Morgunblaðið - 06.11.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2019
Hvaða súkkulaðimoli
er þinn uppáhalds?
Gæðasúkkulaðið frá Lindt fæst í næstu verslun
París. AFP. | Bandaríska geimfarið
Voyager 2 sendir enn mikilvæg
gögn til jarðar, 42 árum eftir að
geimvísindastofnunin NASA skaut
því á loft ásamt systurfarinu Voy-
ager 1. Vísindamenn stofnunar-
innar segja að Voyager 2 hafi veitt
mjög mikilvægar upplýsingar um
sólarvinda, segulsvið sólar og geim-
geisla við sólvindsmörkin, þar sem
sólvindurinn mætir vindum mið-
geimsins, þ.e. geimsins milli stjarn-
anna í Vetrarbrautinni. Þeir bæta
þó við að í hvert sinn sem ráðgáta
hafi verið leyst hafi önnur skotið
upp kollinum.
Voyager 2 var skotið á loft 20.
ágúst 1977, sextán dögum á undan
systurfarinu, en var um sjö árum
lengur að komast að ytri mörkum
sólvindshvolfsins sem er í um 18
milljarða kílómetra fjarlægð frá
jörðinni. Hvolfið er myndað af
segulsviði sólar og sólvindum sem
ná þriggja milljóna kílómetra
hraða á klukkustund.
Gert er ráð fyrir því að samband
haldist við geimförin tvö í um fimm
ár til viðbótar, eða þar til þau verða
rafmagnslaus. „Þau eiga eftir að
endast lengur en jörðin,“ sagði Bill
Kurth, geimvísindamaður við Iowa-
háskóla. „Þau verða á eigin braut í
um fimm milljarða ára eða lengur
og líkurnar á því að þau lendi í
árekstri eru engar.“
J
ú
p
iter
S
a
tú
rn
u
s
Ú
ra
n
u
s
N
e
p
tú
n
u
s
Voyager 1
stefndi í
átt að
stjörnu-
merkinu
Naður-
valda
Voyager 2
stefndi í átt að
stjörnumerkinu
Bogmanninum
12 nóv. 1980
25. ágúst 1981
V2 og V1 skotið á loft
20. ágúst/5. sept.
1977
5. mars/9. júlí
197924. jan.
1986
25. ágúst
1989
Íó
Evrópa
Innri jaðar sólvindhvolfsins
Geimfarið Voyager 2 og systurfar þess á ferð í miðgeimi
Heimild: NASA
NASA skaut geimfarinu á loft 1977 ásamt Voyager 1 til að rannsaka sólkerfið
Sólin Sólvindshvolf:
Svæðið sem sólin
hefur áhrif á
2012: Voyager 1
fór út úr sólvindshvolfinu
5. nóv. 2018:
Voyager 2 fór út
fyrir sólvindsmörkin
M
ið
ge
im
ur
Miðgeims-
vindar
Högg-
bylgjur
Sólvindsmörk: Endimörk sólvindsins,
Er núna
meira en
18,3 milljarða
km frá jörðinni
Getur sent
gögn til
jarðar
til ársins
2025
Þyngd:
722 kg
Hraði: meira en
55.000 km/klst.
UPPGÖTVANIR
Fundu 24 tungl við Júpiter og Satúrnus
Úranus og Neptúnus (Voyager 1 og 2)
Vísbendingar fundust um haf undir
ísskorpu Evrópu, tungls Júpiters (V1 & 2)
Vísbendingar um virk eldfjöll
á tunglinu Íó
við Júpiter (V1)
Fyrstu myndirnar af hringjum Júpiters,
Úranus og Neptúnus
þar sem
hann mætir miðgeimsvindum
Sendir enn gögn úr geimnum
Teheran. AFP. | Hassan Rouhani, for-
seti Írans, sagði í gær að Íranar
hefðu hafið auðgun úrans að nýju í
neðanjarðarverksmiðju sunnan við
Teheran vegna þeirrar ákvörðunar
Donalds Trumps Bandaríkjaforseta
að segja upp kjarnorkusamningi við
klerkastjórnina í Íran frá árinu 2015
og hefja refsiaðgerðir gegn landinu
að nýju.
Þetta er í fjórða sinn sem stjórn-
völd í Íran tilkynna aðgerðir sem
miða að auðgun úrans frá því að
Trump sagði samningnum upp í maí
á síðasta ári og hóf refsiaðgerðirnar.
Með samningnum við Bandaríkin,
Bretland, Frakkland, Kína, Rúss-
land og Þýskaland skuldbatt klerka-
stjórnin í Íran sig til að takmarka
verulega kjarnorkuáform sín og
auðgun úrans gegn því að viðskipta-
þvingunum gegn landinu yrði aflétt.
Hin löndin sögðust ætla að standa
við samninginn og töldu að Íranar
hefðu staðið að fullu við skilmála
hans.
Talsmaður framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins sagði að hún
hefði áhyggjur af ákvörðun Írana um
að hefja auðgun úrans og að áfram-
haldandi stuðningur ESB við samn-
inginn væri háður því að Íranar virtu
skilmála hans að fullu. Stjórnvöld í
Rússlandi sögðust einnig hafa
áhyggjur af ákvörðuninni þótt sam-
skipti þeirra við klerkastjórnina séu
góð. Talsmaður Vladimírs Pútíns
Rússlandsforseta sagði að Rússar
vildu að staðið yrði við samninginn
og skildu óánægju Írana með „for-
dæmislausar og ólöglegar refsi-
aðgerðir“ Bandaríkjastjórnar.
Rouhani sagði að Íranar vildu
samningaviðræður um lausn deil-
unnar og myndu draga ákvörðunina
til baka ef refsiaðgerðunum yrði af-
létt. Stjórn Írans hefur lagt fast að
leiðtogum Evrópuríkjanna að finna
leið til að sneiða hjá viðskiptabanni
Bandaríkjastjórnar á Íran til að
bjarga samningnum en þeim hefur
ekki tekist það.
Ellie Geranmayeh, sérfræðingur í
málefnum Írans við hugveituna
European Council on Foreign
Relations, sagði að markmiðið með
ákvörðun Írana væri ekki að hefja
framleiðslu kjarnavopna, heldur að
knýja Evrópuríkin til að finna leið til
að bjarga samningnum.
AFP
Rouhani Forseti Írans tilkynnir ákvörðunina um að hefja auðgun úrans.
Hefja auðgun
úrans að nýju
Íranar hvattir til að virða samninginn
Heba Abu Sabha, 26 ára palest-
ínskur býflugnabóndi, skoðar bý-
flugur í býli sínu í palestínska þorp-
inu Khuzaa í grennd við borgina
Khan Yunis á Gaza-svæðinu, ná-
lægt landamærunum að Ísrael. Abu
Sabha hóf býflugnarækt fyrir
nokkrum árum til að sjá fjölskyldu
sinni farborða.
Um 300 bændur á Gaza-svæðinu,
með um 16.000 býflugnabú, fram-
leiða um það bil 120 tonn af hun-
angi á ári, að sögn fréttaveitunnar
AFP.
AFP
Býflugnabóndi á Gaza
hugar að framleiðslunni