Morgunblaðið - 06.11.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2019
BORÐAPANTANIR
483 4700 | www.hverrestaurant.is
OPIÐ
11:30–22:00
ALLA DAGA
HVER
RESTAURANT
Fullkominn fyrir þig, frábær
fyrir hópinn. Góður matur
og notalegt andrúmsloft.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hanna S. Gunnsteinsdóttir, forstjóri
Vinnueftirlitsins, segir samstarf við
Attentus mannauð og ráðgjöf hafa
skilað miklum árangri. Ráðgjöf Att-
entus nýtist við endurskipulagningu
og við gerð nýrrar stefnumótunar.
Fjallað hefur verið um Vinnueftir-
litið í fjölmiðlum síðustu daga en til-
efnið er m.a. að ráðgjafi Attentus
hætti störfum hjá eftirlitinu. Ástæðan
var sögð meintur dónaskapur í garð
starfsmanna eftirlitsins.
Ekki fékkst upplýst hvaða ráðgjafi
hætti eða hvaða ráðgjafi tók við af
honum. Þá óskaði Hanna eftir spurn-
ingum skriflega.
Ráðinn til starfa í febrúar 2019
Að sögn Hönnu
gerði Vinnueftir-
litið samning um
ráðgjöf og leigu á
mannauðsstjóra í
febrúar 2019.
Samningurinn feli
í sér að fyrirtækið
leggi til mann-
auðsstjóra sem
veiti þjónustu og
ráðgjöf á sviði
mannauðsmála. Vegna þessarar þjón-
ustu greiði Vinnueftirlitið 428.670 kr.
á mánuði. Jafnframt hafi verið unnið
að úttekt og greiningu á stöðu mann-
auðsmála, þ.á m. úrvinnslu og kynn-
ingu. Vinnueftirlitið hafi greitt
841.500 kr. fyrir þá vinnu sem lauk í
mars sl. Hanna bendir á að tölur séu
án virðisaukaskatts sem stofnunin fái
endurgreiddan frá Fjársýslunni.
Setja fram aðgerðir
„Ábyrgðarsvið mannauðsstjóra til
leigu er ráðgjöf við stefnumótun í
mannauðsmálum og framfylgd
hennar ásamt ráðgjöf við ýmis mál er
tengjast mannauðsmálum.
Ráðgjöf mannauðsstjórans hefur
verið mjög gagnleg og árangursrík
fyrir innra starf Vinnueftirlitsins en
ráðgjöfin hefur snúið að því að skoða
mannauðsmál stofnunarinnar, greina
stöðuna og setja fram aðgerðir,“ segir
Hanna Sigríður.
„Sem dæmi um verkefni sem
mannauðsstjórinn hefur annast er
skipulag samskiptavinnustofu með
öllum starfsmönnum og gerð áætlun-
ar í mannauðsmálum, svo fátt eitt sé
nefnt. Þá hefur mannauðsstjórinn
komið að undirbúningi jafnlaunavott-
unar hjá stofnuninni. Allt eru þetta
þættir sem eru hluti af nýrri stefnu-
mótun og því að búa Vinnueftirlitið
undir að þjóna betur breyttum vinnu-
markaði.“
Starfsmaður hjá eftirlitinu, sem
ræddi við Morgunblaðið í trausti
nafnleyndar, frétti það hjá trúnaðar-
manni starfsmanna að ummæli
mannauðsstjórans hefðu vakið reiði.
Sá hefði sagt við trúnaðarmann að
hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af
því að missa starfsmenn. Enginn
myndi vilja ráða þá í vinnu.
Að sögn Fréttablaðsins snerist
samtalið um að margir starfsmenn
vinnuvéladeildar íhuguðu að hætta
störfum vegna óánægju með laun og
ekki síður starfsandann.
Ummæli skaði ekki vinnu
Spurð um þessi málsatvik setur
Hanna málið í samhengi.
„Fyrri mannauðsstjórinn, sem
starfaði með Vinnueftirlitinu í byrjun,
dró sig til baka en það var sameig-
inleg ákvörðun hans, Attentus og
stjórnenda Vinnueftirlitsins að nýr
ráðgjafi tæki við verkefninu í mars sl.
Það var gert til að tryggja að ágrein-
ingur, m.a. um meint ummæli hans í
samtali við starfsmann, truflaði ekki
þá faglegu vinnu sem komin var af
stað innan Vinnueftirlitsins. Samhliða
var málið sett í annan feril hjá stofn-
uninni og fengnir utanaðkomandi að-
ilar til að annast málið svo tryggja
mætti hlutlausa málsmeðferð,“ sagði
Hanna í skriflegu svari til blaðsins.
Nýtur stuðnings ráðherra
Ekki náðist í Ásmund Einar Daða-
son, félags- og barnamálaráðherra,
vegna málsins í gærkvöldi.
Hins vegar lýsti hann í samtali við
RÚV stuðningi við Hönnu Sigríði sem
hann skipaði í embætti forstjóra eft-
irlitsins fyrir síðustu áramót.
„Vinnueftirlitið er að ganga í gegn-
um ákveðnar breytingar og þegar
slíkar breytingar eru í gangi getur
það oft haft í för með sér svona hluti,“
sagði Ásmundur Einar í samtali við
RÚV af því tilefni. Starfsmaður hjá
eftirlitinu sagði nokkrum hafa verið
sagt upp í ár. Þá hefðu nokkrir látið af
störfum. Verið væri að breyta skipu-
lagi og það mætt mótstöðu hjá sumu
starfsfólki. Samkvæmt vef eftirlitsins
starfa þar nú um 70 manns.
Ummæli til rannsóknar
Vinnueftirlitið felur utanaðkomandi aðila að rannsaka ummæli ráðgjafa
Starfaði hjá ráðgjafarfyrirtækinu Attentus Ósætti sagt vera hjá eftirlitinu
Viðskipti við Attentus-Mannauð og ráð ehf.
Viðskipti ríkisstofnana frá september 2018 til nóvember 2019
Stofnun Upphæð
Umhverfis- og auðlinda-
ráðuneyti, aðalskrifstofa 16.276.487
Lögreglustjórinn á Suðurn. 3.498.915
Dómstólasýslan 3.036.186
Héraðsdómstólar 3.016.880
Innanríkisráðuneyti 2.773.108
Forsætisráðuneytið 2.308.479
Velferðarráðuneytið 2.154.247
Umhverfisstofnun 2.101.918
Fjármála- og efnahagsráðun. 1.731.231
Lögreglustjórinn á Austurl. 1.235.273
Flensborgarskóli 1.199.003
Stofnun Upphæð
Sinfóníuhljómsveit Íslands 1.148.603
Utanríkisráðuneyti 962.999
Einkaleyfastofan 812.538
Háskólinn á Akureyri 808.000
Heilsugæsla höfuðborgarsv. 598.455
Samkeppniseftirlitið 368.280
Menntaskólinn á Tröllaskaga 217.000
Kvennaskólinn í Reykjavík 76.725
Lögreglustjórinn
á höfuðborgarsvæðinu 76.725
Háskóli Íslands 60.778
Þjóðminjasafn Íslands 31.174
Alls 44.493.004 kr.
Morgunblaðið/Golli
Eftirlit Vinnueftirlitið fylgist með aðbúnaði á byggingarvinnustöðum.
Hanna Sigríður
Gunnsteinsdóttir
Á vefsíðunni
opnirreikn-
ingar.is má
finna upplýs-
ingar um við-
skipti ríkis-
stofnana við
einstaka aðila.
Athugun á
viðskiptum
ríkisstofnana við
Attentus-Mannauð
og ráð ehf. bendir til að þau hafi
numið 44,5 milljónum króna frá
því í september 2018.
Þar af nema viðskipti við um-
hverfis- og auðlindaráðuneytið
16,3 milljónum króna og er það
langstærsti viðskiptavinurinn.
Næst kemur Lögreglustjórinn
á Suðurnesjum sem keypti þjón-
ustu af Attentus á 3,5 milljónir
króna (sjá má á töflu á síðunni).
Athygli vekur að dómstóla-
sýslan, héraðsdómstólar og inn-
anríkisráðuneyti hafa öll keypt
þjónustu fyrir um 3 milljónir.
Fram kemur í ársreikningi At-
tentus 2018 að tilgangur félags-
ins sé ráðgjöf, kennsla, rekstur
fasteigna, lánastarfsemi og
önnur tengd starfsemi. Hagn-
aður af rekstri félagsins nam
39,8 milljónum, eigið fé var 91,3
milljónir og skuldir félagsins
voru 37 milljónir. Störfuðu þá 11
starfsmenn í 10,2 stöðugildum
og námu launagreiðslur alls 108
milljónum króna. Fyrirtækið
seldi þjónustu fyrir 215 milljónir
en seldi til samanburðar þjón-
ustu fyrir 166 milljónir 2017.
Hagnaður jókst úr 9,15 millj-
ónum í 39,8 milljónir og lagði
stjórnin til að greiddur yrði 40
milljóna króna arður.
Fimm félög áttu hvert um sig
20% hlutafjár í Attentus.
Stjórnarmenn í félaginu voru
Árný Elíasdóttir, Sigríður Þor-
geirsdóttir, Guðríður Sigurðar-
dóttir, Inga Björg Hjaltadóttir og
Ingunn Björk Vilhelmsdóttir.
MIKILL VÖXTUR VAR HJÁ
ATTENTUS ÁRIÐ 2018
Skiptir við
margar
stofnanir
Samtölum bæjarstjóra og tveggja
bæjarfulltrúa á Akureyri við íbúa
Grímseyjar um stöðu mála í eyjunni
lýkur væntanlega í næstu viku. Ný-
verið voru þús-
und tonn af afla-
heimildum
Grímseyinga seld
í burtu og er
óvissa um framtíð
heilsársbúsetu í
eyjunni. Nú er
þar engin fisk-
vinnsla.
Ásthildur
Sturludóttir,
bæjarstjóri á
Akureyri, hefur ásamt bæjarfulltrú-
unum Höllu Björk Reynisdóttur og
Gunnari Gíslasyni rætt stöðuna við
Grímseyinga undanfarið. „Við fórum
út í Grímsey í síðustu viku og rædd-
um einslega við það fólk og þær fjöl-
skyldur sem þar eru, en núorðið er
fámennt í eynni yfir vetrartímann.
Við höfum líka rætt við fólk sem er
hér á svæðinu, til dæmis með börn í
skóla, en skóli er ekki starfræktur í
Grímsey í vetur,“ segir Ásthildur.
Hverfisráð Grímseyjar hefur farið
þess á leit við Akureyrarbæ að
vinnsluskylda verði afnumin við út-
deilingu almenna byggðakvótans, en
sett yrði á löndunarskylda í Gríms-
ey. Ásthildur segir að erindið verði
sent sjávarútvegsráðuneytinu til
meðferðar í því ferli sem sé samfara
umsóknum og úthlutun á byggða-
kvóta. Hún segir að byggðakvóti geti
spilað stórt hlutverk í atvinnulífi
eyjarskeggja.
Á heimasíðu bæjarins er haft eftir
Ásthildi að áfram verði leitað ráða til
að treysta byggðina við heimskauts-
baug. Þar kemur einnig fram að
bæjarfulltrúarnir Gunnar og Halla
Björk eiga bæði sæti í verkefna-
stjórn Brothættra byggða, sem er
verkefni á vegum Byggðastofnunar.
Grímsey er meðal þeirra byggðar-
laga sem hafa tekið þátt í því verk-
efni. aij@mbl.is
Ræða stöðuna við
íbúa Grímseyjar
Hverfisráð vill afnám vinnsluskyldu
Morgunblaðið/Golli
Ásthildur
Sturludóttir
Grímsey Hallað hefur undan fæti.