Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.10.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2019 SÍÐAN 1969 FLOTTUSTU BÚNINGARNIR ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA FRAMLEIÐSLU EÐAMERKINGAR 846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS TIL MERKINGA EÐA EKKI SENNILEGA FJÖLHÆFASTI FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI ÍSLANDS ÞÓVÍÐARVÆRI LEITAÐ! Brautarholti 24 · 105 Reykjavík · S.: 562 6464 · henson@henson.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Spítali á Keldnalandi kostur  Sigurður Ingi vill skoða Keldnaland sem mögulega staðsetningu fyrir nýjan spítala  Sundabraut gæti orðið að veruleika áður en samgöngusáttmála lýkur Ragnhildur Þrastardótir ragnhildur@mbl.is Þrátt fyrir að ríkið hyggist selja Keldnaland til þess að fjármagna samgöngusáttmálann svokallaða þá eru líkur á að þar verði reistur nýr Landspítali eftir u.þ.b. tuttugu ár. Þetta segir Sigurður Ingi Jó- hannsson, samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra. Hann flutti erindi á opnum fundi Framsóknarflokksins á Hótel Sögu í gærkvöldi um samgöngur, þá sér- staklega samgöngusáttmála ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu. Þar vakti fyrrverandi læknir sér- staklega máls á því að ekki ætti að selja Keldnalandið heldur ætti að reisa þar nýjan spítala. Sigurður Ingi segir í samtali við blaðamann að það sé góður mögu- leiki að svo verði, þrátt fyrir að landið verði selt. „Í mínum huga er Keldnaland klárlega kostur sem ætti að skoða.“ Á Keldnalandi á að byggja íbúðir á hagstæðu verði eins og lofað var í lífskjarasamningunum. Sigurður Ingi segir að án efa rúmist þar fjöldi íbúða og einnig nýr spítali þar sem landið sé 130 hektarar að stærð en vel þurfi að huga að skipulagsmálum. „Samkvæmt erlendum rannsókn- um þarf að endurnýja spítala á 20-30 ára fresti vegna tæknibreytinga. Fyrst er að klára framkvæmdir við Landspítalann sem standa nú yfir og svo er tímabært að fara að huga að nýjum spítala. Við vorum 10 ár að undirbúa byggingu núverandi Land- spítala svo það veitir ekki af því fara að finna lóð,“ segir Sigurður Ingi. Sundabraut mögulega lögð fyrr Sundabraut er ekki inni í fyrr- nefndum samgöngusáttmála sem gerður er til 15 ára. Spurður hvort það þýði að ekki verði ráðist í fram- kvæmd hennar fyrr en eftir 15 ár segir Sigurður Ingi svo ekki vera. Nákvæm tímasetning lagningar hennar er þó ekki komin á hreint. Sigurður Ingi ætlar sér að ræða um Sundabraut við Faxaflóahafnir, Reykjavíkurborg og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu á allra næstu mánuðum. Á að giska 50 manns mættu á fund- inn sem var á Hótel Sögu. Þar spunn- ust upp miklar umræður og var hiti í sumum fundargesta, sérstaklega vegna umferðar- og flýtigjalda sem áætlað er að verði lögð á höfuðborg- arsvæðið árið 2022. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fundur Sigurður svaraði fyrirspurnum og stóð hvorki á spurningum né svörum. Einn fundargesta gekk rakleiðis út eftir að hafa borið upp erindi. Umhverfisstofn- un hefur hafnað umsókn áhuga- ljósmyndara um leyfi til aksturs utan vega í Jökul- gili til þess fylgj- ast með smölun. Stofnunin telur líklegt að akstur- inn og notkun dróna hafi nei- kvæð áhrif á störf bænda við smölun. Ljósmyndarinn hafði áhuga á að aka um 11 kílómetra leið sama dag og smalað var. Hafði hann áhuga á að aka jeppa eftir árfarvegi inn Jök- ulgil þar sem hann taldi leiðina inn gilið of langa til að bera myndatöku- búnað. Ætlunin var að taka ljós- myndir og kvikmyndir. Ekki rask á umhverfi Taldi maðurinn að ekki yrði rask á umhverfi þar sem ekið yrði eftir ár- farvegi Jökulkvísla og notast við þá slóða sem bændur skilja eftir. Aðalrök Umhverfisstofnunar fyrir því að hafna umsókninni er sú að akstur og notkun dróna myndi trufla bændur við smalamennsku. helgi@mbl.is Fengu ekki að mynda í Jökulgili Áfangagil Vænir dilkar af afrétti.  Smalar truflaðir Öllum starfsmönnum fiskvinnslufyr- irtækisins Ísfisks á Akranesi, tæp- lega 50 manns, var sagt upp í gær. Albert Svavarsson, fram- kvæmdastjóri Ísfisks, sagði í samtali við mbl.is í gær að illa hefði gengið að endurfjármagna félagið. Áfram verður unnið að endur- fjármögnun, þó ekki lengur en fram í miðjan næsta mánuð, meðal annars með aðkomu eiganda og sjóðs sem Albert vill ekki nafngreina. Hann er vongóður um að það takist þó að hann geri ekki ráð fyrir neinu. Fyrirtækið Ísfiskur var stofnað árið 1980 og var með starfsemi sína á Kársnesi í Kópavogi áður en það flutti á Akranes árið 2017. Síðan þá hefur rekstur fyrir- tækisins gengið illa. Kostnaður við flutning fyrir- tækisins var til að mynda meiri en áætlað var. „Það kostar óhemjumikið að flytja starfsemi og við erum að bíta úr nál- inni með það,“ segir Albert. Hann hefur meðal annars greint formanni Verkalýðsfélags Akraness frá stöðunni. „Það er enginn feluleikur í gangi,“ segir Albert. Öllum hjá Ísfiski sagt upp störfum Verk Þorbjargar Pálsdóttur, Dansleikur, sem stendur við inngang Perlunnar, skapar skemmti- lega stemningu á staðnum og nýtur sín jafnt í dagsbirtu sem við sólsetur eins og myndin sýnir. Verkið hefur verið við Perluna frá árinu 2000 en listakonan mótaði það árið 1970. Brugðið á leik við Perluna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Líflegt útilistaverk Í heild ræddi settur ríkislögmaður 759 milljóna króna bótafjárhæð við aðila Guðmundar- og Geirfinnsmáls- ins. Þetta kemur fram í greinargerð með frumvarpi Katrínar Jakobsdótt- ur forsætisráðherra til laga um heim- ild til að greiða bætur vegna sýknu- dóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem dreift var á Al- þingi í gær. Fjárhæð bótanna kann að taka breytingum en það fer eftir fram- gangi samningaviðræðna. „Þegar hlé varð á viðræðum nefnd- arinnar og síðar setts ríkislögmanns við aðila málsins var gert ráð fyrir að greiðslur til hinna sýknuðu og eftir- lifandi maka og barna þeirra næmu um 70-80 þús. kr. fyrir hvern dag sem viðkomandi var sviptur frelsi og náði það bæði til gæsluvarðhalds og af- plánunar,“ segir í greinargerðinni. Miðað við þær viðræður hefðu bæturnar átt að skiptast með eftir- farandi hætti: 15 milljónir króna til Alberts Klahns Skaftasonar, 145 milljónir króna til Guðjóns Skarp- héðinssonar, 204 milljónir króna til Kristjáns Viðars Júlíussonar, 171 milljón króna til Tryggva Rúnars Leifssonar og 224 milljónir króna til Sævars Marinós Ciesielskis. Samtals var því um 759 milljónir króna að ræða. Gert var ráð fyrir að lög tækju gildi um að bæturnar yrðu skatt- frjálsar. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, sagði í samtali við mbl.is í gær að frumvarp- ið gjörbreyti stöðu hinna sýknuðu. 759 milljónir í bætur  Frumvarpi vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins dreift

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.