Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2019 Það er alveg ljóst að vasa- og höfuðljósin frá Fenix standast ströngustu kröfur útivistarfólks um gæði, endingu og styrkleika. Þau gera þér kleift að sjá lengra og létta þér leit við krefjandi aðstæður. Ljósstyrkur: 3200 lumens Drægni: 408 m Lengd: 266,2 mm Þvermál: 28,6 mm Þyngd: 365 g (fyrir utan rafhlöður) Vatnshelt: IP68 Fenix UC35 V2 Létt og sterklegt vasaljós með 1000 lúmena hámarksljósstyrkleika og allt að 266 m drægni. Sannkallað ofurvasaljós hannað með öryggis- og löggæslu í huga. 3200 lúmena ljósgeisli, yfir 400 metra drægni og góð rafhlöðuending. Vasaljósið er einnig útbúið fjölnota afturljósi með fjórum stillingum, m.a. rauðu ljósi til merkjasendinga. FENIX HL60R Lipurt og létt höfuðljós með góða rafhlöðu- endingu. Ljósgeislinn getur náð allt að 950 lúmenum og allt að 116 m drægni. SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS Fenix TK47UE Hægt að hlaða um USB snúru. Hægt að hlaða um USB snúru. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Með því að setja Miklubraut í stokk frá Snorrabraut að Rauðarárstíg skapast mikið rými fyrir byggingar- land. Samhliða framkvæmdinni verður Snorrabraut framlengd inn í Vatnsmýrina. Þetta segir Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri Reykjavíkur, spurður um skipulagn- ingu verksins. Samkvæmt framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans verður um 22 milljörðum króna varið til að leggja Miklubraut í stokk á tímabilinu 2021-2026. Liggur milli fjölbýlishúsa Á grafinu hér fyrir ofan má sjá ljósmyndir sem teknar voru af legu fyrirhugaðs Snorrabrautar- áss í blíðunni í gær. Þær eru felldar inn á drög af byggð við stokkinn. Eins og grafið sýnir mun ásinn liggja milli fjölbýlishúsa sem þegar hafa risið í nýja íbúðahverfinu við Hlíðarenda. Mun ásinn liggja um götu sem heitir Arnarhlíð. Borgarlínan mun aka þessa götu og svo áfram yfir brú í Kársnesinu og að Hamraborg í Kópavogi. Það er hluti af 1. áfanga borgarlínu. Brúin yfir Hringbraut liggur nú töluvert austur af legu fyrirhugaðs Snorrabrautaráss. Þorsteinn segir aðspurður það munu kalla á breytta eða nýja brú. Hins vegar sé ekki búið að útfæra framkvæmdina. Spurður hvort ný brú verði gerð vestur af núverandi brú sem leysi þá gömlu af hólmi segir Þorsteinn að ekki sé tímabært að svara því. Hluti af Snorrabrautarási Brúin tengir Snorrabraut við Bú- staðaveg. „Þetta er langt frá því að vera fullhannað. Það er útgangs- punktur í aðalskipulaginu að Arnar- hlíð verður hluti af Snorrabrautar- ásnum,“ segir Þorsteinn. Hann segir aðspurður útlit fyrir að vegurinn suður af nýja brúar- stæðinu verði í halla og milli fót- boltavallanna suður að Arnarhlíð. Spurður hvernig stokkurinn verði grafinn segir Þorsteinn það til skoð- unar. Hitt sé ljóst að veghæð Hring- brautar við Snorrabraut muni ekki breytast þótt umferðin verði sett í stokk. Ofan á stokknum sé gert ráð fyrir borgarlínu og nýbyggingum meðfram honum. Þorsteinn bendir á að áformað sé að ljúka núverandi uppbyggingu við Landspítalann árið 2025. Hugmyndin sé að vestari hluti Miklubrautarstokksins, milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs, verði þá tilbúinn svo tengja megi svæðið við borgarlínuna. Næsta skref sé svo að lengja stokkinn til austurs þannig að hann nái að göngubrúnni sem tengir Kringlu- svæðið og Safamýrina. Frum- athugun bendir til að allt að 2.000 manna byggð geti risið í nýbygging- um meðfram Miklubrautarstokki frá Snorrabraut að Kringlunni. Svæði fyrir hjáleiðir Jafnframt er áformað að setja hluta Sæbrautar í stokk. Að sögn Þorsteins myndi syðri endi stokksins verða nokkurn veginn vestur af Endurvinnslunni í Knarr- arvogi og liggja svo undir Klepps- mýrarveg við Húsasmiðjuna. Áformað er að hefja stokka- gerðina árið 2022. „Þetta verður flókin framkvæmd en það er töluvert svæði í kring og hægt að gera hjáleiðir á fram- kvæmdatíma,“ segir Þorsteinn. Hann segir það munu bæta mikið flæði umferðarinnar að losna við gatnamót Súðarvogs og Sæbrautar. Jafnframt verði til mikið byggingar- land við stokkinn ofanjarðar. Með stokknum skapist skilyrði til að láta fyrirhugaða borgarlínu liggja yfir stokkinn og svo yfir Elliðaárnar á leið upp í nýja Ártúnshverfið. „Kostnaðurinn við stokkinn er áætlaður rúmir 2 milljarðar í núver- andi áætlun sem er vanmat. Það er ljóst að kostnaðurinn verður meiri. Áformin tengjast Sundabraut. Það er þannig ekki hægt að gera ráð fyrir Sundabraut fyrr en búið er að laga umferðarmálin við Kleppsmýrarveg og Súðarvog. Það er kannski ástæð- an fyrir því að stokkurinn kemur heldur seint inn í áætlunina,“ segir Þorsteinn um Sæbrautarstokkinn. Gróft á litið geti það kostað um 10 milljarða að setja þennan hluta Sæ- brautar í stokk. Hins vegar hafi verið gert ráð fyrir 1.100 milljónum til framkvæmda við Sundabraut árið 2021 og sömu upphæð árið 2022 í framkvæmdaáætlun vegna nýja samgöngusáttmálans, eða samtals 2,2 milljörðum króna. Rætt var um Sæbraut frá Holtavegi að Stekkjar- bakka, en það er miklu lengri vegar- kafli en áformað er að setja í stokk. Þétt byggð við borgargötu Þorsteinn segir aðspurður að ofan stokksins á Sæbraut sé gert ráð fyrir borgargötu með þéttri byggð. Sú byggð muni tengja saman nýju Vogabyggðina og gamla Vogahverfið að austanverðu. Hugmyndir sem arkitektastofan Tröð hefur unnið benda til að hundruð íbúða gætu risið á svæðinu. Þau drög eru sýnd á grafinu hér fyrir ofan. Miklabraut og Sæbraut í stokk Miklabraut í stokk Fyrirhugaður stokkur er 1.750 m langur með 2+2 vegi frá Snorrabraut og austur fyrir Kringlu Borgargata verður á yfi rborði með 1+1 fyrir bílaumferð og 1+1 fyrir almennings- samgöngur, hjólandi og gangandi umferð B E D Klambratún Sæbraut Krin glum ýrar brau t M iklabraut M iklabraut Sno rrab rau t H ringbraut Hlíðarendahverfi Perlan Háskólinn í Reykjavík B ústaðavegur Háal eitis brau t Kringlan Miklabraut S æ braut í stokk Horft frá gatnamótum Miklubrautar og Sæbrautar í átt að fyrirhugaðri legu Borgarlínu yfi r Sæbraut Drög að tengingu Miklubrautar við stokk við Snorrabraut Horft í vestur af brú við Snorrabraut Horft suður að Arnarhlíð Horft norður Arnarhlíð Sæbraut í stokk Möguleg útfærsla á fyrirhugaðri byggð og Sæbraut í stokk að Kleppsmýrar- vegi. Fyrsti áfangi Borgarlínu mun liggja í gegnum suðurenda byggðarinnar. C A A B D E C Borgarlína Í framhaldi af Suðurlandsbraut Mynd: Trípólí arkitektar M yn d: K an on a rk ite kt ar Mynd: Teiknistofan Tröð Ljósmyndir: Morgunblaðið/Baldur Þétting byggðar Íbúðabyggð Fyrirtæki/þjónusta Miklabraut í stokk Kostnaður Milljónir kr. 2022 1.100 2023 4.300 2024 7.100 2025 7.100 2026 2.200 Alls 21.800 Tengir Snorrabraut við Vatnsmýri  Samgöngustjóri Reykjavíkur segir stokk við Miklubraut skapa mikið land undir nýbyggingar  Ljóst sé að kostnaðurinn við að setja Sæbraut í stokk verði töluvert meiri en 2 milljarðar króna Þorsteinn R. Hermannsson Morgunblaðið/Baldur Arnarhlíð Eftir nokkur ár gæti gatan orðið framhald af Snorrabraut.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.