Morgunblaðið - 06.11.2019, Síða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2019
BANDARÍKIN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Jón Axel Guðmundsson, lands-
liðsmaður í körfuknattleik, er tals-
vert í umræðunni vestan hafs nú
þegar hans síðasta tímabil í NCAA,
bandaríska háskólakörfuboltanum,
er að hefjast. Eins og lesendur
Morgunblaðsins þekkja leikur Jón
með Davidson í Norður-Karólínu-
ríki. Liðinu sem Íslandsvinurinn
Stephen Curry lék með á sínum há-
skólaárum áður en hann fór í NBA.
Jón fékk í gær mikla viðurkenn-
ingu þegar hann var einn þeirra
fimmtíu leikmanna sem líklegastir
þykja til að geta hlotið nafnbótina
leikmaður ársins í NCAA næsta vor.
Um er að ræða hin kunnu Nai-
smith-verðlaun sem margir fræg-
ustu leikmenn sögunnar hafa fengið
í gegnum tíðina fyrir frammistöðu
sína í háskólaboltanum.
Sérfræðingar velja
Um eins konar tilnefningu er að
ræða jafnvel þótt tímabilið sé ekki
hafið en Bandaríkjamenn kalla
þetta „watchlist“. Í febrúar verða
þrjátíu leikmenn valdir og þeir geta
verið fyrir utan fimmtíu manna
listann sem nú er birtur. Í mars
verður fækkað niður í tíu og svo
fjóra áður en tilkynnt verður hver
hlýtur Naismith-bikarinn. Í amer-
íska fótboltanum eru sambærileg
verðlaun sem heita Heisman
Trophy og eru veitt leikmanni árs-
ins í NCAA. Eflaust hafa íþrótta-
áhugamenn heyrt þeirra getið en til-
nefningar til Heisman og Naismith
geta haft mikil áhrif á framgang
leikmanna í íþróttinni.
Ekki er kastað til höndunum þeg-
ar ákveðið er að taka fimmtíu leik-
menn af mörg þúsund út fyrir sviga
áður en fyrsti leikurinn fer fram.
Nöfnin fimmtíu eru fundin út af
nefnd sem í eru þjálfarar, fjölmiðla-
menn og fleiri aðilar sem hafa að-
komu að háskólakörfuboltanum.
Þeir sem sæti eiga í nefndinni eru
staðsettir um gervöll Bandaríkin
rétt eins og liðin í NCAA.
Tveir frá Davidson
Ljóst er að um mikla viðurkenn-
ingu er að ræða fyrir Jón Axel en á
síðasta tímabili var hann valinn leik-
maður ársins í Atlantic 10 deildinni
sem Davidson leikur í. Var það mikil
kynning fyrir Jón og bættist ofan á
þá staðreynd að hann var stigahæst-
ur hjá Davidson þegar liðið lék í úr-
slitakeppninni gegn sögufrægu liði
Kentucky í beinni sjónvarpsútsend-
ingu árið 2018. Takist Jóni vel upp í
vetur er nokkuð ljóst að hann verð-
ur orðinn vel kynntur og kemur til
með að eiga ýmsa möguleika í at-
vinnumennskunni næsta sumar.
Mikla lukku vekur hjá Davidson
að tveir leikmenn úr liðinu eru á
fimmtíu manna listanum en þar er
einnig að finna Kellan Grady en
minnst var á hann í umfjöllun um
Jón hér í blaðinu síðasta laugardag.
Ekkert lið er með fleiri en tvo leik-
menn á listanum og því vísbending
um að mikils er vænst af Davidson í
vetur. Fræg lið eins og Duke, Kan-
sas, Kentucky, Michigan State, Flo-
rida og Maryland eiga einnig tvo
leikmenn en Haukur Helgi Pálsson
lék einn vetur með síðastnefnda lið-
inu veturinn 2010-2011.
Helena var á listanum
Sá sem varð fyrir valinu síðasta
vor var Zion Williamson sem valinn
var fyrstur í nýliðavalinu fyrir NBA.
Fyrstur til að hljóta þessi verðlaun
árið 1969 var Kareem Abdul Jabbar
sem þá hét Lew Alcindor. Fjöldinn
allur af NBA-stjörnum hefur fengið
Naismith-verðlaunin í gegnum tíð-
ina. Til að nefna einhverja er hægt
að tína til Pete Maravich, Larry
Bird, Michael Jordan, Patrick Ew-
ing, David Robinson, Tim Duncan,
Kevin Durant og Anthony Davis.
Naismith-verðlaunin í kvenna-
flokki voru fyrst veitt árið 1983.
Fyrir tímabilin 2009-2010 og 2010-
2011 var Helena Sverrisdóttir á
fimmtíu manna lista eins og Jón er
nú en hún lék með TCU í Texasríki.
Mikil viðurkenning
Jón Axel Guðmundsson á fimmtíu manna lista fyrir Naismith-verðlaunin
í NCAA í Bandaríkjunum Mikil auglýsing fyrir Grindvíkinginn
AFP
NCAA Jón Axel Guðmundsson er að hefja sitt síðasta tímabil með Davidson.
Grindavík fær Íslandsmeistara KR í
heimsókn en öll fjögur liðin leika í efstu
deild.
Í kvennaflokki tekur Njarðvík á móti
Keflavík og Snæfell fær bikarmeistara
Vals í heimsókn. Valur og Snæfell mætt-
ust einmitt í undanúrslitum bikarkeppn-
innar á síðustu leiktíð þar sem Valur
hafði betur í Laugardalshöll, 83:72. Fjög-
ur lið sitja hjá í sextán liða úrslitum í
kvennaflokki og koma beint inn í átta liða
úrslitin. Það eru Breiðablik, ÍR, Grinda-
vík og Skallagrímur. Nánar er fjallað um
dráttinn og þær viðureignir sem fram
undan eru á mbl.is/korfubolti.
bjarnih@mbl.is
Það stefnir allt í harða baráttu um
Reykjanesbæ í bæði karla- og kvenna-
flokki í sextán liða úrslitum bikarkeppn-
innar í körfuknattleik, Geysisbikarsins,
en dregið var í höfuðstöðvum KSÍ í gær. Í
karlaflokki dróst Njarðvík gegn B-liði
Þórs frá Akureyri eða Keflavík en Þór og
Keflavík mætast á Akureyri í 32-liða úr-
slitum keppninnar á föstudaginn kemur.
Keflavík trónir á toppi úrvalsdeild-
arinnar, Dominos-deildarinnar, á meðan
Þór B er í fimmta sæti 3. deildarinnar og
því verður að teljast ansi líklegt að Kefl-
víkingar fari áfram úr viðureigninni. Þá
mætast meðal annars Þórsliðin frá Þor-
lákshöfn og Akureyri í Þorlákshöfn og
Baráttan um Reykjanesbæ
Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson
Atgangur Hart tekist á í leik Keflavíkur og Njarðvíkur.
Leikirnir í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu gerast vart
stærri en þegar Liverpool og
Manchester City leiða saman
hesta sína á Anfield í bítlaborg-
inni á sunnudaginn.
Liverpool er með sex stiga
forskot á Englandsmeistarana
áður en liðin ganga til leiks en
mönnum er enn í fersku minni
barátta liðanna um meistara-
titilinn á síðustu leiktíð þar sem
City hafði betur eftir æsilegan
slag.
Ég ætla að leyfa mér að segja
að ef Liverpool fer með sigur af
hólmi á sunnudaginn fær ekkert
stöðvað að „Rauði herinn“ landi
enska meistaratitlinum í maí á
næsta ári og endi þar með eyði-
merkurgöngu sína.
Næsta vor verða nefnilega 30
ár liðin frá því að Liverpool varð
síðast Englandsmeistari, en liðið
vann 18. meistaratitil sinn árið
1990 undir stjórn Skotans Kenny
Dalglish.
Ég spái því að lærisveinar
Jürgens Klopp, sem ég hef mikl-
ar mætur á, hafi betur og vinni
leikinn 2:1. Satt best að segja
vona ég að Liverpool hafi betur í
meistarabaráttu liðanna.
Þetta kann að hljóma ein-
kennilega frá stuðningsmanni
Manchester United til fjölda ára
en af tvennu illu vil ég frekar sjá
bikarinn eftirsótta fara til Liver-
pool en að hann haldi kyrru fyrir
hjá þeim bláklæddu í Manchest-
er.
Hvað mína menn í United
varðar eru þeir í tómu tjóni og
þeir gætu hæglega verið komnir
á blaðsíðu tvö á stigatöflunni
eftir leikinn við Brighton á
sunnudaginn. Það kæmi mér alls
ekkert á óvart. United-liðið er
bara jafnleiðinlegt og VAR!
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
Uli Höness, for-
seti þýska stór-
liðsins Bayern
München, segir
að félagið ætli að
gefa sér tíma til
að finna eftir-
mann Niko Kovac
en Króatinn var
rekinn frá störf-
um sem þjálfari
liðsins á sunnu-
daginn. Kovac var við stjórnvölinn
hjá Bæjurum í 16 mánuði en 5:1 tap
gegn Eintracht Frankfurt á laugar-
daginn dró dilk á eftir sér. Kovac var
látinn taka pokann sinn og mun
Hansi Fick, aðstoðarmaður hans,
stýra liðinu til bráðabirgða.
Höness segir í viðtali við þýska
fjölmiðla að hann reikni með að nýr
þjálfari verði kynntur til leiks á
næstu þremur vikum. Erik ten Hag,
þjálfari Ajax, sem hefur verið einn af
kandítötunum í starfið, hefur þegar
látið hafa eftir sér að hann muni ekki
yfirgefa Ajax á þessu tímabili. Massi-
miliano Allegri, fyrrverandi þjálfari
Juventus, José Mourinho, sem rekinn
var frá Manchester United í desem-
ber á síðasta ári og Arsene Wenger,
fyrrverandi stjóri Arsenal, hafa verið
nefndir til sögunnar sem hugsanlegir
arftakar Kovac. Bayern München
tekur á móti Olympiakos í Meistara-
deildinni í kvöld.
Bæjarar ætla
að flýta
sér hægt
Niko
Kovac
Sanja Orazovic fór mikinn fyrir KR
þegar liðið heimsótti Snæfell í úr-
valsdeild kvenna í körfuknattleik,
Dominos-deildinni, í Stykkishólmi í
sjöttu umferð deildarinnar í gær.
Leiknum lauk með öruggum sigri
KR, 81:57, en Orazovic skoraði 24
stig í leiknum.
Vesturbæingar voru með frum-
kvæðið í leiknum allan tímann og
leiddu með tólf stigum í hálfleik,
42:30.
KR fer með sigrinum upp í annað
sæti deildarinnar í 10 stig og er nú
með jafn mörg stig og Valskonur
sem eiga leik til góða á KR. Snæfell
er sem fyrr í sjötta sæti deildarinnar
með 4 stig. bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Öflug Sanja Orazovic var stigahæst í liði KR með 24 stig og átta fráköst.
KR jafnaði Val að stigum
Fjölnir tyllti sér á toppinn í Hertz-
deild karla í íshokkí þegar liðið
vann öruggan 4:0-sigur gegn SR í
Egilshöll í gær.
Staðan eftir fyrsta leikhluta var
markalaus en Róbert Pálsson kom
Fjölnismönnum yfir um miðjan
annan leikhluta. Michal Stoklosa
bætti við öðru marki Fjölnis í upp-
hafi þriðja leikhluta og Stoklosa
var aftur á ferðinni tíu mínútum
síðar þegar hann skoraði þriðja
mark leiksins.
Jón Helgason skoraði svo fjórða
mark leiksins undir restina.
Fjölnismenn eru í efsta sæti deild-
arinnar með 15 stig en SA, sem er
í öðru sætinu með 12 stig, á leik til
góða á Fjölni. SR rekur lestina án
stiga. bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Átök Það var hart tekist á í Skautahöllinni í Egilshöll í gær.
Fjölnismenn á toppinn