Morgunblaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
Leikarinn Júlí
Heiðar Hall-
dórsson leikur
Melcior í söng-
leiknum Vorið
vaknar sem
Leikfélag Akur-
eyrar setur upp
í janúar nk.
Júlí Heiðar út-
skrifaðist sem
leikari frá
Listaháskóla Íslands árið 2018.
Hann lék m.a. í kvikmyndinni
Webcam, hefur tekið þátt í upp-
færslum Borgar- og Þjóðleikhúss-
ins og sér auk þess um fræðslu-
þættina KLINK sem sýndir eru á
RÚV Núll og fjalla um fjármál fyr-
ir ungt fólk
Söngleikurinn Vorið vaknar
fjallar um afturhaldssamt og
þröngsýnt samfélag 19. aldar, seg-
ir í tilkynningu frá LA. Uppfærsla
söngleiksins á Broadway árið 2006
hlaut átta Tony verðlaun og þar á
meðal sem besti nýi söngleikurinn.
Uppsetningin vann þar að auki
fjölda annarra verðlauna og til-
nefninga og hefur farið sigurför
um heiminn. Er verkið nú sett upp
í íslensku atvinnuleikhúsi í fyrsta
sinn.
Júlí er
Melcior
Ráðinn til LA
Júlí Heiðar
Halldórsson
unarvarnir og um öryggismál.
Enn fremur geri starfshópurinn
úttekt á lagaumhverfinu og skil-
greini reglur þar um.
„Þeir sem þjónusta skemmti-
ferðaskip hafa kallað eftir reglu-
verki og stefnumótun varðandi
komur þeirra til Íslands. Enn sem
komið er hefur engin heildstæð
opinber stefna verið mótuð um
móttöku slíkra skipa á Íslandi,“
segir m.a. í greinargerðinni.
Starfshópurinn á að skila
skýrslu með tillögum til ráðherra
eigi síðar en 1. september 2020.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ellefu þingmenn úr fjórum flokk-
um á Alþingi hafa flutt þingsálykt-
unartillögu um gerð stefnu um
móttöku skemmtiferðaskipa á Ís-
landi. Fyrsti flutningsmaður er
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar.
Fram kemur í greinargerð með
tillögunni að ör vöxtur hafi orðið í
íslenskri ferðaþjónustu undanfarin
ár en einna hraðastur hafi hann
verið í umferð skemmtiferðaskipa
og þjónustu við þau. Rekstur
skemmtiferðaskipa sé margbrot-
inn. Alls taka 22 hafnir víðs vegar
á Íslandi á móti skemmti-
ferðaskipum. Langstærstar eru
Sundahöfn, Akureyrarhöfn og Ísa-
fjarðarhöfn.
Á vefsíðunni Mælaborð ferða-
þjónustunnar, sem Stjórnstöð
ferðamála heldur úti, komi fram
að undanfarin ár hafi komum
skemmtiferðaskipa til landsins
fjölgað mikið því að skipakomur
voru 284 árið 2014 en 725 árið
2018. Það sem af er árinu 2019
hafa 864 skipakomur verið skráð-
ar.
Í tillögunni er lagt til að Alþingi
feli ferðamála-, iðnaðar- og ný-
sköpunarráðherra að skipa starfs-
hóp til að móta stefnu um móttöku
skemmtiferðaskipa á Íslandi í
samráði við aðra ráðherra. Við
skipan í starfshópinn verði tryggt
að helstu hagsmunaaðilar eigi sæti
í hópnum.
Starfshópurinn móti stefnu um
móttöku skemmtiferðaskipa á Ís-
landi þar sem tekið verði á fjár-
hagslegum, samfélagslegum og
umhverfislegum áhrifum skipanna.
Jafnframt fjalli starfshópurinn
sérstaklega um þætti eins og land-
töku utan hafna, kröfur um meng-
Morgunblaðið/Ómar
Sundahöfn Mörg skip hafa nú þegar boðað komu sína hingað sumarið 2020.
Skemmtiferðaskip
hafa komið til 22
hafna víða um land
Öll stærstu skemmtiferðaskipin
og flest þau minni koma til
Reykjavíkur á hverju sumri.
Þeim hefur fjölgað með
hverju árinu. Nú þegar hafa
rúmlega 80 skip tilkynnt komu
sína til Reykjavíkur sumarið
2020. Skipakomur eru skráðar
195 og fjöldi farþega og áhafna
er tæplega 300 þúsund. Vænt-
anlega munu fleiri skip tilkynna
komu sína þegar nær dregur
sumri.
Mörg skip
hafa pantað
SUMARIÐ 2020
Stefna verði mótuð um móttöku
Alþjóðlegi sykursýkisdagurinn er í
dag. Af því tilefni standa Lionsmenn
fyrir blóðsykursmælingum í apótek-
um og heilsugæslustöðvum víða um
land.
Einnig standa Samtök sykur-
sjúkra, í samráði við fyrirtækið Ret-
inaRisk, fyrir málþingi á Bryggjunni
Brugghúsi á Granda kl. 17 í dag. Á
málþinginu verður einblínt á sjálfs-
eflingu einstaklingsins, sem talin er
skipta sköpum fyrir þá sem eru með
sykursýki.
Á málþinginu mun Guðni Ágústs-
son, fyrrverandi ráðherra, fjalla um
hvernig honum tókst með mikilli elju
og breyttum lífsstíl að koma í veg
fyrir að fá sykursýki 2 eftir að hafa
verið greindur með forstigseinkenni
sykursýki. Þá mun Ólafur Magnús-
son frumkvöðull, sem er með sykur-
sýki 1, deila sinni sögu og gefa góð
ráð varðandi góða sjálfsumönnun.
Talið er að það séu um 430 millj-
ónir einstaklinga með sykursýki í
heiminum í dag en búist er við að
fjöldinn verði kominn í 600 milljónir
árið 2045.
Lionsmenn munu einnig kynna
smáforritið RetinaRisk, sem gerir
fólki kleift að meta einstaklings-
bundna áhættu sína á að fá sjón-
skerðandi augnsjúkdóma. Forritið
var þróað með íslenskum læknum og
vísindamönnum.
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Mælingar Lionsmenn bjóða upp á
mælingar á blóðsykri í dag.
Dagur
sykur-
sjúkra
Lions með blóð-
sykursmælingar
S
V
I
#
H
I
N
N
S
A
E
NNN
I
ÞÚ FINNUR GJAFIR
FRÁ HINUM SANNA
SVEINKA INNI Í OG
UTAN Á DAGATALINU
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is