Morgunblaðið - 06.11.2019, Page 13

Morgunblaðið - 06.11.2019, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2019 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com Námskeið sem gefa réttindi um gjörvalla Evrópu Öll ökuréttindi - Öll vinnuvélaréttindi Klettagörðum 11 (ET-húsinu) - 104 Reykjavík - Símar 588 4500, 822 4502 - www.meiraprof.is - rektorinn@gmail.com Skjót leið til starfsmenntunar Skapaðu þér þitt eigið góðæri www.meiraprof.is Áhorfendur tóku til fótanna þegar loftbelgur lagðist saman og féll log- andi til jarðar í árlegri loftbelgja- keppni í borginni Taunggyi í Búrma. Engum varð meint af í þetta sinn en algengt er að slys verði á fólki í keppninni, jafnvel banaslys. Hún er haldin í tengslum við ljósahátíðina Tazaungdaing sem markar lok regn- tímabilsins í Búrma. Keppnin stend- ur í tíu daga og keppnislið koma alls um 200 heimatilbúnum loftbelgjum á loft. Í hverjum loftbelgjanna eru hundruð kerta eða flugelda og af- leiðingarnar geta verið alvarlegar ef eitthvað fer úrskeiðis. Dómarar gefa keppnisliðunum stig fyrir fegurð belgjanna, hópvinnu, hæð sem belg- irnir ná og tímalengd loftbelgja- flugsins, að sögn Thein Zaw, sem hefur verið í dómnefnd keppninnar í þrettán ár. Tugir þúsunda manna hvaðanæva af landinu fylgjast með keppninni. AFP Tvísýn keppni Keppendur koma belg á loft á ljósahátíðinni. Ljósahátíð Konur dansa á hátíðinni Tazaungdaing sem var sett í borginni Taunggyi í Búrma í fyrrakvöld. Loftbelgirnir eiga það til að fuðra upp Að minnsta kosti níu bandarískir ríkisborgarar, þrjár konur og sex börn, biðu bana í árás sem byssu- menn gerðu úr launsátri í norður- hluta Mexíkó, á svæði þar sem eitur- lyfjasmyglhópar hafa barist um yfirráð. Embættismenn í Mexíkó sögðu að sex börn til viðbótar hefðu særst í árásinni og einnar stúlku væri saknað. Fórnarlömbin eru í svonefndri LeBaron-fjölskyldu, fjölmennri ætt úr röðum mormóna sem klauf sig út úr mormónakirkjunni í Bandaríkj- unum og flutti búferlum til Mexíkó fyrir nokkrum áratugum. Árásin var gerð á sveitavegi í mexíkóska ríkinu Sonora þegar fólkið var í þremur bíl- um á leið á flugvöll í ríkinu Chihua- hua. Lík nokkurra fórnarlambanna fundust síðar í einum bílanna, sem hafði gereyðilagst í eldi, og hermt er að önnur hafi verið skotin til bana þegar þau reyndu að flýja. Tveir eiturlyfjasmyglhópar hafa barist um yfirráð yfir svæðinu þar sem árásin var gerð og sagði örygg- ismálaráðherra Mexíkó að byssu- mennirnir kynnu að hafa ráðist á fólkið fyrir mistök, haldið að það til- heyrði öðrum glæpahópanna. Le- Baron-fjölskyldan hefur þó áður orð- ið fyrir árásum glæpamanna á svæðinu. Einum meðlima fjölskyld- unnar, Erick LeBaron, var rænt árið 2009 og ræningjar hans kröfðust lausnargjalds en hún neitaði að greiða það, þar sem hún taldi að glæpamennirnir myndu ræna fleira fólki ef orðið yrði við kröfunni. Maðurinn var seinna látinn laus án þess að lausnargjald væri greitt en nokkrum mánuðum síðar var bróðir hans, Benjamin, barinn til bana. Mágur Benjamins var einnig myrtur. Meðlimir fjölskyldunnar hafa mótmælt ofbeldi glæpahópanna og hvatt íbúa Mexíkó til að berjast gegn glæpastarfseminni. Hafnar stríði Bandaríska alríkislögreglan FBI bauðst til að aðstoða yfirvöld í Mexíkó við rannsókn málsins. Donald Trump Bandaríkjaforseti bauðst til að hjálpa stjórnvöldum í Mexíkó að „heyja stríð“ gegn glæpahópunum. Hann hrósaði for- seta Mexíkó, Andrés Manuel López Obrador, fyrir að leggja áherslu á baráttuna gegn eiturlyfjasmygli en sagði að smyglhringirnir væru orðn- ir svo öflugir að stundum væri nauð- synlegt að beita þá hervaldi. „Nú er tímabært að Mexíkó, með hjálp Bandaríkjanna, heyi STRÍÐ gegn smyglhringunum og þurrki þá af yfirborði jarðar,“ sagði Trump á Twitter. López Obrador kvaðst ætla að hringja í Trump og þiggja „hvers konar nauðsynlegt samstarf“ í bar- áttunni gegn glæpahópunum. Hann kvaðst hins vegar vera andvígur því að hefja nýtt stríð og sagði það vera það versta sem gæti gerst. „Stríð hefur svipaða merkingu og flónska.“ Þrjár konur og sex börn myrt  Trump hvetur stjórnvöld í Mexíkó til að heyja stríð gegn smyglhringum 300 km SONORA CHIHUAHUA MEXÍKÓ- BORG MEXÍKÓ BANDARÍKIN GVA. KYRRAHAF Mannskæð árás á bandaríska ríkisborgara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.