Morgunblaðið - 01.10.2019, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2019
End of Sentence er fyrstakvikmynd íslenska leik-stjórans Elvars Aðalsteinsí fullri lengd. Myndin hefst
í fangelsi í Alabama, þar sem krabba-
meinssjúk móðir kemur til að hitta
son sinn Sean í hinsta sinn. Skömmu
eftir andlát hennar er Sean sleppt úr
haldi og faðir hans, Frank, kemur að
sækja hann. Hann tjáir Sean að síð-
asta ósk móður hans hafi verið að þeir
dreifðu ösku hennar yfir stöðuvatn á
Írlandi. Sean er tregur til að fara í
þessa ferð með föður sínum, sem
hann hefur megnan ímugust á. Að
lokum slær hann þó til og feðgarnir
halda af stað í ferðina.
Sean og Frank eru afar ólíkir. Sean
er kaldur, karlmannlegur og harður
af sér en Frank er ljúfur, vinalegur og
eilítið lúðalegur. Það má samt halda
því fram að Frank sé líka kaldur,
hann er í það minnsta mjög bældur og
varfærinn, vill ekki hleypa neinum ná-
lægt sér. Sean er vanur að taka það
sem hann vill, enda fór hann í fangelsi
fyrir að taka bíla ófrjálsri hendi, en
Frank lætur vaða yfir sig því hann er
afskaplega átakafælinn. Eðli málsins
samkvæmt þurfa feðgarnir því að
læra sitthvað hvor af öðrum til þess
að þróast persónulega og ná jafnvægi.
Eins og gengur og gerist í vega-
myndum snýst leikurinn um að af-
hjúpa persónurnar hægt og bítandi
eftir því sem líður á ferðina, sem er
hér gert af útreiknaðri nákvæmni.
Sagan er þétt og áhugaverð, samtölin
vel skrifuð og leikararnir virkilega
fínir, sérstaklega John Hawkes sem
túlkar Frank með glæsibrag. Stund-
um er fléttan nokkuð tilviljanakennd
en þó ekki svo mjög að maður detti út
úr atburðarásinni.
Myndin líður örlítið fyrir að vita
ekki alveg hvaða tón hún vill setja.
Hún hefur áferð glæpamyndar, lita-
leiðréttingin er myrk og grágræn líkt
og í skandinavískum krimma en
myndin er síður en svo glæpamynd. Í
raun er þetta gamandramatísk vega-
mynd en þó missir hún af vissum
tækifærum til þess að negla niður
grínvinkilinn, hún er full af skemmti-
lega vandræðalegum augnablikum og
samtölin eru gjarnan kómísk en samt
er eins og húmorinn skili sér ekki al-
veg. Sömuleiðis er tónlistarvalið
fremur undarlegt og hentar stemn-
ingunni misvel.
End of Sentence er gott byrjenda-
verk. Kvikmyndataka Karls Ósk-
arssonar er reglulega fín, leikarar
góðir og persónusköpun þannig að út-
koman er áferðarfögur, hjartnæm og
mannleg kvikmynd.
Little Joe er hluti af austurríska
fókusnum á RIFF í ár. Myndin er eft-
ir Jessicu Hausner, sem hefur vakið
athygli síðustu ár fyrir myndir á borð
við Amour Fou og Lourdes og fjallar
um Alice sem vinnur á hátæknilegri
rannsóknarstofu sem þróar nýjar
plöntur. Nýjasta sköpunarverk henn-
ar er rautt blóm sem framkallar lykt
sem gerir fólk hamingjusamt. Hún
nefnir blómið ástúðlega í höfuðið á
unglingssyni sínum Joe og kallar það
„litla Jóa“. Hún brýtur reglur rann-
sóknarstofunnar og tekur eitt blóm
með sér heim og gefur Joe. Blómið
gerir Joe mjög glaðan en hegðun
hans breytist líka og brátt fer Alice
að gruna að blómið sé ekki allt það
sem það er séð.
Sagan er mögnuð, frumleg og
heillandi. Myndin leikur skemmtilega
með klassískt hrollvekjustef, sem er
að nota andsetningu eða umskipt-
ingslega hegðun sem myndhverfingu
fyrir kynþroska kvenna (þetta er lík-
lega þekktast úr The Exorcist og
áhugasamir geta lesið frekar um
þetta í bók Barböru Creed, The
Monstrous Feminine). Hér er það
ungur drengur sem á í hlut, sem set-
ur þetta sígilda minni í nýtt sam-
hengi.
Það er reglulega freistandi að lesa
Little Joe sem feminískt verk. Bæði
Alice og aðrar konur í myndinni þurfa
t.d. að glíma við það að þeim sé ekki
trúað og þær eru vændar um geð-
veiki, sem er þekkt aðferð til að
smætta orðræðu kvenna og kallast
gaslighting á ensku. Myndin er al-
gjört hlaðborð fyrir skilningarvitin,
sviðsmyndin og búningarnir eru stór-
kostlegir, klippingin er snjöll og kvik-
myndatakan algjörlega óaðfinnanleg.
Rammar og myndavélahreyfingar
styðja söguna óhemjuvel og eiga mik-
inn þátt í þeirri spennuþrungnu og
undarlegu stemningu sem ríkir í
myndinni. Tónlistin hnýtir þetta svo
allt saman, en hún er eftir hinn jap-
anska Teiji Ito. Þessi mynd er tví-
mælalaust einn af hápunktum hátíð-
arinnar í ár. Þvílík negla!
Þróun tegundanna
Góðir Logan Lerman og John Hawkes standa sig vel í End of Sentence.
Bíó Paradís - RIFF
End of Sentence bbbmn
Little Joe bbbbb
End of Sentence
Leikstjórn: Elvar Aðalsteins. Handrit:
Michael Armbruster. Kvikmyndataka:
Karl Óskarsson. Klipping: Guðlaugur
Andri Eyþórsson, Kristján Loðmfjörð og
Valdís Óskarsdóttir. Aðalhlutverk: John
Hawkes, Logan Lerman, Sarah Bolger.
Ísland, Írland og Bandaríkin, 2019. 94
mín.
Little Joe
Leikstjórn og handrit: Jessica Hausner.
Kvikmyndataka: Martin Gschlacht.
Klipping: Karina Ressler. Aðalhlutverk:
Emily Beecham, Ben Whishaw, Kit
Connor. Austurríki, 2019. 105 mín.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Negla „Þessi mynd er tvímælalaust einn af hápunktum hátíðarinnar í ár. Þvílík negla!“ segir í rýni um Little Joe.
Little Joe verður sýnd í Bíó
Paradís 4. okt. kl. 23.15. End of
Sentence er sýnd í Háskólabíói.
Guðbjörg R. Tryggvadóttir sópran
og Guðmundur Karl Eiríksson
barítón koma fram á hádegistón-
leikum í Hafnarborg í dag kl. 12
ásamt píanóleikaranum Antoníu
Hevesi. Tónleikarnir bera yfir-
skriftina Karlaveldi og munu
söngvararnir flytja, bæði saman og
í sitt hvoru lagi, vel valdar aríur
eftir Verdi.
Vel valdar aríur eftir Verdi í Karlaveldi
Æfing Listamennirnir á æfingu fyrir tónleikana í gær.
Stofnfundur félags sem lagður hefur verið grunnur að,
undir heitinu Arfur Þorsteins frá Hamri, fer fram í kvöld í
Iðnó á annarri hæð og verður húsið opnað kl. 19.30. Mark-
mið félagsins er að sýna arfleifð Þorsteins ræktarsemi
sem og þeim menningararfi sem hann tók í fang sér, að
því er fram kemur á fésbókarsíðu viðburðarins.
„Með verkum sínum fann hann og skapaði ótal tengsl á
milli hefða og nýsköpunar, og með því móti varð hann
einn af fremstu nútímahöfundum tungumáls sem á sér
merka sögu og stendur nú frammi fyrir miklum áskor-
unum,“ segir þar um skáldið. Fundurinn hefst klukkan 20
og stendur í um klukkustund.
Þorsteinn
frá Hamri
Sýna arfleifð Þorsteins ræktarsemi
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is
HVARSEMÞÚERT
SAMSTARFSAÐILI
Öryggiskerfi
09:41 100%