Morgunblaðið - 13.11.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.11.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019 Skammdegi Strætisvagnar aka um regnblaut strætin. Jólaljós eru smátt og smátt farin að setja svip á miðbæ Reykjavíkur þó enn sé langt til jóla. Hari Berlínarmúrinn stóð í 28 ár sem merki um kúgun, lít- ilsvirðingu gagnvart réttindum einstak- linga og mannrétt- indum. Minnisvarði um misheppnaða þjóðfélagstilraun í nafni sósíalismans. Leiðtogar Þýska al- þýðulýðveldisins – Austur-Þýskalands – voru ekki drifnir áfram af mann- vonsku þegar múrinn var reistur árið 1961. Múrinn var örvænt- ingarfull tilraun til að koma í veg fyrir að fólk gæti tekið til fótanna og yfirgefið landið – komist und- an örbirgð og kúgun. Um 3,5 milljónir Austur-Þjóðverja höfðu flúið land og múrnum var ætlað að stöðva blóðtökuna. Síðastliðinn laugardag var þess minnst að þrjátíu ár voru frá því að ömurlegur minnisvarði féll. Berlínarmúrinn var áþreifanlegt járntjald sem Winston Churchill talaði um í frægri ræðu árið 1946 við Westminster College í Fulton, Missouri í Bandaríkjunum. Járn- tjald sem risti Evrópu í tvennt; lýðræðisríki og alræðisríki komm- únismans. Sósíalisminn fellur Árið 1989 riðaði sósíalisminn til falls í Austur-Evrópu. Sovétríkin glímdu við gríðarlega efnahags- lega erfiðleika og matarskort. Í Póllandi hafði frelsisbylgja þegar náð að leika um land- ið undir fánum Sam- stöðu. Í ágúst mynd- uðu tvær milljónir íbúa Eystrasaltsríkj- anna – Eistlands, Lettlands og Lithá- ens – 600 kílómetra langa keðju þvert yfir löndin, til að krefjast sjálfstæðis frá Sovétríkjunum. Ungverjaland opnaði landamærin til Aust- urríkis. Nokkrum mán- uðum fyrir fall múrsins – sem Willy Brandt kallaði múr skamm- arinnar – hafði heimurinn hins vegar verið minntur óþyrmilega á hversu reiðubúnar alræðis- og kúgunarstjórnir eru til að beita eigin landsmenn ofbeldi. Á Torgi hins himneska friðar í Peking höfðu mótmæli, undir for- ystu stúdenta, verið brotin aftur með hervaldi. Þúsundir lágu í valnum og fjöldi var handtekinn. Hreinsanir hófust, erlendir blaða- menn reknir úr landi, embættis- mönnum vikið úr starfi, ritskoðun hert og öryggislögreglan styrkt. Í skugga hrottaverka í Peking vakti fall Berlínarmúrsins nýjar vonir um að þrátt fyrir allt gætu þjóðir Austur-Evrópu brotist und- an oki sósíalismans. Tæpu ári síð- ar var Þýskaland sameinað að nýju í eitt ríki. Þá blöstu stað- reyndirnar við – munurinn á þjóð- félögum markaðsbúskapar og miðstýringar sósíalismans. Lands- framleiðsla Vestur-Þýskalands á mann var um það bil þrefalt meiri en í Austur-Þýskalandi. Pólitísk og efnahagsleg tilraunastarfsemi í austri hafði mistekist. Draumar breytast í martraðir Austur-Þýskaland þróaðist í alræmt lögregluríki og átti ekkert skylt við „alræði öreiganna“ eins og lofað var. Þar, líkt og í öllum öðrum ríkjum sósíalismans, lærði almenningur harða lexíu. Þegar markaðsöflunum er kippt úr sam- bandi og eignarréttur virtur lítils eru afleiðingarnar stöðnun, skortur og verri lífskjör. Hvatinn hverfur og við tekur þjóðfélag til- skipana. Pólitísk kúgun, efna- hagsleg mistök og örbirgð eru innbyggð í hugmyndafræði sósíal- ismans. Vestrænir menntamenn sem margir hverjir höfðu heillast af Sovétríkjunum voru flestir orðnir afhuga draumalandinu í austri á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar. Í huga þeirra hafði sósíalísk framtíðarsýn Marx og Engels ekki verið framkvæmd rétt í Ráð- stjórnarríkjunum. Sumir bundu vonir við Austur-Þýskaland, aðrir við Kína. Síðar var litið vonar- augum til Kúbu. Fidel Castro var átrúnaðargoð með Che Guevara sér við hlið. En draumarnir breyttust í martraðir. Jafnvel tæpum áratug eftir fall Berlínarmúrsins töldu margir vinstrimenn á Vesturlöndum að loksins væri hægt að „fram- kvæma“ sósíalismann með réttum hætti. Hugo Chavez, forseti Venesúela, varð eftirlæti þeirra. Chavez sagðist vera byltingar- maður sem berðist fyrir lýðræð- islegum sósíalisma 21. aldarinnar. Frá náttúrunnar hendi voru tæki- færin til staðar. Venesúela býr yfir gríðarlegum olíuauðlindum – þeim mestu í heiminum. En hægt og bítandi var auðugasta landi Suður-Ameríku umbreytt í nafni sósíalismans í ríki eymdarinnar. Eftir óstjórn og spillingu sósíal- ista er samfélagið komið að hruni og efnahagurinn í rúst. Lands- framleiðslan hefur dregist saman um nær helming frá 2013. Skort- ur er á flestum nauðsynjum; mat, neysluvatni, lyfjum og rafmagni. Milljónir hafa flúið land. Gjaldþrota hugmynd En þrátt fyrir söguna og órækan dóm hennar lifir í glæð- um sósíalismans. Dr. Kristian Niemietz, hagfræðingur og yfir- maður í stjórnmálahagfræði hjá Institute of Economic Affairs, hittir líklega naglann á höfuðið í nýrri bók sinni; Sósíalismi: Gjald- þrota hugmynd sem aldrei deyr (Socialism: The Failed Idea That Never Dies). Og því miður virðist sem hugmyndafræði sósíalista sé komin aftur í tísku víða um Evr- ópu á sama tíma og öfgafullir þjóðernisflokkar sækja í sig veðr- ið. Nýleg skoðanakönnun leiðir í ljós að aðeins rúmlega helmingur (54%) Þjóðverja telur að fall Berl- ínarmúrsins hafi verið af hinu góða. Önnur könnun leiðir í ljós að meirihluti íbúa austurhlutans telur að þeir hafi notið sanngirni frá sameiningu. Í Þýskalandi sem annars staðar í Evrópu hefur sundrung – pólarísering – stjórn- málanna aukist. Upplausn stjórn- málanna er vatn á myllu gjald- þrota hugmyndafræði marxista og þjóðernissinna. Að þessu leyti höfum við lítið lært á þeim 30 árum sem liðin eru frá falli Berlínarmúrsins. Við sem höfum verið talsmenn opins sam- félags, markaðsbúskapar og frjálsra viðskipta, höfum líklega ekki skilið þá þungu undiröldu sem liðast um alla Evrópu og raunar flest lönd hins frjálsa heims. Um leið og við stöndum traustan vörð um markaðshag- kerfið – kapítalismann – verðum við að hafa burði til þess að við- urkenna að þrátt fyrir alla sína kosti er markaðshagkerfið ekki gallalaust. Það er skylda baráttu- manna frjáls hagkerfis að sníða galla þess af. Annars verður alltaf til frjór jarðvegur fyrir hug- myndafræði sem hefur kostað milljónir manna örbirgð, þjáningar og dauða. Eftir Óla Björn Kárason » Tæpu ári síðar var Þýskaland sameinað að nýju. Þá blöstu staðreyndirnar við – munurinn á þjóðfélög- um markaðsbúskapar og miðstýringar sósíalismans. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hvað höfum við lært?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.