja en sýkingaf völdum þarmabaktería er
lang algengasta orsök blöðrubólgu og þá
sérstaklega hjá konum.
Af hverju fáum við blöðrubólgu
Í daglegu tali er oftast talað um
þvagfærasýkingar sem blöðrubólgu en
ástæða þessara sýkinga er að bakteríur, sem
oftast eru E. Coli bakteríur, komast í þvagið
gegnum þvagrásarop og fara að fjölga sér í
þvagblöðrunni. Þrátt fyrir að líkaminn sé
þannig hannaður að hann ver okkur gegn
flestum bakteríum, þá geta þessar varnir
brugðist. Algengast er að við fáum sýkingu
í neðri hluta þvagfæranna, þ.e.a.s. í þvagrás
og blöðru en svo geta þær náð lengra upp
og alveg upp í nýrun sem er orðið mun
alvarlegra.
Brunatilfinning og tíð þvaglát
Þvagfærasýkingar geta verið einkennalausar
en þegar svo er ekki geta einkennin verið:
n Tíð þvaglátaþörf
n Brunatilfinning við þvaglát
n Erfitt að losa þvag, kemur í litlum
bunum
n Þvagið virðist skýjað/gruggugt
n Litað þvag
n Sterk lykt af þvagi
n Verkir geta verið fyrir ofan lífbein
Konur frekar en karlmenn
Helstu ástæður þess að konur eru mun
útsettari fyrir þvagfærasýkingum en karlar
eru m.a.:
Lífræðilegar. Styttri þvagrás en hjá
karlmönnum og því styttra fyrir bakteríur að
komast uppí þvagblöðruna og þvagrásarop
þeirra liggur nálægt endaþarmsopinu.
Kynhegðun. Konur sem eru kynferðislega
virkar hafa meiri tilhneigingu en aðrar til að
fá sýkingar. Nýjir bólfélagar geta líka aukið
hættuna.
Ákveðnar tegundir getnaðarvarna: Konur
sem nota hettuna eru líklegri til að fá
þvagfærasýkingu sem og konur sem nota
sæðisdrepandi krem.
Breytingaskeið. Eftir breytingarskeiðið
dregur úr estrogenframleiðslu sem veldur
breytingu á þvagfærum og gerir þau útsettari
fyrir sýkingum.
Forvarnir og meðhöndlun
Þegar vægari þvagfærasýkingar (í neðri
hluta þvagfæra) eru meðhöndlaðar í tíma,
eru fylgikvillar litlir sem engir. Ýmislegt er
hægt að gera til að minnka líkurnar á því að
fá sýkingu í þvagfærin og koma hér nokkur
ráð:
n Drekka nægan vökva, helst vatn.
Þannig verður þvaglosun tíðari sem
veldur því að bakteríur skolast út
áður en þær nálgast blöðruna.
n Drekka trönuberjasafa. Þrátt fyrir að
ekki séu til rannsóknir sem sýna að
hann sé fyrirbyggjandi, getur hann
ekki skaðað.
n Kvenfólk ætti að þurrka sig í áttina
frá þvagrásaropinu og aftur að
endaþarmsopinu til að forðast að
bakteríur frá endaþarminum fari í
þvagrásina.
n Hafa þvaglát strax eftir samfarir.
n Forðast vörur sem hugsaðar eru
fyrir kynfærin á kvenfólki. Þetta eru
t.d. svitalyktarsprey og mögulega
sápur og önnur efni sem geta valdið
ertingi.
n Velja getnaðarvarnir af kostgæfni.
Einkaleifisvarið innihaldsefni í
Bio Kult Pro-Cyan
Í Pro-Cyan eru 2 örverustofnar: L.
acidophilus PXN 35 & L. plantarum PXN 47
og hefur reynslan sýnt að þeir séu verulega
bakteríudrepandi og geti hamlað vöxt E.
Coli og Enterococcus faecalis sem eru
algengasta orsök þvagfærasýkinga.
Cranmax®er einkaleyfisvarin vinnsluaðferð
á trönuberjum þar sem tryggt er að öll
virk efni trönuberjanna séu til staðar og
einnig að þau lifi af ferðalagið gegnum
meltingarvegin til að tryggja hámarks
upptöku. Virka innihaldsefnið PAC-A sem
finnst eingöngu í trönuberjum hefur verið
rannsakað frekar og benda niðurstöður til
þess að inntaka á 36mg daglega geti dregið
töluvert úr líkum á endurteknum sýkingum.
Það er einnig góð vísbending um að stærri
og frekari rannsókna sé þörf. Í Pro-Cyan
erum 500 mg af Cranmax® sem inniheldur
36mg af PAC-A.
A-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi
ónæmiskerfisins og viðhaldi eðlilegrar
slímhúðar en heilbrigð slímhúð veitir vern
gegn utanaðkomandi bakteríum.
Þessi þrívirka blanda örverustofna,
A-vítamíns og trönuberjaþykknis hefur
reynst mörgum vel. Hvort sem um er að
ræða sem fyrirbyggjandi meðferð eða gegn
vægum sýkingum sem eru á byrjunarstigi.
Pro-Cyan hentar sérstaklega vel fyrir
ófrískar konur og mega börn einnig taka það
en þá er mælt með hálfum skammti.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og
heilsuhillur verslana