Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2019 UPPGJÖR 2019 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Kristinn Jónsson, vinstri bakvörður Íslandsmeistaraliðs KR-inga, var besti leikmaður Íslandsmóts karla í knattspyrnu árið 2019, samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins. Hann hafði betur gegn samherja sínum og fyrirliða KR, Óskari Erni Hauks- syni, með minnsta mun. Þeir Kristinn og Óskar urðu jafnir og efstir í M-gjöfinni, fengu 18 M hvor samtals yfir allt tímabilið, en Kristinn hreppir titilinn þar sem hann lék 19 leiki en Óskar spilaði alla 22 leiki KR-inga. Þetta er í annað sinn sem Kristinn er útnefndur besti leikmaðurinn hjá Morgunblaðinu en hann sigraði líka í M-gjöfinni árið 2015, þá sem leik- maður Breiðabliks. Þá eru þeir Kristinn og Óskar einu leikmennirnir sem voru í ellefu manna úrvalsliði Morgunblaðsins, byggðu á M-gjöfinni, fyrir tímabilið 2018 sem eru aftur í úrvalsliðinu fyr- ir árið 2019. Kristinn er 29 ára gamall og lék sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik í efstu deild vorið 2007, þá aðeins sex- tán ára gamall. Hann var síðan fastamaður í Blikaliðinu frá 2008, varð bikarmeistari með því 2009 og Íslandsmeistari árið 2010. Kristinn lék með Breiðabliki til 2017 en var þó tvö og hálft tímabil annars staðar á Norðurlöndum. Fyrst árið 2014 með Brommapojkarna í sænsku úr- valsdeildinni og síðan 2016 með Sarpsborg og fyrri hluta árs 2017 með Sogndal í norsku úrvalsdeild- inni. Kristinn gekk síðan til liðs við KR- inga fyrir tímabilið 2018 og hefur verið í lykilhlutverki hjá Vesturbæj- arliðinu síðan. Hann missti af fyrstu þremur leikjunum á þessu tímabili vegna meiðsla, kom inná sem vara- maður í þeim fjórða en hefur síðan verið í banastuði á vinstri væng Ís- landsmeistaranna, fékk 18 M í þeim 18 leikjum sem eftir voru, skoraði þrjú mörk og lagði nokkur upp. Kristinn á að baki 188 leiki í úr- valsdeildinni, þar af 148 fyrir Breiðablik þar sem hann er fjórði leikjahæstur frá upphafi. Leikirnir með KR eru orðnir 40 talsins. Hann á að baki 8 A-landsleiki og spilaði 32 leiki með yngri landsliðum Íslands á árum áður. Margir áfangar Óskars Óskar Örn Hauksson varð annar eins og áður kom fram, fékk 18 M eins og Kristinn en í fleiri leikjum. Óskar átti líka frábært tímabil með Íslandsmeisturum KR en hann og Kristinn mynduðu einmitt gríðar- lega öflugt tvíeyki á vinstri kant- inum hjá Vesturbæjarliðinu og Kristinn Jónsson besti leik- maður deildarinnar 2019  KR-ingarnir Kristinn og Óskar Örn Hauksson urðu jafnir og efstir í M-ein- kunnagjöf Morgunblaðsins með 18 M  Í annað sinn sem Kristinn er bestur Morgunblaðið/Eggert Átján Kristinn Jóns- son lék ekki fyrstu þrjá leiki KR á tíma- bilinu en fékk síðan 18 M fyrir frammistöðu sína í þeim leikjum sem eftir voru. 4-3-3 Hversu oft leikmaður var valinn í lið umferðarinnar2 Varamannabekkur Fjöldi sem leikmaður fékk á leiktíð2 Hannes Þór Halldórsson Val 9 Tryggvi Hrafn Haraldsson ÍA 15 Óskar Örn Hauksson KR 18 Steven Lennon FH 13 11 11 Höskuldur Gunnlaugsson Breiðabliki Guðmundur Kristjánsson FH Vladan Djogatovic Grindavík Ágúst Eðvald Hlynsson Víkingi Alex Þór Hauksson Stjörnunni Einar Logi Einarsson ÍA Helgi Valur Daníelsson Fylki Ásgeir Marteinsson HK Andri Rafn Yeoman Breiðabliki Elfar Árni Aðalsteinsson KA 4 3 55 9 11 11 11 13 14 14 13 Lið ársins 2019 hjá Morgunblaðinu Finnur Tómas Pálmason KR 11 Sölvi Geir Ottesen Víkingi 15 Kennie Chopart KR 11 Kristinn Jónsson KR 18 4 5 3 5 Hallgrímur Mar Steingrímsson KA 16 Hilmar Árni Halldórsson Stjörnunni 14 Ásgeir Börkur Ásgeirsson HK 17 37 3 3 3 3 2 3 3 2 3 2 byggðu þar upp margar af hættuleg- ustu sóknum KR-inga í hverjum leik fyrir sig. Óskar skoraði 7 mörk og hefur þar með skorað á öllum sextán tímabil- um sínum í efstu deild, frá því hann lék þar fyrst með Grindavík árið 2004. Óskar Örn, sem er 35 ára gamall, náði mörgum stórum áföngum á árinu. Hann sló bæði leikja- og markamet KR í efstu deild, tók leikjametið af Þormóði Egilssyni England Manchester United – Arsenal................. 1:1 Staðan: Liverpool 7 7 0 0 18:5 21 Manch.City 7 5 1 1 27:7 16 Leicester 7 4 2 1 13:5 14 Arsenal 7 3 3 1 12:11 12 West Ham 7 3 3 1 10:9 12 Tottenham 7 3 2 2 14:9 11 Chelsea 7 3 2 2 14:13 11 Bournemouth 7 3 2 2 13:12 11 Crystal Palace 7 3 2 2 6:7 11 Manch. Utd 7 2 3 2 9:7 9 Burnley 7 2 3 2 10:9 9 Sheffield Utd 7 2 2 3 7:7 8 Wolves 7 1 4 2 9:11 7 Southampton 7 2 1 4 7:11 7 Everton 7 2 1 4 6:12 7 Brighton 7 1 3 3 5:10 6 Norwich 7 2 0 5 9:16 6 Aston Villa 7 1 2 4 8:11 5 Newcastle 7 1 2 4 4:13 5 Watford 7 0 2 5 4:20 2 Svíþjóð Hammarby – Örebro............................... 5:1  Aron Jóhannsson var ekki í leikmanna- hópi Hammarby. Helsingborg –Kalmar ............................. 2:0  Daníel Hafsteinsson kom inn á hjá Hels- ingborg eftir 84 mínútur. Staðan: Djurgården 26 18 5 3 46:15 59 Malmö 26 16 8 2 48:14 56 Hammarby 26 16 5 5 65:35 53 AIK 26 16 5 5 38:20 53 Norrköping 26 14 7 5 46:20 49 Häcken 26 13 6 7 40:23 45 Gautaborg 26 12 9 5 39:26 45 Elfsborg 26 8 9 9 34:42 33 Örebro 26 9 5 12 38:44 32 Helsingborg 26 7 6 13 25:42 27 Sirius 26 6 4 16 29:48 22 Kalmar 26 4 10 12 20:40 22 Östersund 26 4 9 13 22:42 21 Sundsvall 26 4 7 15 25:41 19 Falkenberg 26 4 7 15 20:51 19 Eskilstuna 26 3 6 17 22:54 15 B-deild: Frej – Brage ............................................. 2:3  Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn með Brage og skoraði tvö mörk. Degerfors – Syrianska............................ 2:0  Nói Snæhólm Ólafsson lék allan leikinn með Syrianska.  Efstu lið: Mjällby 48, Jönköping 47, Var- berg 47, Brage 46, Örgryte 43. Noregur Viking – Mjöndalen ................................. 4:1  Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik- inn með Viking en Axel ÓskarAndrésson er frá keppni vegna meiðsla. Staða efstu liða: Molde 23 16 4 3 54:23 52 Bodø/Glimt 23 14 5 4 54:34 47 Odd 23 13 5 5 37:27 44 Rosenborg 23 11 7 5 36:27 40 Viking 23 10 6 7 41:33 36 Kristiansund 23 9 7 7 30:25 34 Brann 23 9 7 7 28:23 34 Haugesund 23 6 10 7 31:27 28 Vålerenga 23 7 7 9 35:36 28 Lillestrøm 23 7 5 11 29:38 26 Stabæk 23 6 7 10 26:32 25 KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Origo-höll: Valur U – Þróttur.............. 19.40 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Hleðsluhöllin: Selfoss – Fylkir ............ 19.30 Í KVÖLD! HANDBOLTI Olísdeild karla KA – ÍR ................................................. 27:33 Valur – ÍBV........................................... 25:27 Staðan: ÍR 4 4 0 0 128:106 8 ÍBV 4 4 0 0 107:94 8 Haukar 4 4 0 0 101:89 8 Afturelding 4 3 0 1 107:97 6 Selfoss 4 2 1 1 116:117 5 FH 4 2 0 2 103:102 4 Valur 4 1 1 2 95:94 3 Fjölnir 4 1 1 2 102:114 3 KA 4 1 0 3 109:112 2 Stjarnan 4 0 1 3 90:107 1 HK 4 0 0 4 99:111 0 Fram 4 0 0 4 82:96 0 Coca Cola-bikar karla 1. umferð: ÍBV 2 – Grótta ...................................... 19:35 Hörður – Þór Ak................................... 16:39 Grill 66 deild kvenna ÍR – ÍBV U............................................ 30:21 Danmörk Aarhus – SönderjyskE........................ 25:28  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 2 mörk fyrir SönderjyskE og Sveinn Jó- hannsson 1.  Efstu lið: Aalborg 9, SönderjyskE 8, Bjerringbro/Silkeborg 7, Ribe-Esbjerg 7, GOG 6, Aarhus 6, Tvis Holstebro 6.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.