Morgunblaðið - 06.11.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.11.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2019 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Raðauglýsingar Raðauglýsingar Drög að tillögu að matsáætlun fyrir Landmannalaugar Rangárþing ytra undirbýr nú mat á umhverfisáhrifum vegna þjónustumiðstöðvar í Landmannalaugum en mat á umhverfisáhrifum er unnið samkvæmt lögum nr. 106/2000 og reglugerð nr. 660/2015. Þjónustumiðstöð í Landmannalaugum fellur undir 6. gr. laga nr. 106/2000, lið 12.05 í 1. viðauka laganna um mat á umhverfisáhrifum m.s.br. um er að ræða framkvæmdir sem kunna að vera háðar mati á umhverfisáhrifum þegar þær geta haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Skipulagsstofnun ákvarðaði þann 16. febrúar 2016 að framkvæmdin væri matsskyld. Mati á umhverfisáhrifum er ætlað að kanna nánar umhverfisáhrif framkvæmdarinnar. Umsjón með mats- vinnu er í höndum Landmótunar sf. Drög að tillögu að matsáætlun hafa nú verið lögð fram til kynningar og eru gögnin aðgengileg á heimasíðu Landmótunar. Frestur til athugasemda er frá 4. nóvember til 21. nóvember 2019. Allir hafa rétt til að kynna sér drögin að tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Að auglýsingatíma loknum verða drögin ásamt þeim athugasemdum sem berast, send Skipulagsstofnun til umfjöllunar. Hægt er að koma ábendingum eða athugasemdum við drög að tillögu að matsáætlun til Margrétar Ólafsdóttur eigi síðar en 21. nóvember 2019. Athugasemdir er hægt að senda með tölvupósti á netfangið margret@landmotun.is eða skriflega á skrifstofu Landmótunar að Hamraborg 12, 200 Kópavogi merkt „Þjónustumiðstöð í Landmannalaugum”. Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþingi ytra. RANGÁRÞING YTRA Félagsstarf eldri borgara Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9:00-12:30, allir velkomni. Hreyfi- salurinn er opinn milli 9:30-11:30, líkamsræktartæki, teygjur og lóð - Yoga með Grétu, 60+ kl.12:15 & 13:30 - Söngstund með Helgu kl.13:45, laust í allar raddir - Kaffi kl.14:30-15:00 - Bókaspjall með Hrafni kl.15:00 - Bónusrútan fer frá Aflagranda kl.15:05 í dag - Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl.12 og léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús, félagsstarf fullorðinna, í safnaðar- heimili kirkjunnar kl. 13 til 16. Stólaleikfimi, bollamálun, spjall og fleira. Kaffi og með því á eftir í boði kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir. Árskógar Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Stóladans með Þórey kl. 10. Spænskukennsla kl. 10.45-11.30. Bridge kl. 12. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Innipútt kl.13-15. Opið hús, t.d. vist og bridge eða bíó. kl. 13-16. Hádegismatur kl. 11.40- 12.50. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700. Áskirkja Jólabasar Áskirkju verður haldinn 10.nóvember eftir messu kl. 12. Tertur lagkökur, smákökur, sultur og allskyns kruðerí til sölu. Flóamarkaðurinn góði á sínum stað með notaða og nýja hluti, fatnað og margt fleira. Vöfflukaffi 1000 kr. Ef þið getið gefið okkur muni, köku eða annað kruðerí hafið samb við Petreu, s. 8918165. Allur ágóði rennur til starfs Safnaðarfélags Áskirkju Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 9:00-15:00, leiðbeinendur mæta kl. 13:30. Sundleikfimi kl. 14:30. Leshópur Boðans kl. 15:15. Bústaðakirkja Félagsstarfið er á miðvikudaginn kl. 13-16, gestur okkar verður Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur og verður hann með erindi kl 15:00 yfir kaffi bollanum. Séra Eva Björk verður með hugleiðingu og bæn. Spil, handavinna og framhaldssaga verða á sínum stað. Allir hjartanlega velkomnir. Hægt er að hringja að morgni miðvikudags og panta bílfar í starfið. Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl. 9.00. Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30- 10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Hádegismatur alla virka daga kl. 11:30- 12:20 og kaffi kl. 14:30-15:30. Zumba með Carynu 12:30. Frjáls spila- mennska 13:00. Handavinnuhópur 13:00-16:00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við Hringborðið kl. 8:50-11. Jóga kl. 9. Upplestrarhópur Soffíu kl. 10-12. Línudans kl. 10. Hádegismatur kl. 11:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Zumba kl. 13.Tálgun kl. 13:30-16. Kraftganga ef veður leyfir kl. 14. Síðdegiskaffi kl. 14:30. ATHUGIÐ breyttur tími Bókmenntahópur kl. 19-21. Skráning á jólahlaðborðið 15. nóv. stendur yfir. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9:00. Postulínsmálun kl. 9:00. Minigolf kl. 10:00. Tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10:30. Bókband kl. 13:00. Myndlist kl. 13:30. Dans með Vitatorgsbandinu kl. 14:00. Frjáls spilamennska kl. 13:00-16:30. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Ver- ið öll hjartanlega velkomin. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7:10/7:50/15:15. Kvennaleikf Ásg. kl.9:30. Kvennaleikf Sjál. kl. 10:30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Leir Smiðja Kirkjuhv kl. 13:00. Zumba salur Ísafold. kl. 16:15. Gerðuberg 3-5 Opin Handavinnustofan kl. 08:30-16:00. Útskurður m/leiðbeinanda kl. 09:00-16:00. Qigong 10:00-11:00 Leikfimi Helgu Ben kl. 11:00-11:30. Útskurður / Pappamódel m/leiðb. kl. 13:00-16:00. Félagsvist kl. 13:00-16:00. Döff Félag heyrnalausra 12:30-15:00. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9.00 handavinna, kl. 9.00 boccia - opinn tími, kl. 13.00 Félagvist FEBK, kl. 13.00 postulínsmálun. Guðríðarkirkju. Félagsstarf eldri borgara 6. nóv. kl. 12:00 helgi- stund, fyrirbænir í kirkjunni og söngur. Síðan verður slegið upp matarveislu í safnaðarheimilinu saltað hrossakjöt, reykt hrosskjöt, hrossa-bjúgu og kindabjúgu fyrir þá sem borða ekki hrossakjöt. Maturinn kostar kr. 1500. Prestarnir verða með eitthvað voðalega skemmtilegt fyrir okkur. Hlökkum til að sjá ykkur. Gullsmára Myndlist kl. 9. Boccia kl. 9.30. Gönguhópur kl. 10.30. Postulínsmálun, kvennabridge og silfursmíði kl. 13. Línudans fyrir lengra komna kl. 16 og 17. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Boccia kl.10-11. Útskurður með leiðbeinanda, kl. 9-12, 500 kr. skiptið, allir velkomnir. Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30. Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl 9.00-12.00. Bókmenntaklúbbur kl. 10.00 aðrahverja viku. Línudans kl. 11.00. Bingó kl. 13.00. Handverk kl. 13.00, Gaflarakórinn kl. 16.00. Pútt í Hraunkoti kl.10.00-11.30. Korpúlfar Glerlistanámskeið með Fríðu kl. 9:00 í Borgum í dag og Stjórnar- og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10:00 í dag í Borgum. Göngu- hópar kl. 10 gengið frá Borgum og inni í Egilshöll. Keila í Egilshöll kl. 10:00 og Gaman saman í Borgum kl. 13:00 og sýnt verður frá leik- þætti Hundur í Óskilum sem sýndur var í Borgarleikhúsinu kl. 13.00 í Borgum í dag. Qigong með Þóru Halldórsdóttir kl. 16:30 í dag í Borgum. Seltjarnarnes Gler og bræðsla kl. 9. og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna með leiðbeinanda á Skólabraut milli kl. 13. og 16. Handverk, föndur ofl. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Skráning á Atómstöðina 14. nóv. og á jólahlaðborðið á Örkinni 5. des. stendur yfir. Uppl. í síma 8939800. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hittist kl. 13.00. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10.00 kaffi og rúnstykki eftir göngu. Enska-námskeið kl. 12.30 og 14.30 leiðbeinandi Margrét Sölvadóttir. Vantar þig fagmann? FINNA.is atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Amma mín, ég kveð þig með trega og fullt af tárum og söknuði. Hvernig er hægt að sakna svona mikið? Ég væri mikið meira til í það að sitja hjá þér eins og ég gerði oft síðustu mánuði og spjalla við þig og halda þér sel- skap eins og við Ína frænka gerð- um svo þér leiddist ekki. Þú varst mögnuð kona, sterk og viljasterk fram að síðustu stund. Hvað kona svona veik eins og þú varst gat barist fram í rauðan dauðann. Það gat enginn unnið þinn slag. Það var nokkrum sinnum búið að segja við okkur að nú væri þetta bara búið þegar við fórum með þig á bráðamóttöku í Fossvogi og börnin þín kölluð til því staðan þín væri þessi. En nei, þú varst ekki að fara neitt og alltaf reistu upp aftur og aftur. Mögnuð kona sem þú varst. Eins það að þú vild- ir ekki sofa lengi fram eftir, vildir vakna og fara í stólinn þinn og fara fram. Þar gastu verið frá klukkan 11 á morgnana til 22 á kvöldin. Tókst það ekki í mál að liggja uppi í rúmi enda eina kon- an sem var frammi því hinir komu bara til að borða og svo aft- ur inn til sín. En ekki þú. Sorg- legt fannst mér á hjúkrunarheim- ilinu að þú hafðir ekki selskap af neinum, enginn til að spjalla við og ekkert við að vera. Bara þú ein með sjálfri þér. Enda gerðum ég og Ína og mamma og pabbi og Steini allt til þess að vera hjá þér svo þú værir ekki mikið ein. Enda vorum við eins og starfsmenn þarna því þú hafðir líka þarfir sem þurfti að sinna eins og lyf og annað og þurftum við oft að passa upp á að þú fengir þau. Og margt annað sem var ekki í lagi. Þor- steinn sonur þinn þurfti oft að hlusta á okkur frænkurnar vegna umönnunar þinnar sem var ekki ásættanleg og leið okkur stund- um eins og við værum að gera of mikið úr hlutunum en það var ekki þannig, ástandið var bara því miður svona slæmt. Þorsteinn frændi sá um öll svona mál og fór með þau lengra ef þess þurfti. Hann gerði það fram á síðasta dag sem þú lifðir. Eins það að þú vildir ekki vera þarna og sagðir að þú ættir ekki að vera þarna, passaðir ekki þarna inn, sem var reyndar alveg rétt. Enda sorg- legt að horfa upp á ömmu sína fylgjast með hvort væri ekki að losna pláss á hinu hjúkrunar- heimilinu þar sem þú vildir vera. En tíminn var ekki að vinna með okkur þar. Mér líður það ekki úr minni þegar þú fékkst kast eftir klósettferð, það var um hádegi 11. október og kominn hádegis- matur. En þá fékkstu kast sem þú jafnaðir þig fljótt á og fórst fram eftir kastið en þá fékkst þú engan hádegismat, ekkert skilið eftir fyrir þig svo þú gætir fengið að borða. Svona var þetta. Hversu sorglegt. Pabbi minn, hann Jónas, var þarna líka og varð vitni að þessu og fór og keypti handa þér lambasteik með Svala Nielsen ✝ Helga SvalaNielsen, kölluð Svala, fæddist á Akureyri 24. desem- ber 1930. Hún lést 14. október 2019. Útför Svölu fór fram í kyrrþey, að ósk hennar, 25. október 2019. öllu tilheyrandi. Hann og mamma gátu ekki horft upp á svona. Þú varst mikil matkona og fannst gott að borða enda vorum við dugleg við að koma með mat handa þér, allt sem þér fannst gott. Þér fannst oft mat- urinn ekki góður þarna og litlar skammtastærðir, sem var alveg rétt. Svo eitt sem þú sagðir mér um strákana þína. Það hefur alltaf verið talað um Tonasvipinn, sem sagt afi minn var með sterkan ættarsvip sem leyndi sér ekki á fólkinu hans. En þú sagðir mér að strákarnir þínir væru blandaðir af þér og afa og veistu það er sko bara alveg rétt, ég er alltaf að sjá það meira og meira. Eins og með pabba minn, Jónas, það var alveg svipur með ykkur og ég sé líka svip með mér og þér og ekki er ég ósátt við það, amma mín. María Antonía Jónasdóttir. Elsku Svala. Þá er lífsgöngu þinni lokið og ljósið bjarta vefur þig í kærleiksríkum faðmi sínum. Síðbúin kveðjuorð segja lítið en einlægar þakkir eiga þau að færa fyrir yndislega tryggð og vináttu gegnum árin. Kynni okkar Svölu hófust þegar ég var send til henn- ar á vegum heimaþjónustu Kóp., þá bjó hún í Engihjallanum. Við vorum fljótar að ná saman, ég fann fljótt hvað hún var hjartahlý og yndisleg í alla staði. Svala var kona sem lét hjartað ráða í mann- legum samskiptum, því voru lífs- spor hennar öll mörkuð af því markmiði að gera öðrum gott. Við áttum yndislegar stundir og brölluðum margt saman á ár- um áður eins og gengur, við fór- um alltaf reglulega til Veigu sem var hárgreiðslukonan okkar sem þá var flutt til Keflavíkur. Við fengum lánaðan bíl því báðar voru bíllausar, svo brunuðum við þangað til að láta klippa okkur og lita og gera okkur fínar. Svala mín var alltaf fín og flott en ef hárið var ekki í lagi þá var allt ómögulegt. Svala hafði búið víða eins og gengur, nú síðast í Hlaðhömrum í Mosó. Þar var hún búin að koma sér vel fyrir í fal- legri íbúð. Ég samgladdist henni svo innilega því þarna leið henni vel, en þá fór heilsunni að hraka. Mér fannst samt aðdáunarvert hvað hún var dugleg og jákvæð, eins og lífið lék hana grátt síðustu árin. Elsku vinkona, minning þín mun lifa í huga mínum og hjarta alla tíð. Við hittumst síðar í sumarlandinu, eða landi morgun- roðans (hver veit). Þá tökum við upp þráðinn þar sem frá var horfið og dúllum okk- ur saman eins og við gerðum hér áður fyrr. Elsku Svala. Ég kveð þig með þessum ljóðlínum sem ég tileinka þér: Sé ég fjöld af förnum dögum, finn mér skylt að þakka að nýju góðhug þinn og alúð alla, endalausa tryggð og hlýju. (Guðmundur Böðvarsson) Ég bið allt það góða sem til er að styrkja og hugga ástvini Svölu í söknuði þeirra og sorg. Margrét Geirsdóttir (Magga). Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.