Morgunblaðið - 25.11.2019, Page 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2019
50 ára Sirrý ólst upp á
Sauðárkróki en býr á
Akureyri. Hún er skóla-
meistari Verkmennta-
skólans á Akureyri.
Maki: Atli Örn Snorra-
son, f. 1968, rafvirki.
Börn: Snorri Björn
Atlason,. f. 1993, Þórhildur Amalía Atla-
dóttir, f. 2002, og Arnþór Atli Atlason, f.
2004.
Foreldrar: Jón Dalmann Pétursson, f.
1942, fv. bílstjóri, bús. á Sauðárkróki, og
María Símonardóttir, f. 1944, fv. verka-
kona, bús. á Akranesi.
Sigríður Huld Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hlutirnir eru í góðu lagi þótt þeir
séu ekki alfullkomnir. Þú ert að ná áttum
hvað varðar þig sjálfa/n.
20. apríl - 20. maí
Naut Ef einhver vill létta undir með þér
skaltu þiggja það með þökkum. Einhver
rennir til þín hýru auga, horfðu á móti.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gleymdu því sem ekki gekk
upp hjá þér á síðasta ári. Horfðu bara
fram á veginn. Í lok árs færðu frábærar
fréttir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er hægt að gera sér daga-
mun án þess að setja sig í miklar skuldir.
Eitthvað skemmtilegt er fram undan í
vinahópnum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú verður að geta staðið við þau
loforð sem þú gefur. Haldir þú áfram að
bauka ein/n er hætta á að lítið verði úr
hlutunum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Auðvitað áttu að gleðjast yfir
þeim jákvæðu undirtektum sem ráða-
gerðir þínar fá. Það þarf sterk bein til að
þola góða daga.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu ekki liðna tíð standa í vegi fyr-
ir framtíð þinni. Gefðu þér tóm til þess
að svipta þreytunni burt. Líttu í eigin
barm eftir rifrildi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú stendur frammi fyrir
ákaflega erfiðri ákvörðun, en staðfesta
þín gerir allt auðveldara. Það er einhver
spenna í ástarsambandinu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ekki rétta leiðin til
þess að koma skoðunum sínum á fram-
færi að stilla öðrum upp við vegg og pré-
dika. Loksins nærðu endum saman
næstu mánaðamót.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stundum er allt í lagi að fara
eftir fyrstu tilfinningu þótt yfirleitt sé
skynsamlegt að tékka hana af til öryggis.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að gæta þín ef þú
vilt ekki að aðrir komist að leyndarmáli
þínu of snemma. Kauptu þér eitthvað fal-
legt í dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu græðgina ekki ná tökum á
þér því oft leiðir hún menn í glötun.
Haltu þínu striki og láttu neikvæðar
raddir ekki hafa áhrif á þig.
hafi og þar til hún tók við starfi sem
skólastjóri Snælandsskóla. Í ferða-
málafélaginu sá hún m.a. um ýmsa
viðburði fyrir ferðafólk sem heim-
sótti staðinn, fór í gönguferðir, hélt
sögustundir o.fl. Hanna var í sýslu-
nefnd V-Skaftfellinga og í ritsjórn
klaustri um skeið og hún barðist fyr-
ir uppbyggingu hjúkrunarheimilis
fyrir aldraða á Kirkjubæjarklaustri
og var fyrsti formður þeirrar stjórn-
ar. Hanna var einn af stofnendum
Ferðamálafélags Kirkjubæjar-
hrepps og sat í stjórn þess frá upp-
H
anna Sigríður Hjart-
ardóttir fæddist 25.
nóvember 1949 á
Herjólfsstöðum í
Álftaveri, V- Skaft.
og ólst þar upp við almenn sveita-
störf þar til hún fór í Kvennaskólann
í Reykjavík og síðan Kennaraskól-
ann. Hanna var skólastjóri Barna-
skóla Álftavershrepps 1968-1969 las
um leið utanskóla námsefni 1. og 2.
árgangs í Kennaraskóla Íslands.
Hún var í 3. og 4. bekk KÍ frá 1969-
1971 þar sem hún lauk kennaraprófi,
BEd. Hún lauk meistaraprófi í
stjórnun menntastofnana frá
menntavísindasviði HÍ árið 2002.
Hanna var kennari í Kirkjubæjar-
skóla 1971-1984, aðstoðarskólastjóri
þar 1984-1990 og skólastjóri 1990-
2000. Hún var skólastjóri Snælands-
skóla í Kópavogi 2000-2011 þegar
hún fór á eftirlaun. Eftir að hún fór á
eftirlaun fór hún að starfa við ytra
mat á grunnskólum fyrir hönd
menntamálaráðuneytis og Sam-
bands íslenska sveitarfélaga í hálfu
starfi, fyrst á vegum Námsmats-
stofnunar og frá 2015 hjá Mennta-
málastofnun.
Á árunum í Kirkjubæjarskóla
vann Hanna að félagsmálum kenn-
ara og stjórnenda og var m.a. for-
maður Skólastjórafélags Suðurlands
og í stjórn Skólastjórafélags Íslands.
Hún var formaður Skólastjórafélags
Íslands 2000-2006 og fyrsta konan
sem gegndi því starfi. Árið 1996 lauk
Hanna námi sem leiðsögumaður á
Suðurlandi og sinnti slíkum störfum
af og til þegar hún bjó á Kirkju-
bæjarklaustri.
Hanna var kosin oddviti/sveitar-
stjóri Kirkjubæjarhrepps 1982, þá
fyrsta konan sem gegndi því starfi
og jafnframt yngsti oddviti landsins
á þeim tíma. Hún gegndi því emb-
ætti til ársins 1990. Á þeim árum var
hún mjög virk í starfi sveitarfélaga á
Suðurlandi, m.a. sat hún í stjórn
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.
Hún ásamt fleirum stofnaði upplýs-
ingamiðstöð fyrir ferðafólk á Kirkju-
bæjarklaustri 1982, þá fyrstu á land-
inu. Hanna vann mörg sumur í
upplýsingamiðstöðinni.
Hanna var framkvæmdastjóri
Heilsugæslunnar á Kirkjubæjar-
Dynskóga, héraðsrits sem V-Skaft-
fellingar og Rangæingar hafa gefið
út um árabil. Hún var einnig frétta-
ritari Morgunblaðsins á Kirkju-
bæjarklaustri í nokkuð mörg ár.
Hún var virkur þátttakandi í
Kvenfélagi Kirkjubæjarhrepps og í
kirkjukór Prestsbakkakirkju. Hún
ásamt Eddu Erlendsdóttur var upp-
hafsmaður að árlegum kammertón-
leikum á Kirkjubæjarklaustri. „Tón-
list hefur loðað við fjölskylduna í yfir
eina öld. Afi var kirkjuorgelleikari,
amma var harmonikkuleikari, pabbi
var harmonikkuleikari og synirnir
allir þrír hafa verið meira og minna í
tónlist síðan á barnsaldri.
Áhugamál númer eitt er fjöl-
skyldan og þá ekki síst barnabörnin,
sonarsynirnir átta. Allt sem snýr að
menntamálum er mér einnig hug-
leikið og ég hef mikinn metnað fyrir
íslensku skólastarfi, ekki síst því
sem snýr að grunnskólum landsins.
Ég stunda golf, hef gaman af að
ferðast bæði innan lands og utan.“
Ýmiss konar hannyrðir, matargerð
og meðal annars bakstur eru líka
meðal áhugamála Hönnu. „Mér
Hanna S. Hjartardóttir, sérfræðingur og fyrrverandi skólastjóri – 70 ára
Jólin 2017 Hanna í jólabingói með öllum sonarsonunum.
Starfað við menntamál í hálfa öld
Hjónin Hanna og Vigfús á Tenerife fyrir hálfum mánuði.
30 ára Eygló Dís er
Vestmanneyingur en
býr í Digranesi í
Kópavogi. Hún var
leiðbeinandi á leik-
skólanum Lundi í
Kópavogi en er í fæð-
ingarorlofi.
Maki: Guðmundur Jóhannsson, f. 1973,
flugvirki.
Börn: Jóhann Dagur Guðmundsson, f.
2017, og Hrafntinna Guðmundsdóttir, f.
2019.
Móðir: Ásta Jóhannsdóttir, f. 1956,
vinnur á N1 í Vestmannaeyjum.
Eygló Dís Ástudóttir
Til hamingju með daginn
Kópavogur Hrafntinna Guðmunds-
dóttir fæddist 3. júlí 2019 kl. 23.35 á
Landspítalanum í Reykjavík. Hún vó
3.706 g og var 52 cm löng. Foreldrar
hennar eru Eygló Dís Ástudóttir og
Guðmundur Jóhannsson.
Nýr borgari
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
ICQC 2020-2022