Morgunblaðið - 13.11.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.11.2019, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Önnur umræða um fjárlögnæsta árs fór fram á Al-þingi í gær. Fram kom ífjölmiðlum í gær að tekjur ríkisins lækka um 10,4 milljarða króna og verður ríkissjóður rekinn með halla í fyrsta sinn frá árinu 2012. Samkvæmt tillögum meirihluta fjárlaganefndar verður fjárveiting til nýbyggingar Landspítalans 3.500 milljónum minni á næsta ári en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi. Í nefndaráliti meirihluta fjár- laganefndar er rakið að sjúkra- húsþjónusta sé umfangsmesta mál- efnasvið ríkisins og heildarútgjöld þess séu áætluð 106 milljarðar króna á næsta ári. Gert er ráð fyrir um 1,8% raunvexti útgjalda annað árið í röð vegna lýðfræðilegrar þróunar, til að mynda öldrunar þjóðarinnar. Mikil hækkun útgjalda Kveðst nefndin hafa skoðað sér- staklega fjárhagsstöðu Landspít- alans en framlög til sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu hafi aukist um tæpa 13 milljarða króna frá árinu 2017 eða um 14%. „Ekki liggur fyrir nein einhlít skýring á þessari útgjaldaþróun en skýringa er m.a. að leita í aukinni hjúkrunarþyngd á undanförnum ár- um, m.a. vegna öldrunar þjóð- arinnar. Íbúum eldri en 67 ára hefur fjölgað um 7% frá árinu 2017 og með því eykst heilbrigðiskostnaður veru- lega. Þá hefur skortur á hjúkr- unarrýmum og heimahjúkrun leitt til þess að ekki er hægt að útskrifa sjúklinga af Landspítalanum með tilheyrandi kostnaði,“ segir í álitinu. Segir að um árabil hafi reynst erfitt að manna spítalann með hag- kvæmum hætti. „Hefur spítalinn farið í sérstök verkefni til þess að hækka laun hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra gegn því að þær taki á sig aukið starfshlutfall í vaktavinnu,“ en viðræður milli ráðuneyta um end- urmat á kostnaðarmati kjarasamn- inga hafi enn ekki skilað niðurstöðu. Í álitinu er rakið að fjárlaga- nefnd hafi sérstaklega kannað starfsmannakostnað Landspítalans frá 2014-2018. Niðurstaðan er að laun og annar starfsmannakostn- aður hafi hækkað um 19,1 milljarð á tímabilinu. Nemur hækkunin 55% en á sama tíma hafi launavísitala hækkað um 36%. Ársverkum hafi fjölgað úr 3.733 í 4.290 eða um 15% á tímabilinu. „Ef ársverkum hefði ekki fjölgað er hlutfallsleg hækkun starfsmannakostnaðar í samræmi við þróun launavísitölunnar. Nefnd- in telur mikilvægt að greina þró- unina eftir einstökum starfsstéttum og brýnt að heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við Landspítala skilgreini þær lykilupplýsingar um fjárhag og starfsemi spítalans sem nauðsyn- legar eru til þess að geta betur fylgst með útgjaldaþróun til að unnt verði að bregðast tímanlega og fyrr við breyttum aðstæðum,“ segir í áliti meirihluta fjárlaganefndar. Morgunblaðið reyndi í gær að fá viðbrögð stjórnenda Landspít- alans við þessum upplýsingum. Ekki náðist í Pál Matthíasson forstjóra. Betur verði fylgst með útgjöldum Landspítala Morgunblaðið/Golli Landspítali Laun og starfsmannakostnaður hefur hækkað um 19 milljarða. Niðurskurður og aukið álag Fulltrúar minnihluta í fjárlaga- nefnd hafa líka skilað áliti sínu á frumvarpi til fjárlaga. Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylk- ingar, bendir í sínu áliti á að ósamið sé við þorra starfsfólks í heilbrigðis- þjónustu. „Aðhaldsaðgerðir í formi lægri launabóta á árunum 2020-2022 munu koma verst niður á heilbrigðis- og velferðarþjónustunni sem þegar er víða undirmönnuð. Að auki glíma sjúkrahúsin enn við vanda vegna vangreiddra launabóta í kjölfar kjarasamninga frá árinu 2015 sem hafa umtalsverð áhrif á reksturinn. Óásættanlegt er að fjármagna eigi kjarabætur til heilbrigðisstarfs- manna með niðurskurði á þjónustu og auknu álagi á starfsfólk,“ skrifar Ágúst. Í minnihlutaáliti Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, segir að ráðast þurfi í átak til að efla mönnun og rekstur heilbrigðiskerfisins. „Bráða- móttaka Landspítalans ræður ekki við það álag sem á henni hvílir. Við þurfum að stórefla starfsemi hennar. Daglega dvelur þar fjöldi sjúklinga sem ekki er hægt að vísa í viðeigandi úrræði vegna plássleysis eða mann- eklu. Vandi á bráðamóttöku er þó aðeins alvarlegasta birtingarmynd þess víðtæka vanda sem heilbrigðiskerfið glímir við. Það þarf að endurnýja tækjabúnað, fjölga starfsmönnum, bæta húsnæði og auka þjónustu á öll- um sviðum heilbrigðiskerfisins. Þá þarf að efla sjúkraflutninga til muna,“ segir Inga sem vill auka útgjöld til sjúkrahúsþjónustu um fimm milljarða á næsta ári. Vill fimm milljarða í viðbót MINNIHLUTAÁLIT INGU SÆLAND 14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ekki er langtsíðan þaðvirtist inn- an seilingar að tækist að þurrka út mislinga en á undanförnum misserum hefur það markmið fjarlægst á ný. Meðal ástæðna fyrir þessu er tortryggni í garð bólusetninga og trúar- brögð. Dauðsföllum af völdum mislinga hefur fækkað um 80% frá aldamótum. Sjúkdóm- urinn hefur hins vegar tekið við sér á ný. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs greindust 112 þúsund staðfest tilfelli af mislingum í heiminum, 700% fleiri en á sama tíma í fyrra. Árið 2000 var lýst yfir því að mislingum hefði verið út- rýmt í Bandaríkjunum. Þar hefur tilfellum fjölgað talsvert og var talað um faraldur í New York. Í október var síðan greint frá því að tekist hefði að stöðva útbreiðsluna þar, þótt um leið kæmi fram að fleiri hefðu sýkst af sjúk- dómnum á þessu ári, en nokkru sinni síðan 1992. Halda Bandaríkin því þeirri stöðu að sjúkdómnum hafi verið útrýmt. Til þess að missa hana þarf tiltekinn far- aldur af sjúkdómnum að hafa geisað í meira en ár. Hins vegar hafa nokkur ríki misst þessa stöðu. Bara á síð- asta ári voru það Albanía, Bretland, Grikkland, Tékk- land, Vensúela og Brasilía. Í liðinni viku birtust niður- stöður rann- sóknar, sem sýnir að þegar börn fá mislinga veikist ónæmiskerfi þeirra. Samkvæmt rannsókn- inni eyðir mislingaveiran mót- efnum, sem orðið hafa til við fyrri sýkingar, þurrkar í raun út ónæmisminnið, eins og það var orðað í fréttaskýringu í Morgunblaðinu á fimmtudag. Óvenjumörg smit hafa einn- ig greinst hér á landi, nú síð- ast í Reykjavík í júlí. Í febr- úar smituðust sjö einstaklingar hér á landi af mislingum. Barst sjúkdóm- urinn hingað með manni, sem hafði smitast í útlöndum. Á þessu ári hafa 5.500 manns fæddir 2000 og fyrr fengið bólusetningu við mislingum, svokallaða MMR-sprautu, sem einnig er við hettusótt og rauðum hundum. 2018 kom fram 98% barna undir aldr- inum 18 mánaða hefðu fengið MMR-sprautu. Lítill hópur hefur dregið þessar bólusetningar í efa. Fjöldi rannsókna og kannana hefur sýnt að rökin gegn þeim standast ekki. Mikilvægi bólusetninga fer ekki á milli mála. Rannsóknin, sem sýnir að mislingar þurrka út ónæmisminni líkamans, sýnir að meira er í húfi en áð- ur var haldið. Ný rannsókn sýnir að sjúkdómurinn þurrkar út ónæm- isminni líkamans} Mislingar og bólusetningar Spánn gekk ígegnum sínar fjórðu kosningar á fjórum árum um síðustu helgi. Ekki verður séð að losn- að hafi um þráteflið í spænskum stjórnmálum við það. Sósíalistaflokkur Pedro Sánchez forsætisráðherra hélt sínu fylgi í kosningunum að mestu en tapaði þó þremur mönnum. Í gær tilkynnti Sánchez að hann hefði náð samkomulagi við Podemos-flokkinn, sem liggur lengst til vinstri, um að þeir myndu standa saman að stjórnarmyndunartilraun á Spáni. Nýi samstarfsflokkurinn tapaði 10 þingmönnum í kosn- ingunum svo varla er hægt að segja þessa niðurstöðu í takt við úrslitin. Ekki síst vegna þess að eftirminnilegustu um- mæli Sánchezar í kosningabar- áttuni voru þau „að hann myndi aldrei sofa rólegur ef hann neyddist til að hafa þingmenn frá Podemos með sér í stjórn“. En vandinn er sá að þótt PP- flokkurinn, hefð- bundni stórflokkurinn hægra megin, hafi bætt vel við sig í þingmannafjölda núna er það viðmiðun við erfið úrslit flokks- ins að undanförnu. PP er enn fjarri sinni fyrri stöðu. Nýr flokkur, Vox, sem sjálfur kenn- ir sig m.a. við jafnaðarmennsku en fjölmiðlar segja hægri sinn- aðan öfgaflokk, vann mjög á í kosningunum og telst nú þriðji stærsti flokkur Spánar. Ekki verður það þó lesið út úr úrslit- unum að þar birtist hávært ákall um að fyrrnefndir flokkar hægra megin við miðju myndi nýja stjórn. Stjórnmálaástandið er því síst tryggara eftir enn einar kosningar á Spáni og við bætist sívaxandi ólga í Katalóníu. Fjórðu þingkosn- ingar á Spáni á fjórum árum bættu ekki stöðuna} Kosningar leystu ekkert U m þessar mundir eru 30 ár liðin frá falli Berlínarmúrsins. Múr- inn var öðru fremur tákn um mannvonsku og grimmd og í raun birtingarmynd sósíalism- ans. Með falli hans leið undir lok hug- myndafræði sem haldið hafði þjóðum Austur- Evrópu föngnum áratugum saman. Á sama tíma blómstraði efnahagur flestra ríkja vestan járntjaldsins. Íbúar Austur-Þýskalands, Ung- verjalands, Tékklands, Póllands, Eystrasalts- ríkjanna, Rúmeníu og fleiri landa fylgdust að sjálfsögðu með þeirri þróun en fengu lítið að gert. Með reglulegu millibili minntu stjórnar- herrarnir í Kreml á hervald sitt og brutu alla sjálfstæðistilburði á bak aftur með ofbeldi og vopnavaldi. Berlín 1953, Búdapest 1956 og Prag 1968. Þessi tímamót kalla fram upprifjun af þessu tagi. Á þeim árum sem liðin eru frá falli múrsins hafa þjóðir Austur-Evrópu losnað úr fjötrum sovéska heims- veldisins. Sovétríkin sjálf eru liðin undir lok. Margar þessara þjóða hafa öðlast nýtt líf og blómstra í fjöl- þjóðlegu samstarfi. Í mjög mörgum tilvikum búa þær nú við sömu eða svipuð kjör og þjóðir Vestur-Evrópu. Íbú- arnir ferðast frjálsir til annarra landa og fólk úr öðrum ríkjum ferðast til þessara landa án takmarkana eða af- skipta einræðisherranna. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að fyrir aðeins 30 ár- um hafi íbúar á meginlandi Evrópu átt það á hættu að vera teknir af lífi fyrir það eitt að ætla sér að flytja á milli borgarhluta. Til eru óteljandi heimildir um líf almennings undir stjórn al- ræðisherranna sem stjórnuðu Austur- Þýskalandi á þessum tíma, hvernig fylgst var með fólki, hvernig nágrannar voru fengnir til að njósna um og klaga hver annan, hvernig ríkisvaldið stýrði allri neyslu og hegðun og þannig mætti áfram telja. Upprifjun þessa tíma er mikilvæg áminn- ing um það að hugmyndafræði sósíalismans verður aldrei haldið við öðruvísi en með her- valdi og ofbeldi gagnvart almenningi. Fall Berlínarmúrsins var mikilvægur viðburður í sögunni og einhver hefði haldið að eftir hann og hrun Sovétríkjanna nokkrum árum síðar hefði sósíalisminn talist fullreyndur. Því mið- ur höfum við þó yngri dæmi, t.d. í Venesúela. Sósíalisminn hefur alltaf – og mun alltaf – skerða frelsi einstaklinganna. Það ríki er ekki til þar sem sósíalisminn hefur fært almenningi aukna hagsæld til lengri tíma. Enn er reynt að selja okkur hugmyndir um ágæti sósí- alismans. Jafnvel þótt hugmyndafræðin sé sett í nýjan búning og skreytt ýmsum mýtum um betra líf almenn- ings þá vitum við sem er að hún virkar ekki. Þess vegna megum við aldrei gefast upp í baráttunni fyrir auknu frelsi og frjálsum mörkuðum. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Sósíalisminn er fullreyndur Höfundur er dómsmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.