Morgunblaðið - 13.11.2019, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 267. tölublað 107. árgangur
TENGSLALEYSI
MILLI MÓÐUR
OG BARNS
SEGJA PLAY
TILBÚIÐ TIL
FLUGS
ÆTLAR SÉR
Á ÞRIÐJA
STÓRMÓTIÐ
VIÐSKIPTAMOGGINN ARON EINAR GUNNARSSON 26-27GLÆPASAGA 28
A
ct
av
is
9
1
1
0
1
3
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Grisjun í Haukdalsskógi í Biskupstungum sem unnið er
að þessa dagana mun skila minnst 800 rúmmetrum af
timbri. Stórvirk vinnuvél er notuð við verkið sem geng-
ur því greiðlega fyrir sig, nú í mildu haustveðrinu.
„Skógarnir eru auðlind sem skilar okkur sífellt meiri
afurðum,“ segir Trausti Jóhannsson, skógarvörður á
Suðurlandi, í samtali við Morgunblaðið.
Grisjunarviðurinn sem nú fellur til í Haukadal er að
stórum hluta rauðgreni og stafafura sem nýtast mun
sem eldiviður í ofnum járnblendiverksmiðju Elkem á
Grundartanga. „Vissulega fara ekki allir trjábolirnir í
iðnvið. Talsvert nýtist til dæmis í fiskihjalla og girðing-
arstaura og eitthvað er smíðaviður. Almennt talað er
mjög ánægjulegt að sjá núna hvaða verðmæti skóg-
urinn skapar og þó erum við aðeins á fyrstu metrunum
þar,“ segir Trausti. Víða um landið eru, að sögn
Trausta, skógarreitir sem nú þurfi að grisja. Í því sam-
bandi tiltekur hann bændaskóga sem gróðursett var til
fyrir um aldarfjórðungi. Í þeim lundum séu sprottin
stæðileg tré sem þurfi að fella en þannig geti þau líka
skapað og skilað miklum verðmætum rétt eins og til
var sáð í upphafi. »10
Auðlindin skapar mikil verðmæti
Ljósmyndir/Hreinn Óskarsson
Furan og grenið grisjað í Haukadalsskógi í Biskupstungum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Endurræsingu þriðja kerskálans í
álverinu í Straumsvík er lokið tölu-
vert á undan áætlun en þegar hún
hófst í september var rætt um að
hún gæti tekið nokkra mánuði.
Bjarni Már Gylfason, upplýsinga-
fulltrúi Rio Tinto á Íslandi, segir
enduræsinguna hafa gengið vonum
framar og hraðar en áætlað var.
Fram kom í ársuppgjöri Rio Tinto
Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá
Hagstofunnar stefnir í 0,2% sam-
drátt í ár vegna minni innlendrar
eftirspurnar og útflutnings.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhag-
fræðingur Íslandsbanka, segir
endurræsingu þriðja kerskálans
ekki munu hafa mikil áhrif á hag-
vaxtartölur. Hins vegar hafi mögu-
legum neikvæðum áhrifum vegna
langvarandi röskunar á framleiðslu
verið afstýrt. Með því verði óbein
áhrif á þjónustufyrirtæki minni en
ella. Langstærsti hluti virðisaukans
af álframleiðslu hér falli til í launum
og þjónustu- og raforkukaupum.
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing-
ur Samtaka iðnaðarins, segir að með
endurræsingu þriðja kerskálans
verði meiri framleiðsla í hagkerfinu
síðustu vikur ársins en ella. Það
muni birtast í hagvexti. Við þetta
bætist síðan áform flugfélagsins
Play um að hefja flug til Evrópu.
Álverið er komið á fullt
Endurræsingu þriðja kerskálans í Straumsvík er lokið töluvert á undan áætlun
Aðalhagfræðingur SI segir endurræsinguna og nýtt flugfélag auka framleiðslu
MGangsett vel á undan … »4
að vegna óhappsins myndi fram-
leiðslan í Straumsvík dragast saman
um 21 þúsund tonn í ár. Til saman-
burðar var framleiðslugetan áætluð
213 þúsund tonn í ár.
Stóðu við allar skuldbindingar
Bjarni Már segir álverið hafa af-
greitt allar pantanir síðan óhappið
kom upp. „Viðskiptavinir okkar hafa
ekki fundið fyrir þessu og við höfum
getað staðið við allar skuldbindingar
gagnvart þeim,“ segir Bjarni Már.
Fyrirtækið Náttúra Yurtel hefur
reist og innréttað tíu mongólsk
yurt-tjöld á Kjóastöðum 3, miðja
vegu milli Gullfoss og Geysis.
Steinunn Guðbjörnsdóttir hjá
ferðaþjónustufyrirtækinu Explor-
ing Iceland segir í samtali við
ViðskiptaMoggann að tjöldin séu
búin þeirri nýjung að vera öll með
steypta undirstöðu og gólfhita, en
yfirleitt eru yurt-tjöld hituð með
kamínu.
Tíu mongólsk tjöld
reist á Suðurlandi
Fjögur manndráp voru framin á
Íslandi árið 2017. Fyrir vikið er
tíðni manndrápa hér í nýbirtum töl-
um Eurostat sú sama og í stórum
Evrópulöndum og mun hærri en til
að mynda í Noregi.
Tölur Eurostat eru fyrir árið
2017 og er miðað við fjölda skráðra
manndrápa á hverja skráða 100
þúsund íbúa. Tíðni manndrápa á Ís-
landi reyndist sú sama og í Slóven-
íu, í Þýskalandi og á Írlandi.
Alls voru manndráp 0,9 á hverja
100 þúsund íbúa hér árið 2017. Þau
voru litlu fleiri í Danmörku og Sví-
þjóð, 1,1, en í Finnlandi voru þau
1,3. Hlutfallið var hæst í Evrópu í
Lettlandi þar sem 5,6 manndráp
voru framin á hverja 100 þúsund
íbúa. »4
Tíðni manndrápa
hærri en í Noregi
Þrengingar og ný staðsetning á
strætóskýli við Hagatorg í Vestur-
bæ Reykjavíkur veldur því að
strætó þarf nú að stoppa á aksturs-
leið um hringtorgið til að hleypa
farþegum inn og út úr vagninum.
Að stöðva ökutæki á hringtorgi er,
samkvæmt umferðarlögum, ekki
heimilt. Borgin segir að ekki sé
„um hefðbundið hringtorg að
ræða“ og því verður strætóskýlið
að óbreyttu ekki flutt annað.
Aðalvarðstjóri í umferðardeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu segir lögreglu þurfa að skoða
málið og koma ábendingum á fram-
færi við Reykjavíkurborg. Sérfræð-
ingur í umferðaröryggismálum
segir borgina vera að brjóta lög og
að hann eigi ekki von á öðru en að
flytja þurfi skýlið á annan stað. »6
Hagatorg er sagt
óhefðbundið og því
ekki farið að lögum
Vesturbær Torginu hefur verið breytt.
Félög í eigu Samherja eru sögð hafa
greitt háttsettum stjórnmála- og
embættismönnum í Namibíu hundr-
uð milljóna króna, jafnvel á annan
milljarð, í þeim tilgangi að komast
yfir eftirsóttan kvóta við strendur
landsins. Var þetta fullyrt í frétta-
skýringaþættinum Kveik í Ríkis-
útvarpinu í gærkvöldi og á vef
Stundarinnar. Umfjöllunin grund-
vallast m.a. á miklum gagnaleka.
„Það voru okkur mikil vonbrigði
að komast að því að Jóhannes Stef-
ánsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri og stjórnarmaður Samherja-
félaganna í Namibíu, virðist hafa
tekið þátt í gagnrýniverðum við-
skiptaháttum og hugsanlega flækt
Samherja í viðskipti sem kunna að
vera ólögmæt,“ er haft eftir Þor-
steini Má Baldvinssyni forstjóra í yf-
irlýsingu Samherja í gærkvöldi.
Málið er sagt til rannsóknar í
Namibíu og fleiri löndum sem koma
við sögu, meðal annars hjá héraðs-
saksóknara á Íslandi. „Við munum
taka þetta sem fram hefur komið í
málinu til meðferðar,“ segir Ólafur
Þór Hauksson héraðssaksóknari við
Morgunblaðið, en Jóhannes mætti
til skýrslutöku í gærmorgun. »2
Sakaðir um
ólöglegar
greiðslur
Vonbrigði, segir í
yfirlýsingu Samherja