Morgunblaðið - 14.11.2019, Side 72
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 2019
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
GOTT
VERÐ
ALLA DAGA
Kjóll
kr. 8.990
Gerið verðsamanburð
Fjórar sýningar verða opnaðar í
Listasafni Reykjanesbæjar í dag,
fimmtudag, klukkan 18. Sýningin
í aðalsal safnsins nefnist „Ágúst-
myndir Sept-
embermanna –
Myndir úr safni
Braga Guð-
laugssonar.“
Bragi, sem er
veggfóðrara-
meistari, hefur
um langt skeið
safnað lista-
verkum af mik-
illi ástríðu og er
með kunnustu söfnurum hér á
landi. Um árabil hefur hann verið
fastagestur á myndlistarsýn-
ingum, auk þess sem hann sækir
heim listamenn til að kaupa af
þeim myndir, skiptist á myndum
við aðra safnara og verslar að
auki við uppboðshús heima og er-
lendis. Í fórum hans er því að
finna mörg ágæt verk frá ýmsum
tímum. Heildstæðast er þó, sam-
kvæmt tilkynningu, safn hans af
verkum eftir íslenska listamenn á
tímabilinu 1930-1960, þegar
myndlistin í landinu stóð frammi
fyrir meiri breytingum en nokkru
sinni fyrr. Á sýningunni er úrval
úr þessu safni, nokkrar myndir,
aðallega olíumálverk, eftir þrett-
án listamenn sem endurspegla
mikið umbrotaskeið íslenskrar
myndlistar, þegar umfjöllun um
veruleikann er smátt og smátt að
víkja fyrir hugmyndinni um lista-
verkið sem sjálfstæðan veruleika.
Þarna er aðallega um að ræða
verkin sem kynslóð eftirstríðs-
áranna gerði í aðdraganda
myndlistarbyltingarinnar sem
kennd er við September-
sýningarnar 1947-52. Sýningar-
stjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.
Við sama tilefni verður opnuð
sýning Elvu Hreiðarsdóttur,
„För“, verk unnin með blandaðri
tækni og einþrykk. Þá verður
opnuð sýningin „Persónulegar
sögur“, ljósmyndir og vídeóverk
unnin af Venu Naskrecka og
Adam Calicki í tilefni pólskrar
menningarhátíðar í Reykjanesbæ.
Vena og Adam eru bæði frá Pól-
landi en eru nú búsett í Reykja-
nesbæ. Þá verða einnig sýnd verk
eftir Jönu Birtu Björnsdóttur.
Sýna úrval verka þrettán listamanna úr
viðamiklu safni Braga Guðlaugssonar
Sjómannadagur Verk eftir Valtý Pétursson
frá árinu 1948 í eigu Braga Guðlaugssonar.
Böðvar Páll Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
„Ég skrifaði söguna fyrst og
fremst mér til ánægju,“ segir
Þórarinn Örn Þórarinsson um
sína fyrstu skáldsögu, Raunveru-
legt líf Guðbjargar Tómasdóttur,
sem kom út nýverið. „Þetta er
ekki plottdrifin saga eins og
margir lesendur eru vanir heldur
eru þeir stoppaðir reglulega í sög-
unni.“
Sagan fjallar, eins og titillinn
gefur til kynna, um Guðbjörgu
Tómasdóttur og líf hennar. Hún
er fimmtíu og fimm ára gamalt
ljóðskáld og minnist ýmissa at-
burða í lífi sínu sem snerist að
miklu leyti um eiginmann hennar,
Ástþór.
„Mig langaði að segja söguna af
þessum manni, Ástþóri. Hann er
metnaðarfullur maður sem verður
fyrir vonbrigðum með það að
hann skuli ekki fá það sem hann
vill í lífinu og þegar hann fær það
sem hann vill verður hann einnig
fyrir vonbrigðum. Sagan varpar
ljósi á lífsgildi hans og hvert þau
leiða hann,“ segir Þórarinn.
Frá sjónarhorni
miðaldra konu
Þórarinn segist hafa velt fyrir
sér með hvaða hætti hann ætti að
segja söguna. Hann ákvað á end-
anum að segja hana frá sjónar-
horni Guðbjargar. „Þá kom nýr
og kannski óvanalegur vinkill á
söguna. Guðbjörg er þessi góð-
hjartaða kona, full af þolinmæði
og skilningi, og það mætti segja
að hún lifði lífi eiginmanns síns en
ekki sínu eigin.“
Þórarinn segir titil bókarinnar
endurspegla þetta. „Þetta er bilið
milli lífsins sem hún vill lifa, sem
ljóðskáld sem elskar manninn
sinn, og svo þessa lífs sem hún
raunverulega lifir í þessu hjóna-
bandi,“ segir hann en bendir á að
lesandanum sé eftirlátið að túlka
um hvað bókin fjallar og hvert
þema hennar er.
Aðspurður segir Þórarinn ekki
hafa verið erfitt að skrifa frá
sjónarhorni miðaldra konu og
endurminninga hennar. „Ég
reyndi að fara ekki út fyrir mörk
sem ég ræð við að skrifa um. Ég
er með konu sem er aðallega að
segja söguna af manninum sínum.
Hún er barnlaus og tiltölulega
einangruð frá vinkonum og einu
samskiptin eru við foreldra henn-
ar,“ segir hann.
„Bókin lýsir fólkinu í kringum
Guðbjörgu. Sagan er af þeim í
rauninni; foreldrum hennar,
manninum hennar og þráhyggju
hennar gagnvart Matthildi, kon-
unni sem hún er að fylgjast með,“
segir Þórarinn en sagan segir
meðal annars frá því þegar Guð-
björg kemst að framhjáhaldi Ást-
þórs og Matthildar, ungs háskóla-
nema, sem hún svo fylgist með í
laumi.
Lítið skrifað áður
Bókina skrifaði Þórarinn á ár-
unum 2017 og 2018. „Ég hafði
mikinn tíma til að skrifa á þessum
árum. Það er aðallega það sem
höfundar glíma við; tíminn sem
þú þarft,“ segir hann en vill ekki
meina að sagan hafi hvílt lengi á
sér heldur hafi hann einfaldlega
langað að segja hana.
Þá segist Þórarinn ekki hafa
stundað skrif af neinu viti áður.
„Ég hef lesið bækur og horft á
kvikmyndir og svona en ekki gef-
ið út ljóð, smásögur eða nokkuð
annað,“ segir hann og segist vel
sjá fyrir sér að halda áfram á
sömu braut.
Lifir þú þínu eigin lífi?
Fyrsta skáldsaga Þórarins Arnar Saga manns sögð frá
sjónarhorni konunnar hans Skrifaði söguna sér til ánægju
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Raunverulegt Þórarinn Örn Þráinsson segir ekki hafa verið erfitt að skrifa
frá sjónarhorni miðaldra konu og endurminninga hennar.
Sú var tíðin að fólk gekkkaupum og sölum og sjálf-sagt þótti að maður gæti áttmann. Sagan af Washing-
ton Black hefst á plantekru á eynni
Barbados þar sem þrælar búa við
hryllilegan kost. Ungum dreng,
George Washington Black, er kippt
út úr þessum harða heimi þegar
hann er gerður að aðstoðarmanni
bróður hús-
bóndans á
plantekrunni.
Bróðirinn er
ævintýra- og
uppfinninga-
maður, sem er
að bjástra við
að búa til loft-
far og milli
hans og
drengsins
skapast sér-
stakt samband. Ekki skemmir fyrir
að drengurinn er sérlega drátt-
hagur. Bróðirinn endar svo með því
að flýja með honum af eynni og þá
tekur við ævintýralegt ferðalag. En
þótt Washington Black sé orðinn
frjáls þarf hann alltaf að horfa sér
um öxl.
Í bókinni er því lýst hvernig það
er drengnum svo framandi að vera
eigin herra að honum er nánast
fyrirmunað að ná utan um þá hugs-
un að hann geti með einhverjum
hætti verið jafningi bróðurins.
Jafn átakanlegt er síðan þegar
söguhetjan hefur áttað sig á því að
sú hugsun er ekki fráleit og sér að
hann mun aldrei njóta sannmælis
eða viðurkenningar vegna þess
hvernig húðin á honum er á litinn.
Sagan af Washington Black er
frábærlega skrifuð og þýðing Ólafar
Pétursdóttur afbragð.
Í sögunni er dreginn fram tíðar-
andinn á fyrri hluta nítjándu aldar
þegar heimurinn var í mikilli deiglu,
stuðningur við þrælahald að byrja
að gliðna, landkönnuðir eru að kort-
leggja heiminn og fram eru að koma
sprotar þeirrar vísindabyltingar,
sem segja má að enn standi yfir.
Sagan er bráðskemmtileg og fjör-
leg með ýmsum óvæntum vending-
um. Washington Black mætir bæði
grimmd og hlýju. Höfundurinn hef-
ur gott og lævíst auga fyrir hinu
sögulega samhengi og leiðir lesand-
ann víða um heim, allt frá Barbados í
Vestur-Atlantshafi, til austur-
strandar Bandaríkjanna, Nova
Scotia, London og síðan Marokkó.
Mikið hefur verið látið með kana-
díska rithöfundinn Esi Edugyan.
Saga Washington Black er hennar
þriðja bók og kom út í fyrra. Hún
sýnir þar svo um munar hvað í hana
er spunnið og það er til fyrirmyndar
að bókin skuli koma út í íslenskri
þýðingu svo skömmu eftir útgáfuna
á frummálinu.
Ljósmynd/Wikipedia/Daniel Haras
Kanadísk Esi Edugyan höfundur.
Ævintýri
leysingja
Skáldsaga
Sagan af Washington Black
bbbbn
Eftir Esi Edugyan.
Ólöf Pétursdóttir þýddi. Mál og menn-
ing 2019. 408 bls. kilja.
KARL
BLÖNDAL
BÆKUR
Bragi Guðlaugsson