Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Úrslit kosn-inganna íAusturríki eru eftirtektar- verð. Fyrir tveim- ur árum myndaði bráðungur leiðtogi Þjóðar- flokksins, Sebastian Kurz (31 árs þá), hins hefðbundna stór- flokks hægra megin við miðju, gegnt Sósíaldemókrötum, stjórn með Frelsisflokknum. Þann flokk höfðu ríkisfjöl- miðlar víða og fréttamenn sem elta stimplað sem hægri öfga- flokk. Eins og kunnugt er hef- ur þessi fjölmiðlahópur aldrei rekist á „vinstri öfgamenn“. Þessi háttur var fallinn til að styrkja mjög stöðu vinstri- flokka þegar að stjórnarmynd- unum kom. Skipti minnstu máli þótt þeir töpuðu fylgi í hverjum kosningum, þeir end- uðu engu að síður í ríkisstjórn. En þótt vinstri elítan og áhangendur hennar í fjölmiðl- unum og háskólasamfélaginu gætu fagnað velheppnaðri stimplun, þá voru það ekki síst „hægri öfgaflokkar“ sem högn- uðust á henni. Kjósendur sem sáu að ekkert væri gert með áhyggjur þeirra yfir þróuninni færðust yfir á þessa flokka hvað sem merkmiðum leið. Enn stendur þessi stefna í Svíþjóð þar sem Kratar halda um stjórnartauma þótt þeir séu komnir niður í minnsta fylgi í rúma öld! Þótt skiljan- legt sé að forystumenn borg- aralegra afla hafi lengi verið tregir til að leggja nafn sitt við flokka sem fjölmiðlar og „fræðimenn“ sögðu nýnasista eða að minnsta kosti fasista safnaðist smám saman kjarkur til að spyrna sér út úr þessum réttarhólfum handhafa „rétt- lætisins“ sem ætlað var að styrkja stöðu samherja þeirra í stjórnmálum. Þeir sáu að rök- in fyrir því að kenna þessa flokka við viðurstyggð sögu- legra stjórnmála héldu ekki. Þannig sýndi greining á vax- andi fylgi AfD í Þýskalandi, sem lengi hefur búið við stimplun af þessu tagi, að drjúgur hluti af fylgisaukn- ingu þess flokks kom frá þýska krataflokknum, sem hefur hrunið í fylgi. Í síðustu fylkja- kosningu fékk AfD enn eina sveifluna til sín. Í Finnlandi var Sönnum Finnum sem stimplaðir höfðu verið sem öfgaflokkur boðin aðild að rík- isstjórn og fóru með utanrík- ismálin. Ekkert sérstakt gerð- ist nema að örlítið var hægt á innflutningi flóttafólks. Sá flokkur hætti að stækka. Í Danmörku gerðist tvennt í senn. Flokkur Lökke forsætis- ráðherra byggði tilveru stjórn- ar sinnar á stuðningi Þjóðar- flokksins sem kominn var í hóp stærstu flokka og flokkur Jafnaðarmanna kúventi og tók að hluta upp stefnu þessa meinta öfga- flokks í ýmsum viðkvæmum mál- um. Niðurstaðan í næstu kosn- ingum á eftir var að flokkur forsætisráðherrans kom vel frá kosningunum og vann á. Jafnaðarmannaflokkurinn vann verulega á og myndaði minnihlutastjórn en „hægri öfgaflokkurinn“ tapaði lykil- stöðu sinni í dönskum stjórn- málum, að minnsta kosti um hríð. En hvergi hafði vottað fyrir því að hann hefði nýtt sterka stöðu sína á þingi og í samstarfi við ríkisstjórnina til að ýta málstað þeirra Adolfs og Benito áleiðis, hvað sem leið fáránlegu fjasi fréttamanna og annarra. Sömu sögu er að segja í Noregi þegar Hægri flokkurinn þorði loks að blása á fyrrgreint bull. Kurz hinn ungi í Austurríki hleypti „öfgaflokknum“ inn fyrir girðinguna þar sem hinir lögmætu hafa einir mátt eiga sæti. Tveimur árum síðar sprakk stjórn hans. En það var ekki vegna tilburða „öfga- flokksins“ heldur vegna þess að formaður þess flokks hafði verið leiddur í gildru „rann- sóknarblaðamanna“ fyrir kosningarnar 2017. Þá var sett á samkvæmi og vel veitt og þar tók hinn óreyndi leiðtogi Frelsisflokksins við „frænku rússnesks olíumilla“ sem vildi samstarf og bauð fram að hún myndi kaupa austurrískan fjölmiðil og sveigja afstöðu hans í átt til sjónarmiða Frelsisflokksins! Þetta leikrit var tekið upp en þó ekki sýnt fyrir kosningarnar 2017 heldur á þessu ári. Í kjölfarið féll stjórn kanslarans unga og starfandi kanslari tók við fram yfir kosningar. Ætla hefði mátt að Kurz hefði verið hegnt fyrir að leiða „öfgahægri flokkinn“ til önd- vegis í Austurríki. En það var öðru nær. Hann vann óum- deildan kosningasigur og fékk 38,4% atkvæðanna en hafði 31% áður. Stærsti stjórnar- andstöðuflokkurinn, Krat- arnir, tapaði verulegu fylgi og fékk 21,5% fylgi en hafði haft 26,9% áður. Frelsisflokkurinn tapaði miklu og fékk 17,3% fylgi en hafði 26% fylgi áður. Græningjar fengu 12,4% en höfðu áður engan þingmann, en höfðu fengið 12% fylgi í næstsíðustu kosningum. Og einn hægri flokkurinn til, Nýja Austurríki, bætti nokkuð við sig og fékk 7,4% atkvæðanna. Samkvæmt þessum úrslitum gætu hinir föllnu stjórnar- flokkar auðveldlega myndað nýja stjórn, þótt ekki sé víst að Kurz velji þann kost. Austurrísku kosn- ingarnar fóru á ann- an veg en ætla mátti} Fróðleg úrslit Þ að er til huldunefnd hjá Trygg- ingastofnun ríkisins sem getur fellt niður ósanngjarnar og fáránlegar kröfur um endurgreiðslur, eins og t.d. vegna fáránlegrar kröfu rík- isins á dráttarvöxtum sem öryrkjar fengu greidda vegna neitunar á húsleigubótum, sem þeir áttu fullan rétt á að fá greiddar. En hvers vegna vita öryrkjar ekkert af þess- ari huldunefnd? Þá vita öryrkjar heldur ekki af því að hægt er að dreifa einu sinni endur- greiðslum á tíu ár. Lífeyrisþegar vita heldur ekki af því að ríkisskattstjóri getur dreift sömu endurgreiðslum sex ár aftur í tímann. Hjá TR er verið að skerða tekjur, bætur og styrki um 70% og yfir 100%. Að fá 100 þúsund krónur borgaðar, en verða að borga til baka 110 þúsund krónur eða meira er fáránlegt og ekkert annað en eignaupptaka. Þetta er að vera góður og gefa með vinstri hendinni, en síðan taka allt með þeirri hægri og meira en það. En það er allt á huldu hjá þeim um þessar fjárhagslegu ofbeldis- aðgerðir, því þetta kemur hvergi fram, því skerðingarnar koma fram ári seinna. Engar aðgerðir til að koma í veg fyrir þetta, eða hvað þá að fara að lögum og upplýsa ör- yrkja að fyrra bragði. Nei. Svona er þetta kerfi sem fjórflokkurinn hefur byggt upp undanfarna áratugi. Kerfi sem upplýsir ekki veikt fólk og eldri borgara um rétt sinn. Sýndargóðmennskukerfi sem tekur oft meira til baka en það gefur, sem er ekki góð- mennska, heldur mannvonska. Kerfið á að vera þannig að það upplýsi á rauntíma um allan rétt viðkomandi og ef viðkomandi þarf ekki að borga, þá lætur kerfið vita og end- urgreiðir strax, eða eins fljótt og auðið er. Það stendur skýrt í stjórnarskránni að það sé bannað að mismuna. Hvernig getum við þá verið með svona lög um svona fáránlegar skerðingar og eignaupptöku? Og að það skuli vera gert þannig að skuldir upp á hundruð þús- unda stofnast vegna dráttarvaxta. Dráttarvaxta sem koma vegna ólöglegrar neitunar á rétti fólks, sem eru bætur en ekki tekjur. Almenningur fær að eiga dráttarvexti og þeir eru ekki notaðir til að skerða laun þeirra og hvað þá yfir 100% eins og hjá ör- yrkjum. Nei, bara hjá lífeyrisþegum hjá Trygg- ingastofnun ríkisins og það vegna þess að það dróst úr hófi fram að borga öryrkjunum húsa- leigubætur sem þeir áttu löglegan rétt á. Dómur Landsréttar Flokkur fólksins fór í mál vegna ólöglegra afturvirkra skerðinga á lífeyrissjóðsgreiðslum eldri borgara og dóm- urinn komst að því að þessi kröfuréttindi nytu verndar 72. gr. stjórnarskrárinnar. Útborgun er hafin með þessari ólöglegu skerðingu og eldri borgarar sjá því svart á hvítu hvað er verið að skerða þá á tveim mánuðum. Geta því reiknað út hversu miklar skerðingarnar eru á lögvernduðum lífeyrissjóði þeirra ár eða áratugi aftur í tímann. Guðmundur Ingi Kristinsson Pistill Allt á huldu Höfundur er þingflokksformaður Flokks fólksins. gudmundurk@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Enginn hafði látið sér detta íhug að kvótasetja makrílá Íslandsmiðum áður enhann fór að ganga svo norðarlega fyrir röskum áratug. Þegar makríll byrjaði að ganga á þessi mið í fæðuleit á sumrin var Ís- lendingum frjálst að veiða og enn eru óútkljáðar deilur við þá sem höfðu fiskveiðiréttindi á makríl frá fyrri tíð. Geir Ottersen, sérfræðingur á norsku Hafrannsóknastofnuninni, bendir á þetta á heimasíðu stofnun- arinnar og segir að breytt útbreiðsla hafi gengið hratt fyrir sig og haft áhrif á fiskveiðistjórnun. Hann er einn höfunda skýrslu IPCC, milli- ríkjanefndar um loftslagsbreytingar, sem kom út í síðustu viku, og fjallar einkum um haf og ís [freðhvolf]. Þar segir að áhrifa veðurfars- breytinga á vistkerfi norðurslóða muni gæta í fiskafla. Breytingar á út- breiðslu og stofnstærð fiskistofna af völdum hlýnunar hafi þegar haft áhrif á veiðar úr mikilvægum stofn- um og á efnahagslegan ávinning veiðanna. Þetta hafi torveldað við- leitni haf- og fiskveiðistjórnunar- stofnana til þess að tryggja gott ástand vistkerfa, mynda efnahags- legan ávinning og styrkja lífsafkomu, menningu og aðra þætti þjóðfélag- anna. Gæti fjölgað um 25 tegundir í Barentshafi á 30 árum Ottersen bendir á að þorskur og ýsa hafi síðustu ár fundist norðar en áður, sem aftur hafi áhrif á tegundir sem þar hafi verið fyrir og standi höllum fæti í samkeppni um fæðu. Þá hafi ísröndin færst norðar og breytt skilyrðum tegunda sem hafi lifað í jaðri hafíssins í þúsundir ára. Hins vegar hafi skilyrðin hentað þorsk- inum og meira hafi verið af honum í Barentshafi heldur en áður. Færi þorskur sig austar í Bar- entshafi geti það haft áhrif á fisk- veiðisamninga Norðmanna og Rússa. Annars staðar hefur verið bent á að tegundum gæti fjölgað um 25 í Barentshafi fram til 2050. Jafnframt að á sama tíma og þorskur aukist í Barentshafi muni draga úr honum í Norðursjó og Skagerrak. Hitabeltisfiskar norðar Sunnar í álfunni er reiknað með að hitabeltisfiskar færi sig norðar með hækkandi hitastigi og finnist í auknum mæli við strendur Spánar og Frakklands. Bláuggatúnfiskur, sæhestar og gikkfiskar eru nefndir í þessu sambandi. Á sama tíma sé lík- legt að þorskur og ýmsar tegundir algengra flatfiska færi sig að hluta til norðar en áður. Breytt útbreiðsla get- ur torveldað stjórnun Verulegar breytingar hafa orðið á útbreiðslu einstakra fisktegunda við Ísland. Áður var minnst á makríl og sumardvöl hans í íslenskri lögsögu síðasta áratuginn. Á svipuðum tíma hefur útbreiðsla loðnu að hluta færst í norður og vestur og dvelur fiskurinn nú lengur í grænlenskri lögsögu heldur en áður. Í kjölfarið hafa Grænlendingar gert auknar kröfur um fiskveiðiréttindi, en staða Norðmanna að sama skapi versnað því minna er talið vera af loðnu við Jan Mayen heldur en áður. Af botnfiskum má nefna að ýsa hefur í auknum mæli veiðst fyrir norðan land, en mestar aflaheimildir í ýsu voru bundnar við fyrirtæki á Suður- og Suðvesturlandi. Guðmundur Þórðarson, sviðsstjóri botn- sjávarlífríkis á Hafrannsóknastofnun, nefnir að færsla hafi orðið í nokkrum tegundum norður með Vesturlandi. Hlýnun sjávar hafi verið talin líkleg skýring á þessum flutningi, sem virðist núna vera að ganga til baka. Nýliðun í þessum tegundum hafi minnkað mjög mikið á undanförnum árum og ástæður þess séu að miklu leyti óþekktar. Í kafla um helstu breytingar á vistkerfinu á undanförnum árum sem fylgdi ráðgjöf Hafró í sumar segir m.a.: Hækkandi hitastig í neðri lögum sjávar vestan- og norðanvert á íslenska landgrunninu hefur leitt til breytinga á útbreiðslu margra botnfisktegunda. Teg- undir sem hafa verið við nyrðri mörk útbreiðslu sinnar á Íslands- miðum og yfirleitt haldið sig í hlýja sjónum sunnan og vestan við landið, t.d. ýsa, skötuselur, langa, keila, sandkoli og langlúra, hafa stækkað útbreiðslusvæði sitt réttsælis í vestur og norður eftir land- grunninu og á Norðurmið, og í sumum tilfellum hefur útbreiðslu- svæðið flust til. Áður sjaldgæfir suðrænir flækingar hafa fundist í auknum mæli á svæðinu á undanförnum árum, en stofnstærð og útbreiðsla ýmissa kaldsjávartegunda hefur minnkað í kjölfar hlýnunar. Breytinga þegar orðið vart HAFSVÆÐIÐ VIÐ ÍSLAND Ljósmynd/Wikipedia Common Við ysta haf Fiskgengd gæti aukist í Barentshafi, myndin er frá Vardö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.