Morgunblaðið - 06.11.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2019
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Veldu öryggi
SACHS – demparar
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA
sig varða ýmis samfélagsmál í daln-
um sínum fyrir vestan.
Hannes ætlar að fagna afmælis-
deginum laugardaginn 9. nóvember
í Baldurshaga á Bíldudal þar sem
verður opið hús þar sem Hannes og
fjölskylda taka á móti vinum og
vandamönnum.
Fjölskylda
Eiginkona Hannesar er Þórunn
Helga Sveinbjörnsdóttir, f. 23.7.
1946, verslunarkona á Bíldudal. Þau
gengu í hjónaband 22.8. 1964. For-
eldrar Helgu voru Þuríður Petrína
Gíslína Þórarinsdóttir, f. 10.4. 1921,
d. 7.10. 2010, húsmóðir, og Svein-
björn Samsonarson, f. 23.3. 1920, d.
30.10. 1975, sjómaður.
Börn Hannesar og Helgu eru 1)
Þórarinn Hannesson, f. 21.12. 1964,
íþróttakennari á Siglufirði, maki er
Kristín Anna Guðmundsdóttir; 2)
Kristín Sigríður Hannesdóttir, f.
29.10. 1966, hjúkrunarfræðingur í
Stykkishólmi, maki er Jón Salómon
Bjarnason; 3) Elfar Logi Hannes-
son, f. 4.2. 1971, leikari, bús. á Þing-
eyri, maki er Marsibil G. Kristjáns-
dóttir; 4) Birna Friðbjört Hannes-
dóttir, f. 7.7. 1980, skólastjóri
Tálknafjarðarskóla, bús. á Patreks-
firði, maki er Ásgeir Sveinsson.
Barnabörn Hannesar og Helgu eru
17 og barnabarnabörn eru 7.
Systkini Hannesar eru Valdemar
Friðriksson, f. 6.1. 1942, bús. í
Reykjavík, Agnar Friðriksson, f.
14.7. 1945, bús. í Reykjavík, og Guð-
björg Sigríður Friðriksdóttir, f.
19.12. 1946, bús. á Bíldudal.
Foreldrar Hannesar voru hjónin
Friðrik Valdimarsson, f. 10.10. 1915,
d. 7.7. 1978, fiskkaupmaður, og
Kristín Hannesdóttir, f. 1.10. 1910,
d. 11.8. 1999, húsmóðir.
Hannes
Stephensen
Friðriksson
Kristín Hannesdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Sigurður Eggerz ráðherra, síðar bæjarfógeti á Akureyri
Arndís Pétursdóttir Eggerz
húsfr. í Vatnsfi rði, afi Arndísar var Páll Melsted amtmaður
Páll Ólafsson
prófastur í Vatnsfi rði og
þingmaður Strandasýslu, langafi
Páls var Magnús Stephensen
konferensráð í Viðey
Sigríður Pálsdóttir
húsmóðir á Bíldudal
Björn Thoroddsen
gítarleikari
Erla H. Thoroddsen
húsmóðir í Reykjavík
Kristín Jónsdóttir
vinnukona í Hrauni á Ingjaldssandi
Friðrik Björnsson
vinnumaður í Önundarfi rði
Guðbjörg Friðriksdóttir
húsmóðir á Flateyri
Valdimar Guðmundsson
kaupmaður á Flateyri
Ólöf Bjarnadóttir
húsfreyja á Eiði
Guðmundur Pálsson
bóndi á Eiði við Hestfjörð
Úr frændgarði Hannesar Stephensen Friðrikssonar
Friðrik Valdemarsson
vélstjóri og fi sksali í Reykjavík
Hannes Stephensen Bjarnason
kaupmaður á Bíldudal
Bjarni Þórðarson
bóndi og gullsmiður á Reykhólum
Böðvar Bjarnason prófastur
og ljóðskáld á Hrafnseyri
Bjarni Böðvarsson
hljómsveitarstjóri í Rvík
Ragnar Bjarnason
söngvari í Reykjavík
Þórður Bjarnason kaupmaður í ReykjavíkRegína Þórðardóttir leikkona
Þórey Kristín Ólína Pálsdóttir
húsfreyja á Reykhólum, móðurbróðir Þóreyjar var Jón Thoroddsen skáld
„BRÓÐIR INGÓLFUR, ÉG GÆFI HÆGRI
HANDLEGGINN FYRIR SVONA ÞYKKT HÁR.” „TILBÚNIR FYRIR JARÐSKJÁLFTANN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú ert félagi
minn, besti vinur, helsti
aðdáandi og eina sanna
ást.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VEISTU GRETTIR, ÉG ER NOKKUÐ
HEPPINN. HEPPINN, HEPPINN,
HEPPINN. ÉG ER HEILSUHRAUSTUR,
Á FJÖLSKYLDU, FALLEGT HEIMILI …
FÍNAN BÍL, STÓRKOSTLEGT
SOKKASAFN, YNDISLEGA
KÆRUSTU, SNIÐUGAN
SNJALLSÍMA, JAMM …
ÉG HATA SKATTHEIMTUMENN
KONUNGSINS!
ÉG ELSKA ÞÁ! ÞEIR VINNA ALLA UNDIRBÚNINGSVINNUNA!
ÉG ÞARF BARA AÐ RÁÐAST Á KASTALANN
OG SÆKJA GÓSSIÐ!
MIG SKORTIR
EKKERT
NEMA
MUTE-TAKKA
Ólafur Stefánsson segir í tölvu-pósti: „Þeir voru samtíma-
menn, Erich Kästner og Tómas
Guðmundsson, og báðir ortu um líf-
ið sem ferðalag, annar sem lestar-
ferð en hinn um dvöl á hótel Jörð.
Kästner var einn af fáum lista-
mönnum, þýskum, sem bannfærðir
voru á Hitlerstímanum, sem þrauk-
aði stríðið í heimalandinu. Hann
horfði sjálfur á bækur sínar
brenndar, en lifði á að gefa út í
Sviss undir dulnefni.
Við sitjum öll í sömu lest,
um svipult lífsins skeið.
Við horfum út, það hæfir best,
er hópumst þar sem allra flest,
á okkar ævileið.
Einn sessunautur sefur rótt,
en segir fullmargt hinn.
Brautarstöðvar birtast ótt,
brunar lestin dag og nótt,
án endimarks um sinn.
Við töskum röðum til og frá,
í tilgangsleysi mest.
Lestarvörður lítur á
lokar hurðum, kímir smá,
en angrar engan gest.
Hann ekkert veit um endaþátt,
né ekki heldur hvurt.
Sírenan nú hefur hátt,
hraði minnkar, við stöðvum brátt.
Þeir dauðu dreifast burt.
Að móður setur mikinn grát,
en mynda dánir röð.
Þeir hafa á tíma gengnum gát,
geysist lestin, ekki er lát,
en endurlitin hröð.
Á fyrsta rými er fátt, og pláss,
þar fattan mann ég sé,
á plussi líkt og stofustáss,
stoltan sitja, hinna tráss,
sem híma’ á bekk úr tré.
Út í fjarskann fer vor lest,
hvar fátt við náum grillt.
Við horfum út það hæfir best,
Þótt hafi’ oss eitthvað yfirsést
og endað klefavillt.“
Ingólfur Ómar Ármannsson
yrkir:
Skartað rósum festing fær
fagran gljáa veitir,
norðurljósa leiftrin skær
loftið bláa skreytir.
Hér er skemmtilegt úrkast eftir
Sigmund Benediktsson:
Ullarnærföt orna liði
yls í svelti,
þó að verði allt á iði
undir belti.
Ingólfur Ómar svarar:
Napur vindur klórar kinn
kólnar blóð í æðum.
Gott er að eiga gæruskinn
og gnægð af ullarklæðum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hótel Jörð eða lestarferð