Morgunblaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
350 kr.kg
Folaldahakk
Folaldakjöt
af nýslátruðu
1999 kr.kg
Folaldagúllas
2199 kr.kg
Folalda Piparsteik innralæri
... hjá ok
ku
r
í
d
a
g
H
já
b
ó
nd
a í gær ...
Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Það fer enginn út að gangabara til að ganga, sagðifrændi minn eitt sinn.
Vissulega var það þannig hér áður
fyrr að líkamleg hreyfing var svo
mikil og almenn að mikilvægara
þótti að hvíla sig en að hreyfa sig
„án tilgangs“. Mikið vatn hefur
runnið til sjávar síðan þá og kyrr-
seta almennings orðin áhyggjuefni
í þjóðfélaginu vegna slæmra áhrifa
hennar á heilsu. Enda vísa rann-
sóknir til þess að takmörkun kyrr-
setu og að stunda reglubundna
hreyfingu hafi ótvíræða kosti fyrir
almenna heilsu og vellíðan.
Aukið úthald við leik og störf
Mikilvægi hreyfingar nær ekki
aðeins til barna og unglinga held-
ur fólks á öllum aldri. Með hækk-
andi aldri dregur smám saman úr
líkamlegri og andlegri getu og
færni minnkar. Með reglulegri
hreyfingu hægist á einkennum
öldrunar. Andlegur og líkamlegur
styrkur eykst sem og þol, liðleiki
og jafnvægi. Aukið úthald verður
við leik og störf og fólk getur búið
lengur heima.
Góðu fréttirnar eru þær að það
er aldrei of seint að byrja að
hreyfa sig þótt aldur og færni sé
misjöfn. Samkvæmt ráðleggingum
Landlæknis er eldra fólki ráðlagt
að stunda miðlungserfiða hreyf-
ingu að meðaltali 30 mínútur á
dag, óháð aldri, færni og heilsu.
Heildartímanum má skipta í nokk-
ur styttri tímabil yfir daginn, til
dæmis 10-15 mínútur í senn. Það
væri til dæmis hægt að nýta sér
morgunleikfimina á Rás 1 kl. 9:45
virka morgna.
Við miðlungserfiða hreyfingu
verða hjartsláttur og öndun held-
ur hraðari en venjulega, sem er
gott til að auka þol. Dæmi um
slíka hreyfingu er þegar gengið er
rösklega, hjólað, synt, gólf skúrað,
hengdur upp þvottur, garðvinna,
dansað og fleira.
Æfa jafnvægið
og minnka kyrrsetu
Til viðbótar við reglulega hreyf-
ingu er sérstaklega gagnlegt fyrir
eldra fólk að stunda styrktar-
þjálfun þar sem hægfara vöðva-
rýrnun á sér stað með hækkandi
aldri. Styrktarþjálfun viðheldur
hreyfifærni, stuðlar að auknu
gönguöryggi og minnkar fall-
hættu. Til að minnka fallhættu
þarf aukinn vöðvastyrk og sam-
hæfingu, æfa jafnvægið og
minnka kyrrsetu.
Hægt er að skoða myndbönd af
einföldum styrktaræfingum sem
gera má heima á Heilsuvera.is
eða fara í tækjasal. Með því að
hreyfa sig lengur eða af meiri
ákefð er mögulegt að bæta heils-
una enn frekar. Til viðbótar er
því æskilegt að eldra fólk stundi
erfiða hreyfingu að minnsta kosti
tvisvar í viku (20-30 mínútur í
senn).
Þeir sem ekki hafa stundað
hreyfingu lengi eða eiga erfitt
með hana einhverra hluta vegna
ættu að kynna sér möguleika
hreyfiseðilsins sem fá má hjá
heimilislækni eða leita ráðlegg-
inga hjá öðru fagfólki. Almennt er
mikilvægt að fara rólega af stað
og auka síðan smám saman við
álagið eftir því sem getan eykst.
Í mörgum bæjarfélögum er boð-
ið upp á leikfimi fyrir eldra fólk
og víða eru gönguhópar og sund-
tímar sérstaklega miðaðir fyrir
þennan aldurshóp auk þess sem
mörg íþróttahús eru opin til að
ganga í. Það er um að gera að
kynna sér hvað er í boði í þínu
nærumhverfi og koma sér í hóp-
inn. Ekki er verra að vera í góð-
um félagsskap og hlúa þannig
einnig að félagslegri virkni og vel-
líðan. Rétt er að minna á að við
vetraraðstæður geta hálkan og
snjórinn orðið varhugaverð og því
mikilvægt að huga að hálkuvörn-
um og réttum skóbúnaði.
Reglubundin hreyfing
hefur ótvíræða kosti
Morgunblaðið/Ómar
Gönguferð Ekki er verra að vera í góðum félagsskap og hlúa þannig einnig
að félagslegri virkni og vellíðan, segir Sigrún m.a. hér í greininni.
Heilsuráð
Sigrún K. Barkardóttir,
hjúkrunarfræðingur og
svæðisstjóri heimahjúkrunar
Heilsugæslu höfuðborg-
arsvæðsins í Hafnarfirði,
Garðabæ og Kópavogi
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Bryddað verður upp á mörgu
skemmtilegu á hátíðardagskrá sem
efnt verður til í Gamla bíói í Reykja-
vík á degi íslenskrar tungu, sem er
næstkomandi laugardag, 16. nóv-
ember. Áhrifavald íslenskunnar er yf-
irskrift samkomunnar þar sem fram
koma meðal annars listamenn og
áhrifavaldar sem beina athyglinni að
tungumálinu hver á sinn hátt. Þeir
eru Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Jak-
ob Birgisson, Hundur í óskilum, Vil-
helm Netó, GDRN, Auður og fulltrúi
Radda, lesari úr Stóru upplestr-
arkeppninni. Lilja Dögg Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráðherra,
afhendir Verðlaun Jónasar Hall-
grímssonar og Viðurkenningu dags
íslenskrar tungu. Húsið verður opn-
að kl. 15.00, dagskrá hefst 15.30 og
lýkur um kl. 16.30.
Mósaík og sjaldgæf orð
Frumsýnt verður myndbandsverkið
Mósaík íslenskunnar, þar sem 80
mælendur bera fram sjaldgæf ís-
lensk orð, og í anddyri Gamla bíós
verða gagnvirka sýningin Óravíddir
orðaforðans og Eldfjallasjá Veð-
urstofu Íslands sem varpar ljósi á
framlag náttúruskáldsins Jónasar
Hallgrímssonar til vísindanna. Söng-
hópur frá Listaháskóla Íslands stýrir
fjöldasöng og veggir verða skreyttir
túlkun grunnskólabarna á skemmti-
legum íslenskum orðum. Kl. 17.00
birtist síðan í myrkrinu glóandi orða-
listaverk á glerhjúpi Hörpu í tilefni
dagsins.
Samkoma í Borgarbókasafni
Í Borgarbókasafninu í Grófinni í
Reykjavík verður íslenskan svo í
brennidepli í dag, fimmtudag, kl. 17
á Café Lingua. Hvernig eru fyrstu
kynni af íslensku tungunni? Er málið
ástkært og ylhýrt eða kalt og erfitt?
Er íslenskunám stormasamt sam-
band við mál? Getur maður hætt
með tungumáli? Í tilefni af degi ís-
lenskrar tungu fær fólk að kynnast
tilfinningum sem tungan vekur hjá
þeim sem hafa hana ekki að móð-
urmáli.
Rithöfundarnir Elena Ilkova frá
Makedóníu, Ewa Marcinek frá Pól-
landi og Frakkinn Mazen Marouf,
sem öll eru búsett á Íslandi, lesa úr
eigin verkum. Rýmið verður skreytt
tilfinningatengdum orðum sem
gjörningalistakonan Juliette Louste
frá Frakklandi leikur sér með. Aust-
urríska listakonan Sonja Kovaceviæ
flytur verk um mátt málsins og áhrif
þess á sjálfsmynd.
Margt í boði á degi íslenskrar tungu
Listamenn, áhrifavaldar og óra-
víddir orðaforða tungumálsins
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dúett Félagarnir í Hundi í óskilum
hafa auðgað íslenskuna á ýmsa lund.
Jakob Birgisson GDRN
Nýverið var undirritaður samstarfs-
samningur milli skíðadeildar Tinda-
stóls í Skagafirði og bílaleigunnar
AVIS. Samkvæmt samningnum fær
skíðadeildin til umráða bíl frá AVIS,
fjármuni og hugsanlega fleira. „Við
leggjum til peninga, bíl, merkingar,
auglýsingar og fleira sem skíðadeild-
in getur nýtt sér. Við erum mjög stolt
og spennt fyrir þessu. Þetta er fyrsta
svæðið þar sem AVIS kemur að og er
ekki íþróttahöll eða fótbolta-
leikvangur,“ segir Axel en algengt er
að íþróttaleikvangar séu nefndir eftir
þeim er starf styrkja. Axel segir þetta
verkefni í samræmi við stefnu AVIS á
heimsvísu að styðja við samfélagsleg
verkefni svo sem íþróttastarf.
„Þetta er algerlega frábært fyrir
skíðadeildina og kannski fyrst og síð-
ast viðurkenning á því sem við höfum
verið að gera í gegnum þessi 20 ár
sem við erum búin að vera með þetta
svæði hér,“ segir Viggó Jónsson,
staðarhaldari í Tindastóli, en svo
heitir fjallið þar sem skíðasvæði
Skagafirðinga er skammt fyrir norð-
an Sauðárkrók.
Stuðningur Skíðamenn og fulltrúar
Avis handsala samninginn góða.
Bílaleiga styrkir skíðastarf í Skagafirði
Avis nemur land í Tindastóli