Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2019 ER BROTIÐ Á ÞÉR? Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur. Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst. Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn. HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT. botarettur.is Mikil hátíðarhöld verða í Kína í dag í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá því að kínverska al- þýðulýðveldið var stofnað. Hátíðin hefst með ræðu Xi Jinping, forseta Kína, sem er valda- mesti leiðtogi landsins frá því að Maó Zedong stjórnaði því. Xi vottaði minningu Maós virð- ingu sína við styttu af honum á torginu við Hlið hins himneska friðar í Peking í gær. Forsetinn flytur hátíðarræðuna í dag við Hlið hins him- neska friðar, milli torgsins og Forboðnu borg- arinnar, þar sem Maó stóð 1. október 1949 þegar hann lýsti yfir stofnun alþýðulýðveldis- ins. Ráðamenn kínverska kommúnistaflokksins ætla að notfæra sér afmælið til að vekja at- hygli á vaxandi hernaðarmætti landsins með mikilli hersýningu á torginu við Hlið hins him- neska friðar. Um 15.000 hermenn ganga um torgið og á meðal vígvélanna sem verða sýndar eru skriðdrekar, sprengjuflugvélar, hljóðfrár dróni og ný langdræg eldflaug sem gæti dregið að meginlandi Bandaríkjanna. Alls verða sýndar um 160 flugvélar og 600 aðrar vígvélar, að sögn fréttaveitunnar AFP. Gert er ráð fyrir því að um 100.000 manns gangi einnig á torginu og 70 stórum skrúð- vögnum verður ekið um svæðið. Um 70.000 dúfum og jafnmörgum blöðrum verður sleppt og hátíðinni lýkur með kvöldskemmtun og flugeldasýningu. Forystumenn kommúnistaflokksins hafa lagt mikla áherslu á að tryggja að ekkert skyggi á afmælishátíðina. Fjölmiðlar fengu fyrirmæli um að forðast að gera mikið úr slæmum fréttum síðustu dagana fyrir hátíðina og það tók þá t.a.m. um sólarhring að fá leyfi til að segja frá umferðarslysi sem kostaði 36 manns lífið um helgina. Yfirvöldin hafa hert eftirlitið með samfélagsmiðlum og lagt áherslu á að loka forritum sem gera fólki kleift að kom- ast í gegnum „eldvegginn mikla“, neteftirlits- kerfi kínverskra yfirvalda. Íbúafjöldi: Flatarmál: Skóglendi: Meðallífslíkur: 1,4milljarðar Xi Jinping forseti (frá árinu 2013) 9.600.000 km2 22,2% Gjaldmiðill: Júan Verðbólga: 2,1% (2018) Fjöldi ferðamanna: 60,7milljónir (2017) Stofnað árið 1949 Konur 77,2 Karlmenn 74,2 (2015) Þjóðhöfðingi: VLF á mann: 9.771 $ (2017) Atvinnuleysi: (% af vinnuaflinu) 4,4% (2018) Alþýðulýðveldið Kína Heimildir: Alþjóðabankinn/Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO)/SÞ Dánartíðni ungbarna Dauðsföll á hverjar þúsund fæðingar 2018 Indland Kína Bandaríkin Frakkland Japan 30 Indónesía 21 7 3 2 6 Konur á þingi % af þingmönnunum 2018 24,9 Kortið byggist á maps4news.com Útflutningur til: Innflutningur frá: Útflutningur Innflutningur 2,26 billjónir $, 2017 1,84 billjónir $, 2017 Iðnframl.Iðnframl. Hlutfall af heildarútflutningi í heiminum 2017: 12,8% Hlutfall af innflutningi í heiminum 2017: 10,2% Land- búnaður Eldsneyti og námuvinnsla Annað Eldsneyti og námuvinnsla Land- búnaður Annað 64,9 20,5 9,8 4,8 93,7% 3,6 2,4 0,3 Bandar.18,4% 16,2 13,1 10 9,2 8,7 8,5 13,7 6,2 4,5 ESB ESB-lönd Hong Kong Japan S-Kórea S-Kórea Japan Taívan Bandar. 500 km PEKING Hong Kong SjanghæChongqing Chengdu Xian Tianjin Urumqi Macau 3 6 9 12 15 billjónir dollara Verg landsframleiðsla (VLF) 0,06 1960 0,191 1980 1,213 2000 6,087 2010 13,608 2018 Mikil hersýning og hert eftirlit á netinu  70 ár liðin frá stofnun Alþýðulýðveldisins Kína Tugir stjórnmálaleiðtoga, þ.á m. Vladimír Pútín Rússlandsforseti, voru viðstaddir útför Jacques Chiracs, fyrrverandi forseta Frakk- lands, frá kirkjunni Saint-Sulpice í París í gær. Á meðal annarra erlendra leiðtoga í kirkjunni voru Frank-Walter Steinmeier, for- seti Þýskalands, Tamim bin Hamad Al-Thani, fursti af Katar, og Saad Hariri, forsætisráð- herra Líbanons og sonur Rafiq Hariri, sem var náinn vinur Chiracs. Bill Clinton, fyrrver- andi forseti Bandaríkjanna, var einnig við út- förina. „Hann var alltaf líflegur, alltaf já- kvæður, alltaf mjög franskur, varði alltaf hagsmuni Frakklands, en með leiðum sem færðu fólk saman en sundraði því ekki,“ sagði Clinton eftir útförina. Þrír fyrrverandi forsetar voru einnig í kirkjunni, þeir Valery Giscard d’Estaing, sem er 94 ára, Nicolas Sarkozy og Francois Hol- lande. Marine Le Pen, leiðtogi franskra þjóð- ernissinna, hugðist vera við útförina en hætti við það vegna andstöðu fjölskyldu Chiracs. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hafði lýst yfir þjóðarsorg vegna útfararinnar og Chiracs var minnst með mínútu þögn í öll- um opinberum stofnunum og skólum. Chirac var forseti í tólf ár, frá 1995 til 2007, og Francois Mitterrand er sá eini sem hefur gegnt embættinu lengur eftir síðari heimsstyrjöldina. Chirac var einnig forsætis- ráðherra á árunum 1974-1976 og 1986-1988 og borgarstjóri Parísar 1977 til 1995. Skoðanakönnun sem gerð var um helgina bendir til þess að Frakkar telji Chirac vera besta forsetann í nútímasögu landsins ásamt Charles de Gaulle. AFP Borinn til grafar Kista Jacques René Chiracs, fyrrverandi forseta Frakklands, borin út úr kirkjunni Saint-Sulpice í París. Chirac lést á fimmtudaginn var, 86 ára að aldri. Chirac kvaddur hinstu kveðju í París

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.