Morgunblaðið - 06.11.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2019
Fyrrverandi formaður banka-nefndar Bandaríkjaþings og
fyrrverandi aðstoðarforstjóri stofn-
unar Bandaríkjanna um vinnu-
markaðstölfræði rituðu saman
grein í The Wall Street Journal og
bentu á að umræðan um tekju-
ójöfnuð væri á villi-
götum. Aldrei í sögu
Bandaríkjanna
hefði meira farið
fyrir þessari um-
ræðu en tölur sem
birtar væru og
sýndu 17-faldan
tekjumun efsta og
neðsta tekjufimmt-
ungsins gæfu mjög
skakka mynd.
Það sem gleymd-ist í þessum
samanburði væri að
þeir í hæsta fimmtungnum greiddu
nær 2⁄5 allra skatta.
Þá væri horft framhjá þeimmiklu millifærslum sem banda-
ríska ríkið stæði fyrir og skiluðu 9⁄10
af tekjum neðsta fimmtungsins og
meira en helmingi tekna næst-
neðsta fimmtungsins.
Að sögn höfundanna margfaldarþessi skekkja muninn á hæsta
og lægsta tekjufimmtungnum.
Munurinn er 3,8-faldur en ekki 17-
faldur, eins og oft er haldið fram.
Þessi skekkja í slíkum saman-burði einskorðast ekki við
Bandaríkin. Þekkt er úr um-
ræðunni víðar, meðal annars hér á
landi, að þegar talað er um ójöfnuð
er horft á tekjur fyrir skatta, en
ekki eftir skatta og þær marg-
víslegu millifærslur sem í boði eru.
Og eins og Phil Gramm and JohnF. Early benda á í grein sinni
er mikilvægt að þessi umræða
byggist á staðreyndum.
Phil Gramm
Ýktur ójöfnuður
STAKSTEINAR
John F. Early
Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
Demantar
í úrvali fyrir ástina þína
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Ég vona að það fari að hilla undir lok
rannsókna þessara mála. Það er í
raun lítið hægt að segja um málin
sjálf. Þau eru bara á rannsóknar-
stigi,“ segir Þorkell Ágústsson, rann-
sóknarstjóri flugsviðs hjá Rann-
sóknarnefnd samgönguslysa.
Þrjú mál eru skráð opin hjá nefnd-
inni er lúta að veikindum og vanlíðan
áhafnarmeðlima flugvéla. Elsta málið
er frá því í febrúar 2016 og er lýst með
þeim hætti að tveir áhafnarmeðlimir
hafi farið úr farþegarými inn í flug-
stjórnarklefa eftir að hafa orðið varir
við svima og ekki liðið vel. Báðir hafi
sett á sig súrefnisgrímu þar inni og
liðið betur eftir á. Einnig er til rann-
sóknar mál frá því í desember 2017
þar sem tvær flugfreyjur veiktust í
flugi frá Seattle til Íslands. Önnur
taldi sig hafa orðið fyrir alvarlegri
eitrun í fluginu og verið frá vinnu
síðan. Þriðja málið er af svipuðum
toga. Tvær flugfreyjur veiktust í flugi
frá Washington til Keflavíkur í ágúst
2018. Önnur flugfreyjan hefur glímt
við langvarandi veikindi síðan.
„RNSA rannsakar hvort starfs-
umhverfi flugfreyjanna tengist veik-
indunum, en RNSA hefur önnur sam-
bærileg mál til rannsóknar,“ segir á
vef nefndarinnar.
„Það er erfitt að ná einhverjum
sönnunargögnum í þessum tilfellum.
Rannsóknin er ekki stopp, við þurfum
bara að glíma við hverful sönnunar-
gögn. Þegar við komum á staðinn þá
er allt farið,“ segir Þorkell. Hann seg-
ir að rannsókn nefndarinnar nái víðar
en til þriggja áðurnefndra mála. „Til-
vikin gætu verið fleiri þótt við höfum
ekki opnað þau sem mál. Við skoðum
allt sem við náum að tengja við vanlíð-
an í vélunum.“ hdm@mbl.is
Glíma við hverful sönnunargögn
Þrjú mál er snúa að veikindum flugfreyja í rannsókn Tilvikin gætu verið fleiri
Skrifað hefur verið undir kjara-
samning iðnaðarmanna í RSÍ,
Samiðn og VM við Landsvirkjun,
sem er nú í kynningu og atkvæða-
greiðslu. Upphafshækkun kaup-
taxta er sú sama í krónutölu og í
lífskjarasamningunum eða 17 þús.
kr., sem er afturvirk frá 1. apríl
sl. Þrjár hækkanir sem koma til á
árunum 2020 til 2022 eru hins veg-
ar nokkru hærri eða 24 og 25 þús-
und kr.
Í bókun um endurskoðun vinnu-
fyrirkomulags og ábataskipti kem-
ur fram að gera megi ráð fyrir að
dregið verði úr yfirvinnu á flestum
starfsstöðvum Landsvirkjunar
sem muni hafa í för með sér
nokkra lækkun launakostnaðar. Í
því felist ábati sem fyrirtækið
skuldbindur sig til að deila með
starfsmönnum. Hluta ábatans hef-
ur verið veitt inn í launatöfluna
með viðbótarhækkun mánaðar-
launa umfram almennar hækkanir
kauptaxta og þegar endurskoðað
vinnufyrirkomulag liggur fyrir
mun Landsvirkjun einnig gera til-
lögu um frekari hlutdeild starfs-
manna í ábata.
Í kjarasamningnum er kveðið á
um styttingu vinnutímans í 36
virkar stundir á viku með endur-
skoðun vinnufyrirkomulags sem
taki gildi 1. apríl næstkomandi.
Einnig var samið um desember-
og orlofsuppbætur. Desem-
beruppbót í ár verður 132.071 kr.
og hækkar svo árlega upp í
142.226 á árinu 2022. Orlofsuppbót
verður sama krónutala og
desemberuppbótin og hækkar með
sama hætti.
Verði samningurinn samþykktur
gildir hann til 1. nóvember 2022.
omfr@mbl.is
Deila ábata með
starfsmönnum
Vinnuvikan í 36
stundir 2020 í Lands-
virkjunarsamningi
Morgunblaðið/Golli
Samkomulag Iðnaðarmenn gerðu
kjarasamning hjá Landsvirkjun.