Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2019, Side 32
SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2019
ALLT ÞAÐ NÝJASTA FRÁ TEMPUR ...
AÐ SOFA ER EITT
AÐ HVÍLAST ER ANNAÐ
... MEÐ 25% AFSLÆTTI Í BETRA BAKI
AFSLÁTTUR
25%
KOMDU NÚNA!
TEMPUR-DAGAR
TEMPUR®Hybrid
Hönnuð fyrir sneggra viðbragð
TEMPUR®Original
Hönnuð fyrir meiri stuðning
TEMPUR® Cloud
Hönnuð fyrir meiri mýkt
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Nýjar gerðir
og fjölbreytt úrval
heilsukodda
„Sýningin um Gilitrutt er ástaróður minn til Íslands,“ segir
brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik í leikskrá um verkið Gilitrutt,
sem Brúðuheimar setja nú upp á ný á brúðulofti Þjóðleikhússins.
„Við erum einmitt að æfa og stilla inn ljósin,“ segir Bernd þegar
blaðamaður sló á þráðinn til hans í vikunni. Hann segir Gilitrutt
vera frábæra fjölskyldusýningu sem henti vel öllum frá fjögurra
ára aldri.
„Ég fer í gegnum árstíðirnar og leikmyndin er öll gerð úr ís-
lensku efni. Ég nota mikið þæfða ull og brúðurnar eru tálgaðar úr
birki,“ segir Bernd.
„Við erum búin að hvíla þessa sýningu nú í fjögur, fimm ár og
erum því mjög spennt að byrja aftur. Þessi sýning fékk Grímuna
árið 2011 sem besta barnasýning ársins,“ segir Bernd og nefnir að
sýningar verða á laugardögum í haust en fyrsta sýningin er í dag,
sunnudag.
Bernd Ogrodnik býður
nú landsmönnum upp á
Gilitrutt á brúðulofti
Þjóðleikhússins.
Ljósmynd/Eddi
Gilitrutt er mætt á ný
Brúðurnar hans Bernds munu gleðja yngstu kyn-
slóðina sem og aðra fjölskyldumeðlimi.
Ljósmynd/Eddi
Gilitrutt snýr aftur á svið á brúðulofti
Þjóðleikhússins eftir nokkurt hlé.
Þann 15. september árið 2000 birtist frétt í Morgun-
blaðinu þar sem sagt var frá frétt bandaríska furðu-
fréttablaðsins Weekly World News en þar er fullyrt að
Neanderthalsmaðurinn hafi alls alls ekki dáið út fyrir
þrjátíu og fimm þúsund árum. Þeir segja frá því að í helli
í nágrenni Akureyrar búi nefnilega ellefu manna fjöl-
skylda og hafi það bara býsna gott. Í frétt Morgunblaðs-
ins segir: „Er hellirinn sagður fjarri öllum mannabyggð-
um, umlukinn næstum ófærri íshellu.
Neanderthal-fjölskyldan er sögð samanstanda af tveim-
ur fullvöxnum karlmönnum, fjórum konum og fimm
börnum og mun heimili þeirra, þ.e. hellirinn, hafa verið
furðu hlýtt enda staðsett í nágrenni eldfjalls. Haft er eftir
mannfræðingi sem ber nafnið Olaf Norrkopinger að
skýringin á því hvers vegna þessi hópur Neanderthal-
manna hafi lifað af án þess að nokkur hefði um það grun
geti falist í því hversu gífurlega strjálbýlt Ísland er.“
Einnig kemur fram í hinu erlenda blaði að íslenska
ríkisstjórnin hafi gert sitt besta til að þagga niður þessi
merku tíðindi.
GAMLA FRÉTTIN
Frétt um frétt
um frétt
Þessi mynd birtist með fréttinni, bæði erlendu og
hinni í Morgunblaðinu fyrir nákvæmlega nítján ár-
um. Spurning hvað sé að frétta af familíunni?
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Elsa Björg Magnúsdóttir
heimspekingur
Hulda Sigurjónsdóttir
kennari
Reese Witherspoon
leikkona