Morgunblaðið - 14.11.2019, Qupperneq 68
68 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
Stjarnan og Tindastóll eru bæði með
tíu stig, tveimur stigum minna en
topplið Keflavíkur, í Dominos-deild
karla í körfubolta eftir sigra í gær-
kvöldi.
Stjarnan hafði betur gegn Val eftir
æsispennu, 83:79. Stjarnan náði mest
22 stiga forskoti í fyrri hálfleik, en
Valsmenn neituðu að gefast upp og
komust yfir í fjórða og síðasta leik-
hlutanum. Stjörnumenn voru hins
vegar sterkari í blálokin. Tómas Þórð-
ur Hilmarsson og Nikolas Tomsick
skoruðu 19 stig hvor fyrir Stjörnuna.
Tindastóll var með yfirhöndina
gegn Haukum á heimavelli allan tím-
ann og vann 89:77-sigur. Mestur varð
munurinn sextán stig og voru Haukar
ekki líklegir til að jafna eftir það. Pét-
ur Rúnar Birgisson skoraði 21 stig
fyrir Tindastól.
Þór Þ. fór upp í átta stig með 83:79-
sigri á Grindavík á heimavelli í fram-
lengdum leik. Staðan eftir venjulegan
leiktíma var 71:71, en heimamenn
voru mun sterkari í framlengingunni
og náðu í stigin tvö.
Æsispenna í Garðabæ
Morgunblaðið/Hari
Stigahæstir Frank Aron Booker hjá Val og Tómas Þórður Hilmarsson, Stjörnunni, skoruðu mest sinna liða.
Stefánsson var næstur með sex
mörk eftir að hafa haft sig mikið í
frammi í síðari hálfleik. Dagur
Gautason var markahæstur hjá KA
með sjö mörk. Næstur var Patrek-
ur Stefánsson með fjögur mörk.
Hvorugt liðið fær sérstakt hrós
fyrir sóknarleikinn að þessu sinni.
Hann var lengi vel mistækur og á
tíðum talsvert stórkarlalegur í
bland við óttalegt hnoð.
Skarð var fyrir skildi í liði KA.
Áki Egilsnes meiddist á hné
snemma leiks við FH á sunnudag-
inn og var ekki leikfær að þessu
sinni. Dró það verulega úr skotógn
KA-manna enda hefur Áki verið
einn aðsópsmesti sóknarmaður
KA-liðsins. Róbert Aron Hostert
lék heldur ekki með Val vegna
meiðsla.
Morgunblaðið/Hari
Á Hlíðarenda Valsarinn Arnór Snær Óskarsson lætur vaða á mark KA í gær en KA-maðurinn Daði Jónsson reynir að koma í veg fyrir það.
Öruggur sigur Valsmanna
Fjórði sigur Vals í deildinni í röð KA-menn söknuðu Áka í sókninni Valur,
Selfoss og FH með jafnmörg stig Fyrsta tap KA í síðustu fjórum leikjum
Á HLÍÐARENDA
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Valur komst upp í fjórða til sjötta
sæti Olísdeildar karla í handknatt-
leik með 11 stig eins og Selfoss og
FH eftir öruggan átta marka sigur
á KA, 31:23, í upphafsleik tíundu
umferðar á Hlíðarenda í gær. Val-
ur var með tveggja marka forskot,
13:11, að loknum kaflaskiptum
fyrri hálfleik. Þetta var fjórði sigur
Vals í röð í deildinni en bæði lið
höfðu átt góðu gengi að fagna fyrir
leikinn í gærkvöldi. Valur unnið
þrjá leiki í röð og KA unnið tvær
viðureignir og gert eitt jafntefli.
Anton Rúnarsson skoraði sjö
mörk fyrir Val og Finnur Ingi
Sigvaldi Guðjónsson, landsliðs-
maður í handknattleik, fór hamförum í
gær og skoraði 18 mörk fyrir Elverum
þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik
norsku bikarkeppninnar með sigri á
Halden 32:29. Sigvaldi skoraði því
meira en helming marka Elverum.
Sveinn Aron Sveinsson, handknatt-
leiksmaður, sendi frá sér yfirlýsingu í
gær en hann var á dögunum dæmdur í
fangelsi fyrir líkamsárás. Í kjölfarið
rifti Valur samningi sínum við leik-
manninn. Segist hann meðal annars
„hafa sýnt óafsakanlegt dómgreind-
arleysi og ósæmilega hegðun,“ sem
hann hafi viðurkennt fyrir dómi. Yf-
irlýsinguna í heild sinni má sjá í frétt á
mbl.is/sport/handbolti frá því í gær.
Selfoss fékk
gífurlegan liðs-
styrk fyrir Íslands-
mótið í knatt-
spyrnu á næsta ári
þegar landsliðs-
konan Dagný
Brynjarsdóttir
samdi til tveggja
ára við sitt gamla
lið í gær. Ekki þarf að fjölyrða um
hversu góð viðbót Dagný verður við lið
bikarmeistaranna en sem dæmi má
nefna þá hefur hún orðið meistari í
tveimur af sterkustu deildum heims,
þeirri bandarísku og þeirri þýsku. Nán-
ar er fjallað um málið á mbl.is.
Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður
í handknattleik, var markahæstur hjá
Skjern með 7 mörk en það dugði ekki
til gegn meistaraliðinu Álaborg sem
vann 30:28 í Skjern. Janus Daði
Smárason skoraði tvö mörk fyrir
Skjern og lagði upp sjö en Ómar Ingi
Magnússon er ekki orðinn leikfær
vegna höfuðáverka. Björgvin Páll
Gústavsson varði átta skot hjá Skjern
og þar af þrjú víti. Forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannesson, var á meðal
áhorfenda en bróðir hans, Patrekur,
þjálfar Skjern.
Knattspyrnukonurnar Andrea
Magnúsdóttir og Rósa Pálsdóttir hafa
skrifað undir tveggja ára samninga við
Þrótt sem leikur í úrvalsdeildinni
næsta sumar eftir sigur. Andrea kem-
ur til Þróttar frá ÍA. Hún hefur skorað
33 mörk í 136 deildarleikjum með ÍA,
ÍR og Fjarðabyggð. Rósa kemur frá
Fjölni, en hún hefur skorað 15 mörk í
37 deildar- og bikarleikjum.
Davíð Tómas Tómasson dæmdi í
gær leik Phoenix Brussels og Donar
Groningen frá Hollandi en leikurinn fór
fram í Belgíu. Um var að ræða leik í H-
riðli Evrópubikarsins í körfuknattleik.
Rut Jónsdóttir, landsliðskona í
handknattleik og leikmaður danska
meistaraliðsins Esbjerg, leikur ekki
meira á þessu ári. Rut
hefur glímt við
meiðsli í fæti og í
samráði við félagið
hefur verið
ákveðið að
hún gangist
undir að-
gerð svo
hún geti
orðið leik-
fær eins
fljótt og hægt
er. Til stóð að
framkvæma
aðgerðina í gær.
Eitt
ogannað
Hlíðarendi, Olísdeild karla, mið-
vikudaginn 13. nóvember 2019.
Gangur leiksins: 2:1, 6:2, 7:3,
7:7, 10:8, 13:11, 15:13, 19:14,
19:15, 22:17, 26:21, 31:23.
Mörk Vals: Anton Rúnarsson 7/3,
Finnur Ingi Stefánsson 6/2,
Magnús Óli Magnússon 5, Stiven
Tobar Valencia 5, Ýmir Örn Gísla-
son 4, Agnar Smári Jónsson 2,
Alexander Örn Júlíusson 1, Þor-
gils Jón Svölu Baldursson 1.
Varin skot: Hreiðar Levý Guð-
mundsson 14/2, Daníel F. Andr-
ésson 8/1.
Valur – KA 31:23
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk KA: Dagur Gautason 7/1,
Daníel Matthíasson 4, Patrekur
Stefánsson 3, Andri Snær Stef-
ánsson 2/2, Jóhann Einarsson 2,
Daníel Griffin 2, Allan Nordberg
1, Jón Heiðar Sigurðsson 1, Sig-
þór Gunnar Jónsson 1.
Varin skot: Jovan Kukobat 12.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Sigurður Hjörtur Þrast-
arson og Svavar Ólafur Pét-
ursson.
Áhorfendur: 215.