Morgunblaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019 Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán.–Fim. 09–18 Föstudaga 09–17 Laugardaga 11–15 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hrunamannahreppur er eina sveit- arfélagið sem lýsir sig jákvætt til at- hugunar á sameiningu sveitarfélag- anna í Árnessýslu sem bæjarráð Árborgar vill beita sér fyrir. Sveit- arstjórnir fimm sveitarfélaga hafa ekki áhuga á slíkri vinnu. Árborg og Hrunamannahreppur liggja ekki saman og heldur ekki Hveragerði sem ekki hefur svarað og er því nokkuð ljóst að ekkert verður af um- ræddri athugun. Íbúum í sveitarfélögunum í Árnes- sýslu hefur fjölgað mjög á undan- förnum árum. Þar búa nú tæplega 18 þúsund manns og er rúmlega helm- ingur í Sveitarfélaginu Árborg. Sam- einað sveitarfélag yrði 6. stærsta sveitarfélag landsins, töluvert fjöl- mennara en Garðabær, og miðað við þróunina yrði ekki langt í að það næði Reykjanesbæ og Akureyri. Yrði öflugra sveitarfélag Sveitarfélögin eiga með sér sam- starf á ýmsum sviðum, ýmist öll eða hluti þeirra. Í bréfi bæjarstjórans í Árborg þar sem lagt er til að samein- ing verði könnuð er bent á að sam- einað sveitarfélag kunni að vera bet- ur í stakk búið til þess að takast á við stór verkefni í skipulagi og framþró- un og sífellt stærri og viðameiri verkefni sveitarfélaga. Eggert Valur Guðmundsson, for- maður bæjarráðs Árborgar, lagði til- löguna fram. „Það er að halla að því að kjörtímabilið verði hálfnað og komið er fram frumvarp á Alþingi um breytingar á íbúafjölda sveitarfé- laga. Þetta tvennt ýtti á að við lögð- um til að þetta yrði kannað. Svo er komið nýtt fólk í sveitarstjórnirnar og við töldum rétt að láta á þetta reyna,“ segir Eggert. Eggert Valur segir ekki komin svör frá sveitarstjórnunum en málið verið tekið fyrir að nýju þegar þau liggja fyrir. Sveitarstjórn Hruna- mannahrepps bókaði að hún væri til í að taka þátt í viðræðum og skoða möguleika sameiningar. Bæjarstjórn Ölfuss lýsir sig ekki reiðubúna til sameiningar, að svo stöddu. Í bók- uninni kemur fram pirringur í garð bæjarfulltrúa Árborgar en þeir hafa ekki viljað samþykkja að Héraðs- skjalasafni Árnessýslu yrði fundin ný aðstaða í Þorlákshöfn. Fjögur sveitarfélög, Grímsnes- og Grafn- ingshreppur, Bláskógabyggð, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Flóahreppur, telja ekki tímabært að hefja viðræður eða segja að ekki sé forsenda til slíks nema öll taki þátt. Bæjarstjórn Hveragerðis fundar í dag og verður erindi Árborgar þá væntanlega á dagskrá. „Það eru ákveðin vonbrigði ef menn vilja ekki taka umræðuna, hvað svo sem hefði komið út úr henni,“ segir Eggert Valur Áður reynt á sameiningu Öll sveitarfélögin í Árnessýslu létu vinna skýrslu um kosti og galla sam- einingar á árunum 2016 og 2017 en ekki reyndist áhugi á að halda áfram með málið. Áður hafa ýmsar tilraun- ir verið gerðar en ekkert orðið úr. Í sameiningarátaki á árinu 2010 lögðu stjórnvöld til að Árnessýsla samein- aðist eða yrði tvö sveitarfélög þar sem Ölfus og Hveragerði yrðu eitt en hin sameinuðust Árborg. Fjórum ár- um síðar var gerð skoðanakönnun í Hveragerði sem leiddi í ljós að fólk hafði mestan áhuga á að sameinast Ölfusi. Sú ást var ekki endurgoldin. Vilja ekki sameina Árnessýslu  Fimm hreppar hryggbrjóta Árborg  Hrunamannahreppur til í viðræður Íbúar í Árnessýslu Heimild: hagstofa.is Hrunamannahreppur Íbúar: 786 Sveitar félagið Ölfus Íbúar: 2.153 Skeiða- og Gnúpverjahreppur Íbúar: 626 17.959 búa í Árnessýslu Vilja ræða sameiningar: Já Nei Óafgreitt Sveitarfélagið Árborg Íbúar: 9.485 Bláskógabyggð Íbúar: 1.121 Hveragerði Íbúar: 2.628 Grímsnes- og Grafningshreppur Íbúar: 493 Flóahreppur Íbúar: 667 „Það er alltaf áhugi á þessum skræðum og á þessum netuppboðum fáum við oft nýja kúnna,“ segir Ari Gísli Bragason bóksali. Nú stendur yf- ir veglegt bóka- uppboð á vefnum Uppboð.is. Það er afrakstur sam- starfs verslunar- innar Bókarinnar og Foldar upp- boðshúss. Á upp- boðinu, sem lýk- ur á sunnudag, er að finna um 150 bækur sem Ari Gísli hefur valið sér- staklega. Hægt er að skoða gripina í Gallerí Fold meðan á uppboðinu stendur. Ari segir í samtali við Morg- unblaðið að eftirtektarverðasti grip- urinn sé sennilegast fyrsta útgáfa Sturlunga sögu frá 1809, bæði bind- in, en þau hafa verið bundin inn í fal- legt roðskinnsband. Verðmat er 150 þúsund krónur. „Ég á von á því að það verði einhver sláttur í kringum hana,“ segir Ari en um hádegisbil í gær höfðu nokkur boð þegar borist, það hæsta upp á 120 þúsund krónur. Fyrsta útgáfa Njálu verður einnig boðin upp sem og ýmsar gamlar út- gáfur af íslenskum biblíum. Má þar nefna Reykjavíkurbiblíuna frá 1869 og svokallaða Weisshús-biblíu sem er með þeim elstu sem komu út á ís- lensku og prentuð í Kaupmanna- höfn árið 1747. Ari segir að á uppboðinu sé að finna mikið af fallegum og fágætum ljóðabókum, til að mynda eftir Einar Benediktsson, Dag Sigurðarson og Stein Steinarr. Ljóðabók eftir Hann- es Hafstein, sem var hans fyrsta bók, er einnig boðin upp í vönduðu skinnbandi. hdm@mbl.is Sturlungasaga á 150.000 krónur  Veglegt bókauppboð hafið á vefnum Sturlunga saga Búist er við því að bitist verði um þetta eintak. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vaktstöð siglinga í stjórnstöð Land- helgisgæslunnar fær nú upplýsingar úr sjálfvirku auðkenningarkerfi skipa, AIS-kerfinu, úr gervihnöttum Evrópusambandsins beint inn á vöktunarskjái. Með þessu móti fást upplýsingar um skip á öllu leitar- og björgunarsvæði Íslands og allri efnahagslögsögunni og einnig ná- kvæmari upplýsingar en áður um báta á skuggasvæðum við landið. Sjálfvirk tilkynningarskylda skipa hefur verið rekin hér í allmörg ár, síðustu árin með AIS-kerfinu sem er alþjóðlegt auð- kenningarkerfi skipa. Kerfið byggist á land- stöðvum sem Neyðarlínan rek- ur. Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmda- stjóri aðgerða hjá Landhelgisgæsl- unni, segir að öll- um íslenskum skipum sé skylt að vera með slíka móttakara og senda og einnig séu mörg erlend skip sem hingað koma með þannig búnað. Ís- lenska kerfið er með þeim takmörk- unum að það nær almennt ekki nema út í 35-40 sjómílur. Landhelgisgæslun hefur fengið aðgang að alþjóðlega AIS-kerfinu í gegn um Siglinga- og öryggisstofnun Evrópu sem er stofnun á vegum Evrópusambandsins. Fyrst hafði stjórnstöð Gæslunnar netaðgang að þessum upplýsingum sem hægt var að grípa til ef þörf var á en nú koma upplýsingarnar inn á vöktunarskjái vaktstöðvarinnar ásamt upplýs- ingum úr íslenska kerfinu og öðrum þeim skipaupplýsingum sem nýtast. Ásgrímur segir að verið sé að reyna að stilla tækin þannig að fram komi aðeins þær upplýsingar sem þörf er á. „Núna dekkar þetta allt íslenska leitar- og björgunarsvæðið,“ segir Ásgrímur. Svæðið nær suður af Hvarfi, upp með austurströnd Grænlands, norður fyrir Jan Mayen, að 0-lengdarbaugnum, suður fyrir Færeyjar og þaðan aftur í átt að Hvarfi. Færri óþarfa útköll Ekki hefur reynt á kerfið í alvar- legum sjóslysum. „Allar upplýsingar eru af hinu góða. Gervihnattakerfið hjálpar okkur að finna báta sem við missum af á skuggasvæðum í land- kerfinu. Við þurfum þá ekki að kalla út björgunarbáta Landsbjargar eða þyrlu, eins og okkur er skylt, þegar við náum ekki í bátana. Þessum út- köllum hefur því snarfækkað.“ Norðmenn hafa unnið mikið þró- unarstarf í sjálfvirku auðkenning- arkerfi, bæði hvað varðar tækni og rekstur, í samvinnu við einkafyrir- tæki og Evrópsku geimferðastofn- unina sem Norðmenn eiga aðild að. Það nýtist öðrum þegar fram í sækir. Yfirlit um allt leitarsvæðið Morgunblaðið/Árni Sæberg Leiðangri lokið Starfsmenn Landhelgisgæslunnar sinna ýmsum verk- efnum. Hér er léttabátur að snúa aftur úr eftirlitsleiðangri að varðskipi.  Upplýsingar úr gervihnöttum hjálpa Ásgrímur L. Ásgrímsson Ari Gísli Bragason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.