Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1. O K T Ó B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  230. tölublað  107. árgangur  SAMTVINNUN MANNS OG TÖLVU HÁPUNKTURINN LUBBI HJÁLPAR BÖRNUM AÐ LÆRA AÐ LESA LITTLE JOY FÆR  29 JÖTUNHEIMAR, SELFOSSI 11SKJÁSKOT 28 Baldur Arnarson Ragnhildur Þrastardóttir Enn er ekki búið að ákveða hvenær Sundabraut verður lögð og þá hvern- ig það verður gert. Sundabraut er ekki inni í sam- göngusáttmála ríkisins og sveitarfé- laganna á höfuðborgarsvæðinu sem gerður er til 15 ára. Helst er til skoð- unar að Sundabraut verði lögð sem lágbrú eða jarðgöng. Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra hélt erindi um samgöngusáttmálann og fleira tengt samgöngum á opnum fundi á Hótel Sögu í gær. Spurður hvort það að Sundabraut sé ekki inni í sáttmálanum þýði að ekki verði ráðist í framkvæmd hennar fyrr en eftir 15 ár segir Sigurður Ingi: „Ég hyggst eiga samtal um Sunda- braut við Faxaflóahafnir, Reykjavík- urborg og sveitarfélögin á höfuðborg- arsvæðinu á næstu mánuðum með það að markmiði að finna út hvort lágbrúarleiðin sé fær.“ Jarðgöng mögulega úrelt leið Lágbrúarleiðin er ódýrari kostur en jarðgöng og myndi hún einnig nýt- ast fleiri samgöngumátum en einka- bílum. „Þegar það liggur fyrir hvort lágbrúarleiðin sé fær eða ekki þá myndum við taka ákvörðun um að fara hina leiðina sem er jarðganga- leiðin. Það er samt sem áður talað um að þau jarðgöng sem eru í þessum gömlu pappírum séu úrelt og það sé hægt að finna nýjar leiðir, ódýrari og betri,“ segir Sigðurður. „Væntanlega yrði gáfulegast að bjóða verkið út í heild með hönnun og öllu.“ Þorsteinn R. Hermannsson, sam- göngustjóri Reykjavíkur, segir að gróft á litið muni kosta um 10 millj- arða króna að setja Sæbraut í stokk. Um sé að ræða vegarkaflann vestur af Knarravogi að Kleppsmýrarvegi. Þorsteinn segir aðspurður að gert hafi verið ráð fyrir 2,2 milljörðum til verksins árin 2021 til 2022. Ljóst sé að kostnaðurinn verði mun meiri. Hækkar í 125 milljarða króna Umræddir 2,2 milljarðar voru hluti af rúmum 117 milljörðum sem eyrna- merktir eru framkvæmdaáætlun nýs samgöngusáttmála. Við það bætast 8 milljarðar vegna vanáætlunar við gerð stokks á Sæbraut. Samkvæmt því eykst kostnaðurinn við fram- kvæmdaáætlunina í samtals um 125 milljarða króna. Mun kosta um 10 milljarða  Gert er ráð fyrir 2,2 milljörðum til Sæbrautar í nýja samgöngusáttmálanum  Ráðherra segir að Sundabraut gæti orðið að veruleika fyrir lok sáttmálans MUmferðarmálin »2 og 6 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Opinn fundur Margir sóttu fund Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, á Hótel Sögu í gærkvöldi þar sem ráðherrann ræddi m.a. nýja stefnu stjórnvalda varðandi vegaframkvæmdir og veggjöld. Fékk ráðherrann margar spurningar um málið úr salnum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Haustlitir Góður tími til ferðalaga. Þótt september sé liðinn fylgja því engin afgerandi kaflaskil í veðráttu, því oft geta í október komið góðir og sólríkir dagar. Þetta segir Kristín Hermannsdóttir, veðurfræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Suð- austurlands á Höfn í Hornafirði. „Nú þegar komið er fram í októ- ber fara haustlægðir að streyma norður yfir Atlantshafið og það má segja að Ísland sé í hraðbraut þeirra. Vissulega er engin regla á þessu frekar en öðru í náttúrunni en lægðunum fylgir oft mikil úrkoma og rok,“ segir Kristín. Hitastig í Reykjavík í október- mánuði samkvæmt viðmiðunarmeð- altali tímabilsins 1961-1990 er 4,4 gráður. Í október 2017 var hitinn að jafnaði 6,9 gáður, eða 2,5 gráðum yf- ir meðaltalinu. Í fyrra var hitastigið hins vegar 0,5 undir meðaltalinu. „Tölur eins árs breyta ekki stóra samhenginu, hitastigið er almennt að hækka,“ segir Kristín. Veðurspá næstu daga er sæmileg. Milt verður í veðri og hiti víða 5-10 stig. Austlægar áttir verða ríkjandi með rigningu syðst en nokkuð bjart fyrir norðan. sbs@mbl.is Milt veður næstu daga  Meðalhitinn hækkar  Ísland í hraðbraut haustlægða  Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins munu á fundi borgar- stjórnar í dag leggja fram tillögu um samflot og samferðabrautir í Reykjavík. Í tillögunni segir að nýta skuli for- gangsakreinar fyrir almennings- samgöngur jafnframt sem sam- ferðabrautir fyrir þá sem fjölmenna í bíla í samfloti, þrír eða fleiri, og draga þar með úr bílaumferð með bættri nýtingu. Markmiðið með tillögunni er að minnka umferðarteppur á höfuð- borgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir því að umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar verði falin útfærsla á framkvæmdinni í samráði við Vegagerðina. »10 Vilja samferða- brautir í Reykjavík Sigurður Viðarsson, forstjóri tryggingafélagsins TM, segir í samtali við Morgunblaðið að það sé grafalvarlegt mál að fasteigna- félagið Upphaf, sem er í eigu fast- eignasjóðsins GAMMA: Novus, sem nú hefur misst á skömmum tíma nær allt sitt eigið fé, sem sagt er að hafi um síðustu áramót verið um 5,2 milljarðar króna, hafi farið í skuldabréfaútboð í maí síð- astliðnum þar sem stöðunni var lýst sem allt annarri. „Þetta kemur okkur verulega á óvart því þessi sami sjóður (sem Kvika, eigandi GAMMA, tilkynnti um í gær að væri í umtalsvert verri stöðu en gert hefði verið ráð fyrir) var að selja skuldabréf í maí á þessu ári þar sem stöðunni var lýst sem allt annarri,“ segir Sig- urður. Spurður að því hvort þetta sé eitthvað sem þurfi að skoða nánar, segir Sigurður að það verði sjálf- sagt skoðað og allt í kringum þessi viðskipti, eins og hann orðar það. „Ég myndi halda að skuldabréfa- eigendur myndu allavega vilja skoða málið vel,“ segir hann. » 12 Skuldabréfaútboð vekur spurningar  Verulegar breytingar hafa orð- ið á útbreiðslu einstakra fiskteg- unda við Ísland á undanförnum árum. Þekktasta dæmið er makr- íllinn. Útbreiðsla loðnu hefur einnig að hluta færst í norður og vestur og dvelur fiskurinn nú lengur í grænlenskri lögsögu en áður. Í kjölfarið hafa Grænlend- ingar gert auknar kröfur um fisk- veiðiréttindi. Staða Norðmanna hefur að sama skapi versnað því minna er talið vera af loðnu við Jan Mayen en áður. Af botnfiski má nefna að ýsa hefur í auknum mæli veiðst fyrir norðan land en mestar aflaheimildir í ýsu voru bundnar við fyrirtæki á Suður- og Suðvesturlandi. » 14 Morgunblaðið/Árni Sæberg Breytingar Makríll er ein þeirra fiskteg- unda sem fært hafa sig um set. Breytt útbreiðsla fiskistofna hröð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.