Morgunblaðið - 14.11.2019, Side 80

Morgunblaðið - 14.11.2019, Side 80
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 14. - 25. NÓVEMBER SIRIUS TRILLE 40 ljós L3,9 m. 2.195 kr. Nú 1.756 kr. TRUE BARBORÐ olíuborin eik, svartir fætur. 140x80 cm. 104.900 kr. Nú 83.900 kr. Bordstofudagar- 20-40% AF ÖLLUM BORÐSTOFUHÚSGÖGNUM & BORÐBÚNAÐI 20% AF JÓLAVÖRUM Bergljót Soffía Kristjánsdóttir heldur fyrirlestur í Þjóðminjasafni Ís- lands í dag kl. 12. Fyrst verður drepið á hvernig talað hefur verið um öldrun og elli fyrr og nú; vikið að lífseigum hugmyndum sem hafa verið uppi um ellina – og öldrun kvenna sérstaklega; minnst á hvenær rannsóknir á konum og elli hófust og hvernig þær hafa breytt sýn okkar á efnið en þá verður m.a. vitnað í Simone de Beauvoir. Að auki verður sótt til nokkurra femínista á þessari öld til að varpa ljósi á stöðu mála nú. Í framhaldinu verða tekin dæmi úr rit- um ýmissa íslenskra skáldkvenna sem gefa innsýn í hvernig ellin markar reynslu þeirra og kenndir. Afstaða skáldmæltra kvenna til öldrunar FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 318. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Mætir Ísland liði Ísraels, Rúmeníu eða Búlgaríu í undanúrslitum um- spils á Laugardalsvelli 26. mars? Og hver yrði þá mögulega and- stæðingur liðsins í úrslitaleik um sæti á Evrópumóti karla í fótbolta? Ítarlega fréttaskýringu um gang mála í undankeppni EM karla í knattspyrnu er að finna í blaðinu í dag. »66 Hvaða lið gætu verið á leiðinni í umspilið? ÍÞRÓTTIR MENNING Félagið Arfur Þorsteins frá Hamri stendur fyrir Þorsteinsvöku á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi í kvöld kl. 20. Flutt verða stutt ávörp og lesin valin ljóð skáldsins. Til máls taka: Guð- rún Nordal, Þórarinn Jónsson, Vig- dís Grímsdóttir, Theodór Þórðar- son, Ástráður Eysteinsson, Sigurbjörg Þrast- ardóttir, Valdi- mar Tómasson og Sigríður Margrét Guð- mundsdóttir. Dagskráin hefst kl. 20 og stendur í rúma klukkustund. Aðgangur er ókeypis. Þorsteinsvaka á Sögu- lofti Landnámsseturs Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ekki er langt síðan talað var um að allt væri fertugum fært en þegar rætt er við Gunnþórunni Björns- dóttur má segja að allt sé 100 ára fært. „Þetta eru eflaust flottu og sterku þingeysku genin,“ útskýrir afmælisbarn dagsins. Foreldrar hennar voru Rannveig Gunnarsdóttir frá Skógum í Öxar- firði og Björn Kristjánsson frá Vík- ingavatni. „Þetta voru tvö stórbýli en pabbi var kaupfélagsstjóri á Kópaskeri og þar ólst ég upp í fá- menninu þar til ég var 15 ára og fór að heiman í fyrsta sinn, í skóla á Laugarvatni. Ég var alin upp í þess- um samvinnuanda, pabbi var aðal- maðurinn á Kópaskeri og þegar eitt- hvað bjátaði á á kreppuárunum var leitað til hans. Stofnun samvinnu- félaganna bjargaði fólkinu.“ Rafmagn þykir eðlilegur hlutur en það breytti miklu á sínum tíma. „Ég man eftir því þegar frystihúsið var byggt og þýskur maður kom til þess að setja upp ljósavélar,“ rifjar Gunn- þórunn upp. „Það var bylting með rafmagninu og bara það að geta sett mat í frysti hafði mikil áhrif. Áður en rafmagnið kom vorum við með ljósa- lampa og við krakkarnir fægðum þá á hverjum föstudegi.“ Hún segist ekki hafa haldið í þann sið. „Ég á samt eitthvert silfur til þess að fægja stöku sinnum, en það er gam- an að rifja upp bernskuárin. Ég ólst upp við það að fara í alla vinnu, mjólkaði meðal annars geitur og sveið kindahausa.“ Flottur bílstjóri Hún segir það líka hafa verið ógleymanlega stund þegar útsend- ingar útvarps hófust 1930. „Allir þustu upp á loft og þar safnaðist fólkið fyrir framan viðtækið enda þótti það mikið undur að heyra í því. Það var ótrúlegt.“ Eiginmaður Gunnþórunnar var Bjarni Guðbjörnsson, bankastjóri og alþingismaður, sem lést 1999. Þau bjuggu í yfir 20 ár á Ísafirði og hún segist hafa sterkar taugar til Vest- fjarða. „Ég var á fullu með kven- félaginu á Ísafirði og söng í Sunnu- kórnum. Þarna átti ég góða vini og við vorum átta sem spiluðum reglu- lega saman brids.“ Fyrstu árin eftir að þau Bjarni giftu sig vann Gunnþórunn hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga en eftir að börnin þrjú fæddust var hún heimavinnandi. Hún var líka sjálf- boðaliði í kvennadeild Rauða kross- ins í 30 ár. „Það var skemmtilegur tími,“ segir hún. Lífsgleðin geislar af Gunnþór- unni. „Ég hef átt svo góða ævi, verið heilsuhraust og ferðast mikið auk þess sem ég hef upplifað mesta framfaraskeið Íslands. Það eina sem er að er að ég hef aðeins tapað sjón- inni og fyrir bragðið varð ég að hætta að keyra eftir að hafa verið flottur bílstjóri í 70 ár. Það var mikið áfall.“ Tvisvar í viku fer Gunnþórunn í Þorrasel, dagdvöl fyrir aldraða á Vesturgötu 7. „Ég hef spilað brids í áratugi en þar spilar enginn brids. Við spilum vist og það er betra en ekki neitt.“ Gunnþórunn býr í eigin íbúð og sér um sig sjálf. „Þú getur flett upp í mér endalaust,“ segir hún eftir að hafa fengið sér morgunkaffið. „Aðal- atriðið er að vera til og láta mér líða vel á eigin heimili. Krakkarnir ætla að halda upp á afmælið og það mæta örugglega mjög margir.“ Morgunblaðið/Hari Tímamót Gunnþórunn Björnsdóttir er 100 ára í dag og byrjar á því að fá sér gott kaffi með Mogganum. Þingeysku genin sterk  Gunnþórunn Björnsdóttir spræk á 100 ára afmælinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.