Morgunblaðið - 13.11.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019
Undankeppni EM kvenna
F-RIÐILL:
Ungverjaland – Lettland......................... 4:0
Staðan:
Svíþjóð 3 3 0 0 16:1 9
Ísland 3 3 0 0 11:1 9
Ungverjaland 4 1 1 2 5:9 4
Slóvakía 4 1 1 2 2:9 4
Lettland 4 0 0 4 2:16 0
A-RIÐILL:
Holland – Slóvenía.................................... 4:1
Holland 18, Rússland 6, Slóvenía 6, Kó-
sóvó 6, Eistland 1, Tyrkland 1.
B-RIÐILL:
Ítalía – Malta ............................................ 5:0
Ísrael – Bosnía.......................................... 1:3
Danmörk – Georgía................................ 14:0
Ítalía 18, Danmörk 15, Bosnía 9, Ísrael 1,
Malta 1, Georgía 0.
C-RIÐILL:
N-Írland – Wales...................................... 0:0
Noregur 12, Wales 8, Hvíta-Rússland 3,
N-Írland 2, Færeyjar 0.
D-RIÐILL:
Pólland – Spánn........................................ 0:0
Spánn 7, Tékkland 6, Moldóva 3, Pólland
1, Aserbaídsjan 0.
E-RIÐILL:
Portúgal – Finnland................................. 1:1
Finnland 10, Skotland 6, Portúgal 4,
Kýpur 0, Albanía 0.
G-RIÐILL:
Austurríki – Kasakstan ........................... 9:0
Austurríki 12, Frakkland 6, Serbía 6,
Norður-Makedónía 3, Kasakstan 0.
H-RIÐILL:
Sviss – Rúmenía ....................................... 6:0
Belgía – Litháen ....................................... 6:0
Belgía 12, Sviss 12, Rúmenía 3, Króatía 3,
Litháen 0.
I-RIÐILL:
Grikkland – Írland ................................... 1:1
KNATTSPYRNA
HANDBOLTI
Spánn
Nava – Barcelona ................................ 24:39
Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir
Barcelona.
Danmörk
Kolding – GOG..................................... 25:28
Árni Bragi Eyjólfsson skoraði 3 mörk
fyrir Kolding en Ólafur Gústafsson komst
ekki á blað.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 1 mark
fyrir GOG en Arnar Freyr Arnarsson var
ekki í leikmannahóp liðsins. Viktori Gísla
Hallgrímssyni tókst ekki að verja skot.
Svíþjóð
Ystad IF – Sävehof ...............................34:26
Ágúst Elí Björgvinsson varði 2 skot í
marki Sävehof.
Skuru – Boden ..................................... 37:24
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 1 mark
fyrir Skuru.
Ungverjaland
Pick Szeged – Dabas ........................... 35:16
Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki í
leikmannahóp Pick Szeged.
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Baldur Sig-
urðsson hafði á mánudaginn fé-
lagaskipti úr Stjörnunni í FH. Mý-
vetningurinn hefur spilað fyrir
nokkur af stærstu liðum landsins en
hann vann titla með KR og Keflavík
fyrr á ferlinum. Hann er spenntur
fyrir nýrri áskorun og valdi FH
fram yfir önnur lið í efstu deild sem
höfðu samband.
„Mér finnst spennandi að vera
kominn í FH og gott að vera búinn
að ganga frá þessu. Í gegnum tíðina
hefur FH tvisvar haft samband við
mig og ég hef áður íhugað að ganga
til liðs við félagið enda sigursælasta
liðið á þessari öld. Ég er virkilega
ánægður með niðurstöðuna,“ sagði
Baldur þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann í gær og ónáðaði
hann við störf hjá Mannviti. Spurð-
ur um hvort hann hafi haft úr
mörgu að velja gat Baldur ekki neit-
að því en tók fram að hann vildi ekki
spila sig stóran eins og hann orðaði
það.
„Áhuginn var fyrir hendi. Sumar
fyrirspurnir afgreiddi ég strax og
þá frá liðum í neðri deildunum því
ég vildi sjá hvað væri í boði í efstu
deild. Það voru fimm lið úr úrvals-
deildinni sem hringdu í mig. Ég
ræddi við nokkur sem mér fannst
spennandi og ég valdi í raun á milli
tveggja liða þegar ég tók ákvörðun.
Það er ánægjulegt að þjálfarar
landsins hafi enn trú á mér.“
Ekki tímabært að hætta
Baldur lék með Stjörnunni þrjú
keppnistímabil en leiðir skildi nú í
haust. Stjarnan hefur fengið til sín
Ólaf Jóhannesson til að stýra liðinu
ásamt Rúnari Páli Sigmundssyni.
Áður var Baldri boðið að vera að-
stoðarþjálfari Rúnars en með einu
skilyrði sem Baldur var ekki tilbú-
inn að samþykkja á þessum tíma-
punkti.
„Rúnar boðaði mig á fund og bauð
mér starf sem aðstoðarþjálfari en
vildi ekki vera með spilandi aðstoð-
armann. Það hefði þá þýtt að ég
hefði lagt skóna á hilluna. Var þetta
daginn fyrir brúðkaupsferðina og ég
hugsaði málið í ferðinni. Fyrir mig
var heiður að fá þetta tilboð og væri
ég tilbúinn til að fara út í þjálfun þá
hefði þetta verið spennandi staður
til að byrja þann feril. En ég hugs-
aði þetta út frá því hvort ég væri
tilbúinn til að hætta að spila og
komst að þeirri niðurstöðu að svo
væri ekki. Þá var í raun ekki í boði
að vera í Stjörnunni.“
Baldur er 34 ára og hefur átt
langan feril en segir leikgleðina
vera til staðar og engin meiðsli hrjá
hann um þessar mundir.
Hitar vélina
„Ég vildi fara til þjálfara sem hef-
ur trú á mér. Metnaðurinn er enn til
staðar og ég vil spila alla leiki. Það
vantaði aðeins upp á það síðasta
sumar hjá Stjörnunni fannst mér.
Viðskilnaðurinn við Stjörnuna var
hins vegar góður að öllu leyti. Ég
þakkaði þeim fyrir samstarfið og nú
hefst nýr kafli. Ég mætti á æfingu í
gær og byrja núna að byggja mig
upp fyrir næsta sumar. Á þessum
aldri fer maður rólega og skyn-
samlega af stað. Ég trekki mótorinn
í gang og hita vélina áður en ég fer
á fullt. Nú er árstíminn til þess og
skrokkurinn er bara nokkuð góður,“
sagði Baldur Sigurðsson ennfremur
við Morgunblaðið.
Baldur lá undir feldi
í brúðkaupsferðinni
Hafnaði þjálfarastarfi hjá Stjörnunni Fimm úrvalsdeildarlið höfðu samband
Morgunblaðið/Eggert
Reyndur Baldur Sigurðsson í leik á móti FH í Garðabænum í ágúst. Hann klæðist nú hvítu og svörtu á vellinum.
Baldur Sigurðsson
» Fæddur 24. apríl 1985.
» Er genginn í raðir FH.
» Hefur leikið með Völsungi,
Keflavík, KR og Stjörnunni hér-
lendis. Bryne í Noregi og
SönderjyskE í Danmörku.
» Hefur leikið 251 leik í efstu
deild hérlendis og skorað 55
mörk.
» Baldur hefur fimm sinnum
oðið bikarmeistari með þremur
liðum, Keflavík, KR og Stjörn-
unni. Hann varð auk þess tví-
vegis Íslandsmeistari með KR.
» Á að baki 3 A-landsleiki.
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handknattleik, er
að sjálfsögðu í liði 12. umferðar í þýsku Bundesligunni
en hornamaðurinn fór á kostum í sigri Lemgo gegn Lud-
wigshafen um nýliðna helgi þegar umferðin var spiluð.
Bjarki Már skoraði 13 mörk úr 15 skotum og tyllti sér
á toppinn yfir markahæstu leikmenn deildarinnar.
Bjarki hefur skorað 97 mörk í 12 leikjum Lemgo í
deildinni á þessu tímabili sem þýðir að hann hefur skor-
að átta mörk að meðaltali í leik.
Þýski landsliðsmaðurinn Uwe Gensheimer, í liði
Rhein-Neckar Löwen, sem einnig er vinstri hornamað-
ur, er annar á listanum yfir markahæstu menn með 93
mörk. Daninn Hans Óttar Lindberg, fyrrverandi samherji Bjarka Más hjá
Füchse Berlín, er þriðji með 89 mörk en hann er einnig í liði umferð-
arinnar. Gensheimer og Lindberg eru þekktar markavélar í boltanum.
Bjarki Már gekk til liðs við Lemgo í sumar eftir nokkur ár í Berlín og
hefur heldur betur blómstrað hjá nýju liði. gummih@mbl.is
Bjarki í liði umferðarinnar
Bjarki Már
Elísson
Elvar Már Friðriksson átti stórleik
fyrir Borås þegar liðið tók á móti
Djurgården í efstu deild Svíþjóðar í
körfuknattleik í gær. Leiknum lauk
með öruggum sigri Borås, 108:80, en
Elvar gerði sér lítið fyrir og skoraði
27 stig og var stigahæsti leikmaður
vallarins.
Ásamt því að skora 27 stig gaf Elv-
ar átta stoðsendingar og þá tók hann
einnig eitt frákast á þeim 24 mínútum
sem hann spilaði. Borås er í efsta sæti
deildarinnar með 14 stig eftir fyrstu
átta leiki sína. bjarnih@mbl.is
Elvar fór
á kostum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lykill Elvar Már Friðriksson átti
stórleik í efstu deild Svíþjóðar.
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com