Morgunblaðið - 13.11.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019
EKKIMISSAAF SÝNINGUÁRSINS
Allra síðustu sýningar komnar í sölu
6 Grímuverðlaun
borgarleikhus.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Frú Lauga hefur þurft að ganga í
gegnum sín vandamál eins og aðrir
og nú er tímabært að einhver annar
taki við boltanum,“ segir Elías Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
bændamarkaðarins Frú Laugu við
Laugalæk.
Eigendur Frú Laugu hafa ákveðið
að selja verslunina. Á Facebook-síðu
hennar segir að um skemmtilegt
tækifæri sé að ræða fyrir matgæð-
inga, samheldin hjón eða vini til að
eignast eigin verslun.
Elías rekur Fisherman á Suður-
eyri og við Hagamel í Reykjavík.
Hann segir að Björg Bergsveins-
dóttir, einn af stofnendum og núver-
andi eigandi Frú Laugu, sé með sér í
rekstri Fisherman og þau ætli að ein-
beita sér að þeim rekstri. „Verðið er
mjög sanngjarnt. Þetta eru engar
skýjaborgir,“ segir Elías þegar hann
er spurður um verðmiðann á Frú
Laugu.
Rúm tíu ár eru síðan verslun Frú
Laugu var opnuð. Naut hún strax
mikilla vinsælda og passaði vel inn í
andrúmsloftið í samfélaginu eftir
efnahagshrunið. Þá horfðu margir
inn á við og fögnuðu því að geta nálg-
ast lífrænar vörur og gæðafram-
leiðslu frá íslenskum bændum. Um
skeið var Frú Lauga líka með versl-
un í miðbæ Reykjavíkur og kaffihús í
Listasafni Reykjavíkur.
Frú Lauga er á lausu
Morgunblaðið/Eggert
Frú Lauga Hin vinsæla verslun við Laugalæk er til sölu. Verslunin hefur verið
rekin við góðan orðstír frá sumrinu 2009. Verðið er sagt vera sanngjarnt.
Til sölu fyrir
sanngjarnt verð
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Greint var frá framkvæmdum við
Hagatorg í Vesturbæ Reykjavíkur í
Morgunblaðinu 8. nóvember sl. Er
meðal annars búið að þrengja akst-
ursleið ökutækja um hringtorgið,
koma fyrir gönguþverunum á tveim-
ur stöðum og strætóskýli. Staðsetn-
ing skýlisins, sem sjá má á meðfylgj-
andi mynd, hefur vakið nokkra
athygli, en það stendur á nýju hellu-
lögðu plani sem teygir sig langt inn á
gömlu akstursleiðina um torgið. Þetta
veldur því að strætó þarf nú að stoppa
á akstursleiðinni til að hleypa farþeg-
um inn og út úr vagninum. Að sama
skapi þarf sú umferð sem á eftir kem-
ur einnig að stoppa. Að stöðva öku-
tæki á hringtorgi er, samkvæmt um-
ferðarlögum, ekki heimilt.
Samkvæmt g-lið 1. mgr. 28. gr. um-
ferðarlaga, nr. 50/1987, má eigi stöðva
ökutæki eða leggja því á hringtorgi.
Ekki verður séð að lögin geri ráð fyrir
að heimilt sé að víkja frá umræddu
ákvæði í því tilviki sem hér um ræðir.
Morgunblaðið sendi Reykjavíkur-
borg fyrirspurn sl. mánudag þar sem
óskað var eftir skýringum á þessu og
meðal annars spurt hvort til greina
komi að færa strætóskýlið. Í svari
borgarinnar, sem barst í gærkvöldi,
segir að ekki sé „um hefðbundið
hringtorg að ræða, Reykjavíkurborg í
samráði við lögreglu er að skoða
hvaða breytingar þarf mögulega að
gera á umferðarmerkingum við
Hagatorg til að staðfesta það“.
Þá segir einnig í svari Reykjavík-
urborgar að umrætt strætóskýli sé
„staðsett með nýja gönguþverun,
öryggi óvarinna vegfarenda og að-
gengi þeirra í huga“.
Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri í
umferðardeild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, hafði ekki heyrt af
málinu þegar Morgunblaðið leitaði til
hans. Sagði hann lögreglu þó þurfa að
skoða málið og koma viðeigandi
ábendingum á framfæri við Reykja-
víkurborg.
„Ég er dálítið hissa á því að heyra
þetta, en þetta er eitthvað sem við
þurfum að skoða. Og eftir atvikum
koma þeim ábendingum til borgar-
innar að framfylgja þeim reglum sem
við á,“ segir Árni.
Óskiljanleg ákvörðun borgar
Ólafur Kr. Guðmundsson, sérfræð-
ingur í umferðaröryggismálum, segir
ljóst að Reykjavíkurborg sé að brjóta
lög með því að neyða strætó til þess
að stoppa á akstursleið um hringtorg-
ið. Segist hann ekki eiga von á öðru en
að borgin verði að flytja skýlið á ann-
an og betri stað.
„Þeir eru að brjóta núgildandi um-
ferðarlög með þessu, en þess utan er
sú ákvörðun að láta strætó stoppa á
miðju hringtorgi óskiljanleg, það er
ekki eins og það vanti pláss þarna,“
segir hann og bendir á að vel væri
hægt að hafa skýlið staðsett á Birki-
mel, um 100 metra frá núverandi
staðsetningu. Sá strætisvagn sem
stoppar að óbreyttu á hringtorginu
keyrir hvort eð er næst inn Birkimel.
Þá segir Ólafur afar sérstakt að
koma fyrir tveimur gönguþverunum
við hringtorgið og beina þannig um-
ferð gangandi fólks þar um.
„Þetta hlýtur að vera einstakt á
heimsvísu – gangbraut þvert yfir
hringtorg. Ég hef bara aldrei séð
neitt þessu líkt,“ segir hann.
Er ekki „hefðbundið“ hringtorg
Ný staðsetning á strætóskýli við Hagatorg í Vesturbæ neyðir strætó til að stoppa á akstursleið um
hringtorgið Ekki heimilt samkvæmt lögum Borgin segir torgið vera ólíkt öðrum hringtorgum
Morgunblaðið/RAX
Vandræðagangur Strætó þarf að stoppa á akstursleið um Hagatorg þvert á lög. Borgin vill þó ekki færa skýlið.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Laun félagsmanna í Rafiðnaðarsam-
bandi Íslands (RSÍ) hafa hækkað á
bilinu 3,8-6,0% á milli ára. Þetta má
lesa út úr niðurstöðum kjarakönn-
unar sem Gallup gerði í október þar
sem spurt var um laun í september.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður RSÍ, segir að meðalhækk-
un dagvinnu/grunnlauna hjá flestum
sé 3,8% milli ára. Meðaltal mánaðar-
launa nú var 621 þúsund en var 598
þúsund 2018. Meðaltal heildarlauna
sama hóps var 774 þúsund nú en 758
þúsund 2018. Kristján segir að sam-
anburður á milli ára sýni að mán-
aðarlaun í dagvinnu í byggingariðn-
aði hafi hækkað úr 507 þúsund 2018 í
539 þúsund eða 6,3%. Það er í raun
tekjulægsti hópurinn, að hans sögn.
Meðaltal launa í flokknum „fjar-
skipti eða fjölmiðlun“ voru 622 þús-
und fyrir ári en 652 þúsund nú sem
samsvarar 4,8% hækkun.
Kristján segir að skrifað hafi verið
undir almenna samninginn í byrjun
maí. Síðan þá hefur verið lokið við tíu
kjarasamninga, m.a. við HS Orku,
Norðurorku og Landsvirkjun. Eftir
er að ljúka 14 samningum, m.a. við
stóriðjufyrirtæki og mörg orkufyr-
irtæki eins og RARIK, Landsnet,
Orkuveitu Reykjavíkur og dóttur-
fyrirtæki hennar, HS Veitur, Ísal,
Alcoa, Norðurál og Elkem.
„Meginþorri félagsmanna er samt
kominn með endurnýjaðan samn-
ing,“ sagði Kristján. Hann segir að
samingarnir byggist allir á sömu
meginreglum en einnig sé samið um
breytingar á ýmsum ákvæðum
kjarasamnings hvers vinnustaðar.
Alls fengust 1.624 svör sem sam-
svarar 34% þátttöku í könnuninni.
Hækkun á bilinu
3,8-6,0% milli ára
Niðurstaða launakönnunar RSÍ birt