Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2019 50 ára Jón Viggó er Ís- firðingur en býr í Reykjavík. Hann er verkfræðingur frá Ála- borgarháskóla og er framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá CCP. Maki: Ástríður Elín Jónsdóttir, f. 1967, sér- fræðingur hjá fjármálaráðuneytinu. Börn: Hrafn Viggó, f. 2013, Ásthildur Una, f. 2007, Sesselja Malín, f. 2002, Embla Katrín, f. 1996, og Ingveldur Birna, f. 1994. Stjúpbörn eru Snædís Björt, f. 1988, Hrafnkatla, f. 1993, og Egill Jón, f. 2002. Foreldrar: Gunnar Jónsson, f. 1945, skipaafgreiðslumaður á Ísafirði, og Herdís Viggósdóttir, f. 1945, fyrrverandi kaup- maður á Ísafirði, bús. á Akranesi. Jón Viggó Gunnarsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Kipptu þér ekki upp við það þótt bláókunnugt fólk gefi sig á tal við þig. Taktu upp nýja lifnaðarhætti með nægum nætursvefni. 20. apríl - 20. maí  Naut Farðu varlega í fjármálum í dag og ekki láta plata þig út í einhverja tilrauna- starfsemi. Kvefpest herjar á heimilið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Einhver þér eldri – hugsanlega vinur – getur veitt þér góð ráð í dag. Farðu varlega og reyndu að gera ekki illt verra í nágrannadeilum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samræður þínar við vini þína eru óvenju skemmtilegar í dag. Það er ekki nóg að umbúðirnar séu fallegar, innihaldið verður að vera eitthvað bitastætt líka. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er eitt og annað sem þú þarft að velta fyrir þér og hugsa til enda. Ekki fylgja straumnum, það er skemmtilegra að vera aðeins öðruvísi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Dagurinn í dag er frábær fyrir skapandi verkefni og/eða afþreyingu með smáfólkinu. Ástamálin eru í góðum far- vegi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú átt erfitt með að einbeita þér að þeim verkefnum sem fyrir liggja. Reyndu að halda í við makann í ræktinni. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú getur gert svo til hvað sem er í dag. Hugmyndirnar sem þú færð virðast kannski yfirgengilegar en ef þú nýtir þær á einhvern hátt gerist margt skemmtilegt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ekki trúa því sem þú heyrir varðandi náinn vin. Dagurinn er tilvalinn til fundahalda. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er oft skammt öfganna á milli hjá þér og það bitnar á þínum nán- ustu. Farðu í stutt ferðalag ef þú mögu- lega getur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér finnst þú vera blátt áfram og heiðarleg/ur í dag en öðrum finnst þú segja of mikið. Sýndu kjark og prófaðu að fara nýjar leiðir í uppeldinu. Félagi þinn kemur með tillögur. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það getur reynst erfitt að taka ákvarðanir í snúnum aðstæðum. Gerðu þitt besta til að halda ró þinni. takanna og var óslitið í stjórn til 2001.“ Árið 1996 skipulagði Stein- gerður og stjórnaði borgarafundi um einelti í Gerðubergi fyrir hönd Barnaheilla og 1997 sat hún sem fulltrúi samtakanna í nefnd sem skipulagði fundaröð um kynferðis- ofbeldi í Háskólabíó. Steingerður hefur einnig unnið sem leiðsögumaður frá 1992. „Ég hef haft mikla ánægju af að leið- segja og fæ mikið út úr því að vera úti í náttúrunni. Ég stunda fugla- skoðun og hef mikinn áhuga á ís- lenskum jurtum, einkum tengslum konur af vinsemd og virðingu og fjalla um málefni sem þær hafa áhuga á sem er allt milli himins og jarðar. Ég vil sýna hvað það býr mikill krafur í konum og hvernig þær geta nýtt hann til góðs þegar þær stíga út fyrir þægindarammann hvort sem það er að sigrast á erf- iðleikum eða láta drauma rætast.“ Steingerður tók þátt í kynningar- átaki Barnaheilla, Barnaheillavinir, árið 1995 „Ferðast var milli fyrir- tækja um allt land og samtökin kynnt með fyrirlestri. Eftir það var ég beðin að taka sæti í stjórn sam- S teingerður Steinarsdóttir fæddist 1. október 1959 í Reykjavík. „Ég ólst að hluta til upp á Vopnafirði því ég var í sveit hjá afa og ömmu á Refstað. Páll Metúsal- emsson afi minn giftist aftur eftir að hann missti Svövu, móðurömmu mína, Sigríði Þórðardóttur frá Ljósalandi í Vopnafirði. Hún reynd- ist mér besta amma sem hugsast getur, kenndi mér nöfn á jurtum og að meta íslenskan lággróður. Ég hef verið heilluð af dýrum frá því ég var smábarn og af því ganga sögur að ég hafi aldrei verið hrædd við nokkurt dýr sama hversu stór þau voru. Hundar voru í miklu uppáhaldi og altalað að ég heilsaði hundunum á bænum áður en ég sneri mér að mannfólkinu þegar ég kom í sveitina á vorin. Á fullorðins- árum eignaðist ég minn fyrsta hund árið 2003, Freyju, og missti hana fyrir ári. Nýlega kom svo inn á heimilið önnur tík sem fékk nafnið Kría. Annars bjó fjölskylda mín í Ból- staðarhlíð frá því ég var fimm ára og ég gekk í Ísakskóla, Æfingadeild Kennaraskólans, Hlíðaskóla, Vörðu- skóla og Ármúlaskóla. Ég lauk svo gagnfræðaprófi frá Ármúlaskóla eftir einn vetur í Vörðuskóla og fór þaðan í Menntaskólann við Hamra- hlíð. Þetta var mikill þvælingur en þótti ekki mikið mál þá þótt krakk- ar gengju nokkuð langan veg í skólann.“ Steingerður lauk BA-námi í ensku og fjölmiðlafræði 1991 við Háskóla Íslands, lokaprófi í hag- nýtri fjölmiðlun 1992 við HÍ, prófi frá Leiðsöguskóla Íslands 2006 og diplómu til kennsluréttinda 2010 frá Háskólanum á Akureyri. Steingerður hefur verið blaða- maður mestan hluta síns starfsferils Hún vann hjá Tímaritinu Ung í anda, Tímaritinu Uppeldi og Vik- unni. Hún varð síðan ritstjóri tíma- ritanna 19. júní og hann/hún en hef- ur unnið hjá útgáfufélaginu Birtingi frá 2012, fyrst sem blaðamaður á Gestgjafanum en frá maí 2013 sem ritstjóri Vikunnar. „Það sem ég vil gera sem ritstjóri er að tala við þeirra við þjóðsögur, ævintýri og þjóðtrú. Ég hef haldið námskeið og fyrirlestra um það efni og sömuleið- is um frásagnartækni. Blaða- mennska snýst ekki hvað síst um að miðla upplýsingum og sá þáttur starfsins þótti mér ævinlega mjög ánægjulegur.“ Önnur áhugamál Steingerðar eru ljóðlist, bók- menntir, leiklist, sagnfræði og myndlist. Fjölskylda Eiginmaður Steingerðar er Guð- mundur Bárðarson, f. 14.1. 1959, skipstjóri á Stefano hjá útgerðar- félaginu Reykdal. Foreldrar hans voru hjónin Bárður Gunnarsson, f. 24.5. 1931, d. 4.9. 2000, loftskeyta- maður, og Halldóra Guðmunds- dóttir, f. 26.9. 1927, d. 30.9. 2018, húsmóðir og starfsmaður Útgerðar- félags Akureyrar. Þau voru búsett á Akureyri. Börn Steingerðar og Guðmundar eru 1) Andri Guðmundsson, f. 4.10. 1980, efnafræðingur og kennari í MR, kona hans er Gunnur Jóns- dóttir, f. 2.10.1982, og dætur þeirra eru Úlfhildur, f. 7.12. 2010 og Alda, f. 5.6. 2015 og 2) Eva Halldóra Guð- mundsdóttir, f. 12.1. 1988, sviðshöf- undur og vinnur hjá Reykjavíkur- borg, maður hennar er Vigfús Karl Steinsson, f. 5.4. 1994. Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar – 60 ára Sonur og fjölskylda Andri og Gunnur ásamt dætrunum, Úlfhildi og Öldu. Vill sýna kraftinn sem býr í konum Dóttir og maki Vigfús Karl og Eva Halldóra. Hjónin Guðmundur og Steingerður. 40 ára Guðlaug er Bolvíkingur og hefur búið þar mestalla tíð. Hún er hársnyrti- meistari að mennt og rekur stofuna Klippi- kompaní í Bolungar- vík. Maki: Olgeir Sveinn Friðriksson, f. 1978, viðskiptafræðingur hjá Endurskoðun Vestfjarða. Börn: Sigrún Halla, f. 2008, og Sigurður Hólmsteinn, f. 2011. Foreldrar: Hólmsteinn Guðmundsson, f. 1949, d. 1994, bifvélavirki og rak einnig verslun, og Þóra Guðbjörg Hallsdóttir, f. 1950, fyrrverandi bókari. Stjúpfaðir er Þórlindur Ólafsson, f. 1951, vélstjóri. Þau eru búsett í Bolungarvík. Guðlaug Rós Hólmsteinsdóttir á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu Til hamingju með daginn Akureyri Óskírður Arnarson fæddist 18. september 2019 kl. 0.11. Hann vó 5.078 g og var 56 cm langur. Foreldrar hans eru Kristín Heba Gísla- dóttir og Arnar Þór Arnarsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.